25. september 2011 kl. 12:29
Útkall F2 Gulur; fjórhjólaslys við Flögufoss í
Breiðdal.
16. september 2011 kl. 06:20
Útkall F1 Rauður; bátur að sökkva í mynni
Seyðisfjarðar.
Kl. 08:36; aðgerðum lokið.
18. ágúst 2011 kl. 15:50
Útkall F2 Gulur; vantar tvo menn á bíl á
Vatnajökul.
Kl. 18:51; afturkallað, maður kominn í þyrlu.
23. júní 2011 kl. 01:31
Útkall F2 Gulur; leit í óbyggðum á Fljótsdalsheiði.
Kl. 01:42; afturkallað, maðurinn kominn fram, heill á húfi.
23. apríl 2011 kl. 12:41
Útkall F2 Gulur; Maður slasaður í Áreyjardal.
Kl. 15:38; afturkallað, aðgerðum lokið.
6. janúar 2011 kl. 21:49
Útkall F2 Gulur; þak að fjúka af húsi á Reyðarfirði.
20. desember 2010 kl. 19:19
Útkall F3 Grænn; draga bíl upp á Norðfjarðarvegi.
28. nóvember 2010 kl. 19:16
Útkall F2 Gulur; leit í óbyggðum.
Kl. 23:59; afturkallað, leit hætt.
30. maí 2010 kl. 21:36
Útkall F2 Gulur; leit að týndri manneskju í
Borgarfirði eystri.
Sveitin fór með 8 manns og fjórhjól og tók þátt í leitinni. Um sex
klukkustundum seinna gaf konan sig fram í gegnum talstöð en hún komst af
sjálfsdáðum í skálann í Breiðuvík.
14. mars 2010 kl. 04:38
Útkall F1 Rauður; maður í sjónum fyrir neðan
björgunarsveitarhúsið.
Talið að maður hefði farið í sjónum fyrir neðan björgunarsveitarhúsið. Eftir
leit í fjöru fannst maðurinn nokkru síðar, heilu á höldnu á þurru landi.
16. desember 2009 kl. 09:02
Útkall F1 Rauður; bátur fórst við Skrúð.
Nokkrir félagar fóru með Zodiac bátinn að Vattarnesi þar sem siglt var á
slysstað og leit gerð að sjómanni sem saknað var. Félaga mannsins hafði verið
bjargað úr björgunarbát trillunnar. Maðurinn fannst síðan um borð í trillunni
þegar hún hafði verið dregin inn til Fáskrúðsfjarðar en mikill straumur var á
slysstað og því ekki hægt að kafa um borð þar.
Veður var að öðru leyti mjög gott, þó straumur væri sterkur.
4. desember 2009 kl. 13:22
Útkall F2 Gulur; Sækja fótbrotna rjúpnaskyttu
fyrir ofan Eskifjörð, innan við gamla vatnsveituveginn.
Þrjár sveitir Landsbjargar (Ársól, Brimrún - Eskifirði, Gerpir - Neskaupstað)
fóru til móts við rjúpnaskyttuna, hlúðu að henni og báru hana til byggða. Þar
var skyttan flutt með sjúkrabíl á fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað og þaðan
með flugi til Akureyrar.
20. júní 2009 kl. 20:30
Útkall F2 Gulur; Sækja slasaðan vélsleðamann
úppá Brúðardalsheiði.
Gekk ágætlega að koma þeim slasaða í sjúkrabíl, alls komu um 25
björgunarsveitarmenn að aðgerðinni frá flestum sveitum í nágrenni Reyðarfjarðar.
4. janúar 2009 kl. 02:38
Útkall F1 rauður; Bíll út í smábátahöfnina.
1 í bílnum
1.nóvember 2008 kl. 14:43
Útkall F1 rauður; Umbeðið af svæðisstjórn > Barn
féll í klettum í Svínadal
6. október 2008 kl.12:33
Útkall F2 gulur; Umbeðið af tilkynningaskyldu
sjómanna > 6 tonna bátur vélarvana utan við Hólmanes. 1 maður um borð og
ekki í hættu.
29.ágúst 2008 kl. 11:03
Útkall F2 gulur; Leið að ferðamönnum við
Dyrfjöll. Sveitir í viðbragðsstöðu.
11:55 Afboðun; Ferðamenn
fundnir
20.júní 2008 kl. 23:57
Útkall F3 grænn; Vantar mannskap í að bera
sjúkling úr Geithúsárgili.
10.júní 2008 kl. 01:47
Útkall F3 grænn; Leið að Norðmönnum á
Snæfellssvæðinu. Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu.
08:28 Leit afturkölluð;
Feðgarnir fundnir heilir á húfi
29.mars 2008 kl. 17:24
Útkall F3 grænn; Aðstoð við 3 bíla fasta við
Biskupshlaup. Umbeðið af FML
1.janúar 2008 kl. 11:28
Útkall F2 gulur; Óveðursaðstoð, Þakplötur að
fjúka af gamla Grunnskólanum á Reyðarfirði
30.desember 2007 kl. 21:42
Útkall F2 gulur; Óveðursaðstoð, þak að fjúka á
Fáskrúðsfirði.
6.nóvember 2007 kl. 21:06
Útkall F2 gulur; Sveitin sett í viðbragðsstöðu
vegna flugvélar, Fokker 50, Flugfélags Íslands sem lenti á Egilsstaðarflugvelli
í kvöld með bilaðan hreyfil.
Lendingin gekk vel.
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item176163/
Afturkallað 21:18
10.október 2007 kl. 15:20
Útkall F3 grænn; Svæðisstjórn:
Fljótsdalslína farin út mæting strax í hús
Afturkallað 15:30
11.september 2007 kl. 17:13
Útkall F1 rauður; Maður með brjóstverk við Sómastaðatind
Tólf björgunarsveitarmenn klifu níu hundruð metra til að aðstoða hjartveikan
mann á Sómastaðatindi á Reyðarfirði í kvöld. Maðurinn, sem er á
sextugsaldri, var ásamt tveimur öðrum í fjallgöngu þegar hann fékk fyrir
hjartað. Mennirnir hringdu eftir hjálp um fimmleytið.
Björgunarsveitarmennirnir náðu tindinum í þann mund sem þyrla
Landhelgisgæslunnar bar að. Hún flutti manninn á sjúkrahús í Reykjavík. Hann
var með meðvitund. Allt að þrjátíu björgunarsveitarmenn frá Eskifirði,
Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði tóku þátt í aðgerðinni, segir Baldur Pálsson, í
svæðisstjórn björgunarsveita á Austurlandi. [www.ruv.is]
Afturkallað 19:59
5.ágúst 2007 kl. 18:06
Útkall F2 gulur; Leit að barni í Fellabæ, barnið fundið heilt á húfi 18:33
21.júlí 2007 kl. 23:00:42
Útkall F3 grænn; Leit að 9 ára strák, týndur
í 6 tíma frá Reyðarfirði. Fundinn áður en menn fóru úr húsi.
Afturkallað 23:18
5.janúar 2007 kl.00:00
Útkall F3 grænn; Fyrsta útkall ársins. Beiðni um að hefja eftirgrennslan í bænum
eftir unglingsstúlku sem ekkert hafði spurst til frá því um kl. 13 sama dag.
Fimm menn á tveimur bílum rúntuðu bæinn og um hálf tvö kom boð um að
leita Vattarnesskriður alveg inn að Fáskrúðsfirði, fóru sömu menn í
það. Stúlkan fundin heil á húfi, aðgerðum lokið kl. 03:53
18.12.2006 kl 22:59
Útkall F2 Gulur; Tilkynnt um menn í sjálfeldu uppi í þaki steypuskála
Álversins ú um 25m hæð. Fóru nokkri menn á svæðið með sigbúnað.
Mönnunum var náð niður með körfubíll Slökkviliðsins. aðgerðumn lokið kl
01:18
3.12.06 kl 09:43
Útkall F3 Grænn; Beiðni frá lögreglu að aðstoða bíl sem lent hafði
útaf á Fagradal vegna ísingar, engin slys á fólki, fóru 2 menn á Land
Rover, aðgerð lokið um kl 10:30
17.11.06 kl 10:00
Farið upp á Fagradal að sækja nokkra bíla sem skildir höfðu verið
eftir utanvegar í vonskuveðri kvöldi áður. Búið um kl 11:30
16.11.06 kl 21:30
Snjómokstursmaður á Fagradal hefur samband við sveitina og óskar eftir
aðstoð til byggða vegna blind bils. Farið á Land Rover upp á Fagradal.
Fundum einnig 2 útlendinga sem keyrt höfðu útaf við sýslumörk. Bíll
þeirra skilinn eftir og snjómokstursbílnum fylgt niður. Einnig aðstoðaðir
vegfarendur innanbæjar og í starfmannabúðunum á Haga. aðgerðum lokið um
kl. 02:30
12.11.06 kl 14:45
Vegfarandi setur sig í samband við sveitina þar sem hann hafði misst bíl sinn
útaf veginum við Valhöll og hafnað ofaní vatni ofan við veg. Reynt var að
spila hann upp en gekk erfiðlega sökum bilana í spili, þá var reynt að draga sem
gekk ferkar brösulega líka og var þá gripið til þess ráðs að hafa samband við
sveitina á Eskifirði, Brimrún til þess að spila bílinn upp. Það gekk betur
og bíllinn kominn á þurrt!
Aðgerð lokið 16:30
11.11.06
Haft var samband við sveitina um hádegisbilið í dag og við beðnir um að hefta
fok á fiskikari og öðru lauslegu við Sunnugerði, allt týnt saman og bundið
niður. Því næst var farin eftirlitsferð um bæinn og virtist allt vera í
lagi, enda síðasta helgi góður undirbúningur. Reyndar hafði hlerinn á
yfirfalli Andarpollsins farið á ferðina og var kominn niðurfyrir veg, hann
settur á sinn stað og gott farg ofaná hann svo hann færi ekki af stað aftur.
5.11.06
Sveitin var að störfum frá hádegi og fram eftir degi við að hefta fok á ýmsum
hlutum og vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum fyrir verra veður sem búist var við
seinna um daginn.
29.10.06 kl 21:53
Sveitinni barst beiðni rétt fyrir klukkan tíu nú í kvöld við að ná upp bíl
sem farið hafði útaf á Fagradal rétt ofan við Neðri-Launá. Vel gekk að ná
bílnum upp á veg og tók aðgerðin um 45 mínútur.
27.10.06 kl 15:11
Útkall F2 Gulur, Sveitin sett í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegs
flugslyss á Fljótsdalsheiði. Aðgerðum lokið um kl 15:30, þar sem
staðfest var að einungis var um að ræða flugvél í lágflugi.
25.10.06 kl 20:35
Klukkan 20:35 í kvöld voru björgunarsveitirnar Hérað, Ársól,
Brimrún og Gerpir kallaðar út til leitar að manni sem ætlaði akandi frá
Eskifirði til Mjóafjarðar. Lagði hann af stað frá Eskifirði klukkan 17:00 og var
farið að óttast um hann þegar hann skilaði sér ekki til Mjóafjarðar í tíma. Um
klukkan 20:30 sáu bændur í Mjóafirði ljós á heiðinni og fundu þeir manninn
heilan á húfi. Bíll hans var fastur á slóðanum til Mjóafjarðar og aðstoðuðu
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar við að ná bílnum upp en nokkur
ófærð var á svæðinu.(www.landsbjorg.is)
25.08.06 kl 22:00
Hafnarvörður hefur samband og tilkynnir um að Hollenska fluttningaskipið Aalsmeegrachtse
vélarvana út af Grímu. Umboðsmaður útgerðar óskar eftir að bátar séu
til taks, en lítil hætta var á ferðum, fóru fimm menn á bát sveitarinnar
og Gylfa SU og voru á staðnum uns bb. Hafbjörg kom á staðinn um kl 1:00
Komnir heim og búnir að ganga frá um kl 2:00
12.08.06 kl 22:18
Danskir Göngumenn í sjálfheldu og týndir í Breiðdal, Fóru 6 menn til
leitar, búið kl 06:30
7.08.06 kl 21:30
Týndur maður í Skaftafelli, óskað eftir Svæðistjórnarmanni, Eiður
fór og stjórnaði af stakri snild.
14.07.06 kl 09:43
Útkall F1 Rauður; Maður hrapaði við Lagarfossvirkjun, óskað eftir
sigmönnum, 2 menn fóru áleiðis á vettvang, en snéru við á Egilsstöðum
þar sem málið var leyst.
27.06.06 kl 13:53
Útkall F2 Gulur, Eitrun í sundlaug Eskifjarðar, Fóru 6 menn á 2 bílum,
búið um kl 18:00
12.06.06 kl 17:41
Útkall F2 Gulur, Zodiak Slöngubátur í Vandræðum við Seley. 1 maður um
borð og annar í eynni. fóru 4 menn og silgu frá Vattarnesi, búið um kl
21:00
22.05.06 kl 19:00
Sóttur bíll sem lent hafði útaf á Fagradal, búið um kl 20:00
20-21.05.06
Áframhaldandi leit að Pétri Þorvarðarsyni á Grímstaðafjöllum, fannst
hann á sunnudagskvöld.
14.05.06 kl 18:22
Týndur maður á Grímstaðafjöllum, leitin stóð yfir til 16.05.06 án
árangurs.
10.04.06 kl 18:14
Útkall F1 Rauður, Snjóflóð í Hoffellsdal Fáskrúðsfirði, einn maður
týndur, Maðurinn fannst látinn um kl 20:20, komnir heim um kl 22:00
04.04.06 kl 21:15
Dreginn upp fastur bíll við Geithúsará
01.04.06 kl 18:09
Vegfarandi hefur samband og þarfnast aðstoðar á Gamlaveginum neðan við
Seljateig, þegar björgunarsveitin kom á staðinn hafði komið önnur
bifreið á staðinn og var hún líka föst, báðir dregnir út á veg og
þeim veitt tiltal.
17.01.06 kl 10:35
Lögreglan hefur samband og óskar eftir að vegfarendur verði aðstoðaðir
á Fagradal vegna ófærðar.
28.12.05 kl 14:15
Vinnupallar utan á Melgerði 13 farnir að losna í roki, fóru 4 menn og
festu þá aftur, búðið kl.15:37
30.11.05 kl 13:48
Útkall F2 Gulur. Rjúpnaskyttta fótbrotin í Grænafelli við Reyðarfjörð.
Átta menn fóru á vettvang ásamt lögreglu, gekk vel að koma honum niður þrátt
fyrir snjó og mikið kjarr. Verkefni lokið kl 14:32
29.11.05 kl 13:24
Útkall F1 Rauður. Rjúpnaskytta fékk voðaskot í hendi inni á Svínadal.
Fimm menn fóru úr húsi kl 13:27, sjúklingurinn kominn í sjúkrabíl kl
13:41. Komnir í hús og verkefni lokið kl 14:05.
12.11.05 kl 02:27
Útkall F2 Gulur. Beiðni frá Lögreglu um að hefta fok á þakplötum á
byggingarsvæði við Stekkjarholt. Fóru 2 menn og leystu verkefnið lokið kl
03:41.
25.10.05 kl 20:52
Útkall F2 Gulur. Lögregla boðar eftirgrenslan eftir jeppabifreið sem ekki hafði spurst til
síðan um hádegi. Fóru 8 menn til leitar á 4 bílum og leituðu þeir Bæinn
á Reyðarfirði, Þórdalsheiði, Hallsteinsdal, Reyðarfjarðarströnd,
Fagradal og Mjóafjarðarheiði og urðu einskins vísari, Leit afturkölluð
kl. 22:52, þar sem bílinn hafði fundist. Síðasti hópur kominn í hús kl
23:14
12.09.05 kl 17:00
Lögreglan á Eskifirið hefur sambannd og biður um aðstoð við erlenda
ferðamenn á Mjóafjarðarheiði, sem lendt höfðu í vandræðum. Fóru tveir
menn á Land Rover, komnir í hús um kl:19:40
03.09.05 kl:03:36
Lögreglan á Eskifirði hefur samband og biður um aðstoð vegna manna sem
tekið höfðu bát trausta taki í höfninni og róið áleiðis suður fyrir
fjörð. Mönnunum komið í land og verkefninu lokið um kl: 04:30
03.07.05 kl 14:46
Lögreglan á Eskifirði hefur samband og biður um aðstoð við að hjálpa
fólki sem fast var á milli aurskriða við Grænafell við Fagradal. En
eftir nánari athugun var ákveðið að kalla frekar til Björgunarsveitir á
Héraði vegna hættu á fleiri aurskriðum og grjóthruni úr Grænafelli.
12.06.05 kl 16:40
Lögreglan hefur samband og biður um bát til að ferja sprengjusérfræðinga
Landhelgisgæslunnar um borð í bát sem fengið hafði tundurdufl í trollið.
Voru þeir ferjaðir út, en ekki gátu þeir gert duflið óvirkt um borð og því kom
báturinn að bryggju. Komnir til baka í hús kl 17:15
12.06.05 kl 15:34
Útkall F2 Gulur. Boð frá 112 um að kajakræðari sem ætlaði að róa frá Sandvík í Vöðlavík hafi
ekki komið fram á tilsettum tíma. 5 menn frá Ársól fóru af stað útí
Vöðlavík en maðurinn kom fram áður en þangað var komið. Ekkert amaði að
honum, hann hafði einungis beðið eftir suðurfallinu. Komnir í hús um kl
16:59 Aðrar sveitir á Austurlandi voru einnig kallaðar út til leitar.
13.05.05 kl 13:22
Útkall F2 Rauður. Danskur Drengur veikur inn í Grænafelli.
Sjúkraflutningamenn aðstoðaðir við að koma veikum dreng niður úr
Grænafellinu. Lokið kl 14:00.
29.12.04 kl 16:40
Vegfarandi kemur í hús sveitarinnar þar sem flugeldasala er í fullum
gangi og tilkynnir um bifreið sem lent hafði í vandræðum vegna hálku í
brekku nærri húsi sveitarinnar. Fóru tveir menn á Land Rover til aðstoðar,
gekk þetta allt fljótt fyrir sig og var aðgerðum lokið um klukkan 17:00.
25.12.04 kl 23:40
Vegfarandi á leið yfir Fagradal hringir og biður um aðstoð, en hann var
fastur í skafli við Grænafell. Fóru tveir menn á bíl sveitarinnar og aðstoðuðu
hann og fylgdu honum niður á Reyðarfjörð. Komnir í hús um kl 00:45
25.12.04 kl 15:55
Starfsmaður Símans hringir og biður um aðstoð við að komast út í Hólmaháls,
til að lagfæra útvarpssendi þar. Ferðin gekk vel enda veðrið gengið að
mestu niður og orðið nokkuð skaplegt. Komið til baka um kl 19:10
25.12.04 kl 11:45
Íbúðar eigandi á Tungumel hringir í formann og biður um að stoð við að hefta
fjúkandi járnplötur, sveitin kölluð út í gegnum neyðarlínu. Þegar komið
var á staðinn var eitthvað af plötum fokið, en gengið var frá því sem ekki var
fokið. Síðan var gengið um bæinn og týndar saman þær plötur sem
fundust en þær voru nokkrar. Aðgerðum lokið um kl 13:30
18.10.04 kl 15:30
Önnur boðun frá Neyðarlínu en nú var um leit að ræða á Fagradal, af tveimur
mönnum á bláum jeppa sem ekki höfðu skilað sér til Egilsstaða frá Reyðarfirði á
tilætluðum tíma um morguninn. Farið var af stað á einum bíl í mjög sæmu
veðri og mikilli ófærð. Snúið var við þegar mennirnir fundust, en það voru
félagar í Bjsv Hérað sem komu að þeim, þar sem þeir biðu í bíl sínum. Ekkert
amaði að þeim. Ferðin til baka sóttist seint og sátu okkar menn fastir í einhvern tíma á milli snjóflóða í Grænafelli og var farið á öðrum bíl frá
Reyðarfirði til aðstoðar, ásamt því sem kallaður var út bíll frá Bjsv. Brimrún á
Eskifirði. Gekk vel að losa bílinn enda var veður heldur farið að lægja,
og vorum við komnir í hús um kl 20:30.
18.10.04 kl 10:33
Boðun frá Neyðarlínu um aðstoð á Fagradal vegna ófærðar og óveðurs, sendir af
stað 2 bílar og fjórir menn. Keyrt upp í Mýrarbotna og snúið þar við eftir
að hafa aðstoðað nokkra bíla og eina gröfu sem var föst í litlu snjóflóði í
Grænafelli. Komnir í hús um kl 14:00.
12.02.04 kl 23:00
Boðun frá neyðarlínu um leit í óbyggðum. Fólk taldi sig hafa séð neyðarblys á
lofti suðvestur af Kárahnjúkum í átt að Grágæsadal. Farið var á svæðið á
5 sleðum og einum bíl frá bjsv. Hérað, einum bíl frá bjsv. Ársól og einum bíl frá
bjsv. Brimrún. Þrátt fyrir að farið hafi verið um stórt svæði á sleðum og
bílum, þá fundust engin merki þess að nein umferð hafi verið á svæðinu.
Leit hætt um kl. 06:00. Komnir í hús kl 08:30
11.02.04 kl 19:22
Haft samband við sveitina og beðið um aðstoð við að moka snjó sem fennt hafði
inn á þak í óveðri síðustu helgar. Snjórinn var farinn að bráðna og leka
niður í íbúðina. Búið um kl 22:00
08.02.04 kl. 11:00
Beiðni barst frá tryggingafélagi um aðstoð við að ná í bíl som
oltið hafði utan við bæinn. Að því loknu voru vegfarendur í bænum
aðstoðaðir við að komast leiðar sinnar. Um kl. 12:00 barst beiðni frá
íbúa um aðstoð við snjómokstur þar sem töluvert magn af snjó hafði
skafið inn á háaloft hússins. Fóru 10 manns og sinntu þessu verkefni sem
gekk nokkuð vel og var lokið um kl. 18:00.
07.02.04 kl. 04:00
Í dag stóð sveitin í ströngu vegna óveðurs. Meðal verkefna dagsins
voru að aka fólki heim af skemmtistöðum bæjarins, aðstoð vegna bílveltu,
eftirgrenslan eftir bíl á Fagradal, koma starfsmönnum Ístaks til og frá
vinnu, aðstoða vegfarendur og aðstoð við olíafgreiðslu á skip sem var í
höfn. Verkefnum lokið um kl 24:00.
14.12.03 kl. 19:43
Tilkynning barst frá lögreglu um neyðarflugeld við Mýrarbotna og Biskupshlaup á Fagradal, en við nánari athugun reyndist þetta að öllum
líkindum vera stjörnuhrap. Komnir í hús rúmlega 21.
20.10.03 kl. 17:10
Hringt í formann af vegfaranda og beðið um aðstoð við vélarvana
bát úti á Reyðarfirði rétt fyrir utan Framnes, hafði hann orðið
eldsneytislaus og var að reyna róa í land. Sóttur og dregin inn að bryggju.
komnir í hús kl 17:55
12.10.03 kl. 00:30
Aðstoðað við að binda skip við bryggju sem hafði losnað í veðurofsa.
Einnig litið eftir smábátum í smábátahöfninni. Komnir í hús um 01:50
eftir miðnætti.
28.09.03 kl. 14:05
Hringt og beðið um aðstoð við vélavana bát úti við Handarhald í
Reyðarfirði, en þegar út var komið hafði eiganda bátsins tekist að koma
honum í gang, því var siglt til baka og gengið frá.
27.09.03 kl.14:10
Hringt og beðið um aðstoð við að draga vélarvana jeppa inn
á Þórudalsheiði. Gekk vel að draga þrátt fyrir smá snjó. Komnir
í hús um 15:30
01.09.03 kl. 19:00
Haft samband frá lögreglu og við beðnir um að leita að manni sem
ætlaði að ganga yfir Þórudalsheiði, en hafði ekki skilað sér fram á
tilsettum tíma. Farið á Landrover yfir Þórudalsheiði og þaðan upp á
Stafsheiði og yfir í Norðurárdal þar sem við mættum félögum í Bjsv.
Einingu á Breiðdalsvík en þeir höfðu einnig verið að svipast um eftir
sama manni. Stuttu seinna kom boð frá lögreglu að maðurinn væri komin fram
í Breiðdal.
16.08.03 kl. 17:40
Hringt og beðið um aðstoð vegna bílfestu inn í Skógdal. Var hann
fastur á steini úti í miðri á. gekk vel að losa. komnir til baka um
kl 20:00
23.04.03 kl. 20:20
Sóttur bátur sem losnað hafði frá bryggju og rekið inn í fjörð.
Búnir um kl. 21:10
19.04.03 kl. 18:55
Hringt af vegfaranda og beðið um aðstoð inn á Þórudalsheiði, vegna
bíls sem var fastur utan vegar. Hafði hann ætlað að keyra fram hjá
snjóskafli en sat fastur í drullu. Gáfum við honum ávítur fyrir
utanvegaaksturinn. komnir í hús um kl. 21:00
18.02.03 kl. 04:21
Sveitin var kölluð út til aðstoðar vegna veðurofsa á
Seyðisfirði. Gluggar voru brotnir og þök farin að losna og
fjúka. Verkinu lauk um 09:00
21.01.03 kl.16:12
Sveitin kölluð út til Seyðisfjarðar þar sem að skipverjinn á Jónu
Eðvalds skilaði sér ekki um borð á tilsettum tíma. Sveitin var svo
fengin til áframhaldandi leitar daginn eftir.
12.10.02 kl. 00:30
Sveitin kölluð út vegna Þinganes sf. var að slitna frá bryggju á
Reyðarfirði. Farið var til að hjálpa skipverjum að festa skipið
betur. Einnig var litið á hvort að smábátarnir væru enn vel
fastir. Verkinu lokið 01:50
12.05.02 kl 12:40
Lögreglan á
Fáskrúðsfirði hringir og biður um að svipast verði um eftir bíl sem fór
frá Egilsstöðum kvöldið áður, og var á leið til Hafnar í Hornafirði.
Veður var slæmt og hálka á vegum og bíllinn ekki búinn vetrardekkjum.
Farið á Landrover og keyrt yfir Fagradal,en þar keyrðum við fram á
bílaleigubíl fastan fyrir utan veg og í honum voru 3 útlendigar.
Dróum við bílin upp og keyrðum hann í Egilsstaði þar sem þeir treystu
sér ekki til þess. Komum við hjá Bjsv Hérað á Egilsstöðum, og
síðan haldið áfram inn Skriðdal og þaðan inn á Öxi þar sem bíllinn
fannst fastur í skafli um kl 15:10. Bíllinn dregin upp og honum fylgt
til Egilsstaða. Þaðan var farið yfir Fjarðarheiði til
Seyðisfjarðar með mann sem komst ekki yfir, enda heiðin ófær og og veður
mjög slæmt. Komnir á Seyðisfjörð um kl 17:00. Komnir til
baka á Reyðarfjörð um kl 20:00
07.05.02 kl 17:10
Beðið um aðstoð vegna bíls sem var fastur og útaf veginum
yfir á Mjóafjörð. Var farið á Landrover og bíllin dregin upp.
Komnir til baka um kl 20:22
23.02.02 kl 01:20
Lögreglan á Eskifirði biður aðstoð björgunarsveitar
vegna rútu sem föst er á Fagradal. Farið á þremur bílum kl 01:30 og
farþegar hennar sóttir en rútan skilin eftir. Mjög slæmt veður.
Aðgerðum lokið kl 02:57
22.02.02 kl 09:15
Sveitin sett í viðbragðstöðu vegna tveggja
manna á bíl sem var á leiðinni frá Höfn í Hornafirði til Egilsstaða.
Veður var mjög slæmt og síðast hafði frést af þeim í Lóni um kl eitt
eftir miðnætti. Stóð til að senda sveitina út í Vattanesskriður en
afboðun kom áður en af stað var haldið. Björgunarsveitin Eining á
Breiðdalsvík fann bílinn ásamt mönnunum inn við Breiðdalsheiði, fastan
í skafli.
|