
Þú ert ekki einn heldur þrír menn:
Sá sem þú heldur sjálfur að þú sért
Sá sem aðrir halda að þú sért
Og sá sem þú ert í raun og veru.
Hví ekki að reyna að kynnast honum ?
Ef til vill myndi það gerbreyta lífi þínu.
SKRIFAÐ Í STEIN
Sagan segir að tveir vinir hafi gengið í eyðimörk. Á leiðinni fóru
þeir að rífast, og annar vinurinn gaf hinum létt á kjammann. Honum
sárnaði, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn; " Í DAG
GAF BESTI VINUR MINN MÉR, EINN Á ´ANN!" Þeir gengu áfram þangað til
þeir komu að vatnslind og þar fóru þeir út í. Vinurinn sem hafði orðið
fyrir hinum áður var nærri druknaður, en var bjargað af vini sínum.
Þegar hann hafði jafnað sig , risti hann í stein; "Í DAG BJARGAÐI
BESTI VINUR MINN MÉR FRÁ DRUKNUN". Vinurinn sem bæði hafði veitt
honum tiltal og bjargað honum spurði: "Þegar ég sló þig, skrifaðir þú
í sandinn, og núna skrifar þú í steininn. "Af hverju?" Hann svaraði:
Þegar einhver gerir þér eitthvað illt áttu að skrifa það í sandinn,
þar sem vindur fyrirgefningar getur eytt því. En þegar einhver gerir
þér eitthvað gott þá áttu að grafa það í stein þar sem enginn getur
eytt því. "LÆRÐU AÐ SKRIFA SÁRINDI ÞÍN Í SANDINN OG GRAFA HAMINGJU
ÞÍNA Í STEIN"! Það er sagt að það taki mann eina mínútu að hitta
sérstaka manneskju, einn tíma að kunna að meta hana, einn dag að elska
hana, en HEILA ævi að gleyma henni
"GEFÐU ÞÉR TÍMA TIL AÐ LIFA - OG EIGÐU GÓÐAN DAG!"
Aðhafstu ekkert þegar þú ert í vafa.
Þegar þú ert í vafa skaltu vera hljóður og bíða átekta.
Þegar þú efast ekki lengur skaltu halda áfram óttalaus.
Meðan þú ert í þokunni skaltu vara hljóður.
Vertu hljóður þangað til sólin skín aftur gegnum þokuna,
eins og hún mun örugglega gera.
Þá skaltu hugrakkur hefjast handa.