Capitol K - Island Row 8,5/10
Diskurinn
"Island Row" með Capitol K er diskur sem ég gróf upp eftir að hafa
átt hann í 5 mánuði án þess eitt að fatta það að hlusta á hann. Ég
setti hann í og hlustaði og það kom mér á óvart
hversu ótrúlega góður diskur þetta er. Kristian Craig Robinson eða
"Capitol K" eins og hann kallar sig, semur öll lögin á þessari
plötu fyrir utan lagið "Duffle Coat" sem hann samdi með John
Burton. Kristian var fæddur í Möltu en ólst upp í South East Asia. Á
unglingsárum sínum gerði hann mikið af því að spila í hrákaldslegum
pönkböndum og samdi mikið á kassagítarinn sinn sem hann tók svo upp á
diktafón. Þegar komið var að núinu byrjaði hann meira að leika sér með
elektrónísk hljóðfæri og tölvudót. Á tónleikum fær Kristian ýmist
vini sína og aðra hljóðfæraleikara til þess að hjálpa sér að
framkvæma öll þessi mögnuðu lög og þessi mögnuðu hljóð.
Diskurinn Island Row var gefinn út árið 2002 af "XL recordings". Hérna kemur smá smotterí um diskinn:
Lagið "City" er 1. lag plötunnar og er mjög gott. Samansett af gítareffectum, syntum, trommubíti og allskonar elektrónískum nótum sem skoppa fram og aftur. . .
Pillow - Er alveg mitt uppáhaldslag en það lag fylgir fast á eftir laginu City. Byrjar með léttum takti og svo byrjar svona hress kassagítar. Svo heyrist Kristian sjálfur syngja háum tónum sem er alveg mjög kúl . . .
Anon er lag sem er í alvalegri kantinum en er samt ágætt . . . Söngur Kristian's er einmitt mjög áberandi og góður í þessu lagi
Soundwaves - Já það er svona lala lag sko . . . eiginlega mest bara hljóðpælingar og rólegur taktur undir . . .sem er alveg kúl . .
Capitol Beat Sticky - Er svaka töff lag . .. Mikið af afturábak pælingum og svona . .
Okei ég fer kannski ekki að telja upp hvert og eitt einasta lag en restin af disknum eru lögin . .
Darussalam, God Ohm, Breakers, Heat, Monster og Duffle Coat .. .
Og þótt ég skrifi ekki um þessi þá eru þau samt frábær . . . Mín uppáhalds af þessum disk eru lögin: "Pillow" ,"Darrussalam" og "Duffle Coat". . .
Þessi diskur kemur eitthvað svo nýr og ferskur í mann. Frábærar pælingar og elektrónísk mögnunarárátta . . . . Capitol K var einmitt að gefa út nýjan disk sem kallast "Happy, happy" . . . ég ætla sko að næla mér í þann fjanda . . .
Ég er hérna með 2 lög af Capitol K disknum sem ég mæli með að þið hlustið á: