Godspeed you black emperor - f#a# (infinity symbol) - 7/10

Diskurinn f#a# (infinity symbol) er frumraun hljómsveitarinnar Godspeed you black emperor og var gefinn út 9. Júní 1998 af Kranky records. Diskurinn er 65 mínútur í heild og inniheldur 3 lög. Nema hvað að þessi 3 lög eru skipt í marga hluta.

Þegar ég keypti diskinn fyrst í fyrradag og hlustaði á hann þá kom þessi diskur mér á óvart. Ég hlustaði meira að segja á hann aftur strax eftir fyrstu hlustun til þess að átta mig á honum. Fyrsta lagið "dead flag blues" er góð byrjun á disknum. Þar sem einskonar ljóð er lesið af karlmanni ofan í ambient hljóð og drungalega hljóma. Lagið seitlar svo áfram og maður heyrir svo strengjahljóðfærin sem eru vel notuð á þessari plötu.

Lag 2 "East hasting" byrjar mjög vel. Allskonar hljóð af hægfara lestum og suði blandast hægt og hægt við melódíuna sem myndast best í partinum "deadflagblues (reprise)" þá er lagið komið á gott skrið. Á um það bil 17 mínútu lagsinns byrjar seinni partur lagsinns að fade-ast yfir í suð og óhljóð sem pirraði mig svoltið. . . .

Lag 3 "Providence" byrjar þar sem tveir menn eru að talast á:

"d'you think the end of the world is coming?
the preacher man says it's the end of time...he says that america's rivers are going dry. the interest is up, the stock market's down. you guys have to be careful walking around here this late at night...this...this is the perfect place to get jumped.

but d'you think the end of the world is coming?

no. so says the preacher man but...i don't go by what he says. "

Á meðan samtalið stendur yfir og eftir það seiða drungalegir hljómar hugann í þessu lagi. Þegar nokkrar mínútur eru liðnar byrjar lagið að komast á ágætt skrið og slagverk og allur pakkinn kemur skemmtilega inní, frábær melódíski parturinn sem kallast "kicking horse on broken hill". Svo fade-ast lagið smátt og smátt út með lágum hljóðum. . .

5 mínútum eftir endinn á lagi 3 kemur að manni skyndilegt og óvænt leynilag. Byrjar á ambient hljómi sem hljóðar líkt og synth eða eitthvað álíka. Hápunktur þessa leynilags er þegar trommur koma dúndrandi inní. Tveir trommuslættir sem eru í mismunanndi takti við hvorn annan.

Til að vera hreinskilinn þá fannst mér þessi plata mun lélegri við fyrstu hlustun heldur en við fimmtu hlustun . . hehe . . .

Já hún leynir á sér þessi plata og ég er búinn að átta mig á því að eftir nokkrar hlustanir stendur maður uppí með fína plötu. Godspeed eru alveg snillingar í melódíum. Ég hlakka til að grípa mér annað eintak með þessari stórgóðu hljómsveit . . 

Doddi . . .

Þriðjudagur 4.maí 2004.