The Notwist - Neon Golden 8/10

Plata vikunnar er platan "Neon Golden" sem er verk þýsku hljómsveitarinnar Notwist. Að mínu mati er þetta frábær plata sem býður þér upp á margt. Það var í raun ekki fyrr en í annað skiptið sem ég hlustaði á þessa plötu sem ég fattaði hversu góð hún er.

Notwist var formlega stofnuð í Munich 1989 og var þá heavy-metal band. Fyrstu tvær plötur þeirra sem hétu "Notwist" 1989 og "Nook" 1992 voru báðar punk-metal LP plötur. Það var ekki fyrr en á 3 plötu þeirra "12" sem bandið formaðist af elektrónískum indie blæ samansettur af hljómborði, trommuheilum og seiðandi söngs Marcus Acher.
Fjórði diskur þeirra sem var á svipuðu formi og "12" kom út 1998 og bar nafnið "Shrink".

"Neon Golden" var gefin út í febrúar 2003 og varð þá 5 breiðskífa bandsinns. Þessi plata er blanda af allskonar hljóðfærum . Elektrónískum að mestu leyti þó. Svosem, hljómborð, synthar, trommuheilar. Og svo rennur inn á milli fallegra tónanna þessi ljúfa og rólega rödd söngvaranns. Ég alveg hreint dýrka þetta stykki . . .

Hérna eru tvö lög með hljómsveitinni Notwist af plötunni Neon Golden . . .Endilega látið mig vita ef þið eigið í erfiðleikum með að hlusta á þau . . . :)

1.One step inside dosn't mean you understand
2.Pilot

Doddi....

Fimmtudagur 29.apríl 2004