Tónlistarmaður
mánaðarinns. . . !!!
Tónlistarmaður vikunnar er maður að nafni Patrick Park sem helfur nýlega
grafið sér leið á yfirborðið með heillandi tónlist sinni. Patrick Park
spilar nýlendu-jaðar tónlist í anda Bob dylan og Ellioth Smith. Platan hans
"Loneliness
knows my name" sem kom út seint á síðasta ári er gefin út af
Hollywood records.
Árið 2000 var Patrick kominn með fullt af lögum í kladdann hjá sér og
vildi fara að taka upp. Vegna peningaskorts átti hann ekki fyrir því að
fara í stúdíó. En hann lét það ekki stoppa sig og tók upp í bakherbergi
í búð sem kærasta vinar hans vann í. Þegar hann lauk við upptökurnar stóð
hann uppi með heilan disk af lögum sem hann vissi ekkert hvað hann átti að
gera við.
“I really didn’t have anybody to give it to; I didn’t know anybody. It
kind of took on a life of its own, fortunately.”
Nokkrum mánuðum seinna á indí tónleikum rakst Patrick á producerinn Dave
Trumfio. Patrick vissi að Dave hafði unnið með nokkrum af upprísandi hljómsveitum
og spjallaði við hann.
“ I knew that he had done the last Wilco record [Summerteeth], so I handed
him the demo’s and asked him to listen and call me back if he wanted. I
figured I’d never hear from him again, but he called me the next day and asked
if I had more songs. I said yeah. He said, ‘Let’s make a record.’”
Patrick og Dave unnu lengi vel hörðum höndum að plötu Patricks í Eagle
Rock stúdíóinu og fengu til sín marga utanaðkomandi tónlistarmenn sem
heilluðust af innblástri Patricks og vildu endilega spila með á plötunni.
Álit Patricks á Dave hækkaði mjög mikið í gegnum upptökur á plötuni.
"Hann er listamaður í hljóðmannsformi" sagði Patrick og sagði
einnig "Það er ekkert mál að taka upp lög á kasettu, en það að
taka upp disk með manni sem getur skilið tilfinningu og tjáningu disksinns í
heild er frábært".
Patrick hellti sér útí upptökur á plötunni sinni og á meðan höfðu
allskonar tímarit uppgötvað "The Basement Tapes" eða þar að
segja upptökurnar sem hann tók upp allrafyrst og þeim líkaði mjög vel.

Það var svo seint á árinu 2003 sem "Loneliness knows my name" kom
út. Plötunni var tekið mjög vel af gagnrýnendum og tímaritum. Patrick Park
hefur verið að spila með hljómsveitum á borð við "The polyphonic
spree, Grandaddy og My morning Jacket".
Leiðinlega við þetta er það að diskurinn hans selst ekki á Íslandi en það
er auðveldlega hægt að panta hann í gegnum netið . ..
Annars mæli ég bara með síðu þessa frábæra manns . . .
www.patrickpark.net