![]() |
Heimasíða Jóns Árna Vilmundarsonar | ![]() |
|||||||||||||||||||||
|
er hægt að sækja frítt á heimasíðu Brother´s Keeper með því að klikka á nafnið í bláa reitnum hér til vinstri eða klikka á þessa setnigu:"Download FULL program BKSETUP6.EXE (plus all languages mentioned above, 15 megs) version 6.1.6. - 30 - Aug -2002", forritið er um 15 megabæt og er á 15 tungumálum, ensku, norsku, belgíu-frönsku, kanada-frönsku, hollensku, belgíu-hollensku, þýsku, dönsku, íslensku, tékknesku, slóvakísku, sænsku, finnsku, tékknesku, rússnesku og afríkönsku. Forritið rúmar 10 miljón einstaklinga. Ný útgáfa er komin 6.1.33. okt. 2004. Við uppsetningu á forritinu kemur fyrst upp gluggi þar sem hægt er að velja tungumál við uppsetninguna (einfaldast að nota ensku við það), eftir það kemur gluggi þar sem hægt er að velja tungumál fyrir forritið og þar er hægt að velja ásamt enskunni eitt eða öll tungumálin (gert með músinni). Brother's Keeper er “Shareware” ættfræðiforrit skrifað af John Steed (Shareware þýðir forrit sem má prófa áður en það er keypt), þú getur notað það frítt og skráð inn í það heilu ættirnar, en ef þú vilt nota það til frambúðar með öllum möguleikum, t.d. með myndum og mismunandi útprentunum (fyrir ættarmótin) o.fl., þarft þú að láta skrá það. Skráningin innifelur að hægt er að nýta alla möguleika forritsins, en það er fyrst hægt þegar búið er að skrá það með því að borga höfundinum, John Steed USD 45 (t.d. með kredit korti). Þegar þú gerist áskrifandi að forritinu með því að senda höfundinum $45 greiðslu (í eitt skipt fyrir öll), þá færðu skráningar númer og lykilorð frá höfundinum. Þegar þú færð skráningar númer, þá geturðu farið í aðalskjáinn í Brother's Keeper fyrir Windows og valið Hjálp, og valið síðan Skrá skráningar númer. Skrifaðu þá skráningar númer, lykilorð og nafn þitt. Þetta gerir alla möguleika forritsins virka og neðst á aðalskjánum kemur fram að þú sért að keyra skráða útgáfu forritsins. Þegar þú lætur einhverja aðra hafa forritið, máttu láta þá fá BKSETUP.EXE skrána og BKSETUP.W02 skrána, en ekki láta þá fá skráningar númerið eða lykilorðið. Seinna geta þeir fengið valgreiðslu (Shareware) útgáfu forritsins. Forritið er með GEDCOM inn og útgang, þannig að hægt er að flytja inn eða út gagnaskrár úr öðrum Windows ættfræði forritum. Einnig er hægt að fá nýjustu útgáfu forritsins á geisladiski frá mér með leiðbeiningum um uppsetningu o.fl., en án skráningar númers og lykilorðs, lykilorðið þarf að fá hjá John Steed. Í stuttu máli sagt er forritið að mínu mati mjög gott. Ég tilbúinn að gefa allar upplýsingar um forritið. Tölvan fyrir Brother’s Keeper 6 þarf að vera Pentium 233 Mhz með innra minni 70 Mb og með nægjanlegt pláss á C drifinu. Brother’s Keeper 6 forritið gengur á eftirfarandi stýrikerfum: Windows NT 4 Windows XP Windows 2000 Windows ME Windows 95/98 Brother’s Keeper 6.1 (BK6), er 32-bita forrit fyrir Windows 95/98/ME/2000/XP eða Windows NT4., en BK5 var 16-bita forrit sem var upprunalega skrifað þannig að það var hægt að nota það með Windows 3.1 og 3.11. Þess vegna þurftu meðal annars skráa nöfn að fylgja WIN 3.1 og DOS reglunum (8+3).Í bláa reitnum er tilvísun á Námur Salomons, frábæra heimasíðu frænda míns og vinar sem hefur hjálpað mér að komast af stað með heimasíðuna. Seinna set ég ef til vill fleiri tilvísanir á uppáhalds síður þar. Stjörnufræði er frábært forrit sem hægt er skoða frítt í 15 daga. Hægt er að senda mér tölvupóst og fá nánari upplýsingar: netfangið jarni@isholf.is JÁV. |
||||||||||||||||||||||
| Brother´s
Keeper
Stjörnufræði frá Space.com
|
|||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||