Söngtextasafn Jómma

Afrit vefsins !
29.09.2009
Á vef Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns er nú unnt að nálgast afrit af
söngtextasafninu frá 22. apríl 2009.
Sjá á slóðinni:
http://wayback.vefsafn.is/wayback/20090422214917/http://frontpage.simnet.is/jommi/
Sjá að öðru leyti skýringar hér að neðan.
Vefurinn hættir !
06.07.2009
Það var um mitt ár 2002 sem mér datt í hug að prófa að setja nokkra söngtexta
með gítargripum, sem ég átti í fórum mínum, á veraldarvefinn til að leyfa öðrum
að njóta. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar hvað varðar tækni og
framsetningu vefja af þessu tagi, en þessi vefur hefur ekki fylgt þeirra þróun.
Um mitt ár 2006 hætti ég í raun að uppfæra vefinn og með tilkynningunni
hér á undan, frá 17.12.2006, gaf ég í skyn að ég myndi líklega ekki uppfæra
vefinn frekar. Ég ákvað þó að hafa hann opinn eitthvað áfram til að gefa
notendum tækifæri á að nýta sér efnið.
Ég hef nú ákveðið að hætta með vefinn, a.m.k. að sinni, enda gott aðgengi
orðið að öðrum textavefjum, bæði innlendum og erlendum, sem margir hverjir eru
mun fullkomnari hvað tækni og framsetningu varðar. Þar má t.d. nefna
gagnvirkni, en notendur geta skráð sig inn á þessa vefi, bætt sjálfir
við textum með gítarhljómum og búið til sínar eigin söngbækur svo eitthvað
sé nefnt. Í því sambandi vil ég t.d. nefna vefinn
Gitargrip.is sem m.a.
hefur samið við STEF um greiðslur á höfundarréttargjöldum fyrir notkun söngtexta
sem er að finna á þeirri síðu.
Ég vil að lokum nota tækifærið og þakka notendum Söngtextasafnsins
fyrir samstarfið í gegnum tíðina og þá ekki síst þeim sem sent hafa mér efni, ábendingar og/eða
leiðréttingar í gegnum tíðina.
Kær kveðja,
Jómmi
Prófið
Gitargrip.is

17.12.2006
Eins og notendur síðunnar hafa orðið varir við
hef ég ekki bætt neinu efni við síðan í júní.
Ég hef verið á báðum áttum með hvort ég haldi
þessu eitthvað áfram ekki, en ákvað þrátt fyrir
þessa leti mína, að láta síðuna standa óbreytta,
heldur en að loka henni, a.m.k. fyrst um sinn.
Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla, og
gleðilegs nýs árs um leið og ég þakka öllum þeim
sem sent hafa mér efni, ábendingar og eða
leiðréttingar, á árinu sem er að líða.
Jómmi
 |
|
|
|

|