|
C Em Am
Á kaupmanninn rétt við búðarborðið
Dm G7 C G7
svo brosfögur horfði Stína:
C Em Am
„Ég ætlaði bara að kaupa klæði
Dm G7 C
í kjól á brúðuna mína.”
C Em Am
„Og hvaða lit viltu,” ljúfur sagði’ hann,
Dm G7 C G7
„á litlu brúðuna þína?”
C Em Am
„Hvað, auðvitað rauðan, já ósköp rauðan!”
Dm G7 C
með ákafa sagði hún Stína.
C Em Am
Hann brosandi fór og klippti klæðið.
Dm G7 C G7
„Hvað kostar það?” spurði Stína.
C Em Am
„Einn koss,” hann svaraði, „kostar línið
Dm G7 C
í kjól á brúðuna þína.”
C Em Am
Í búðinni glumdi við gleðihlátur
Dm G7 C G7
er glaðlega sagði Stína:
C Em Am
„Hún mamma kemur í bæinn bráðum
Dm G7 C
og borgar þá skuldina mína.” |