|
E7
Am
E
Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.
Dm E7
Am
Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.
E7
Am
E
Einir fara og aðrir koma í dag,
Dm
E7
því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.
E7
Am
A7
Dm
Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá,
G
G7
F E
en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða.
Am
Dm
Og sumum liggur reiðinnar ósköp á,
Am
E
E7 Am
en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða.
E7
Am
E
En það er margt um manninn á svona stað,
Dm
E7
Am
og meðal gestanna er sífelldur þys og læti.
E7
Am
E
Allt lendir í stöðugri keppni um að koma sér að
Dm
E7
og krækja sér í nógu þægilegt sæti.
E7
Am
A7
Dm
En þó eru sumir, sem láta sér lynda það
G G7
F E
að lifa út í horni, óáreittir og spakir,
Am
Dm
því það er svo misjafnt, sem mennirnir leita að,
Am E
E7 Am
og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir.
E7
Am
E
En mörgum finnst finnst hún dýr þessi hóteldvöl,
Dm E7
Am
þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða.
E7
Am
E
En við, sem ferðumst, eigum ei annars völ.
Dm
E7
Það er ekki um fleiri gististaði að ræða.
E7
Am A7
E7
Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn,
G
G7
F E
og viðbúnaður, er gestirnir koma í bæinn,
Am
Dm
og margir í alsnægtum una þar fyrst um sinn.
Am E
E7 am
En áhyggjan vex, er menn nálgast burtferðardaginn.
E7
Am
E
Þá streymir sú hugsun um oss sem Ískaldur foss,
Dm
E7
Am
að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss,
E7
Am
E
er dauðinn, sá mikli rukkari, réttir oss
Dm
E7
reikninginn yfir það sem var skrifað hjá oss.
E7
Am A7
Dm
Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur gefst
G G7
F E
né færi á að ráðstafa nokkru betur.
Am
Dm
Því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst,
Am
E
E7 Am
í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur. |