Til baka í efnisyfirlit

 

Í sal hans hátignar

Lag og texti: Enskt þjóðlag / Jónas Árnason

 
 
 


Intro: G - Am - G - E      C  - D  - G


G               Em         C        D           C         A             D
Í sal Hans hátignar konan kom, en konan eitthvað domm var.
                                G        Em      A7               D7
Þá tók Hann stóra flösku fram, í flösku þeirri romm var.
      G         Em               Am           D              G              Em             C      D
Og konan gladdist, og kóngsins drykk hún kurteis að vörum sér bar.
        G                Am          Bm          Em      G          Am       Bm  Em
Svo bauð Hann henni að breskum sið að bragða hjá sér viskíið
      G           Am   G Bm  E7                  Am   D        G     Em
en hellti þó sérríi saman við því Hann séntilmaður var,
           Am   D                   G
því að séntilmaður Hann var.


Hann bauð henni sæti við borð úr eik og breskum réttum hlaðið.

Já, þar var bæði beikon og egg og blessað marmelaðið.

Og konan gladdist, og gleypti fljótt, þær gómsætu kærsingar,

því rétt, sem aðrir íslenskir hún aldrei hafði neitt, bragðað fyrr

nema gellur og hausa og graðhestaskyr eða grásleppur kasúldnar.

Slíkt er talið þjóðlegt þar.

 

Af víni konan var orðin ör og augun tekin að glansa.

Þá bukkaði kóngur og beygði sig og bauð henni upp í dansa.

Og konan með brosi því boði tók og blævænginn sundur dró.

Og út á gólfið þau liðu létt í Loðvíks 14. menúett

og konan var orðin svo kókókett að í kóngi hjartað sló

Troppó forte, allegrettó.

 

Og nóttin kom og konan sig klæddi hægt og seint úr,

en reyndar þó hún furðu fljótt var farin alveg hreint úr.

Og kóngur í hjartanu fögnuð fann og firðing hér og þar

því brjóst hennar voru býsna stór og barmurinn reis eins og ólgusjór

en sjálfur úr engu samt Hann fór, því Hann séntilmaður var,

því að séntilmaður Hann var.

 

 
 
 

Gítargripin
 
 

Ef þú sérð villur í textanum, eða átt texta sem ekki eru til í safninu, svo ég tali ekki um gítargrip við textann, þá máttu gjarnan senda mér upplýsingar um það. jommi@simnet.is