|
G
D
Ég er kokkur á kútter frá Sandi
G
Ég fæ kjaftshögg hvern einasta dag.
Bm
Og ekki líður mér betur í landi,
A
A7 D D7
ef ég lendi við konu í slag.
G
D
Hún er tvígild að afli hún Tóta
G
og ég tal ekki um sé hún reið,
E
A
enda tek ég þá fljótast til fóta,
Am
D7 G
því að flótti er sú einasta leið.
G
D
Ég var ungur er Tóta mig tældi,
G
okkar trúlofun samstundis birt.
Bm
Og í hjónaband þvínæst mér þvældi,
A A7
D D7
það var óveðursblandið og stirt.
G
D
Því þegar frá leið hljóp fjandinn í svínið
G
og er fædd voru ellefu börn,
E
A
þá var búið með gaman og grínið
Am
D7 G
þá var grátur mín einasta vörn.
G
D
Því á kvöldin er kjaftshöggin dundu,
G
svo í kjammana báða mig sveið.
Bm
Og tárin af hvörmum mér hrundu,
A
A7 D
D7
þegar hræddur undir rúmið ég skreið.
G
D
Já, þá skemmti hún sér skjátan sú arna,
G
er hún skammirnar dynja á mér lét,
E
A
meðan hrímdi ég hundflatur þarna,
Am
D7 G
og hreyfði mig ekki um fet.
G
D
En á kútternum allir sig krossa,
G
ef ég kem fram með viðbrenndan graut.
Bm
Og skipstjórans blástjörnur blossa
A
A7
D
meðan bölvar hann rétt eins og naut.
G
D
Og ef kjötsúpan virðist með kekkjum
G
eða kjötbollan reynist of hrá,
E
A
þeir kenna slíkt helvítis hrekkjum
Am
D7
G
svo hefst skemmtunin vöngum mér á.
G
D
Ef ég lifað fæ lengur en Tóta,
G
er hún leggur á eilífa braut,
Bm
skal ég dansa og dagana njóta
A
A7 D
og elda dýrindis rúsínugraut.
G
D
En mig hryllir ef hittumst við aftur
G
er ég héðan af jörðinni fer,
E
A
nema einhver mér ókunnur kraftur
Am
D7 G
komi óðar og liðsinni mér. |