|
C
Em
Ég finn það gegnum svefninn, að einhver læðist inn
F
G C
Am
með eldhúslampann sinn, og veit að það er konan,
Dm G7
C
sem kyndir ofninn minn,
G
C
sem út með ösku fer og eld að spónum ber
G7
og yljar upp hjá mér,
C
Am
Dm G C
læðist út úr stofunni og lokar á eftir sér.
C
Em
Ég veit, að hún á sorgir, en segir aldrei neitt
F G
C
Am
þó sé hún dauðaþreytt, hendur hennar sótugar
Dm G7 C
og hári illa greitt.
G
C
Hún fer að engu óð, er öllum mönnum góð
G7
og vinnur verk sín hljóð.
C
Am Dm G7
C
Sumir skrifa í öskuna öll sín bestu ljóð.
C
Em
Ég veit að þessi kona er vinafá og snauð
F
G C
Am
af veraldlegum auð, að launin sem hún fær
Dm G7
C
eru last og daglegt brauð.
G
C
En oftast er það sá, sem allir kvelja smá
G7
sem mest af mildi á.
C
Am
Dm G7 C
Fáir njóta eldanna sem fyrstir kveikja þá.
|