|
Dm C
Tjúra-lúra-ligga-lobb ! Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb,
Dm
A7
er ég fór á sjó með Sigga Nobb og Sigga Jóns og Steina !
Dm C
Tjúra-lúra-ligga-lobb ! Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb,
Dm
A7 Dm
er ég fór á sjó með Sigga Nobb og Sigga Jóns og Steina !
Dm C
Genginn var á Gerpisflak sprotafiskur með sporðablak
Dm
A7
og okkur langaði út á skak ekki er því að leyna.
Dm C
Ég segi alveg satt frá því, að komist við höfðum aldrei í
Dm
A7 Dm
annað eins feikna fiskerí; frá því skal nú greina.
Dm
C
Hann stökk á krókana rið í rið og gaf okkur aldrei grunnmáltíð.
Dm
A7
Já handóður, bandóður var hann við og veitti ei miskunn neina.
Dm
C
Í hverjum drætti strollan stóð, og vaðbeygjur sungu af vígamóð,
Dm
A7 Dm
og seinast var skipshöfnin orðin óð ekki er því að leyna.
Dm C
Tjúra-lúra-ligga-lobb ! Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb…..
Dm C
Lestin var full og lúkarinn, og bísna siginn var báturinn,
Dm
A7
þegar við héldum aftur inn; ekki er því að leyna,
Dm C
Hann gerði hvassa austanátt og þá var öldunum dillað dátt,
Dm
A7 Dm
og uppi þær höfðu gaman grátt og gáfu ei miskun neina.
Dm C
En þetta fór þó þannig að við náðum landi á Neskaupstað.
Dm
A7
En slembilukka þótti það; því er ekki að leyna.
Dm C
Menn gláptu á okkur gáttaðir; þeir höfðu ekki séð slíka hleðslu
fyrr,
Dm A7 Dm
Að við værum allir vitlausir vildu sumir meina.
Dm C
Tjúra-lúra-ligga-lobb ! Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb,
Dm
A7
er ég fór á sjó með Sigga Nobb og Sigga Jóns og Steina !
Dm C
Tjúra-lúra-ligga-lobb ! Ja, - þvílíkt og annað eins riggarobb,
Dm
A7 Dm
er ég fór á sjó með Sigga Nobb og Sigga Jóns og Steina ! |