|
G
C
G
C
Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur,
G C
G
er gleðin skín á vonarhýrri brá ?
C G C
G
Eins og á vori laufi skrýðist lundur,
D7
G
lifnar og glæðist hugarkætin þá;
E
Am
og meðan þrúgna gullnu tárin glóa
F C
G C G
og guðaveigar lífga sálarhyl,
C F
C
þá er það víst, að bestu blómin gróa
F
C
D7 G C
G
í brjóstum, sem að geta fundið til.
C
G
C
Það er svo tæpt að trúa heimsins glaumi,
G C
G
því táradöggvar falla stundum skjótt,
C G
C
G
og vinir berast burt á tímans straumi,
D7
G
og blómin fölna’ á einni hélunótt.
E
Am
Því er oss best að forðast raup og reiði
F C
G
C G
og rjúfa hvergi tryggð né vinarkoss;
C F
C
en ef við sjáum sólskinsblett í heiði,
F C
D7 G
C G
að setjast allir þar og gleðja oss.
C G
C
Látum því, vinir, vínið andann hressa,
G C
G
og vonarstundu köllum þennan dag,
C G C
G
og gesti vora biðjum guð að blessa
D7
G
og best að snúa öllum þeirra hag;
E
Am
því meðan þrúgna gullnu tárin glóa
F C
G C G
og guðaveigar lífga sálarhyl,
C F
C
þá er það víst, að bestu blómin gróa
F
C D7
G C
í brjóstum sem að geta fundið til. |