Núna er kl.   

 

 

 

Katrín

Krækjur

Gestabók

Gamalt

Símblogg

Óskalisti

 

 

 

 

Frá byrjun

 

Weblog Commenting by HaloScan.com

 

   

 

19.maí

Vildi bara láta ykkur vita...

... að ég er loksins loksins loksins búin að koma katosk.com á netið og ég er komin með nýtt e-mail af því að ég fékk ógeð á meilinu hérna á kollegi-inu :) ég er meira að segja að spá í að setja myndir þangað á eftir :) Setti þetta hérna líka svona af því að ég veit að það eru einhverjir sem kíkja ennþá á þessa síðu :)

 

 katosk | 14:47

5.maí

Bilað bilað bilað og flutt

o.k. þessi fokkíng síða er ekki að gera neitt neitt þannig að ég fékk mér bara bloggsíðu eins og allir hinir þangað til ég hef tíma til að gera draumasíðuna :)  Þannig að ef þú nennir að lesa ruglið í mér kíktu þá hingað á KATRÍN BAULAR

 

 katosk | 21:18

23.apríl

Gleðilegt Sumar!!

Já Gleðilegt Sumar til ykkar allra!! Ég ætlaði nú að skrifa þetta í gær en það var eitthvað svo mikið að gera hjá mér í gær ég fór á húsráðsfund í Jónshúsi þar sem þeir sem nota húsið settust niður ásamt Karli (man ekki hvers son) en hann er frá Alþingi og svo var þarna líka Þorsteinn Pálsson sendiherra en hann kom seint og sagði ekki neitt þannig að ætli hann eigi bara ekki að mæta á þessi fundi svona sem skylda nú við fengum pönnsur með sykri og pönnsur með rjóma og kleinur þannig að maður hélt svona smá upp á sumardaginn fyrsta :)

 

  katosk | 15:00

19.apríl

Jahaáá

Vá ef ég hefði sleppt tíu dögum í viðbót þá væru engin skrif í mánuð vá :)  Ástæðan fyrir engum skrifum á þessaða blessuðu síðu er að ég er orðin hundleið á henni og langar að fara að gera nýja en fyrst verð ég að klára lokaverkefni fyrir þessa önn í skólanum og svo get ég farið að byja á minni :) en ég skal nú samt reyna svona öðru hvoru að setja eitthvað smá hérna ég lofa :) well skrifa meira síðar, hef ekkert merkilegt að segja núna.

 

  katosk | 18:39

 

29.mars

Seinheppin Smith

Ohhhh ég er svooooo seinheppin að það er ótrúlegt, ég í góðmennsku minni ákvað að senda mail á þá sem voru í afmælinu hjá Baldri á laugardaginn með myndum sem ég var búin að henda voða fínt upp í Powerpoint svona af því að ég er búin að nota allt speisið mitt hérna á þessari síðu og get eiginlega ekki sett inn fleiri myndir nema hvað að ég spáði ekkert í hvað þetta var stórt mail fyrr en ég var búin að ýta á send og viti menn ég er búin að loka á meilið hjá öllum hérna á kollegi-inu :( hve seinheppin getur ein manneskja verið??  Nema hvað þið sem þetta lesið og hafið fengið meilið nú eða ekki þá biðst ég afsökunar en ef þið viljið þá get ég sent ykkur video sem virkar víst ekki í þessu slideshowi en ég sendi bara þeim sem vilja og þeir sem vilja þá er það bara 2mb :)  Það var samt ferlega gaman í afmælinu og að sjálfsögðu fór Blacklight á kostum enda ekki við öðru að búast þegar ég, Einar, Jonni og Kalli komum saman híhíhí hérna eru myndir af bandinu í aksjon :)

 

 

  katosk | 23:47

25.mars

Svooo þreytt

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér síðustu daga að ég er eiginlega bara að drepast úr þreytu :( maður er búinn að vera í skólanum frameftir degi alla vikuna þar sem það eru verkefnaskil á morgun svo er nottulega vinnan og vinnan á barnum svo eru búnir að vera fundir hér og þar sem ég hef þurft að fara á og svo hafa öll kvöld farið í æfingar með Blacklight (hljómsveitinni) þar sem við erum að fara að spila í afmæli á laugardaginn :) þannig að ég vona að tryggir lesendur fyrigefi leti í skriftum :)

 

  katosk | 23:56

21.mars

Afmæl'ída

Hún Margrét Allý á afmæli í dag og er orðin 1.árs :) Tíminn er heldur betur fljótur að líða :) Hérna er mynd af dömunni að blása fyrsta kertið :) Annars er ég að drepast úr kulda :(  Það var svo gott veður um daginn að ég ákvað að slökkva á öllum ofnum og núna er ég með kveikt á fullt af kertum alveg að drepast úr kulda :(

 

  katosk | 17:54

20.mars

Eurovision

Ég sá Eurovisionlagið áðan og ég fékk gæsahúð þegar Jónsi fór upp á háu tónana

 

  katosk | 03:29

19.mars

Ekki alveg sátt við þetta hmmm.....

Er ekki soldið syfjaspell í þessu eða er til JD sr. or JD jr.?? Sko ef ég geri bara Katrín Ósk þá er Celine Dion mamma mín þannig að either way er söngkona mamma mín :) sátt við það en ekki alveg með bróður og kærasta :(  Endilega segið mér hvað þið fáið í kommentakerfið :)

Who is in your celebrity family? by cerulean_dreams
User Name
MomCher
DadChristopher Walken
BrotherJohnny Depp
SisterLucy Lui
DogBeethoven
BoyfriendJohnny Depp
Best friendEnya
Created with quill18's MemeGen 3.0!

 

  katosk | 18:54

18.mars

Ben Stiller vs. Snæbjörn frændi

Við fórum á Along came Polly áðan og dísuss kræst hvað hann Snæbjörn frændi er líkur Ben Stiller ég gjörsemlega andaðist úr hlátri þegar hann fór að dansa salsa ég sver það að þó svo að Snæbjörn sé ljóshærður þá eru þeir eins.  Næst þegar ég verð með partý þá ætla ég að hafa salsa þema og skora hann á að læra dansinn sem Ben tekur í myndinni hehehe ;)

 

  katosk | 00:30

16.mars

Ofninn minn

Ég keypti mér ofn um daginn á 449 DKr eftir að Bjarki og Rakel sögðu mér að þeir væru algjör snilld þessir ofnar.  Ég er búin að elda mér kjúklingalasagne í honum og núna er ég að prufa að baka bananabrauð og mmmm það bara lyktar alveg ágætlega hérna í íbúðinni hjá mér:) Af hverju í ósköpunum datt mér ekki í hug fyrir langa löngu síðan að kaupa mér svona??

 

  katosk | 18:33

Endalausar e-mail addressur

Úff hvað maður á margar e-mail addressur það er ekki skrítið að fólk sé endalaust að gera grín af öllum þessum addressum mínum þessa dagana á ég katosk@kagsaa.dk, katosk@simnet.is, katoskein@hotmail.com, kaein@edu.kts.dk, katrin@jonar.is og katosk@yahoo.com og ég hef örugglega stofnað fleiri addressur einhvers staðar en ég veit ekkert um þær þá lengur hvað þá passwordin að þeim hehe en allavega með þessum upplýsingum ættuð þið nú að geta náð í mig auðveldlega því ég er tölvunörd híhíhí

 

  katosk | 17:38

15.mars

Vélritunarpróf

Datt inn á þetta vélritunarpróf á netinu og fékk þessar niðurstöður "Your speed was 52 WPM with 1 mistake (adjusted speed 51 WPM)  ætli það sé góður eða slæmur árángur?? Ég ætla að prufa aftur á morgun og sjá hvort mér gangi betur þá :) 

Það er ferlega fyndið stundum að fara á netið og lenda á einhverju á netinu þar sem er verið að tala um einhvern sem maður þekkir eins og t.d. þetta "Hann Jónas vann svo mikið fyrir Betware í Danmörku að ég gat aldrei hitt hann, kannski hefði eitthvað orðið út okkur tveim ef hann hefði ekki alltaf verið út í Danmörku að vinna og auðvitað fann hann þar íslenska stelpu sem hann gerði ólétta og eru þau nú voða happy í fokking Danmörk" hehe dauðlangaði að segja henni þessari að hún ætti bara að vera fegin (nú verð ég drepin fyrir að skrifa þetta), ekki það að þetta hefði alveg eins getað verið skrifað af mér þegar ég var í mega ástarsorg eftir að hann dömpaði mér ég meina kommon hver er svona vitlaus að dömpa mér svona frábærri eins og ég er hehehe segir sú sem nær sér ekki í karlmann ;) Dísess það mætti halda að ég væri eitthvað desperate :)

 

  katosk | 01:37

14.mars

Komin í samband við umheiminn :)

Jebbs mín er loksins loksins loksins komin í samband :) Þetta er búinn að vera erfiður tími að vera svona netlaus.  Ekki það að ég hafi verið góður penni fyrir en svei mér þá ég held að ég sé búin að gleyma hvernig á að skrifa eitthvað hérna hehe ;)  En það er nú margt skemmtilegt búið að gerast á þessum netleysistímum og þar stendur hæst heimsókn mömmu, pabba, Lilju Sifjar og Guðrúnar Ölmu en þau voru hjá mér síðustu helgi og lúlluðum við öll fimm hérna í litlu holunni minni en eins og ég hef alltaf sagt þröngt mega sáttir sitja.  Ég vildi óska þess að þau hefðu getað verið lengur en ætli maður hefði þá ekki bætt nokkrum kílóum á sig því við fórum svo fínt út að borða á hverjum degi mmmmm.  Ég nenni nú ekki að skrifa mikið hérna núna sökum þynnku en ég skemmti mér konunglega á íslendingakvöldi á barnum í gær og fór ekki heim fyrr en kl.6 í morgun og var samt vöknuð kl. 10 til að skella mér í sunnudagsskólann :)  Ég fer að verða þokkalega sjóuð í því að djamma á laugardagskvöldum og mæta hress og kát niður í Jónshús á sunnudagsmorgni :)  Jæja vonandi get ég nú farið að henda inn nokkrum myndum á næstunni en það er allt í vinnslu :)  Hey hvað finnst ykkur um William Hung??

p.s. Til hamingju með afmælið amma Ella (ekki það að hún lesi þetta) :)

 

  katosk | 22:09

20.febrúar

Ennþá netlaus

Já ég er ennþá netlaus og þess vegna skrifa ég svona lítið hérna, gleymi því svo alltaf héðan úr skólanum en lítill fugl sagði mér að það væri möguleiki á því að netið á Kagså kæmist í lag í næstu viku og þá verð ég aftur dugleg við skriftir eða vonandi :) þar er nefnilega svooooo gaman í skólanum þessa dagana að maður er bara hérna öllum stundum og vill helst bara vera lærandi öllum stundum :) eða sko næstum því hehehehe  Núna erum við að plana ferð til Berlín en lokaverkefnið okkar fyrir þessa önn verður um Berlín og við eigum að fara í vetfangsferð :)  Núna ætla ég að kíkja á fredagsbarinn og sækja mér smá reykingafýlu í fötin mín :/

 

  katosk | 14:52

16.febrúar

Loksins loksins loksins 

Ég er að vísu netlaus heima en núna er tölvan mín komin í lag þannig að ég get sett inn myndir frá þorrablótinu hérna í skólanum vúhúhúhú og þær eru hérna þannig að endilega kíkið :) Annars er það af mér að frétta að það er ekki neitt að frétta, ég held að ég sé á góðri leið með að upplýsa morðið þarna á Neskaupstað og hef ég Arnar og Austfjarðaþokuna sterklega undir grun allavega kom hann aftur til DK á svipuðum tíma og líkið fannst hmmm og svo hefur maður lítið séð af hinu liðinu á vappinu á kagså :)

 

  katosk | 13:54

8.febrúar

Þorrablót 

Fór á megaflott Þorrablót í Kristjaníu í gær og skemmti mér ógeðslega vel :) Ég, Jonni og Einar sáum um að koma fólkinu í stuð með fjöldasöng og ég held bara svei mér þá að okkur hafi tekist það þó nokkuð vel, allavega var fólk endalaust að koma til mín og þakka okkur fyrir :)  Nú ég fékk að hitta goðið mitt að sjálfsögðu en hann kom special upp á svið og gaf mér stóran koss en því miður náðist ekki mynd af því :( þannig að ef einhvert ykkar sem les þetta náði mynd af því þegar Einar Ágúst kom og gaf mér koss þá endilega sendið mér :) Hér er nú samt ein af mér með goðinu hehehe ;)  Nú myndirnar af Þorrablótinu get ég því miður ekki sett inn í dag þar sem PhotoShop er eitthvað bilað í tölvunni minni en ég ætla að reyna fá það lagað á morgun þannig að um leið og ég get þá set ég inn myndirnar :) Díll?? Ég vona bara að það sé búið að redda netmálum hérna á kollegi-inu en ég kem þessum myndum þá bara inn frá skólanum ef netið verður ekki hérna á morgun. Nú þrátt fyrir mikið djamm til klukkan 5 í nótt var ég svo mætt klukkan 10 í morgun niður í Jónshús með Erlu að sjá um Kirkjuskólann og það var bara rosalega gaman en um leið og við vorum búnar helltist nottulega þynnkan yfir mig þannig að ég er búin að sofa í mestallan dag og ætla að fara aftur upp í rúm núna :)

 

  katosk | 22:28

6.febrúar

Núna fer ég að verða hrædd 

Ekki nóg með það að ég sé orðin drullu myrkfælin eftir að vera að skúra í Jónum niðri í Avedore Holme á kvöldin þá á atvik sem gerðist áðan ekki eftir að minnka myrkfælnina og enginn nema ég lendi í svona dísuss kræst.  Sko ég fór með Erlu á barinn að kaupa þvottakort og þar sátu Sibba og Ásta þannig að auðvitað settumst við smá niður að spjalla við þær, nema hvað að það situr maður á borðinu á móti okkur og hann glápir á okkur allan tímann sem við sitjum þarna.  Nú þegar við ætlum að fara að fara þá stendur hann upp líka og eltir okkur að barnum en ég og Sibba vorum aðeins að vesenast þar og svo þegar við ætlum að labba út þá kemur hann líka ojjj nú Sibba snör í snúningum kallar á mig eins og við þurfum að fara að gera eitthvað þannig að hann labbar einn út og bíður eftir okkur úti (þá búinn að spyrjast fyrir um hvað ég heiti og eitthvað) nú ég var sko heldur betur ekki á leiðinni að fara að tala við þennan mann (ekki mikið fyrir gamla araba) þannig að við sniglumst út bakdyramegin og löbbum hringinn til að forðast kallófétið ojjj ég er alveg með hroll, af hverju geta ekki bara venjulegir myndalegir menn reynt við mig??  Það var fullt af sætum færeyingum að koma inn þegar við vorum að fara af hverju gat það ekki bara verið einn þeirra sem hafði áhuga á mér ohhhhhh dem ég á aldrei eftir að ganga út nema þá ef ég verð með þessum araba nú eða honum vini mínum frá Búrúndí kræst!!!!!! Jæja best að fara að sofa svo maður verði nú hress og kátur á þorrablótinu á morgun :) það er allavega eitthvað til að brosa yfir :)

< scrip t type="text/javascript">postCount('270');< /a> 

  katosk | 01:51

4.febrúar

Jæja back to DK 

Já ég er komin aftur til DK og get farið að skrifa hérna á fullu þar sem ég er ekki að vinna núna en sko þegar maður er að vinna við tölvu þá nennir maður ekki einu sinni að kveikja á heimilistölvunni, þetta er mjög svo skrítið :/  En það er nú ágætt að koma og sofa í sínu rúmi og slappa aðeins af eftir amstur íslandfararinnar úff var að vinna á fullu og svo halda upp á afmælið nú síðan kviknaði í hjá henni ömmu minni greyinu þannig að maður var á þeytingu út um allt.  Ég hef nú svosem ekki mikið að segja núna þannig að ég ætla að sleppa því og svo byrja ég vonandi bara að skrifa á hverjum degi hér eftir :)

  katosk | 17:21

26.janúar

Myndir no.1 

Það gengur eitthvað hægt hjá mér að setja inn myndirnar úr afmælinu en hérna kemur fyrsta hollið :)  Þið þarna úglendíngar verðið bara að afsaka, það er svo erfitt að hugsa svona annan í þynnku :) ég tala nú ekki um þegar maður er orðinn þrítugur :) Ég held að það hafi verið teknar um 500 myndir og þá er svo gasalega erfitt að velja úr hvað á að fara á netið að það hálfa væri nóg. Klikkið á myndina af gömlu kellingunni hérna fyrir neðan :) þið afsakið líka vonandi hvað þær eru litlar og bakgrunnurinn asnalegur en ég reyni að laga þetta allt á morgun :)  úbbs nú er ég að vísu búin að henda inn öðru holli líka hehehe og það finnið þið hérna :) Það eru myndir sem ég tók af mér og mér og mér og mér og mér og öllum gestunum eða allavega mörgum þeirra hehehehehe :)

 

  katosk | 12:32

24.janúar

Eldgömul geit fór upp í sveit 

Jú jú nú er mín orðin dörtí og dagurinn bara búinn að vera fínn :)  Fór í klippingu í morgun og svo er maður bara búin að vera að gera allt reddý fyrir kvöldið.  Set inn myndir á morgun :) af geiminu í kvöld :)

  katosk | 17:47

19.janúar

Lukkunnar pamfíll 

OHhh ég er svoooo glöð :) Byrjaði daginn snemma, fór í skólann að læra í ca. klukkutíma fyrir prófið en lucky me alltaf fattaði þegar ég kom í skólann að ég sendi vitlausan fyrirlestur niður í skóla og þurfti að eyða tímanum í að keyra aftur heim og sækja nýja fyrirlesturinn EN ég náði prófinu fyrir 2.önn vúhúhúhúhú hehe svo fór ég í prófið fyrir 1.önn klukkan 14:30 og náði því að sjálfsögðu líka enda hefði það verið hálf asnalegt að falla á fyrstu önn en ná annari hehehe ;)

Nú Jóhanna vinkona á afmæli dag og þar sem ég er búin að syngja fyrir hana afmælissönginn á maili þá ætla ég að sleppa því hérna, en TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN JÓHANNA :)

katosk | 20:30

17.janúar

Danir eru æði!!  

Svona af því að ég var að tala um reality tv í gær þá bara verð ég að segja ykkur eitt, sko mér skilst að heima sé þátturinn Joe Millionair en sko danir þeir ætla ekki að sýna þann þátt neeeeeiii þeir eru búnir að búa til sinn eiginn sem heitir Den Falske Millionair hehehehe það sama á við um Queer Eye for the Straight Guy nei nei ekki sýndur ameríski þátturinn heldur bara búinn til dönsk útgáfa De Fantastiske 5 ;)

 

 

katosk | 23:55

16.janúar

Shit hvað sumir eru steiktir  

Í sjónvarpinu um daginn var verið að tala um reality þætti sem ég by the way er alltaf til í að horfa á, þeir eru að vísu mis skemmtilegir þannig að maður endist kannski ekki alveg að horfa á þá alla hehe nema hvað að í þessum þætti var sýnt úr þáttum sem heita Paradise Hotel og eru víst sýndir heima, þeir eru ekki ennþá komnir hingað.  Nú og í þættinum er stelpa sem ég kannast alveg rosalega við þannig að ég fór að leita á internetinu hver þetta nú væri og viti menn ég fann hana.  Munið þið eftir mjög svo sorglegum þáttum sem hétu Love Cruise??   O.k. manstu þá ekki eftir henni Toni sem var soldið mikið klikkuð hehe nema hvað að þetta er sumsé hún sem er í þáttunum og greinilega jafn klikkuð í þeim líka hehehe.  Hvað er málið að fara aftur í svona þátt??? Er þetta kannski allt bara eitthvað feik og leikið???

katosk | 13:55

15.janúar

Hver og hver og vill og verður  

Hey ég kem heim á þriðjudaginn og vantar svo að einhver sæki mig á flugvöllinn, er ekki einhver þarna úti sem langar alveg rosalega að koma að sækja mig og þarf ekki að taka sér frí í vinnunni eða skóla til þess??  

katosk | 01:06

Ástarsorg  

Ég held að einhver hérna í húsinu mínu sé í ástarsorg en hann/hún er búin að hlusta endalaust á Everybody Hurts með REM auk annara laga síðasta sólarhringinn.  Greyið hann/hún ef svo er en woooww hold up with the same song over and over again.  Ég ætti kannski að reyna að finna út hvaða íbúð þetta er og bjóða fram geisladiskasafnið mitt hmm það væri ekki vitlaust nema fyrir það að ég tými því alls ekki hehehehe

katosk | 00:47

Komin með sal  

Jæja þá er ég komin með sal og allt komið á hreint þannig að ammælið mitt verður haldið þann24.jan ;) eða eftir svo mikið sem 9 daga eins og sést hérna fyrir neðan til hægri :)  Nú get ég andað aðeins léttar :)

katosk | 13:39

14.janúar

Sweet sixteen  

Það er nú ekki oft sem ég skrifa rétta dagsetningu svona ef ég skrifa eftir miðnætti en núna er spes dagur því hún litla systir mín á afmæli í dag og fær að sjálfsögðu lag í tilefni dagsins:

 

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í ún Guðrún Alma

Hún á afmæl'í dag

 

Hún er að vísu ekkert lítil lengur orðin 16 og má fara að keyra bíl, úff hvað maður er orðinn gamall dísuss kræst ég meina það þetta er ekki hægt, er ekki hægt að stoppa tímann í nokkur ár??

 

Ég er búin að vera að spá svo mikið í þema fyrir partýið sem verður eftir 10 daga og datt inn á þessa síðu og ég verð bara að segja að þarna eru þær bestu hugmyndir af grímubúningum sem ég hef séð lengi :)

katosk | 01:43

13.janúar

Lítil frekja 

Þarf ég að segja meira?? Var sko að fá nokkrar myndir sendar að heiman og þarna er ég sennilega 4 ára frekja í frekjukasti.  Takið eftir toppnum mjög fönkí klipping eftir sjálfa mig :)

 

 

katosk | 18:7

12.janúar

Major dejavú!! 

Ég var að horfa svona með öðru auganu á einhvern breskan þátt og þar var mikið verið að tala um Blur og Oasis og ég fékk alveg þvílíkt dejavú þegar þeir spiluðu tónlistina sem ég og mínar vinkonur hlustuðum á '95-'97 those were the days of major party-ing hehehe nema hvað að það var verið að tala um ríginn á milli bandanna og þá fór ég að hugsa hmmm ég hlustaði á báðar hljómsveitirnar, ég hlustaði líka á bæði Wham og Duran Duran og fíla alveg bæði Bítlana og Rolling Stones ég hefði greinilega ekki fittað í einhverjar grúbbur sem héldu bara með annari hvorri grúbbunni hehehe.  Þetta var bara smá svona pælíng hehe

katosk | 00:37

HJÁLP! !! !!! !!!! 

Mig vantar svo rosalega sal til að halda upp á afmælið mitt í :/ var eiginlega búin að treysta á einn sal en svo var víst búið að leigja hann út :( shit og nú vantar mig sal.  Er þetta ekki týpísk ég hehehehe sendi út þetta pre-boðskort í gær og í dag er ég ekki með sal hahahaha just my luck :)  Það er örugglega enginn svona seinheppin eins og ég buhuhu jú og mamma hehehe hún er stundum ferlega óheppin eins og t.d. um jólin þegar hún var að sækja skál upp í skáp og hún kom á móti henni og lenti í auganu á henni og hún fékk glóðarauga og svo var hún að hleypa hundinum út og hann sá kött og mamma fór á eftir honum út en flaug á hausinn í hálkunni og rispaðist öll þannig að hún er kannski aðeins óheppnari en ég :)

 

 

katosk | 17:29

10.janúar

Lán í óláni 

Það var brotist inn á Café No.1 í fyrrinótt og stolið projectornum sem var eiginlega soldið lán í óláni því hann var orðin soldið lélegur greyið og megi þjófarnir bara skemmta sér vel við að reyna að selja hálf bilaðann skjávarpa og við fáum þá vonandi nýjann úr tryggingunum en það er nottulega samt ógeðslega leiðinlegt að það þurfti nottulega að skemma eins og eina hurð og dyrakarm en það var í sentrinu þjófarnir voru voðalega góðir við barinn og tóku bara glerið úr hurðinni þar án þess að skemma neitt hehehe nei maður á ekki að hlæja að þessu þjófnaður er ekkert fyndinn.  Hey og hvað er með þessi bankarán þarna heima er í tísku að ræna banka eða hvað??  Er maður ekki maður með mönnum nema að hafa rænt banka hahahaha æ hvað þessu fólki hlýtur að líða illa.  Nei sko það er að byrja mynd í sjónvarpinu sem heitir "How to steel a million" hehehe bara af því að ég var að skrifa um þjófa :)

 

Núna fer maður að hlakka til Þorrablóts Íslendingafélagsins sem verður 7.febrúar og ég veit hvaða hljómsveit verður vúhúhú en ég er ekki viss um að ég megi kjafta en nafnið byrjar á S og þetta er hljómsveit sem ég hélt ekki vatni yfir  fyrir ekki svo mörgum árum síðan og eitt er víst að ég á eftir að skemmta mér konunglega :)

 

Úff svo eru ekki nema 14 daga í big þrí ó dísuss kræst og ég enn ólofuð og barnlaus, ég er ekki alveg að fitta inn í þennan pakka sem allir eru komnir í, hvað get ég gert í því?? Ég bara spyr?? Hvar ertu eiginlega minn herra rétti?? Finnst ykkur ég vera desperate ellaer hvad?? hehehe

katosk | 00:20

8.janúar

Hver gengur yfir brúnna mína 

Klukkan 23:58 í gærkvöldi fór pissugaurinn að ryksuga og ég veit ekki hvað og hvað, lætin í manninum eru ótrúleg og ekki nóg með að það síðasta sem ég heyrði í var hann að pissa áður en ég fór að sofa heldur vaknaði ég við pissið hans í morgun og svo labbar hann um eins og hann sé fimmhundruð kíló að þyngd ohhh ég vona að þetta sé bara einhver sem er í heimsókn þarna uppi og eigi ekki eftir að búa þarna forever.

katosk | 16:18

7.janúar

Síðbúinn þrettándi 

Fékk mér smá pásu frá lærdómnum og kíkti á þrettándabrennuna sem var frestað um einn dag sökum veðurs og það voru alveg þrettán sem mættu á brennuna hehehe en þetta var samt gaman :)

 

katosk | 22:27

6.janúar

Skype 

Vilja þeir sem eru með mig á skype hjá sér plís senda mér notendanöfn sín??  Ég tapaði öllum á vinalistanum eftir að tölvan mín fríkaði út :(

 

Núna skil ég Snæbjörn frænda ógeðslega vel þegar hann var að tala um að menn ættu ekki að pissa beint ofan í vatnið í klósettinu heldur miða á skálarveggina, einhver sem býr í íbúðunum í kringum mig, (ég gruna þennan sem býr fyrir ofan mig) pissar beint í vatnið og þvílíkur og annar eins hávaði, þetta er ótrúlegt.

katosk | 23:41

5.janúar

Loksins loksins loksins..... 

...fékk ég miða hjá Iceland Express á núll krónur þannig að ég kem heim 20.jan og fer aftur 3.feb víhíhí og Mamma, Pabbi, Lilja Sif og Guðrún Alma ætla svo að heimsækja mig í helgarferð 6-9 mars :)  Þó svo að ég hafi fengið alla þessa miða finnst mér að Iceland Express ætti nú að tryggja betur hjá sér tölvukerfið því að miði sem ég hafði bókað á 11 þús var tekinn af mér og í staðin þurfti ég að borga 16 þús og svo var hann allt í einu kominn niður í 14 þús en þá var ég búin að borga buhuhuhuuu og svo þegar ég var að panta fyrir m&p kom að 4 miðar kostuðu 47.500 en þegar ég ætlaði svo að borga voru þeir komnir upp í 101 þú en svo fékk ég þá loksins aftur niður í fyrra verðið þvílíka endalausa bullið en það þýðir víst ekki að væla ég er komin með miða og er glöð með það :)  Endilega ef þið nælið ykkur í miða í febrúar og mars komið og heimsækið mig það eru ennþá til miðar :)

katosk | 01:59

Æm bekk 

Jæja loksins loksins loksins er ég komin með tölvuna í fangið aftur og get farið að skrifa á fullu :)  Ég er líka komin aftur til DK en stoppa stutt því ég fer aftur til Íslands 20.jan þar sem ég verð í fríi í skólanum í rúmar tvær vikur eftir 19.jan og ætla að reyna að vinna mér inn smá pening :)  Ég gleymdi að senda jólakortin mín fínu fyrir jól þannig að einhverjir eru búnir að fá þau allt of seint og sumir hafa sennilega ekki fengið neitt ennþá þannig að ég biðst bara afsökunar á því en svona litu þau út jólakortin mín í ár :)

 

 

Ástæðan fyrir því að ég gleymdi að senda jólakortin er sú að ég ætlaði að láta smá fylgja í umslögunum sem ég pantaði frá USA en það kom ekki þannig að ég bara gleymdi þessu :/ vona að fólk fyrirgefi mér í þetta skiptið.  Annars voru jólin alveg frábær og áramótin fín og ég fékk fullt af fínum jólagjöfum þar á meðal er ég búin að eignast þrjá hluti af óskalistanum mínum sem er megakúl :)  Ég var nú ekkert allt of dugleg að heimsækja vini mína um jólin en eyddi því meiri tíma með familíunni og fannst það bara ferlega næs enda eru held ég allir í þeim skónum á þessum tíma árs ekki satt??

 

Núna eru kominn tími þrítugsafmæla eða á maður að segja 29a kannski og Hildur vinkona ríður á vaðið og á afmæli í dag :)  Til hamingju með daginn Hildur!!!!  Ohhhh hvað það er gott að einhver þeim vinkonuhóp er erldri en ég hehehehe en það varir víst ekki lengi buhuhuhu

katosk | 12:28

22.desember

Er á lífi og komin á klakann :) 

Jú jú ég er ekki farin neitt, þurfti bara aðeins að hvíla mig á tölvunni í nokkra daga :)  Enda orðin drulluþreytt á því að vera með hana í fanginu síðustu vikurnar :)  En ég er ss komin heim á klakann og farinn að vinna eins og brjálæðingur eða þannig, þið skiljið hvað ég á við.  Ég hef nú svosem ekkert mikið að segja nema það að það er æðislegt að vera komin heim og hitta alla og hvíla sig aðeins þó svo að maður hvílist nú ekkert svakalega svona í öllu jólaamstrinu, ég er samt ekki ennþá komin í almennilegt jólaskap því miður en það hýtur barasta að koma á morgun :)

katosk | 22:34

 17.desember

Búin 

Ekki nóg með það að ég sé búin með verkefnið mitt heldur er ég líka búin á því og orðin frekar þyrst í langan nætursvefn og svo langar mig í heitt bað, held ég skelli mér bara í pottinn hjá mömmu og pabba á föstudaginn mmmmm mest langar mig eiginlega bara að fara annað kvöld út á flugvöll og spyrja hvort ég megi fara með heim þó ég eigi ekki miða fyrr en á föstudaginn :) ætli það sé hægt?? veit einhvert ykkar um það?? endilega látið mig vita ef þið vitið það :) annars á ég nú samt eftir að kaupa allar jólagjafir og geri það sennilega á morgun ef ég sef ekki bara allan daginn :/ en ég ætla samt að reyan að vakna snemma og drífa þetta af þá er tíminn líka fljótari að líða og styttra í að ég fari heim er heldur betur komin með ógeð á þessu litla herbergi eftir alla þessa vinnu.  Hvernig losnar maður við bauga frá helvíti???  Ég horfði á Idol áðan og strákurinn sem vann hann er frá Filipsyjum, algjört krútt og bara 16 ára en hvað er þetta með dani og söngvakeppnir sko hann vann nottulega Idol, stelpan sem vann Stjerne for en aften í fyrra var færeysk og strákurinn sem vann núna var hálffæreyskur og svo var stelpan sem var í öðru sæti í Pop Star í fyrra grænlensk :) danir eru bara lélegir söngvarar annað en við íslendingar og þá aðallega ég hehehehhe nei djók en keppendurnir í Idol á íslandi eru mun betri en flestir þeir sem voru hérna í DK.  Jæja best að hátta svo ég vakni nú einhvern tíman á morgun og svo ég losni nú við baugana í framtíðinni :)

katosk | 03:06

16.desember

Svefnleysi 

Eftri svefnleysi og brjálaða vinnu hef ég komist alveg hjá því að gerast kynþáttahatari sem betur fer hehehe og þrátt fyrir að vera búin að bölva strákunum sem eru með mér í verkefni þá eru þetta nú vænstu grey en við erum semsagt búin með verkefnið okkar :) en ég ætla nú samt að bæta aðeins í það í kvöld af því að mér datt nottulega fullt í hug á leiðinni heim þannig að eiginlega er það lán í óláni að við gátum ekki prentað það út í kvöld.  En ég ætla nú samt að reyna að ná einhverjum svefni í nótt þar sem ég er búin að sofa í svona 14 tíma samanlagt síðustu þrjá sólarhringa og það er sko heldur betur farið að sjá á undir augunum :/ en ég fæ vonandi að sofa út á laugardaginn heima hjá mömmu og pabba :) ohhh hvað ég hlakka til :)

katosk | 00:17

15.desember

Kynþáttahatari???

Nei ég er það nú ekki en eftir morgundaginn verð ég örugglega orðinn það því ég er að verða geðveik á þessum strákum sem eru með mér í verkefni (ítali, íraki, pakistani og írani) hey vá er að fatta það núna að við erum fjögur sem höfum landarheiti sem byrja á í hehehe en allavega ég þoli þá gjörsamlega engan vegin, það er eins og ég sé mamma þeirra og þeir geta ekki gert jack shit sjálfir nema ég segi þeim hvað þeir eigi að gera.  Ég skil ekki af hverju maður má ekki bara vera einn í verkefni, ég geri þetta hvort sem er allt ein :(  ahhhh þurfti bara aðeins að pústa :)  Ég er nú samt svona aðeins að reyna að komast í jólaskap :) það var allt hvítt þegar ég fór í skólann og maður fékk smá fiðring í magann :)  Læt fylgja tvær myndir af mér að reyna að komast í jólastuð :)

 

12.des 009.jpg (237629 bytes)  12.des 013.jpg (245142 bytes)  

katosk | 20:47

14.desember

Allt í fokki :(

Ohhhhh ég held að ég sé búin að upplifa einn þann ömurlegasta sólarhring í lífi mínu eða allavega einn af þeim og eiginlega bara ömurlegustu helgi :(  Sko þetta byrjaði á föstudaginn, vaknaði lasin, fór að syngja um kvöldið í julefrokost og fékk borgað fyrir það voða fínt, þegar ég kem út er kominn stöðumælasekt á bílinn minn og alla í hringum hann (greinilega fleiri en ég sem misskilja merkingarnar hérna) well var mega lasin í gær og svaf bara allan daginn og lærði ekki neitt, þurfti svo að fara að vinna á barnum lasin þar sem stelpan sem átti að vinna fékk heilahristing en sem betur fer þurfti ég bara að vinna til 1 en þegar ég kom svo heim beið mín frosin talva og ekki hægt að kveikja á henni :( buhuhuhuhu shit og allt það tvær ritgerðir inni í tölvunni og ekki hægt að ræsa hana upp aftur úff púff og vitlaus ég með ekkert backup.  Nú dagurinn í dag er svo búinn að fara í það að reyna að laga bévítans tölvuna en Siggi reddaði mér heldur betur en hann þurfti að setja upp stýrikerfið upp á nýtt og núna er ég að reyna að setja inn öll forrit upp á nýtt en ég hélt öllum skjölunum mínum sem betur fer þannig að ég get andað aðeins léttar fyrir utan kvefið sem stíflar allt saman :(  Nú það er farið að snjóa hérna í DK og ég held að ég hafi bara upplifað soldinn íslands fílíng hvað veðrið varðar hérna í dag :) Þegar ég vaknaði í morgun var sól, svo kom rigning og svo er búið að vera mikill vindur, svo komu þrumur og eldingar og svo aftur rigning og nú er farið að snjóa hehehe

katosk | 00:40

13.desember

Jæja fékk hann loksins að deyja greyið

Greyið dýrið sem er búið að flytja á milli heimsálfa eins og ég veit ekki hvað, allavega hafa systur mínar séð hann í tveimur en allavega blessuð sé minning hans.

 

katosk | 14:35

12.desember

Nú er stressið farið að segja til sín

Ég er lasin :( Ég er með bullandi kvef og hálsbólgu buhuhuhuhu og ég á að fara að syngja í julefrokost á morgun, shit eiginlega bara :/ en vonandi næ ég þessu bara úr mér í dag, reyni bara að vera sem mest inni :)

katosk | 11:49

11.desember

vúhúhúhúhúhúhú!!!!!

Allir að kíkja hingað og helst oft á dag :) þ.e.a.s. ef það er hægt :)

katosk | 21:25

Hvernig stendur eiginlega á þessu

Ég er búin að vera ógeðslega dugleg að læra í dag og endurskrifa fullt í ritgerðinni "minni" (við erum víst hópur en ég er að gera ritgerðina) og hún hefur eiginlega ekkert stækkað :( fór sko fyrst úr 24 blaðsíðum í 31 blaðsíðu og svo núna er hún komin niður í 26 síður **arrrrg** æ ég ætla bara að skella mér á útsölu með Erlu og athuga í leiðinni hvort ég fái ekki einhverjar hugmyndir úff púff hvað þetta er erfitt, ég hefði allt eins getað bara farið í markaðsfræði ef þetta er það sem námið mitt snýst um..

katosk | 17:26

10.desember

Enn bætist á óskalistann

Sko ég var eiginlega að ráða mig í smá vinnu við að aðstoða Erlu með kirkjuskólann hérna í Köben þannig að ekkert djamm á laugardagskvöldum fyrir mig anymore hehehe :)  En sko þetta segir mér bara eitt:  Núna verð ég að læra á gítar!!!  Þannig að mig langar ógeðslega mikið í gítar líka í jólagjöf eða afmælisgjöf :)  Ohh ég er alltaf með ódýrustu gjafirnar á óskalistanum finnst ykkur ekki?? ;)  Ætti ég að setja upp síðu með óskalistanum mínum og vona að jólasveinninn komi í heimsókn til mín??   Núna er ég búin að hlusta á lagið hennar Margrétar Eir alveg 10 sinnum og finnst það bara betra og betra með hverju skiptinu ég ætti kannski bara að setja diskinn hennar líka á óskalistann hmmm ég ætla fyrst að hlusta á fleiri lög af honum :)

katosk | 00:25

Rosalega flott lag og myndband

Það nottulega fer ekki framhjá neinum að Margrét Eir er frábær söngkona en VÁ!!! ég var að sjá myndbandið og nottulega heyra lagið hennar Heiðin há og ég sver það að ég bara var með kökkinn í hálsinum og gæsahúð allt lagið.  Sko ég veit að ég og Margrét höfum ekki verið í sambandi síðustu nokkur árin en ég held að þetta kalli bara á að ég sendi henni e-mail og óski henni til hamingju :)

 

katosk | 17:55

9.desember

Mig langar líka í......

...prentara og bkeikan náttslopp (sá sko einn í Debenhams í sumar en hann er örugglega búinn) ohhh af hverju er ég bara að hugsa um jólagjafir núna þegar ég á að hafa hugann við ritgerðina sem ég er að skrifa buhuhuhu ég ætti kannski að fara út og fá mér frískt loft og athuga hvort andinn leggst ekki yfir mig :)

katosk | 16:03

8.desember

Óskalistinn of dýr :/

Af hverju langar mig alltaf í svo dýrt dót að maður getur ekki einu sinni set það á óskalistann??  Sko mig langar svo í nýja myndavél, nýjan síma (minn er eitthvað lasinn), mig langar í ógeðslega flotta inniskó úr Accessorize, mig langar í ljósakrónu úr búð sem ég fór í um daginn (sjá mynd) veit bara ekki hvar ég ætti að setja hana í stóru íbúðina mína hehehe ömmmm nú mig langar í þráðlaust net í tölvuna mína, MP3 spilara, lyklaskáp úr Bahne og svo langar mig í náttslopp :) en vá hvað það er margt sem mig langar í, ég bara vissi það ekki fyrr en núna hehehe ;) 

Well got to go to bed now, ætlaði sko að fara snemma að sofa en maður vinnur eitthvað svo vel á nóttunni þannig að ég er á leiðinni í háttinn, allt allt of seint :/

katosk | 02:33

6.desember

Friður 2000

Hey ég gleymdi einu, sko í kvöld kom maður á barinn sem ég kannaðist svona líka rosalega við og svo fór hann að tala við mig og þá fattaði ég hver þetta var :) heheh var þetta ekki bara Friður 2000, Ástþór Magnússon með meiru og hann held ég bara að hafi skemmt sér ágætlega á Café No.1 hehehe ;)  Hann kom allavega í friði og var til friðs allan tímann :)

katosk | 05:40

Æ, æ, ó, ó, aumingja ég.....

....úff hvað ég er að drepast í fótunum, ég er búin að standa á barnum í 8 tíma og ég er að drepast í fótunum, hefði að vísu ekki þurft að vera svona lengi en ég ákvað að hafa opið aðeins lengur þar sem ég fékk soldið mikið í drykkepenge ef ég væri svona lengi :)  Hey og hvað haldið þið???? Ég er búin að tala dönsku á fullu í allt kvöld :) já ég sagði DÖNSKU ótrúlegt en satt en ég held barasta að ég tali miklu meiri dönsku en ég nokkurn tíman hélt að ég gæti vúhúhú :)  Nema hvað ég er farin í háttinn þannig að góða nótt til ykkar allra eða ætti ég kannski að segja góðan daginn? ;)

katosk | 05:35

Ædol Spædol

Ég er ekki ánægð með úrslitin þarna heima í gær *humpf* tvær af mínum uppáhalds detta út?? Hvað er málið?? Og af hverju detta tveir út í einu þarna heima, eru þeir eitthvað að flýta sér að klára þetta? Ég er að vísu bara búin að sjá æfingarnar á tónlist.is en samt sko það er allavega ein þarna sem átti að detta út í staðinn fyrir Jóhönnu Völu og Sessý.  Well það þýðir víst ekki að gráta þetta, svona er þetta nú bara :) En svona af þessum æfingum þá fannst mér Ardís og Helgi síst :(  but that´s just my opinion ;)

katosk | 12:30

 

5.desenber

Júlía Sól

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í ún Júlía Sól

Hún á afmæl'í dag

 

 

Elsku litla dúllan mín á afmæli í dag og mér finnst ömurlegt að missa af því annað árið í röð en se la ví og maður getur ekki gert neitt í því.  Vonandi verður stuð hjá ykkur á morgun og hver veit nema ég skelli einu stuttu símtali á ykkur mæðgurnar fyrst ég gerði það ekki í dag :)

katosk | 17:10

Halló Hafnarfjörður sko...

..steingleymdi að segja ykkur eitt. Sko í gær var ég að vinna á barnum og ég meina það að ég hlýt að hafa eitthvað lesbískt útlit því þar var færeysk stelpa að reyna að fá mig með sér heim og þegar ég sagði nei þá spurði hún hvort ég væri til ef hún byði einum strák með.  Ég þakkaði pent fyrir mig og fór að spá í það að þetta er í annað sinn sem mér er boðið í trekant síðan ég flutti hingað og í bæði skiptin eru það konur sem spyrja HALLÓ ÉG ER FYRIR KARLMENN!!!! Af hverju eru ekki einhverjir karlmenn á eftir mér??? Dísuss kræst hvað er málið??  Mér fannst nú samt ekkert leiðinlegt þegar þau héldu öll að ég væri svona 23-24 ára :) ég gamla geitin sem verður þrítug eftir ekki nema 50 daga hmmm þau trúðu ekki sínum eigin eyrum hehe þegar ég sagði þeim það :) En hvað segið þið finnst engu ykkar ég eiga skilið að eignast nýja myndavél??

katosk | 17:06

4.desenber

Óskalisti

Ef maður á bráðum afmæli og langar óendanlega mikið í nýja myndavél má maður þá óska sér þess svona online?? Finnst þér kæri lesandi ég eiga skilið að fá nýja myndavél??  Mig langar svooooo í svona myndavél eða svona en sko mest væri maður nottulega til í einhverja svona professional en þær eru svo geðveikislega dýrar að maður þorir ekki einu sinni að óska sér svoleiðis :)

katosk | 01:43

2.desenber

Fékk snjörnu í dagatalinu

oooooooog ég nenni ómögulega að læra :( mig langar bara að fara að eyða peningum í jólagjafir en þá kemur það að ég á enga peninga ohhhh hvað getur maður gert??

katosk | 23:32

1.desenber

Það er sko kominn desember

ótrúlegt en satt og bara 18 dagar í það að ég fari heim á klakann, ohhh hvað ég hlakka ógeðslega mikið til og ég vona að það verði jólasnjór þetta árið :) Ég opnaði nr.1 á dagatalinu mínu og fékk lest :)

katosk | 18:00

30.nóvember

Travis í Valbyhallen

Mér var boðið á tónleika með Travis á föstudagskvöldið og ég skemmti mér konunglega þetta var alveg frábært :)  Ég segi bara TAKK ÆÐISLEGA FYRIR MIG :) Ég nottulega tók myndavélina með mér og tók milljón myndir og nokkar voru bara þó nokkuð góðar þó ég segi sjálf frá :)  Ég set þær hérna inn einhvern tíman við tækifæri en þangað til er hérna smá sýnishorn :)  Annars er þetta bara búin að vera róleg helgi og akkúrat núna er ég að mana mig upp í það að drulla mér í vinnuna en ég nenni ómögulega ohhhh hey ég kem heim eftir 19 daga vúhúhú :)

katosk | 14:28

27.nóvember

Presente noi parlare italiano

Mio bellissimo amicizia e famiglia!! Da ora in poi IO piano verso scrivere tutto in italiano perch‚ è tale un bellissimo lingua :)  Annars var ég að horfa á lokaþáttinn af Big Brother og Jonny vann sem er fínt en spáið samt í einu það varð til eitt par í húsinu og þau voru alltaf að dodoast og viti menn haldið þið að gellan sé ekki ólétt já hugsið ykkur að verða ólétt í beinni útsendingu því það var sko sýnt þegar þau voru að gera það.  Gaman fyrir krakkann að eiga þetta til á tape hehehehehehe eða þannig sko :)

katosk | 22:47

26.nóvember

Chic Tech

Ég var að klára layout af verkefninu mínu sem ég átti að skila fyrir langa langa löngu og nú vantar mig smá feedback áður en ég skila þessu.  Ef þú værir unglingsstelpa á aldrinum 12-15 myndirðu fíla þetta lúkk??  Endilega segið mér hvað ykkur finnst í kommentin :)

katosk | 11:20

25.nóvember

Úff hvað mér er illt í maganum

Ég held að ég þurfi að sækja um extra klukkutíma í sólarhringinn hjá þeim þarna sem stjórna sólarhringnum svo ég losni við þennan hnút í maganum úff eða ætti ég kannski bara að fara til læknis og biðja um eitthvað róandi hmm það væri kannski ekki svo vitlaust en ég held samt að þetta líði nú hjá (eða hvað sem maður segir). 

Annars verðið þið að afsaka hvað ég skrifa lítið hingað þessa dagana en námið verður víst að ganga fyrir öllu öðru :)  Hey um helgina þá fór ég á julefrokost og ég vann möndlugjöfina vúhúhú og ég fékk súkkulaði dagatal þannig að það hjálpar að telja dagana niður þar til ég kem heim :) að vísu fékk ég líka jólaseríu og Jólasveininn með Mary Christmas með sér í baði syngjandi rokkíng aránd ðe kristmass trí :) en dagatalið var skemmtilegast, hef ekki fengið svoleiðis síðan ég var krakki :) en ég nottulega er samt ennþá krakki eða allavega í 60 daga í viðbót úff dísuss kræst ég á bráðum afmæli æ ætla ekki að hugsa um það núna....

katosk | 01:54

21.nóvember

Ryksugan mín er komin inn í skáp

Já ég pakkaði henni inn í skáp (sjáið hana greyið í kremju) áðan þetta er ekki hægt að vera adigtet á ryksugunni :/ og þegar nágrannarnir eru farnir að spyrja mann hvort maður sé alltaf að ryksuga já þá fer ryksugan inn í skáp :) allavega sko þangað til það er komið nóg ryk til að ryksuga again :) en það er svo gaman að þegar maður á svona fína ryksugu :)  Hey sko ég las það í lifandi vísindum að ef maður ryksugar köngulær að þá ættu þær að drepast er það ekki örugglega rétt??  Sko Hemmi og Arnar voru eitthvað að stríða mér áðan og segja að svo væri ekki en ég er núna allt í einu ekki sjor á þessu, ef þú veist svarið kommentaðu þá hjá mér PLÍS!!!!! Ég er nebblilega sko með smá köngurlóafóbíu :/ ekki samt eins mikla og tannlækna.

katosk | 18:37

19.nóvember

hmmm....

Beta er með tvær hugleiðingar á blogginu sínu, hvað viltu sofa hjá mörgum á msn listanum þínum og hvað hefurðu farið í sleik við marga á msn listanum þínum hehehe mér fannst þetta soldið fyndið en ég hef aldrei spáð í þessu svona hehehe þannig að ég fór yfir listann og það lítur ekkert sérlega vel út verð ég að segja, ég held ég þurfi að fara að bæta einhverjum karlmönnum inn á listann hjá mér svo ég gangi einhvern tíman út hehehe  Síðan er Katrín eitthvað að setja út á hann Begga.com fyrir að vera of ákafur sem formaður íslendingafélagsins í DTU, Beggi ég held að hún nafna mín sé orðin þreytt á að fá e-mail frá þér híhíhí ömmm annars voru þetta svona smá fréttir af því sem ég var að lesa á netinu :) hey var að fá mail frá icelandexpress.is og ef ég ætti heima á klakanum núna myndi ég skella mér í heimsókn til hans bróður míns á Ítalíu :) fara fyrst með IEx til London og fá svo ókeypir far með Ryanair til Milano :) það er sko heldur betur ódýrt að fara í utanlandsferð í dag :) og þið sem viljið koma til mín til DK eruð velkomin, ókeypis gisting í boði :)

katosk | 00:12

17.nóvember

Jónurnar

Jebbs Jónurnar eru komnar fram í vefljósið :) þ.e.a.s. komnar með heimasíðu :) Fyrir þá sem ekki vita eru Jónurnar saumaklúbbur nokkra fyrrverandi og núverandi starfsmanna Jóna Transport og Olga snillingur er búin að setja saman fyrir okkur heimasíðu þar sem við getum sett inn myndir og spjallað eftir saumaklúbba og aðra hittinga :) Olga mér finnst þetta frábært framtak hjá þér!!!!  Nú ég fór allt í einu í kvöld að hugsa um Bon Jovi og datt í hug að skoða heimasíðuna þeirra sem btw er ógeðslega flott!! Því miður eru þeir ekki á tónleikaferðalagi en ég er ss búin að ákveða það að næst þegar þeir ferðast um Evrópu þá ætla ég að kaupa mér miða :) ég meina það það er ekki hægt að halda upp á hljómsveit í næstum því tuttugu ár og fara ekki á tónleika hmmmm eða hvað finnst ykkur??  Þeir eru búnir að gefa út nýja plötu með gömlum lögum í nýjum útsetningum og ég held svei mér þá að ég festi bara kaup á henni næst þegar ég á pjénínga, annars er maður eiginlega hættur að kaupa sér geisladiska þegar maður getur sótt allt á netinu.  Ég hef ekki keypt mér geisladisk síðan ég keypti Írafár síðustu jól þangað til í dag þegar ég og Sibba festum kaup á Tim Christensen en hann er ss ekki hægt að sækja á netinu þar sem hann er með mann í vinnu við það að leita uppi þá sem reyna að setja hann á netið.  Þið þarna heima á klakanum hljótið að hugsa, hver í andsk... er T.C. en það er ss sá sem syngur titillag (frábært lag sem ég hef líka sungið í brúðkaupi hjá Erlu og Svenna) þáttanna um Nikolaj og Julie sem eru held ég sýndir á RÚV núna :) Frábærir þættir sem er því miður hætt að sýna hérna í DK þar sem síðasta serían er búin en kannski á svo að búa til bíómynd þannig að það er ekki allt úti enn :)

katosk | 00:41

16.nóvember

Alveg eins og pabbi

Já svei mér þá ég held að ég sé orðin alveg eins og hann pabbi minn þ.e. að geta ekki farið á fund án þess að bjóða mig fram í einhverja nefnd :/ já ég er núna komin í caféudvalget þannig að núna fæ ég borgað fyrir að vera á barnum hehhe nei kannski ekki alveg en næstum því :)  Ég ætlaði nú ekkert að bjóða mig fram í neitt með því að mæta í fyrsta skipti á beboerrådsfund en þegar það var boðið fram að bjóða sig í þetta ráð og einn danskur bjáni bauð sig fram aftur þá stóðst ég ekki mátið og rétti upp hönd, held meira að segja að höndin hafi verið komin upp áður en hugurinn ákvað sig og svo hjálpaði líka aðeins til að Sibba pikkaði í mig öðru megin og Hrafnhildur hinum megin og svo fékk ég augnaráð frá Erlu þannig að þetta var eiginlega möst hehehe.  Nú ég byrjaði nottulega að skjálfa þegar það var ákveðið að kjósa með handauppréttingum og byrjað á mér, ég hélt sko að enginn myndi kjósa mig nema kannski nánustu vinirnir sem þarna voru en viti menn ég fékk 22 atkvæði af 28 held ég þannig að það var alveg frábært :) Sibba fékk svo 27/28 og Bjarki 21/28 og svo fékk "greyið" Mikkel bara kannski 8/28.  Spáið samt í einu að á þessum fundi voru bara 28 manneskjur er ekki samt alveg viss á tölunni og þetta var vel sóttu fundur samt búa hérna yfir 400 manns og svo kvartar fólk bara og kvartar en mætir ekki á fundina og býður sig fram í þær nefndir sem það er að kvarta yfir hmmm ótrúlegt alveg hreint. Well svo ég fari nú í annað þá hafði enginn áhuga á því að ég tæki upp á því að mynda sjálfa mig á klukkutíma fresti þessa helgina það finnst greinilega engum ég það sæt að þeir vilji sjá margar myndir af mér :/ en ég verð víst bara að sætta mig við það :)

katosk | 00:24

13.nóvember

Má bara vera með 50Mb

Ég fékk bréf frá simnet.is þar sem ég var vinsamlegast beðin um að taka eitthvað út af heimasíðunni minni þar sem ég hef bara leyfi fyrir 50Mb en er víst með yfir 100Mb :/ þannig að ég hef ákveðið að taka út allar myndir þangað til ég hef efni á því að kaupa mér stærra heimasvæði :)  en sko kannski verð ég með einhverjar myndir af því sem er að gerast hverju sinni hjá mér þannig að þið fáið nú að sjá mig öðru hvoru :) var einmitt að horfa á Big Brother og þar átti einn keppandinn að vera í isolation í 24 tíma og taka mynd af sér á klukkutíma fresti og mér fannst það svo brillíant hugmynd að ég er að spá í að gera svoleiðis fyrir ykkur um helgina á meðan ég er að læra :) þá getið þið sé hvað ég lít rosalega vel út á meðan ég er að læra híhíhí en en þetta er nú bara hugmynd ég er ekki alveg klár á því hvort ég framkvæmi hana :)  Ég ætti kannski að leyfa ykkur að velja hmmm?? Vinsamlegast svarið í kommentin hvort þið viljið sjá myndaseríu af mér í heimalærdómi :) Ég ætla að vísu ekki að gera það í 24 tíma :) Ég lofa að brosa svona á öllum myndunum eða allavega reyna það :)

katosk | 22:11

10.nóvember

Sko

sjónvarpsefnið hérna í DK er nú heldur betur skrítið með meiru hmmm annað hvort eru sýndar einhverjar hardcore klámmyndir sem ég skil ekki í að neinn nenni að horfa á Big Brother sem eiginlega er bara líka nálægt því að vera klámþáttur eða þá þættir um fyrirbura og veik ófædd börn eins og er núna í imbanum og að sjálfsögðu er ég grenjandi yfir honum og börnunum sem eru að deyja :( ógeðslega sorglegt en samt fæ ég mig ekki til að skipta um stöð er ég þá eitthvað sick þ.e.a.s. að vilja frekar horfa á deyjandi börn en klámmyndir?? Það eru fleiri en ég sem hafa tekið eftir þessu með klámmyndirnar og ég held að það sé út af því að sko á föstudögum og laugardögum veit maður að Anal Köbenhavn (eins og ég kalla stöðina) sýnir klúrt efni eftir miðnætti held ég og þá bara horfir maður ekkert á en núna eru þeir allt í einu farnir að sýna á sunnudögum líka. Æ ég held að ég sé bara farin að sofa!!! ég er alveg með kökk í hálsinum eftir ða horfa á þennan þátt með veiku börnunum :/

katosk | 23:51

Flash flash flash og aftur flash....

..það eina sem ég hugsa um er bara flaaash og er komin með hund hund leið á því að hlusta og horfa á einhvern ameríkana kenna mér flash þó svo að þetta sé ógeðslega sniðugir tutorials en í staðinn kemur það að ég hef ekkert að segja :(  nema jú ég verð að láta þessa krúttlegu myndir af dætrum vinkvenna minna fylgja :) Þetta eru þær Emma Guðrún og Margrét Allý en sú síðarnefnda var ss að prufa hárkolluna mína hehehe algjört krútt :) ég er nottulega aðeins búin að leika mér með myndirnar í photoshop :)

 

katosk | 23:04

7.nóvember

Sjúklega forvitin

Í dag er J-dagur í DK sem þýðir það að jólabjórinn er kominn á barinn og að sjálfsögðu fórum við og fengum okkur einn áðan en ég er að drepast í bakinu þannig að það varð ekki mikið um djamm á þessu heimili :)  Nema hvað að ég er sjúklega forvitin um það hvað einhverjir tveir aðrir í Idol-inu heima gerðu sem að þessi sem var rekinn fannst alveg eins refsivert?? Ég er búin að finna út að önnur manneskjan var Karl úr Grindavík en hver var hinn og hvað gerðu þau??? Plís einhver svara í kommentin hjá mér :D

 

katosk | 02:43

 

6.nóvember

Sigur-rós vinna EMA

Já þetta heitir víst EMA og íslendingar áttu bara fullt í hátíðinni eða sko Sigur-rós nottulega unnu fyrir besta videoið og svo söng Kylie lag eftir Emilíönu Torrini :) en annars fannst mér hátíðin ekkert frábær sko en samt skárri en í fyrra.  Christina Aguilera var ágætur kynnir og ég hef ekki tölu á því hvað hún skipti oft um föt, Beyonce var frekar halló þegar hún mæmaði fyrri hluta lagsins síns og var svo allt í einu komin með míkrafón, Justin Timberlake var BARA flottur, Missy E var kúl og dansaði riverdans hehe frekar flott. Ég ætla nú ekki að fara að lýsa hátíðinni meira hérna en bara frábært hjá Sigur-rósarmönnum :)

katosk | 01:31

Fleiri ammæli

Innilega til hamingju með afmælið Óla, ef þú vilt heyra afmælissönginn þá er hann hérna en langar engum að hringja í mig í símbloggið mitt??? Heiða er sú eina sem er búin að hringja :) þetta kostar bara það sama og símtal innanlands þannig að ekki halda að ég sé að láta ykkur gera eitthvað sem kostar fullt fullt af peningum :) Hey það er búið að reka einn úr Idol heima hmmm frekar halló finnst mér en reglur eru víst reglur :/ Well en núna er ég farin að horfa á MTv Music Awards eða hvað þetta nú heitir :)

katosk | 19:24

5.nóvember

Græningi var það

Hahahahahaha ég er í kasti yfir færslunni hjá Begga.com þar sem ég svaraði réttri vísbendingaspurningunni hans híhíhíhí :) svona hljóðar færslan hans:

 

Hérna er ég búinn að hafa mikið fyrir því að búa til spurningu sem ekki nokkur maður veit svarið við og gef auk þess svo óljósar vísbendingar að þær eiga við helminginn af öllum fiðurfénaði sem drottinn alsherjar hefur séð ástæðu til að skapa. Hvað gerist svo? Nú, Katrín bara kemur með svarið rétt si svona eins og hún rækti þennann helvítis græningja! Þetta er alveg himinhrópandi ósanngjarnt, ef ég væri ekki slíkt og því líkt karlmenni að það hálfa væri miklu meira en nóg færi ég umsvifalaust að skæla.

 

sko málið er það að ég veit ekki jack shit um fugla nema kannski þá sem halda sig í Látrabjargi af því að ég borða eggin þeirra  af því að pabbi seig bjargið þegar ég var krakki. Nú Beggi var ss með fuglaspurningu á síðunni sinni og lét fylgja með mynd af korti þar sem fuglarnir halda sig eða eitthvað svoleiðis og ég nottulega fór á google.com og datt inn á síðuna sem Beggi hafði fengið myndina af þannig að auðvitað var ég með svarið rétt hehehehe það er hægt að finna allt á netinu :) Sorry Beggi ætlaði ekki að skemma þetta fyrir þér híhíhí ;)

katosk | 00:26

Gleymdi einu

Þeir sem vilja hringja í mig í simbloggið verða að hringja í síma 595 6688 en svo má líka senda inn sms í síma 663-2800 og þá kemur það all hérna :) Þeir sem ég er búin að skrá eru familían, Heiða, Sirrý, Jóga og Perla þannig að þið getið byrjað og ef einhverjir fleiri vilja vera með þá endilega setjið nafnið ykkar og símanúmer annaðhvort í kommentin hjá mér eða sendið mér e-mail.

katosk | 19:45

Ammæli

Var að lesa það á síðunni hennar EmmuFríða ætti afmæli í dag :) Til hamingju með daginn Fríða :) Nú svo á hann Siggi líka ammæli í dag og ég ætla nú að setja mynd af honum hingað í tilefni dagsins en hann verður örugglega glaður með það :)

katosk | 18:38

Símblogg

Ég var að skrá mig í eitthvað sem heitir símblogg og virðist vera mjög sniðugt, ég get að vísu ekki haft það hérna á þessari síðu þannig að ég bjó til blogger síðu fyrir það (ekki beint falleg enda bara prufa), vona bara að ég komi til með að geta notað þetta því núna þegar ég hringi þá kemur bara að ég sé ekki skráð :( nema hvað ef þið viljið senda mér skilaboð (þetta er bara eins og að tala inn á símsvara) þá endilega látið mig vita hvaða símanúmeri þið hringið úr og ég skrái ykkur inn á mitt nafn :)  Svon er ég búin að finna hérna frábæra tölvu hana henni Júlíu Sól vinkonu minni hehehe en ef ég hef ekki sagt ykkur það áður þá er bleikur uppáhalds hjá henni :)

 

katosk | 13:33

 

4.nóvember

Brjálað að gera

Ég vona að þið afsakið hvað ég er léleg að skrifa hérna og hvað ég hef lítið að segja, það er mikið að gera í skólanum núna við að klára verkefni og svo gerist svosem ekki mikið hjá manni þegar maður á enga peninga ótrúlegt en satt :)  Nema hvað ég er sjálf orðin hundleið á því hvað síðan er hæg og langar mest að búa til nýja en finn mér aldrei tíma til þess þannig að í dag fór ég að snilldar ráðum hennar Fríðu og setti fyrsta árið af dagbókinni minni inn í gamalt hérna vinstra megin.  Ekki það að það sé einhver að skoða það sem ég skrifaði fyrir ári en hver veit það er kannski einhver :)  Já nema hvað að vonandi virkar síðan aðeins betur núna og svo ennþá ennþá betur þegar ég hef tekið þetta ár líka en ég nenni því ekki í dag :)

katosk | 19:34

3.nóvember

Síðan lagaðist ekki :(

Þrátt fyrir það að ég hafi tekið út menu-barinn þá lagaðist síðan ekki neitt sem segir mér bara það að ég verð að drulla mér í að búa til nýja síðu a.s.a.p. :)  Ég var í mjög skemmtilegum fyrirlestri í morgun og kennarinn sýndi okkur t.d. þessa síðu sem var búin til þó ótrúlegt sé af IKEA en þetta var eitthvað auglýsingatrix hjá þeim sem virkaði mjög vel.  Ég hvet ykkur til að kíkja á lögin sem eru baráttusöngvar Ikea Fans hehehehe nú svo sýndi hann okkur þetta og þið verðið að prufa að búa til tónlistarmyndband eða íþróttamyndband með beljunni :) það er líka möst að smella á örina sem á stendur starta :)

Í gær kom Oddný vinkona til Köben og ég og Sibba fórum að hitta hana, alltaf gaman að hitta fólk sem á leið framhjá :) en Oddný og vinkona hennar voru að fara á námskeið í Helsingør.  Nú svo át ég yfir mig af kökum í afmælinu hans Atla en það er eins og að fara í fermingu að fara í afmæli hjá strákunum hennar Hrafnhildar :) ég ætti kannski bara að leigja hana út sem bakara fyrst ég virðist hvort sem er búin að vera ein af þeim sem hafa gert hana að umboðsmanni fyrir útleigu á herbergjum á kollegi-inu á meðan fólk er í jólafríum hehehe frekar fyndið sko að það var hringt í hana til að tékka á því hvort hún leigði út herbergi um jólin en hún ss sá um að leiga út fyrir mig og fleiri í sumar og þá heldur fólk bara að hún sjái um þetta hehehe :)

katosk | 00:48

30.október

Tímabundnar breytingar

Síðan mín hefur verið með einhverja stæla við fólk þannig að ég tók þennan fína menu applet sem var hérna til vinstri og vona að núna verði síðan fljótari að koma upp :)  Endilega látið mig vita ef þetta er betra svona því þá ætla ég að gera eitthvað fínna við þetta :)

katosk | 12:34

29.október

Kveðjur

Til hamingju með afmælið í dag Hulda!!

Til hamingju um útskriftina um síðustu helgi Borghildur og Hildur :)

katosk | 01:05

26.október

Hvað er í gangi með veðrið á klakanum???

Já ég bara spyr??? Bara Jamaica veður á klakanum á meðan ég er að frjósa úr kulda hérna í Köben hmm hvað á þetta eiginlega að þýða??  Celebrate your death var annars bara alveg ágætt, ekki að vísu alveg það sem ég átti von á en samt skemmtilegt :)  Nú ég græddi klukkutíma í nótt sem er fínt og svo var annar í jólum hjá okkur í kvöld þegar okkur var boðið í hamborgerryg hjá Gunna og Tótu, það eru sko alltaf jól í DK hehehe ;) Var ég svo búin að nefna það að Mohito eða Mojito eins og það er víst skrifað er uppáhalds drykkurinn minn núna?? Hvort sem heldur er áfengur eða óáfengur mmmmmmm :) ef þið klikkið svo á myndina hérna fyrir neðan er linkur á flotta síðu með uppskrift af drykknum :)

 

katosk | 01:58

24.október

Celebrate your death

Mexíkönsku strákarnir í bekknum mínum eru að fara með okkur á einhverja celebrate your death hátíð á eftir og ég hlakka bara alveg fullt til :) Þið getið skoðað það hérna ef þið viljið en í Mexíkó er það víst þannig að á þessum degi fara allir upp í kirkjugarð þar sem ættingjarnir eru grafnir og halda upp á það með uppáhalds mat, drykk og feira hins látna og svo endar þetta bara allt á megadjammi :) Nú áðan frétti ég að hann Óli væri að keppa í Idol og ég vona bara að allir kjósi hann því hann er frábær söngvari :)  hmmm eitthvað fleira ömmm já hey ég fékk þetta sent áðan og ó.m.g. hvað hún er fyndin hún Leoncie hehehehe

katosk | 17:07

23.október

En dejlig aften med julebrag

Ég veit ekkert hvort að þetta er rétt skrifað hérna að ofan en þetta er þá allavega svona danskíslenska ;) nema hvað að ég var í mat hjá Sibbu og Kalla og fékk jólamat mmmmm hambogerryg með juleöl og alles og svo fékk ég mohito (sem ég veit ekk hvernig á að skrifa) í eftirdrykk mmmm det var dejligt og núna er það orðinn uppáhaldsdrykkurinn minn hvort sem heldur er áfengur eða óáfengur, sé mig sko alveg fyrir mér í júní á næsta ári búin í prófum með ískaldan mohito í hendinni og sleikjandi sólina :)  Well back to reality þá virkaði lagið mitt ekki hérna áðan en ég er búin að koma því í lag þannig að núna getið þið hlustað eins og þið viljið :)  Þetta er að vísu soldið langt lag og ég kem ekki fyrr en einhverntíman í miðjunni og syng mjög svo vel um guð híhíhí en þó ég segi sjálf frá þá er þetta soldið flott lag :)

katosk | 23:53

Platínuplata

Var að fá þessi skilaboð frá Gospelsystrum :)

Platínuplata, 10.000 eintök seld af geisladiskinum Undir norðurljósum
Um daginn fékk kórinn tilkynningu frá Stef þess efnis að búið væri að greiða stefgjöld af meira en 10.000 þúsund Norðurljósum. Þetta merkir að kórinn er búin að selja yfir 10 þúsund eintök af geisladiskinum Undir norðurljósum.

 

Þetta er ss diskurinn eða réttara sagt myndin af koverinu og ef þið kíkið mjög vel þá sjáið þið nafnið mitt þarna einhvers staðar sem þýðir þá það að það eru 10.000 mann eða meira búnir að heyra mig syngja með Páli Rósinkranz þetta lag á disknum vúhúhú :)

katosk | 16:19

22.október

Ciao frá Milano

Var að spjalla við bró og kó í Milano og þar sem webcamið hans var bilað þá fékk ég þessa sætu mynd af þeim skötuhjúum og Rósu vinkonu þeirra :) Svo fékk ég líka þessa fínu mynd af kúl póstkortum sem þau eru með uppi á vegg hjá sér :)

katosk | 18:04

21.október

Draumaráðningar

Sko ég á að vera að læra en ég var að leyta að bók og fann dist með Jet Black Joe og draumaráðningabókina mína þannig að ég ákvað að setja diskinn í spilarann og ráða drauminn minn þar síðan í gær og hérna kemur það:

Banki: Séu menn á leið í banka í draumi bendir það til þess að nóg sé komið af óæskilegum skuldum.  Dreymandinn ætti að velta fyrir sér einhverjum leiðum til að greiða niður skuldir sínar og alls ekki að taka frekari lán að sinni. (o.k. ég er námsmaður á engum launum og allt sem ég fæ fer í skuldir hmmm hvað á maður að gera í svona málum??)

Stuldur: Stuldur í draumi er fyrirboði þess að dreymandanum verði gefnir skartgripir. (ohhh ég hlakka til, verst hvað ég er ódugleg við að nota skartgripi)

Skjóta: Skjóti menn úr byssu græða þeir töluverða fjármuni, verða sviknir eða upplifa mila sorg. (vona að það sé þetta fyrsta og ég verði rík)

Handtaka: Dreymi menn að þeir séu handteknir er það vísbendig um greindarskort eða hverflyndi. (nei sko þetta passar ekki við mig er það nokkuð?? en sko þær hættu við að handtaka mig af því að ég laug að það hafi ekki verið ég sem rændi bankann)

Lygar: Dreymi menn að þeir hafi logið að einhverjum er það staðfesting þess að þeir séu heiðarlegir. (getur að vísu líka þýtt að aðsteðandi vandamál séu dreymandanum sjálfum að kenna en mér lýst betur á hið fyrra því as far as I know þá er ég mjög heiðarleg)

Þjófnaður: Dreymi menn að þeir steli einhverju er það einungis góðs viti fyrir þá sem eru að reyna að svíkja aðra. (Vonandi er það líka góðs viti fyrir mig)

katosk | 18:20

Allt komið í lag

Fékk símhringingu frá henni Ingibjörgu hjá  icelandair.dk og það er sumsé búið að redda miðanum mínum :) vúhúhú þannig að núna þarf ég ekki að drekkja sorgum mínum og glápa á gamla Melrose Place þætti í sjónvarpinu enda held ég það hefði bara gjörsamlega drepið mig ;)

katosk | 15:43

Bilun

Það var einhver bilun hjá Símanum Internet þannig að allt sem ég skrifaði í gær kom EKKI inn :/ Í morgun var ég ógeðslega dugleg og vaknaði snemma og var mætt í skólann á mínútunni 9 (var sú þriðja inn í stofuna) aldrei þessu vant og viti menn kennarinn var veikur þannig að það var engin kennsla just my luck og svo þegar ég kom heim þá var e-mail frá flugleiðum þar sem þeir segja mér að flugmiðinn minn heim hafi verið afbókaður í gær af því að þeir geti ekki tekið af Visa kortinu mínu hmmm samt tóku þeir 2325 DKr. þann 16.okt ætluðu þeir að taka meira?? hmm ég bara spyr þannig að þetta er ekki alveg minn dagur :(

katosk | 15:19

20.október

Ryksugan á fullu étur alla drullu lalalala lalalala lala lala

Jebbs ég keypti mér ryksugu áðan og er búin að ryksuga allt hátt og lágt hérna eða svona næstu því af því að sko ég er haldin ólæknandi sjúkdómi sem er sá að þegar ég kaupi eitthvað svona nýtt þá þarf ég alltaf að breyta í leiðinni þannig að ég er búin að breyta hjá mér líka :D

katosk | 18:22

Litla sys komin með heimasíðu.....loksins :)

Þarf endilega að koma bræðrum mínum inn á þetta líka svo maður fái að fylgjast með þeim á netinu :) En endilega kíkið á heimasíður systra minna og skrifið í gestabækurnar þeirra :) Hérna er Guðrún Alma og svo er Lilja Sif búin að vera í soldin tíma með sína.

katosk | 18:18

Rændi banka í nótt

Úff mér er alveg illt í hendinni eftir að hafa rænt banka og verið handtekin í nótt, vá hvað þetta tók á maður en HALLÓÓÓ hve langt er maður sokkin þegar manni er farið að dreyma að ræna banka???  En allavega þegar ég vaknaði í morgun var ég búin að henda öllum fjarstýringum út um allt (ætli það hafi ekki verið peningarnir) og svo var ég búin að slökkva á gemsanum mínum (það var örugglega þegar ég skaut á lögguna) og mér var ógeðslega illt í upphandleggnum (eftir að löggan náði mér) en það er svona allt að komast í stand núna ;)

katosk | 12:17

19.október

Dem dem dem

Þá meina ég ekki þýsk mörk þannig að afsakið orðbragðið en ég fokkíng trúi þessu ekki hvað ég er óheppin ég meina hallllllóóóó!!! Ég veit að 200kr (danskar) er ekki svakalega mikill peningur en núna er allt í einu búið að lækka ferðirnar heim með Icelandair um þá upphæð hvað er að gerast??? Well það þýðir víst lítið að væla en af hverju er ég svona óheppin??? Í fyrra beið ég aðeins með að panta far heim í von um að það lækkaði en neeeii þá bara hækkaði fargjaldið með hverjum degi og núna þegar ég er tímalega í þessu þá lækkar það með hverjum degi ohhhhhhh og getur einhver líka sagt mér af hverju er ódýrara að kaupa miða af icelandair.dk heldur en icelandair.is er þetta ekki sama fyrirtækið??

katosk | 13:28

Elsku besti pabbi

Til hamingju með afmælið :)  Vildi að ég væri þarna heima til að smella á þig kossi en þú færð hann bara eftir tvo mánuði í staðinn eða 19.des þegar ég kem heim vúhúhú ;) Fékk sko flugmiðann í pósti í gær :)

katosk | 10:26

18.október

Binary í dag er mitt fag

Vá hvað ég er mikill rímari híhíhíh ;) ég er að spá í að fara að skrifa allt í binary hehehe nei ég segi nú bara svona ég kann ekkert á þetta þó svo ég hafi nú einhverntíman lært að lesa binary  en sko ég man 01100001=a ;)

Það er samt hægt að lesa það sem hérna stendur fyrir neðan, sko ef þið skrifið bara binary í google.com þá fáið þið upp síðu sem decode-ar :)

1100100101100111001000000110010101110010001000000111001101110110011011110010000001101

100111101100111010000100000111011010010000001100100011000010110011100100000011000011

1110000001000001110100101100111001000000110111001100101011011100110111001101001001000

00011001010110101101101011011010010010000001101110011001010110100101101110011101010010

000000111010001010000010000001100101011010110110101101101001001000000110010101101001

0110111001110101001000000111001101101001011011100110111001101001001000000110000111110

000001000000111001101101011011100100110100101100110011000010010000011100001001000001

11111100110010101110011011100110110000100100000011000100110110001100101011100110111001

10111010111110000011101010010000001101000011001010110100101101101011000010111001111101

1011111000001110101001000000011101000101001

Annars held ég að ég myndi ekki nenna þessu því hvert bil er 00100000. Dísuss ég er hætt að bulla og ætla að leggja mig aðeins :)

katosk | 16:12

14.október

Emma Guðrún

Gleymdi að skrifa eitt í gær og það er það að Jóhanna og Guðni skýrðu lilluna sína Emma Guðrún, Til hamingju með það :)

Svo gleymdi ég að segja eitt í gær að til að vera með skype þarf maður bara míkrafón ekki webcameru því maður talar bara í þetta eins og síma :)

katosk | 11:25

13.október

Skype er snilld

Já ég gleymdi sko að segja ykkur að í dag keypti ég mér webcameru og míkrófón til að geta notað skype sem mér finnst algjör snilld og núna finnst mér að allir vinir mínir eigi að fá sér svona svo ég geti spjallað við þau án þess að þurfa að hafa áhyggjur hvað það er dýrt að tala á milli landa :) Mæli endregið með þessu :)

katosk | 00:37

Fullt af dóti

Langt síðan ég skrifaði síðast þannig að ég segi ykkur bara fullt af dóti :)  Sko á laugadaginn fékk ég símtal frá Jónsa og haldiði að hann hafi ekki bara verið í bænum vúhúhú :) það er svo gaman að fá gesti :)  Hann kom hingað á Kagså að horfa á leikinn Ísl-Þýs (sem fór ss ekki nógu vel) og var einn af yfir hundrað manns sem mættu á svæðið og það var svaka stemming í sentrinu hérna.  Nú ég tók það að mér að vera barþjónn og seldi fullt fullt af bjór og græddi smá pening í tips í leiðinni en ég þurfti nú samt að minna suma á að borga tips og það endaði eiginlega bara á því að Jónsi og nokkrir menn úr Keflavík gáfu mér tips :) íslendingar verða nú að fara að læra að gefa tips hmmm.  Nú eftir leikinn bauð Jónsi mér svo út að borða á Herefords (að sjálfsögðu) og þar fékk ég mér graflax í forrétt og nautafillet með hvítlaukssmjöri og bakaðri kartöflu í aðallrétt þannig að ég angaði vel eftir matinn af hvítlauk :)  Nú eftir að við vorum búin að borða og drekka baileys og hann irish coffee fór ég á café no.1 (barinn) og þar voru Kalli og Áki Pain með svaka diskó og barinn var fullur af fólki sem fæst var héðan af kollegi-inu eða það held ég allavega.  Nú mér fannst ekkert frábært þannig að ég fór og horfði aðeins á videó hjá Sibbu og svo þegar ég fór heim eða réttara sagt var á leiðinni heim um þrjú leytið þá var bara geggjað stuð á barnum þannig að ég fór þangað aftur og var að til að verða sex :/ en ég skemmti mér konunglega :)  Gærdagurinn var svo alveg í stíl við það sem á undan fór þannig að ég drullaðist ekki á fætur fyrr en um eitt leytið og fór þunn að skúra :/

katosk | 11:45

10.október

Búin að panta far heim um jólin :)

Já þá er sá hausverkur búinn :) og ótrúlegt en satt þá voru icelandair ódýrari en icelandexpress og það munaði sko alveg um 10þús þar á milli.  Já ég veit að ég var búin að segja að ég ætlaði bara að versla við icelandexpress en hvað á fátækur námsmaður að gera??? Ég bara spyr?? ;)  En allavega þá er ég að koma heim 19.des og fer aftur 4.jan á afmælinu hans Stulla frænda :)

katosk | 11:29

9.október

Kjaftasögur

o.k. og ég trúði þeim hmmm já ég ss trúði því að það væri búið að reka hann Ola Pukki einn af uppáhalds kennurum mínum en svo var það bara kjaftó hmmm það er að vísu búið að segja einhverjum upp en hann er ss ennþá að kenna vúhúhú ;)  Ég fékk samt nýjan kennara í dag og hann var með rödd eins og Sean Connery nema með dönskum hreim og það var soldið fyndið en það var samt ekki eins fyndið og þegar ég fékk hiksta ó mæ got sko þegar ég fæ hiksta þá heyrist eins og í litlum nýfæddum hvolpi sem er að reyna að gelta dísuss og það er ekkert smá stutt á milli hehehehe kennarinn fékk næstum því hláturskast honum fannst þetta svo fyndið og svo var ég eitthvað að reyna að halda niðri í mér andanum og þá bara versnaði hikstinn hahahha æ þetta er samt svona had to be there *hikk*

katosk | 15:10

8.október

Smá könnun

Verð að prufa að hafa smá könnun þannig að endilega svarið :)

katosk | 23:49

6.október

Kagsåfest

ömm já ég er á lífi :) netið hérna er bara búið að vera leiðinlegt og ég nenni ekki að reyna að skrifa inn á síðuna þegar ég get svo ekki sett það inn á netið en núna er þetta allt að lagast þannig að núna ætla ég að fara að verða dugleg aftur :)  Sko það sem er að frétta er að um helgina var Kagsåfest og þar var alveg geðveikt stuð og allir í megastuði en og sést kannski best bara á myndunum :)  Flottastir fannst mér strákarnir sem fóru í gerfi Village People og tóku Y.M.C.A en þrír þeirra voru víst æfðir og sá fjórði (Jón Svan/indjáni) var fenginn í leikinn eftirá og kom sá og sigraði því það var eins og hann hefði æft í margar vikur hehehehe ;)

 

               Gunni leather                  Beggi worker                  Svenni cop              Jón Svan Indian

 

Annars er nú ekki mikið búið að gerast hjá mér síðustu daga, það hefur einhvern veginn ekkert komist að hjá manni annað en það Kagsåfest og svo er hún bara búin og þá veit maður ekkert hvað maður á að gera :)

Ég var að lesa moggann og mér fannst þetta alveg ógeðslega asnalegt þ.e. að ríkið skuli fá 59% af hverri áfengisflösku sem seld er þarna heima og svo má maður ekki flytja þetta með sér heim það er ekki skrítið að maður tími ekki að fá sér í glas þegar maður fer heim í heimsókn :/ en allavega svo var e´g að að lesa meira í mogganum og  mér fannst  þetta ferlega fyndið :) við tókum einmitt Final Countdown um helgina en við í hljómsveitinni vorum ekki alveg sammála um það hvenær Europe var á Íslandi þannig að ef þú lesandi góður veist það þá endilega skrifaðu í komment hérna fyrir neðan :)  Sko ég segi að þeir hafi verið heima 1986 en strákarnir segja að það hafi verið seinna.  Hey ég hef ekki fengið eitt einasta bréf og mjög fá símtöl eftir að ég flutti á nýja staðinn þannig að ég ætla að ítreka heimilisfang og símanúmer :)  Kagsåkollegiet 75, 2730 Herlev og svo er síminn 0045 4488 1477 mjög auðvelt :)

katosk | 14:51

29.september

Ætlar ekki af blessuðum skólanum að ganga

Ég á nú bara ekki til eitt aukatekið orð af þessum blessaða skóla sem ég er í, núna er búið að segja upp fullt af kennurum og viti menn haldiði að þar á meðal sé ekki eini góði kennarinn sem við höfum haft á þessari önn ég gæti lamið þessi fíbbl sem stjórna þessum skóla ohhhhh, við fengum að vísu fínan kennara til að kenna okkur javascript í dag þannig að það bætti aðeins úr þeim fréttum að Ola Pukka væri hættur að kenna okkur :) 

Annars er bara ágætt að frétta frá kóngsins, var að koma af hljómsveitaræfingu fyrir Kagsåfest á laugardaginn og það gekk bara ágætlega okkur vantar bara trommara svo Einar greyið og Kalli þurfi ekki að búa til Midi fæla fyrir öll lögin :) en þeir eru svo klárir að það reddast :)  Hvernig ætli það sé að vera trommari og fara til útlanda að læra, ætli trommarar taki settin með sér?? hmmmm spurning ;) ég ætti bara að læra á trommur og kaupa mér sett hehehe sé mig í anda híhí :) 

Ég fór í svaka partý á laugardaginn í boðiSiggu og Gumma en þau höfðu unnið pulsuvagn í einn eða tvo tíma, (man ekki hvort) 10 kassa af gosi og 10 kassa af bjór og svo DJ um kvöldið þannig að það var tjúttað frameftir og að sjálfsögðu skemmti ég mér konunglega fór seint heim samt ekkert allt of seint eins og ég á stundum til að gera og ég og Hákon gerðum tilraun til að vekja Stulla en hann var ekker voðalega glaður og rak okkur í burtu, mundi svo ekkert eftir því í gær hehehe.  Ég nenni ekki að setja inn myndir núna geri það seinna :)

katosk | 23:22

24.september

Christina Aguilera

Jebbs var að koma af tónleikum með Christinu Aguilera og það var bara mjög mjög gaman, hún tók að vísu nokkur hundleiðinleg lög en svo tók hún líka mörg mjög góð en VÁ hvað hún er ógeðslega væmin þegar hún talar greyið hehehehe "I would like to thank my........." það mætti halda að hún hafi verið að taka á móti verðlaunum hehehehe ;) Við fórum og fengum okkur að borða í rólegheitunum áður en við fórum á tónleikana sem voru haldnir í Forum og vorum ekkert að stressa okkur enda ætluðum við ekkert að vera fremst en þegar við komum þá var sú allra lengsta biðröð sem ég hef á ævinni séð og við nottulega urðum að fara í hana en þegar við sáum hvar endinn á henni var þá eiginleg bara ákváðum við að svindla okkur í röðina og okkur tókst það :) og ekki nóg með það heldur kom síðan vörður og sagði vinsamlegast komið hingað og við fengum að labba fram fyrir alla og beint inn þannig að það endaði með því að við vorum á meðal fyrstu 3 þús manns inn hehehe ;) Læt fylgja með smá sýnishorn hérna fyrir neðan svo þið getið ýmindað ykkur hvað röðin var löng :) Ég tók nottulega myndavél með mér og tók fullt af myndum :) ég var að vísu soldið stressuð að taka myndavélina með mér inn af því að ég hélt hún yrði tekin af mér en kallinn sem leitaði í töskunni minn sagði bara við mig mjög vingjarnlega "þú mátt bara ekki súma inn" og ég alveg o.k. ég lofa hehehe as if að ég fari með myndavél með mér og megi ekki súma inn glætan spætan :)  Þið fáið að sjá myndirnar seinna en ég lét eina fylgja :) Kalli tók hana að vísu þannig að ég tek ekki kredit fyrir það :)  Mér fannst þessi kjóll sem hún er í þarna eiginlega flottasti búningurinn sem hún var í en hún skipti örugglega tíu sinnum um föt ef ekki oftar :)

 

katosk | 23:22

Til lykke með afmælið Heiða

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í ún Heiða

Hún á afmæl'í dag

Eg er búin að finna afmælisgjöf handa þér og þú færð hana bara seinna mín kæra :)  Luv ya ;)  Ég ætla svo bara að skella mér á tónleika með Cristinu Aguilera í kvöld af því að ég get ekki verið heima á afmælisdaginn þinn :)  Sibba bakaði gulrótarköku áðan þannig að við erum alveg að halda upp á afmælið þitt :)

katosk | 16:46

23.september

Rafmagnsleysi

Ég hefði ekki trúað því hvað maður er háður rafmagni þangað til ídag, úff maður það er ekki hægt að gera rassgat í rafmagnsleysi.  Það var ss rafmagnslaust hjá okkur í dag frá 12:30 til að verða 19:00 þannig að maður fór fyrr heim úr skólanum, keyrði varlega heim þar sem öll götuljós voru slökkt, það var flestum búðum lokað þar sem ekki er hægt að nota kort og svo nottulega öll rafmagnstæki á heimilinu ónothæf og hvað getur maður gert þá??? Ekki nennti maður að fara að læra nei nei það er ekki hægt þannig að ég fór bara heim til Sibbu og við fórum að púsla og svo buðu Gunni og Tóta okkur yfir í grillað roastbeef með grillsoðnum kartöflum sem búið var til kartöflusallat úr og svo þegar strákarnir voru búnir að elda þá kom rafmagnið hehehe frekar fyndið :)  En allavega þá fannst manni dagurinn í gær hálf ónýtur þar sem ekkert var hægt að gera :)

katosk | 00:27

22.september

Sól sól skín á mig..

Ótrúlegt en satt þrátt fyrir að það sé komið svona langt fram í september að þá var geggjað veður hérna í dag :) Ég er viss um að það hafi farið upp í 25°c hita hérna fyrir utan svo gott var veðrið well eða þá allavega 22°c ég er ekki alveg með innbyggða mælinn á hreinu :)  Annars var ég bara að koma af hljómsveitaræfingu þar sem verið var að æfa lög fyrir Kagsåfest sem verður þarnæstu helgi ohhh hvað ég hlakka til :)  Í dag fékk ég svo gefinn örbylgjuofn af Ásu, á að vísu eftir að prufa hann og líka finna pláss hérna fyrir hann en hann er soldið stór en ég er svakalega glöð með þetta :)  Það gat enginn svarað mér spurningunum frá því í gær þannig að ég er bara hætt við að skipta við bæði flugfélögin og kem örugglega bara með fraktara heim um jólin sem laumufarþegi nú svo er ég alveg ágæt í sundi þannig að hver veit nema maður taki bara til sunds og komi við í Færeyjum or something :/

katosk | 23:26

21.september

Til hamingju með afmælið Biggi :D

Minn elskulegi brósi sem býr núna í Mílanó á afmæli í dag :) Til hamingju með það elsku bró :)  Ég stal mynd sem Guðbjörg (kærastan hans) tók af honum á Ítalíanó :)

 

 

annars er þessi dagur búin að vera hálfgerður letidagur hjá mér og eiginlega bara öll helgin, vaknaði í morgun við að húsið hrisstist allt og skalf þar sem það voru svo svakalegar þrumur og eldingar en svo kom bara allt í einu sól það er ekki bara á íslandi sem veðrið er skrítið :)

Hey eitt sem ég var að spá og ef einhver hefur svar þá vinsamlegast svarið í kommentakerfið :)  Spurningin er svona:  Af hverju í ósköpunum og hvernig geta IcelandExpress verið orðnir jafndýrir og Icelandair með jólamiðana??? Ég er ógeðslega fúl og ekki nóg með það að þeir séu orðnir jafnháir heldur eru þeir hærri en ég keypti miðann um síðustu jól :(

katosk | 23:05

19.september

Hver og hver og vill og verður???

Mig langar svooooo svakalega að nota flugmiða sem ég á til Íslands í kvöld er ekki einhver þarna úti sem langar að gefa mér farmiða aftur til DK á mánudaginn???  Mér finnst nefnilega svo leiðinlegt að láta hann fara til spillis :/  Áhugasamir sendi póst á katosk@kagsaa.dk eða hringi í +45 60650410 þið hafið rúma fimm klukkutíma til að ákveða ykkur :) ég á nebblilega far heim kl. 22:50 :)

katosk | 15:54

17.september

Sprengja á Glostrup Hospital

Ég segi nú bara ó.m.g. ég Sibba og Heiða vorum þarna á mánudaginn að kaupa okkur samloku hmm ætti maður kannski að hætta að þora að fara á Glostrup Hospital í bestu samloku í heimi?? Nei ég segi nú bara svona þetta var víst eitthvað mótorhjólagæjamorð en vá hvað maður býr nálægt fullt af svona rugli hmmm maður ætti kannski bara að fara aftur á verndaða Ísland :) nei bara grín :)

katosk | 16:14

Best að efna gefin loforð

Ég er búin að lofa bróður mínum myndum úr afmælum Ellýar og Tinnu í rúman mánuð og ætla hérna að standa við gefið loforð og skella þeim á netið :) Sorry Biggi hvað þetta kemur seint :) Hérna eru myndirnar úr afmælinu hennar Ellýar og hérna úr Tinnuafmæli :)

katosk | 15:26

Gleymdi aðeins...

úbbs ég bara skrifa og skrifa en gleymi svo að setja þetta allt saman á netið :/ sorry about that ;)

katosk | 12:17

15.september

Katrín.is

Já ég gleymdi að segja ykkur að á laugardaginn hitti ég katrinu.is og ég stóðst nú ekki mátið og fór og heilsaði henni og kynnti mig, varð nú að gera það þar sem ég er búin að lesa síðuna hennar næstum því daglega síðan ég byrjaði sjálf að skrifa á netið :) og svo átti hún nú smá hluta af þessari síðu þar sem ég hafði nælt mér í bakgrunninn af gömlu síðunni hennar og notað á síðunni minni :) Takk fyrir það Katrín :) Ég kunni nú ekki við að taka mynd af nöfnu minni en geri það nú kannski ef ég sé hana á förnum vegi aftur :) Nú hún á afmæli í dag þannig að ég nota bara tækifærið og óska henni til hamingju með daginn í leiðinni :)  En nú eru allir farnir frá mér og venjulegir skóladagar og heimalærdómur taka við :)  Ég er strax farin að sakna Heiðu, Sirrý og Svenna og vona að þau komi sem fyrst aftur til mín :)

katosk | 23:02

14.september

Góður dagur í Köben

Við byrjuðum daginn í kökuboði hjá Sibbu, fórum svo og löbbuðum Nýhöfn og Kristjaníu í frábæru veðri, Heiða, Sirrý og Svenni eru búin að fá alveg frábært veður á meðan þau hafa verið hérna :)  Við fengum okkur kvöldmat á besta veitingahúsi ever eða Herefords og spjölluðum heilmikið :)  Það er búið að vera æðislegt að hafa gesti. Það voru nú ekki frábærar fréttir sem ég fékk frá Íslandi í nótt en systur mínar lentu hörðum árekstri og bíllinn hennar mömmu er ónýtur en sem betur fer eru dúllurnar mínar í lagi og slösuðust ekki alvarlega, mér skilst að þær séu bara með strengi í baki og hálsi, verst er að Guðrún Alma átti að vera að keppa í fótbolta og þar átti að velja í landsliðið :( frekar mikill bömmer.  Þegar eitthvað svona gerist langar manni nú bara að vera heima á klakanum og knúsa fólkið sitt.

katosk | 01:10

13.september

Fönn fönn fönn fönn íslensk fönn

GJEGGJAÐ STUÐ!!! Vorum að koma að alveg hreint geggjuðum tónleikum þetta var alveg sjúklega gaman ég er bara ennþá í skýjunum :)  Stuðmenn komu, sáu og sigruðu í Kristalssalnum í Tívolí og þetta er hreint og beint minning sem verður lengi að hverfa úr hausnum á manni.  Þau náðu upp þvílíkri stemmningu að maður hélt bara að salurinn myndi springa.  Við kíktum aðeins á Strikið eftir tónleikana og fengum okkur í svanginn en tókum svo lestina upp á kollegi og sökum þreytu eftir verslið um daginn fengum við okkur bara einn öl á barnum og fórum svo heim að spjalla.

katosk | 02:45

Heiða lent :)

Sirrý og Svenni komu í gær og við fórum út að borða á Mama Rosa rosalega fínum veitingastað á Strikinu, veðrið var svo gott að við sátum úti og horfðum á fólkið labba á strikinu.  Nú síðan löbbuðum við út á Ráðhústorg og aftur til baka og það var alveg bara ferlega næs hjá okkur :)  Í dag lenti svo Heiða og það var farið í verslunarferð á Strikið í góða veðrinu og þar átti næstum því við shop till you drop hehehe þið skiljið hvað ég á við ef þið skoðið myndirnar hérna fyrir neðan :)  Núna erum við að gera okkur til til að fara á Stuðmannatónleika í Tivolí í kvöld og við spáum geggjuðu stuði :)

 

katosk | 17:30

12.september

Íhaaaaaaaaa

Sirrý og Svenni eru lögð af stað út á flugvöll og koma eftir nokkra klukkutíma og svo kemur Heiða í hádeginu á morgun íhahahahaha ég hlakkkkkkkka svooooooooo til :)

katosk | 13:26

9.september

Stelpurnar farnar

Jæja þá er ég búin að skila systrum mínum og ég verð nú að viðurkenna að ég var með smá kökk í hálsinum þegar þær fóru, ég er strax farin að sakna þeirra en svo er ég líka með smá bömmer yfir því að við skulum allar hafa verið veikar í gær þrátt fyrir að ég hafi ekki getað gert neitt í þeim málum en samt :(  ég vona bara að þær séu ekki ælandi í flugvélinni núna greyin :) En þá hefst bara næsta tilhlökkunarefni og það er að Heiða, Sirrý og Svenni eru á leiðinni og fyrsta holl kemur á föstudaginn og svo kemur Heiða á laugardaginn :)

katosk | 16:20

8.september

Ekki skemmtilegur dagur vægast sagt

Við erum allar sárlasnar þó svo að Lilja beri sig nú best og hefur sloppið við upp og niðurköstin :/ og við sem ætluðum að skemmta okkur svo vel í dag systurnar :(  skemmtilegur síðasti dagur hjá þeim eða þannig hmmm ég vildi að ég gæti nú gert eitthvað til að létta þeim lund en er sjálf svo lasin að ég get það ómögulega þetta er alveg ferlegt.  Okkur vantar eiginlega bara mömmu okkar núna :) Svo er ekki nóg með það að við séum lasnar heldur er hundleiðinlegt sjónvarpið ofan á allt saman.  Jæja ég ætla að hætta að kvarta og leggja mig aðeins svo ég verði nú nógu hress til að keyra dúllurnar mínar á flugvöllinn á morgun, þær eru nefnilega að yfirgefa mig buhuhuhuhu ;( Annars var helgin alveg ágæt hjá okkur, laugardagurinn fór í versl og svo chilluðum við bara í gær þar sem dagurinn í dag átti að fara í meira versl en svo fór sem fór :/

katosk | 20:49

5.september

Miss sólbrennd hægra megin

Dísuss kræst mér finnst að þegar það er svona mikil sól að þá ætti að vera sjálfvirkur hringjari eða eitthvað í símanum manns sem segi SNÚA, ég sat með strákunum sem eru með mér í verkefni í skólanum úti í garði að læra í dag (svona garður í skólanum) og var nottulega ekkert að spá í það hvort að ég þyrfti að snúa hinni hliðinni á andlitinu upp í sólina þannig að núna er ég eldrauð á annari hliðinni á andlitinu og hálsinum og hægri hendinni ohhhh frekar pisst út af því.  Það góða er hins vegar það að það er spáð svona góðu veðri alla helgina þannig að á morgun verð ég bara úti vinstra megin hehehehe.  Stelpurnar fóru í bæinn í morgun þegar ég fór í skólann og voru að versla í allan dag á meðan ég var í skólanum og þær ættu núna að vera vel fataðar fyrir veturinn, Guðrún er allavega búin að kaupa fullt af stuttermabolum ;) og Lilja peysur, það mætti halda að þær byggju í sitthvoru landinu :D Bara svo þið vitið það þá koma Heiða, Sirrý og Svenni eftir 7 og 8 daga vúhúhú ég hlakka bara ógeðslega til :)

katosk | 23:30

3.september

Tivoli í dag Strikið á morgun

Já það er sko plan hjá okkur systrunum, ég fer í skólann á morgnana og eftir hádegi gerum við eitthvað skemmtilegt :)  Í dag var það tívolí og hérna eru myndir frá því og svo á morgun ætlum við að kíkja á strikið og þær ætla að versla aðeins held ég :)  Í kvöld fluttum við líka í nýju íbúðina mína og VÁ þvílíkur munur að geta andað dísöss maður :) þannig að núna er ég komin með nýtt heimasímanúmer sem er alveg eins og það gamla nema síðustu þrír breytast úr 430 í 477 svona ef þið vilduð bjalla í mig :)

katosk | 00:06

2.september

Allltaf stuð í Köben

Við systurnar og Sibba og Margrét Allý skeltum okkur í Experimentarium í dag og skemmtum okkur konunglega og ég mæli með því við alla sem langar að gera eitthvað skemmtilegt í DK að fara þangað, við vorum þar í þrá og hálfan tíma og hefðum alveg örugglega geta verið þar lengur ef það hefði verið opið lengur.  Ég tók nokkrar myndir af okkur þar og þær eru hérna.  Nú ég er komin með nýja íbúð og ætla að flytja þangað á morgun þannig að ef þið þekkið einhvern sem er að koma til DK og vantar gistingu til 15.sept þá er ég með herbergi á leigu, ég nefnilega að skila þessu herbergi þann dag :)  Hey og svo eru Heiða, Sirrý og Svenni að koma til mín þarnæstu helgi og ég HLAKKA ÓGEÐSLEGA MIKIÐ TIL :) við Sibba erum búnar að kaupa miða á Stuðmenn og það verður heldur betur tjúttað þá helgina vúhúhúhúhúúúúúúúúúúú ;) hehehehe

katosk | 22:50

31.ágúst

Í Kuben kuben hérna útí Kubenhán

Jæja þá er maður kominn í kónsins benhavn og það er bara alveg rosa fínt :)  Tók systur mínar með mér en er nú ekki búin að gera neitt svakalega mikið fyrir þær greyin þessa tvo daga sem við höfum verið hérna en ég ætla nú að reyna að vera duglegri að gera eitthvað fyrir þær á næstunni en svo ég segi nú í stuttu máli frá því sem við erum búnar að gera þá er það svona:  Við flugum með Icelandair (já ég veit ég ætlaði ekki að versla aftur við þá en þeir voru ódýrari í þetta skipið) það var komið fram við okkur eins og drottningar og við máttum velja sæti hvar sem var í flugvélinni þar sem hún var ekki full og við gátum verið með þrjú sæti á mann ef við vildum, algjört æði.  Stelpurnar voru svaka duglegar og lærðu heima í flugvélinni en þær verða víst að vera duglegar við heimalærdóminn þar sem þær missa rúmlega viku úr skólanum á meðan þær eru hjá mér :) Það var næstum því heiðskírt á leiðinni og við sáum Langjökul, Mýrdalsjökul og Vatnajökul skarta sínu fínasta og að sjálfsögðu tók ég nokkrar myndir :)  Nú við lentum það seint að það var bara kíkt í heimsókn til Sibbu og Kalla og svo farið heim að sofa í litla herbigginu mínu :)  Gærdagurinn fór svo mest allur í það að ég fór að syngja í brúðkaupi og var að æfa mig og svoleiðis og svo fórum við og elduðum hjá Sibbu.  Í dag lágum við systurnar uppi í rúmi og gláptum á MTV´s VMA´s og fórum svo í afmæli hjá Sigurjóni en eftir það kíktum við á Litlu Hafmeyjuna og á konunghöllina þannig að við vorum smá menningarlegar :)  Hérna eru svo nokkrar myndir fyrir þá sem vilja skoða :)

katosk | 22:38

28.ágúst

Last day on Ice

Mín er ss að fara back to Köben á morgun :) og nú fer hver að verða síðastur að fá gistingu hjá mér helgina 13-14.sept eða þegar Stuðmenn koma til að sjá og sigra í Tívolí því ég er búin að hita fullt af fólki upp í að koma út vúúhúhúhúhú það verður geggjað stuð :) 

katosk | 17:27

24.ágúst

Áinhandareyritun

Ég var að horfa á einn sniðugasta en jafnframt leiðinlegasta þátt á Skjá 1 í annað sinn bara af því að mér fannst svo fyndið þegar ein stelpa kom og bað um áinhandareyritun hahahaha sjúklega fyndið ;)  Svona ef þið eruð forvitin þá var þetta þátturinn Hljómsveit Íslands og væri örugglega fínn þáttur ef hljómsveitin væri aðeins betri og skemmtilegri en hugmyndin að þættinum finnst mér frábær og gítarleikari hljómsveitarinnar er fínn lagahöfundur og eiginlega betri söngvari en söngvari hljómsveitarinnar :) well well ekki meira um það enda vita sennilega fæstir um hvað ég er að tala ;)  Helgin hefur bara verið frekar róleg hjá mér sökum veikinda, já já ég er ennþá að reyna að losa mig við þessa bévítans pest fór t.a.m. að sofa um miðnætti á föstudaginn og missti af jarðskjálftanum týpísk ég :/ en í gær fór ég svo og heimsótti Gospelsystur og fékk að fara með þeim og syngja niður laugarveginn og það var bara alveg ferlega gaman.  Nú gærkvöldið fór bara í rólegheit heima hjá Tinnu en þar sátum við og sötruðum rauðvín og horfðum á gömul myndbönd með Bon Jovi og Duran Duran og skemmtum okkur konunglega hehehehe ætluðum svo að skella okkur í pottinn en Tinna náði að slá út rafmagninu og okkur gekk ekkert allt of vel að koma því á aftur þannig að við fengum mann í málið og lítið varð um pottaferðir.  Nú eru ekki nema 5 dagar í útferð og maður strax farin að plana djamm úti :/ ætla að skella mér á Stuðmannaball í Tívolí 13.september, það er nú algjört möst finnst mér og ætli maður kíki þá ekki í bæinn í leiðinni og fer á skrallið en meira um það síðar.  Hey eruð þið ekki að djóka með þennan vírus sem er í gangi?? Ég var heima í tvo daga í síðustu viku kom svo í vinnuna og mín biðu 400 mail með vírusum í ég hélt ég yrði nú ekki eldri en sem betur fer hef ég sloppið með lappann minn.  Jæja best að skella sér í bólið, hey þið DK búar, er góða veðrið nokkuð farið?? Ég var nebblilega búin að lofa systrum mínum góðu veðri á meðan þær væru hjá mér :/

katosk | 00:47

20.ágúst

Læti á Kagså???

Þið þarna Kagsåbúar voruð þið með einhver læti um daginn?? 

katosk | 23:49

19.ágúst

Við drekkum Jameson við drekkum Jameson...

ó já ég smakkaði Jameson í fyrsta skipti á laugardaginn og mikið djö.... var það vont en hvað gerir maður ekki til þess að geta skemmt sér með vinum og ættingjum hmmm ég fór sko í dörtí afmælið hennar Tinnu frænku og var eiginlega bara drulluslöpp með hálsbólgu og læti en hann Steinn (pabbi Tinnu) skellti þá bara til mín einu skoti af Jameson til að deyfa bólguna og svei mér þá þetta virkaði bara fínt, fékk svo annan rétt áður en ég hélt smá ræðu í tilefni dagsins og söng eitt lag en mikið afskaplega var svo vont að vera þunnur með hálsbólgu á sunnudaginn og þurfa að fara að vinna en ég dreif mig nú samt. 

----------------------------------------------------------------------------------------

smá interöpt!! símtal frá Perlu

Það kom lítil stelpa í heiminn um átta leytið í kvöld hjá Jóhönnu og Guðna, allt gekk vel,

fjölskítunni heilsast vel og dúllan var 17 merkur og 56 cm enda á hún ekki lávaxin pabba dúllan :)

K.Á.K. meðlimir eru því orðnir 11 hey einhver laga þetta takk ég vil hafa slétta tölu!!!!

Innilega til hamingju Jóhanna og Guðni :)

----------------------------------------------------------------------------------------

Já svo ég haldi nú áfram með skrifin þá fór ég að vinna á sunnudaginn og trúið mér að næst þegar ég verð lasin þá ætla ég ekki á fyllerí því það er bara frestun á veikindum og þau verða verri það er allavega orðið verulega langt síðan ég varð svona veik eins og ég er í dag :( þetta er ömurlegt!!!

Nú af öðrum fréttum þá eru núna 10 dagar í það að ég fari aftur til Köben og ég eiginlega bara hlakka rosalega mikið til ef ég hef ekki sagt ykkur það áður híhíhí ég hef ekki fengið vírus eins og svo margir 7, 9, 13, knock on wood og allt það, ég á frænku sem syngur eins og engill og ætlar að keppa í Idol og ég hlakka svooooo til að sjá það (sko ef einhver nennir að taka upp fyrir mig og senda mér út) ég er komin með sár í nefið út af snít og ég hef eiginlega ekki mikið meira að segja í bili þar sem hausinn á mér er að springa við það að sitja við þessa tölvu ég reyni að setja inn myndir kannski á morgun frá helginni en hausinn á mér meikar ekki að sitja lengur hérna núna bæ í bili..

katosk | 23:40

13.ágúst

Klósettpappír Katrínar

Eins og allir vita sem einhvern tíman hafa þurft að nota almenningssalerni þá heitir draslið sem heldur uppi klósettpappírnum uppi KATRIN (væri ekki leiðinlegt að eiga það lén) nema hvað, ekki það að ég sé alltaf að lesa hvað stendur á pappírnum eða jú stundum hehee jamm hvar var ég já í dag þurfti ég að nota eitt slíkt, en o.k. á þeirri dollu stóð Kelly Clarkson nú og fyrir þá sem ekki kannast við það nafn er það stelpan sem vann fyrstu American Idol keppnina þannig að ég var sko að spá í ætli hún segi "ég er svo fræg að þeir nefndu klósettpappír eftir mér" nei djók hehehe þá væri eiginlega frekar eins og einhverjum væri illa við hana híhí en æ mér fannst þetta bara eitthvað svo fyndið :) Olga Björt vinkona hún á líka svona baðvöru í sínu nafni O.B. hey og allar kunnum við að syngja hehehehehehe æ ég er bara eitthvað að bulla en allavega þá vitið þið það núna að ef þið kannist við nafnið Kelly Clarkson á klósettinu þá er það sama nafn og á stúlkunni sem vann fyrstu Idol keppnina og fróðleiksmoli dagsins vara í boði................. ég held að ég ætti nú bara að fara að drífa mig í háttinn ;)

katosk | 23:57

12.ágúst

Komin með Monkecell

Jebbs ég er offissíallí orðin einstaklingsherbergisleigjandi með eldhúsi vúhúhú :) þannig að einhvern tíman á bilinu 1-15 september flyt ég úr hrísgjrónablokkinni í mitt eigið slott :)  Nú svo ég fari nú í það að rifja upp dagana frá 5.ágúst þá hefur nú margt á daga mína dregið.  Sko ég er búin að fá Jónurnar í heimsókn til mín en ég hélt saumó um daginn, Jónurnar eru fyrir þá sem ekki vita hópur ungra telpna sem voru allar að vinna saman hjá Jónum Transport, nú svo hjálpuðum við Perlu og Binna smá að flytja á laugardaginn áður en við fórum í Gay Pride (myndir koma síðar) og eftir það eða seinna um kvöldið brunuðum við systurnar ég og Lilja á Laugarvatn til að fara í afmæli hjá Ellý frænku.  Nú svo er ég bara búin að vera að dúllast hér og þar, aðallega þar samt þar sem ég er eiginlega aldrei heima (bara af því að í rauninni á ég að vera að læra) en frá og með mánudeginum næsta verð ég ekki við þar sem ég ætla að vera ógeðslega dugleg að læra svo ég verði nú búin með verkefnið mitt þegar ég fer út 29.ágúst jújú ég kem loksins aftur til danaveldis þá og verð ekki ein í för því ég tek tvo flutningamenn með mér hehehe nei nei ég segi svona, litlu systur mínar ætla að koma heimsækja stóru sys til Köben og fara í Tívolí og svoleiðis.  En jæja ég ætlaði nú bara að sýna smá lit svo fólk haldi ekki að ég sé hætt skrifum en núna ætla ég að fara að grilla með K.Á.K. í góða veðrinu.

katosk | 18:46

5.ágúst

Met heimsóknir

Vá það eru hvorki fleiri né færri en 100 manns búnir að kíkja á síðuna mína í dag sem er algjört met síðan ég setti upp teljarann það versta er að allavega svona 80% af þeim skilja ekki íslensku og hafa þess vegna í rauninni ekkert hingað að sækja hehehe

Helgin var alveg frábær hjá mér, ég og Lilja sys lögðum af stað á föstudagskvöldið í Flókalund og þar hittum við liðið og gistum í eina nótt nú daginn eftir var haldið að Látrum en við ætluðum ss að gista í Breiðuvík en hættum við þar sem það var svo mikið rok þar.  Í staðinn kíktum við aðeins í Látrabjarg, safnið á Hnjóti og svo veiddum við fjögur stk. bleikjur í bæjarlæknum á Hnjóti og þetta voru nú þær fyndnustu veiðiaðferðir sem ég hef séð stundaðar því við köstuðum út litlu neti og hoppuðum svo á bakkanum og þá kom fiskur hehehe frekar fyndið.  Nú við kíktum á Patró í smá kaffi hjá "ömmu" Erlu og ég fékk svartfuglsegg mmmmmmmm það er sjúklega gott :) nú og svo fórum við á Tálknafjörð og vorum á því flottasta tjaldsvæði sem um getur held ég bara.  Á sunnudeginum keyrðum við svo á Bíldudalog svo í Selárdal og skoðuðum húsið hans Gísla á Uppsölum og svo á hús listamannsins með barnshjartað sem ég man ekki hvað heitir akkúrat núna en þið fáið að sjá fullt af myndum á næstu dögum.  Nú öll kvöldin var að sjálfsögðu tekinn upp gítar og söngbækur og sungið frameftir nóttu og það var bara alveg rosalega gaman :)  Ég var voða voða góð þessa helgina og drakk sama og ekki neitt enda varð ég eiginlega bara þunn af því að drekka tvo bjóra á laugardagskvöldinu en það er ekki hægt að segja það sama af henni Hrafnhildi vinkonu minni sem náði að fótbrjóta sig á verslunarmannahelgardjammi í DK hehehe nei sko þetta er nottulega ekki fyndið en jú samt smá hehehehe :) sorry Hrafnhildur :)

katosk | 00:25

1.ágúst

Þokkalega góð byrjun

Það er nú heldur betur sem þessi mánuður byrjar vel, fyrst fær maður glaðning frá skattinum, svo fær maður

útborgað, er á leiðinni í útilegu og það er 23°c hiti já ég endurtek 23°c hiti bara frábært :)  En ég er sumsé farin vestur með fullt af liði úr fjölskítunni og öðrum þannig að það verður stuð ;) skítt með eyjar hehehehe Jæja best að drífa sig, bara góða helgi til ykkar allra og ég skrifa svo eitthvað hérna á þriðjudaginn og set inn myndir frá helginni.

katosk | 18:09

30.júlí

Verslunarmannahelgi nálgast

Já núna er verslunarmannahelgin að renna í garð og margir á leiðinni í ferðalag, ég veit ekki hvort ég sé að fara eitt né neitt en ég get þó samt sagt að ég hafi aðeins tekið þátt því að mánudagskvöldið fór í það að syngja "þjóðhátíðarlag" fyrir þannig að ég verð kannski með einhverjum í anda hehehehe en kannski fer ég eitthvað vestur með m & p og fleirum þannig að það er ekki öll nótt úti enn :)  Já svo gerði ég líka soldið í gær hmmm ég fór sko nebblilega í inntökupróf á Broadway til að reyna að komast í show sem á að sýna þar í haust ;) veit ekki alveg af hverju búandi í DK og það var ekkert á planinu að fara að flytja aftur heim en allavega ég fór og það var bara ógeðslega gaman þó ég hafi verið vel stressuð.  Jæja ég ætla að láta þetta nægja í bili tölvan er eitthvað svoooooo leiðinleg og lengi að öllu ;( ef ég fer eitthvað um helgina er ég að spá í að henda henni í viðgerð á meðan og vona að einhver hjá Nýherja ætli ekki að gera neitt um helgina og nenni að gera við hana hehehehe ein í bjartsýniskasti ;)  Hey eitt í viðbót, af hverju sagði mér enginn hvað Nikolaj og Julie væru frábærir þættir??? öhhh sko jú Sibba sagði það eiginlega en vá mér finnst þeir frábærir :) kannski sakna ég bara DK svona mikið hmmmm það gæti kannski bara verið það?????? p.s. Hrafnhildur ekki hætta að lesa plíííís ég veit þá allavega að það er einhver sem les ruglið í mér :D

katosk | 02:05

27.júlí

P.S.

Hvernig finnst ykkur nýji háraliturinn minn???

 

katosk | 02:05

..og það var BLEIKT

Það var geggjað stuð í matarklúbbnum hjá okkur í K.Á.K. í gær :) Allir mættu í eða með eitthvað bleikt og Heiða og Sirrý máluðu meira að segja vínflöskurnar sínar bleikar hehe, við sátum svo úti í góða veðrinu til klukkan fimm í morgun eða þangað til það fór að rigna :)  Nenni ekki að skrifa meira núna en þið verðið bara að skoða myndirnar :)

katosk | 02:04

24.júlí

Langt síðan síðast

Svo ég verði nú alveg hreinskilin þá hef ég ekki nennt að skrifa hingað inn í næstum því viku einfaldlega vegna þess að ég er bara að fá ógðe á tölvunni minni, þegar maður situr svona allan daginn fyrir framan tölvuskjá þá nennir maður ekkert svakalega að fara að skrifa á heimasíðuna sína :/ en svo á móti kemurþað að ég gleymi fullt fullt af skemmtilegum hlutum sem ég hef ætlað að segja frá hmmm.  Nema hvað síðustu helgi skellti ég mér í útilegu með fjölskyldunni og við fórum og tjölduðum í Faxa og keyrðum svo upp í Kerlingafjöll og í Hveradali og það var eiginlega bara alveg ógeðslega gaman :)  Að sjálfsögðu læt ég fylgja nokkrar myndir :) eða eiginlega soldið margar því ég varð soldið húkt á þessari æðislegu nátturu okkar og tapaði mér alveg með myndavélina og að sjálfsögðu varð ég að taka nokkrar sjálfsmyndir hehehe ég var samt alveg ógeðslega mikill nörd og tók með mér tölvuna í útileguna en ég lofa ykkur því að ég kveikti bara tvisvar á henni til að setja inn myndirnar :)

 

 

 

Nú ég lofaði að segja ykkur frá snilldinni við webcam, sko ég eignaðist lítinn frænda um daginn og þar sem að það er nú ekki hægt að allir fjölskyldumeðlimir séu að koma í einu að fá að sjá hann bað ég Snæbjörn um að sýna okkur gripinn á msn í gegnum webcam og hérna er afraksturinn af því og ætti í raun að sýna þvílík snilld þetta er :) Verst að það er eitthvað firewall á Kagså þannig að ég get ekki notað svona þar og spjallað við familíuna í gegnum webcam :( en hérna er allavega myndin af Snæbirni og jr. og svo sjásumt ég og pabbi þarna brosa af þeim hehehe nema hvað að við erum með miklu verri vél en Snæbjörn :)

 

 

Ég heyrði eina ógeðslega fyndna sögu af konu í fjölskyldunni minni (nefnum engin nöfn köllum hana bara x) nema hvað að x fór í 10-11 að versla og áður en hún kemur að kassanum gengur hún fram á blaðarekka og ákveður að kaupa sér blað sem hún kaupir svona stöku sinnum.  Nú x fer heim með blaðið og opnar það (var sko í plastpoka) og sér til mikillar armæðu (á kannski bara að skrifa mæðu?? skiptir ekki öllu) er þetta Hustler hehehehehehehe nú og hún er ekki lengi að loka blaðinu og fer og skilar  því (þarna argaði ég af hlátri) og afgreiðsludaman neitar að taka við blaðinu þar sem búið er að opna það og þá segir x: "nú þá máttu bara eiga það" en þá vorkennir afgreiðsludaman x soldið og endurgreiðir henni blaðið.  Nú svona svo að ég klári nú söguna þá var blaðið sem x ætlaði að kaupa Hús og Hýbýli en x leit bara á fyrstu þrjá stafina Hus og hélt að það væri H&H hahahahaha

 

Um helgina ætla ég nú bara að vera í bænum (tala ég eins og ég sé alltaf í útilegu, búin að fara einu sinni) og ég ætla að halda matarklúbb K.Á.K í þetta skiptið svona af því að ég er á landinu þið skiljið :)  Ég ákvað að breyta aðeins til að hafa þema og þar sem uppáhaldsliturinn minn er bleikur er að sjálfsögðu bleikt þema og ég sendi svo að sjálfsögðu út bleikt boðskort (svona ef þið viljið sjá) og þið fáið svo að sjá myndir eftir helgi :) það verður gaman að sjá hvort að liðið komi í bleiku :)

katosk | 00:00

18.júlí

Í sól og sumaryl

Ælta ég nú bara að skella mér með "fjölskítunni" í úttlegu á hálendið :)  Skrifa svo allt um það eftir helgi og snilldina webcam í tækniheimum heheheh ohhhhh ég er svoooo háfleyg stundum að ég næ ekki upp í nefið á mér (bara svona rétt yfir efri vör) ;)  Biggi og Guðbjörg ef þið lesið þetta þá megið þið alveg senda mér heimilisfangið ykkar og kannski símanúmer líka :D

katosk | 17:11

15.júlí

Skrítinn heimur eða skrítið fólk kannski bara

Það er sko ýmislegt fólk sem dettur inn á síðuna manns skal ég segja ykkur og margt skrítið sem fólk er að leita að á leit.is eða goggle.com eða öllum þessum leitarvélum bara sem lætur það detta inn á mína síðu.  Þetta eru t.d. setningar og orð sem fólk hefur pikkað inn og lent hjá mér:

 


Festen, islendingabok.is, á spáni, "hreinar meyjar", sibba og kalli, Real Flavaz, "Jonas og Lilja", sushi, heillanornirnar, lopapeysu, læra spænsku, að búa til heimasíðu, Saturday Night fever, Kagsa, tupperware, búa til heimasíðu, jet black joe, verkfræði leiðinleg, sticks sushi, gripið og greitt, bókin með svörin, ég vil búa til heimasíðu, Jónsi og Birgitta, fyndið, búa sér til heimasíðu, bananabrauð, Kondu hingað, 'vinna í danmörku',
Hvernig verð ég fræg, "two weeks notice", myndir partý djamm, partý, hmmm.... , Heyrnarlaus skóli í Ísland, hvað er meðgangan margir dagar hjá hömstrum, harry potter site:is patreksfirði , myndir af fólki að reykja,

 

 En ég hélt að ég yrði ekki eldri þegar ég sá hvað var verið að leita að í gær og mín síða var þar efst á lista, dísuss kræst sagði ég nú bara en fattaði svo af hverju þetta grey datt inn á mína síðu :) Það var ss þetta:

íslensk stelpa 18 ára + vil missa meydóm

hellllllllúúúú en svo fattaði ég ss að ég var að tala um meydóm 4.maí síðastliðinn þannig að þess vegna fann leit.is mína síðu :)

Hrafnhildur og Beggi.com fóru bæði á Rolling Stones tónleikana í Köben um helgina og skemmtu sér konunglega greinilega.  Ég öfunda ykkur sko ekki neitt og ekki heldur af hitanum þarna úti hmmmm ég er líka að fara á Christinu Aguilera í sept hehehehehehe ;) (ein að reyna að vera úllíngur)

Jæja nú er kl. orðin hálf eitt og rúmlega það og ég gleymdi nottulega eins og svo oft áður að setja röflið mitt á síðuna :) Nenni svo ekki að skrifa meira í bili þannig að ég kveð bara bonna notte eins og bróðir minn sendi mér í sms áðan og þýddi svo góða nótt svo stóra sys skilji alveg örugglega ítölskuna hehehe ;)

katosk | 00:41

14.júlí

Bilaður tölvuandsk......

ohhh ég er að verða geðveik á þessari tölvu minni og ætla að fara núna í vikunni helst bara og skila henni eða sko allavega fá hana lagaða en hún er búin að vera að slökkva á sér í tíma og ótíma og skemma fullt fyrir mér :( nema hvað að núna virkar hún svo allt í einu fínt bara af því að ég er búin að segjast ætla með hana í vedigerð ;) Nú svo ég skelli nú aðeins upp því sem hefur að daga mína dregið síðan síðast þá fór ég í afmæli til Völu á föstudaginn og sat þar á spjalli fram á rauða nótt, nú svo á laugardaginn var maður rifinn á fætur langt fyrir aldur fram nei hvað segir maður welll skiptir ekki svo miklu allavega var ég vakin á hádegi hehehe til að fara og kveðja Bigga og Guðbjörgu en þau voru ss að flytja til Italiano.  Nú Steinn og Jón Ágúst áttu afmæli þann dag eða 12.júlí fyrir þau ykkar sem eru ekki alveg klár á dögunum þannig að ég óska þeim til hamingju með daginn :) Nú svo ég haldi áfram þá áttu Snæbjörn og Kata von á kríli 5.júlí en drengurinn lét bíða eftir sér og ætlaði greinilega ekki að hitta Bigga strax því þau rétt náðu að kveðja Bigga og Guðbjörgu áður en þau fóru á fæðingardeildina þannig að ég eignaðist þriðja frændann sem á þá afmæli 12.júlí :) Sjá mynd ;)  Á laugardagskvöldið fór ég í mat heima hjá Jóhönnu og Guðna og svo í gær kíkti ég í heimsókn til Margrétar, Jökuls og Snorra Péturs og hitti Betu & co og svo um kvöldið fór ég í mat til Ólu og Jónsa eftir að hafa soðið sjálfa mig aðeins í heita pottinum :) Já svona var nú helgin mín :) ég skal nú reyna að skrifa eitthvað skemmtilegra hingað inn á næstu dögum ef talvan mín heldur sig í lagi en ekki nóg með það að hún sé biluð heldur þurfti ég að fara með myndavélina mína í viðgerð á föstudaginn úfff ég er gjörsamlega handa og fótalaus án hennar :/ en svona í sárabætur fékk ég stóran glaðning frá bossinum mínum eða sko við öll í fyrirtækinu fengum sumargjöf :) jábbs eina rauða, eina hvíta og svo rósavín eða kannski er þetta blush eða eitthvað :) það er allavega áfengt þannig að ég er glöð hehehehe ;) en hérna kemur myndin af prinsinum hans Snæbjörns :)

 

katosk | 00:14

9.júlí

All you people dropping by....

.........you´re welcome to sign my guestbook though you might not understand the icelandic ;)

 

Það er svooooo mikið af útlendingum að skoða síðuna mína þessa dagana að ég eiginlega bara á ekki til orð hehe hingað er á síðustu dögum búið að kíkja inn fólk frá Íslandi og Danmörku (að sjálfsögðu) og svo Hollandi, Þýskalandi, Belgíu, Svíþjóð, Bretlandi, Trínidad og Tobago, Ástralíu, Argentínu, Kanada og Mexíkó svo eitthvað sé nefnt fyrir utan allar .com og .net sem ég sé ekki frá hvaða löndum koma :) Allt þetta bara út af því að ég linkaði í einhvern gæja í úglöndunum :)  Ég fann soldið sniðugt á síðu sem katrín linkaði í í gær eða fyrradag, hún að vísu linkaði í einhverja gellu sem var að sýna á sér brjóstin hehe en sú var með þetta dót á síðunni sinni og  þarna er sko hægt að sjá hvað hefur oft verið leitað að manni á netinu og svoleiðis ;) Kíkið !!

 

Anyways þá ætlaði ég nú ekki beint að fara að skrifa eitthvað mikið hingað enda klukkan orðin margt, en ég vildi bara óska Sibbu til hamingju með daginn hún á nebblilega ammæli í dag :)  Til hamingju Sibba!!!

katosk | 01:42

7.júlí

Brjálað að gera

Helgin var soldið busy hjá mér, byrjaði sko kl. 6:30 á föstudagsmorgun þegar við komum systur minni á óvart og vorum búin að bara brauð og kökur í tilefni 17 ára afmælisins og vorum öll (vantaði að vísu hitt afmælisbarnið) í morgunkaffi en hún greyið var þá að koma af næturvakt og átti ekki von á neinu :) þetta var ferlega gaman, við meira að segja sögðum "óvænt" og allt hehehehe og gáfum henni pakka og svoleiðis :) Nú eftir vinnu skellti ég mér aðeins í heita pottinn til að slaka aðeins á fyrir átök kvöldsins en við ss fórum í kveðjupartý hjá Bigga og Guðbjörgu og svo fórum við á Sálarball á Gauknum og djömmuðum þvílíkt :) geggjað stuð.  Nú á laugardaginn var ég bara þunn þangað til ég fór að syngja í brúðkaupi hjá Ólöfu og Palla, þau voru æðislega sæt og ekki var ómyndarlegur maður sem var í því brúðkaupi hmmm mér skilst ss að Eiður Smári sé frændi brúðarinnar, sem betur fer sá ég hann ekki fyrr en ég var búin að syngja hehehhe nú um kvöldið hafði ég það bara næs yfir sjónvarpinu þar sem ég átti svo að syngja aftur á sunnudeginum í skírninni hennar Margrétar Allýar og svo eftir skírnarveisluna fór ég að vinna þannig að þetta var mjög svo busy helgi :)

Nú svo ég fari nú að öðru:  Til haminjgu með ammlið  í da Vala og tilhamingju með ammalið á laugardaginn Þórhallur svo ég gleymi nú engum :)

Og svo að enn öðru: ég er búin að fá einhvern heljarinnar helling af innlitum á síðuna frá fullt af löndum af því að að ég linkaði í þennan gaur 19.júní síðastliðinn en hann var með fyndna msn kalla á síðunni sinni og linkar í mig undir þakkir fyrir að hafa linkað á siðuna mina eða eitthvað svoleiðs og bara grey fólkið skilur ekki neitt hehehehe nema hvað ég nenni ekki meir núna sí jú leiter aligeiter ;)

 

Hérna eru svo myndir frá föstudagskvöldinu :) ætlaði sko að vera ógisslega dugleg og skirfa texta við þær en nennti því ekki hehehe

katosk | 20:58

4.júlí

Ammæli

Þau eiga efmeil'í daaa

Þau eiga efmeil'í daaa

Þau eiga efmeilli systkynin mín

Þau eiga aefmeil'í daaa

 

Elsku Lilja Sif til hamingju með 17 ára afmælið og elsku Hilmir til hamingju með 24ra ára afmælið :) og svona af því að þið eigið afmæli á þjóðhátíðardegi USA fáið þið afmælissönginn í red white and blue :) og ekki nóg með það heldur með amerískum hreim ;)

katosk | 20:47

2.júlí

Langur starfsferill

Sko það mætti eiginlega halda að ég væri með munnræpu heh en sko ég gleymdi að segja frá svottlu fyndnu sem var á launaseðlinum mínum í gær híhí ég hlýt að vera sá allra elsti starfskraftur Jóna Transport sem um getur en þar stóð að ég hefði unnið þar í 99 ár og 8 mánuði hmmmm hvað ætli þeir gefi manni í gjöf þegar maður hefur verið starfsmaður svona lengi og hvað ætli maður sé búin að vinna sér inn marga sumarfrísdaga hahahaha nema hvað að ykkur lesendur góðir er að sjálfsögðu boðið í veisluna eftir fjóra mánuði þegar ég held upp á 100 ára starfsafmæli mitt hahah

katosk | 22:57

Milli í einn dag

Ég gleymdi nú að publish-a því sem ég skrifaði hérna áðan en það er allt í lagi en ég sko ætlaði nebblilega að segja ykkur það að ég var næstum því milli í einn dag í gær eða mér leið allavega þannig hehehe ég sko nebblilega fékk útborgað og gat borgað fullt af skuldum og mér leið svooooooo vel á eftir að mér fannst ég bara milli, ég hélt svo upp á þetta í dag með því að bjóða sjálfri mér út að borða með Jóhönnu í hádeginu (að vísu á Mc'D hehe) og svo fór ég í HB-búðina og keypti mér nærur það þarf sko ekki mikið til að gleðja litla sál eins og mig :) ekki skemmdi það svo að áður en ég fór í HB-búðina fórum við mamma að láta smyrja bílinn á ESSO stöðinni uppi á Stöð (þeir sem ekki fatta= ESSO við Reykjavíkurveg) og ég ætla bara að láta ykkur vita það að þar var einn bara sá fallegasti maður sem ég hef séð, sko stelpur nú farið þið allar og látið smyrja bílana ykkar hann er æðislegur þessi strákur, veitti frábæra þjónustu og var skemmtilegur og með ógeðslega flott brún augu n.b. brún augu og ljóst hár er yfirleitt ekki það sem ég fell fyrir en VÁ hann var algjört krútt þannig að ég vil bara minna ykkur á ESSO uppi á Stöð og ég skal sko alveg koma með ef þið viljið ehehehehe. 

katosk | 22:52

Odontofóbía

Hjúkket ég er loksins búin að finna nafn á sjúkdóminn minn hehehehehe odontofóbía vitiði hvað það er??? Sko ég var nebblilega að lesa Lifandi Vísindi og þar segir sumsé þetta: "Ótti við tannlækna er svo útbreiddur að þetta fyrirbrigði hefur meira að segja fengið læknisfræðilegt heiti, -odontofóbía." mér finnst þetta frekar fyndið en sko ég er eiginlega búin að læknast af þessari hræðslu minni við tannlækna eftir að ég fékk mér nýjan frábæran tannlækni sem notar lasertækni þannig að þetta var soldið seint í rassinn gripið að finna þessa grein að vísu ef mér hefði dottið í hug að lesa blöðin hans bróður míns þegar hann fékk þau árið 2000 þá kannski hefði ég vitað þetta ekki það að mig hafi nauðsynlega vantað að vita þetta nema hvað að nú vitum við ölla hvað odontofóbía er :)

katosk | 18:59

26.júní

Enginn er vinur minn

Ég er búin að komast að því Enginn er vinur minn og Enginn er rosalega duglegur, Enginn þrífur t.d. tölvuherbergið hans pabba, Enginn nennir að ná í tissjú og Enginn getur farið út að labba með hundinn hehehe það er alveg brjálað að gera hjá honum ;)  en nóg af bullinu í mér það er ss búið að gera við tölvuna mína vúhúhú það var að vísu gert í fyrradag en ég hef bara ekki gefið mér tíma í að skrifa hingað inn, er eitthvað voðalega mikið annað að gera :) Nú í fyrradag fór saumaklúbburinn í Heiðmörk og grillaði, voðalega gaman hjá okkur þarf einmitt að setja myndirnar inn við tækifæri og í gærkvöldi byrjuðum við að taka til í tölvuherberginu hans pabba af því að ég ætla að flytja þangað og svo í kvöld kíktum við á Beggu sem n.b. hafði fengið slökkviliðið í heimsókn þar sem gleymst hafði að skrúfa fyrir krana og það var allt á floti hjá henni, einhvern veginn hafði dömunn í 112 misheyrsts þegar Begga hringdi og bað um samband við slökkviliðið þar sem að það væri allt á floti hjá henni og farið að leka smá niður í næstu íbúð því þegar kallarnir komu höfðu þeir fengið þau skilaboð að það flæddi um allt og væri farið að flæða niður stigann á hæðina fyrir neðan hehehe og þeir tóku með sér sjúkrabíl og allt, verst þótti mér að hún sagði að slökkvikallarnir hafi ekkert verið sjúklega sætir :/ ég hélt einmitt að slökkviliðið væru myndarlegustu karlarnir hmmmm.  Ég verð nú líka að segja ykkur frá einu að það var skrítinn strákur  með meiru að leigja herbergið mitt úti og mér er skítsama þótt hann lesi þetta því mér finnst hann asni.  Sko hann ss átti að skila herberginu í dag og skila lyklunum af því í hádeginu til Hrafnhildar nema hvað að hann gerði það en í staðinn fyrir að fara ja bara eitthvað annað þá skilaði hann lyklinum og fór svo aftur í herbergið og var þar bara og svo þegar fólkið sem átti að fá herbergið í dag kom þá bara fór hann ekkert og þau héldu að um einhvern misskilning væri að ræða og sögðust bara koma aftur eftir kvöldmat þá sagði hann bara ókey HALLÓÓ hann átti ekkert að vera þarna og hefði átt að segja nei nei ég á að vera farinn og hvað er það að skila lyklunum og fara svo bara aftur í herbergið og skilja allt eftir opið dísuss kræst sko eins gott að ég er ekki á Kagså núna því ég hefði hreint út sagt slegið mannin ég var svo reið en Hrafnhildur reddaði þessu sem betur fer fyrir mig þessi elska, takk kærlega Hrafnhildur ég skulda þér einn :)

katosk | 00:04

23.júní

Biluð talva :(

Sorry þið sem lesið síðuna mína en hérna verður sennilega ekkert skrifað á næstunni þar sem tölvan mín er biluð :( nú grenja ég bara buhuhuhuhu hvernig á ég að komast af án tölvu????? Vonandi verður þetta ekki lengi því ég verð að koma bullinu mínu frá mér.  Ég er að skrifa þetta í einni þeirri stærstu upplausn sem ég hef séð á tölvuskjá sko talvan er föst í einhverri 800x600 upplausn eða stærri held ég bara :( og þó að ég sé svona þokkalega sæmó í tölvum þá get ég ekki unnið svona, maður sér bara hálfan skjáinn í einu ;)

katosk | 00:30

22.júní

Vel soðin kartafla með rúsínuputta

Já ætli þetta sé ekki bara besta lýsingin á mér etir þessa yndislegu helgi. Byrjaði á því að fara í pottinn á föstudaginn eftir vinnu og sat það í klukkutíma og las Harry Potter, skellti mér svo á fjörukránna með the Stones fam og skoðaði víkingana.  Nú í gær fór ég svo í bæinn með Heiðu, Jógu og Sirrý og svo kíktum við á tónleikana hérna niðri á höfn og horfðum á Írafár, svaka gaman og glampandi sól nú og af því að það var svona gott veður var ákveðið að skella sér í pottinn hjá m&p nú ég skellti mér fyrst á fótboltaleik þar sem FH keppti við ÍBV að vísu sko 3.flokkur og litla sys að keppa og viti menn ég bara skemmti mér vel, stóð að vísu ekki kjurr vegna spennu en að sjálfsögðu unnu FH stelpurnar 3-2 :) nú svo var haldið heim í pottin en við ákváðum nú fyrst að veðrið væri svona æðislegt að þá skyldum við elda saman og á meðan Sólon Birkir skellti sér í pottinn fórum við og versluðum á grillið.  Við borðuðm og spjölluðum og um kl. 22 skelltum við okkur í pottin með bjór og rauðvín og beilís og næs og guess what?? Við lágum í pottinum í SEX KLUKKUTÍMA og ég sver það að ég held að við höfum skilið eftir heila manneskju í pottinum því við skiptum allar um ham :) Í dag skelltum við okkur svo aftur í pottinn þannig að ég er vel soðin og puttarnir og tærnar jafna sig nú fljótlega af rúsínuvandanum ;) Það er BARA geggja að vera með heitan pott í garðinum get ég sagt ykkur og ég ætla að fara að safna fyrir einbýlishúsi með heitum potti um leið og ég er búin í námi hehehehehehe ;)  Nú er ekkert sem heitir ég verð að fara að vinna í lottói!!!!!!!!

katosk | 01:11

 

19.júní

MSN smælkallar

Ég var aðeins að sörfa um á netinu að skoða svona smælkalla og datt þá inn á þessa síðu þar sem einhver strákur er búin að herma eftir msn köllunum hehe ;)

katosk | 00:09

Bleikur dagur í dag

Já konur voru ss hvattar til að vera í bleiku í dag og þar sem bleikur er nýji uppáhalds liturinn minn klæddist ég að sjálfsögðu smá bleiku og þess vegna verður allt bleikt hérna í dag  og svo er ég líka búin að læra að gera svona sæta smælíkalla (Olga kenndi mér) þannig að maður verður að nota svona bleika kalla líka nema hvað að strákarnir í vinnunni voru svo sætir við okkur stelpurnar að þeir keyptu handa okkur ístertu með bleikum blómum og ég held að þeir hafi náð sér í nokkra plúsa með þessu hehehe.  Nú grillið á 17.júní var alveg frábært og hérna mættu næstum því 60 manns og það var étinn grillaður lambaskrokkur og svo var farið í vatnsslag sem ég n.b. startaði ekki og svo var sungið og spilað á gítar og hristu og munnhörpu og svo var spilað golf og svo var að sjálfsögðu drukkið aðeins þó svo að ég hafi nú bara verið í kókinu aldrei þessu vant en ég var ss ein af þeim sem átti að mæta í vinnu daginn eftir en ég nenni ekki að skrifa meira og nenni bara eiginlega ekki neitt að skrifa þannig að ég læt bara myndir fylgja þið verðið bara að afsaka að sumar eru soldið hreyfðar af því að myndavélin mín er biluð buhuhuhuhu.  En svo get ég alveg sagt ykkur það að bráðumm verður þessi síða bara bleik af því að eins og ég sagði áðan er það orðinn uppáhaldsliturinn minn og það er svo gaman hehehehe ef ykkur líkar ekki þá bara só bí itt nei ég segi bara svona hehehe

         

katosk | 23:33

16.júní

Change of plan og 32 kg af svíni takk fyrir

Vá hvað tíminn er fljótur að líða þegar maður er byrjaður að vinna svona dojts mar ;) nú nema hvað ég hef tekið stóra ákvörðun og hún er að skila verkefninu mínu ekki fyrr en í ágúst (þegar ég byrja aftur í skólanum) og fer þess vegna ekki út í næstu viku eins og planið var, nú það er margt sem kemur að þessari ákvörðun (ein voða háfleyg eitthvað) og það er t.d. 1)ég er ekki búin með verkefnið og sé ekki fram á að klára það eins og ég vil hafa það fyrir miðvikudaginn. 2) ég gat ekki fengið prófdaginn sem ég bað um og yrði því að fara út um helgina sem færir okkur í ástæðu 3) það var ekki til neitt ódýrt flugfargjald um næstu helgi og hefði farið fyrir mig kostað um 40 þús og rúmlega það og þá er ég nú ekki mikið að spara :/ en þetta er bara fínt svona og ég er viss um að bankanum mínum sé sama þó þeir fái lánin mín inn í júlí eða byrjun sept, verð samt að muna að tala við þá.  Eníveis svo við förum nú í annað þá átti að halda hérna í dag heljarinnar afmælisfíesta og var boðið um 60 manns í grill hérna hjá m&p, why afmælisfíesta?? Nú vegna þess að af þessum 60 manns eiga 30 afmæli í jún, júl og ág ótrúlegt en satt :) Það átti ss að grilla heilan svínsskrokk og átti geimið að byrja á hádegi og endast frameftir nema hvað að þegar pabbi fór að sækja grísinn þá hafði strákurinn sem pantaði hann látið slátra svíni en ekki grís hehehe nei ég segi svona en allavega hann fékk 32 kíló af svíni og svoleiðis skrokkur kemst bara ekkert upp á grill eða eins og pabbi sagði "þetta er svín fyrir 100 manns og það tekur hálft ár að grilla hann" þannig að grillinu var frestað til morguns og við ætlum að grilla bara lamb í staðinn en skrokkur verður það heillin og geimið byrjar sennilega á hádegi og svo bara skreppur maður í skrúðgöngu og svoleiðis á milli snúninga því það þarf víst að snúa skrokknum á 15 mín fresti, ég ætla nú samt ekki sko að hlaupa í skrúðgöngunni hehehehe ég lofa að setja inn myndir eftir þetta allt saman. Jæja ætla að drífa mig í háttinn til að vera hress og skemmtileg á morgun :)  p.s. læt fylgja með mynd af bakgrunni heimasíðunnar sem ég er að gera í verkefninu mínu, þetta verður ss síða sem á að ná til unglingsstelpna :)

katosk | 01:44

12.júní

Afmælibörn

Sko ég þekki bara fullt af fólki sem á afmæli í dag :) Fyrst af öllum er nottulega mamma mín kæra, til hamingju með daginn mum nú og svo varð hann Heiðmar Gauti 1.árs í dag nú svo kannast ég við fullt af öðrum sem eiga afmæli eins og t.d. Helgi Hinriks og fleiri þannig að allir sem ég þekki og eiga afmæli í dag: TIL HAMINGJU!! Nú ég byrjaði að vinna í dag og það var bara fínt, komst að því að ég er ekkert búin að gleyma neitt svakalega miklu á þessum tveimur árum sem eru liðin síðan ég vann hjá Jónum Transport síðast, verst er það hvað þetta er langt í burtu og ekkert hjól og ekkert lestarkerfi á klakanum og bíllinn minn í DK þannig að ætli ég neyðist ekki til að læra á strætisvagnana hérna og drullast með þeim :) Well það kemur í ljós hvernig það fer kannski fæ ég bara far hjá einhverjum af þessum samstarfsfélögum mínum sem búa hérna í firðinum :)

katosk | 21:51

10.júní

Tilraunastarfsemi í gangi

Sko þegar ég er alveg að klepra á verkefninu mínu þá kíki ég hingað og geri smá breytingar þannig að vonandi fyrirgefið þið mér hinar ýmsu breytingar sem munu kannski eiga sér stað hérna á næstunni :)

katosk | 13:57

9.júní

Hvítasunnuhelgin að baki

Og ég var alls ekki nógu dugleg við lærdóminn :/ Ég lærði nú samt að búa til svona voða voða flott 3D eins og er hérna uppi :) og kem til með að nota það í verkefninu mínu :) Ég fór í eitt það flottasta tvítugsafmæli sem ég hef farið í á föstudaginn en þá hélt Jón Ragnar frændi minn upp á afmælið sitt og ég held svei mér þá að ég hafi drukkið 2 ef ekki 3 rauðvínsflöskur enda var hausverkurinn á laugardaginn alveg í takt við þannig drykkju hehehe.  Well well verkefnið kallar, ég skal nú reyna að vera duglegri í skrifum svona svo þið fáið fréttirnar beint í æð :) það er bara eitthvað svo leiðinlegt að skrifa alltaf um lærdóminn en það er það eina sem ég geri þessa dagana :/ Getið þið sem þetta lesið reynt að senda mér einhverjar góðar hugsanir svo mér gangi betur með þetta blessaða verkefni og geti farið að hugsa um eitthvað annað??

katosk | 22:54

5.júní

Helv.....lærdómur

Ég er að verða geðveik á þessu verkefni mínu sem virðist ekkert ætla að gubba sér út úr hausnum á mér og í tölvuna, mig langar bara að fara að ljúka þessu af og fara að hitta fólk og gera eitthvað skemmtilegt hmm..... sá eini sem ég hitti er Baltasar og hann vill bara leika sér með einhver tístbolta og maður verður alveg þokkalega leiður á hljóðinu í þessu.

katosk | 15:31

2.júní

Komin heim á klakann

Jæja kom heim á föstudaginn og það var bara alveg ágætt, Tinna frænka kom svo um kvöldið og þurfti endilega að koma með grenandi rigningu með sér ég var nú ekki svona vond þannig að ég tók svo sólina upp úr töskunni í gær og lá í pottinum í þynnkunni allan daginn en ég fór ss í fertugsafmæli hjá Siggu "frænku" á laugardagskvöldið.   Annars er bara allt fínt að frétta og það er gott veður á klakanum fyrir þau ykkar sem sleikið sólina í útlöndunum og ég lofa að reyna að vera dugleg að skrifa á meðan ég er hérna heima :)  p.s. Hákon og Stulli sorry en ég gleymdi að publiha afmæliskveðjunni ykkar :/

katosk | 15:57

30.maí

Hákon og Stulli...

.....til lykke með afmælið ykkar :) Varð að skella þessu hérna inn þó ég hafi engan tíma til að vera í tölvunni núna, er bara að pakka og fer svo heim á eftir :) 

katosk | 10:04

 

29.maí

Heitt heitt heitt ái það er heitt

Já maður eyðir nú ekki tímanum í það að sitja inni þessa stundina það sem það er GEGGJAD veður hérna, ég skrifa bara eitthvað um helgina þegar ég er komin til Íslands :) þ.e.a.s.ef ég kemst þangað, hef ekki tíma til að pakka þar sem sólin kallar alltaf á mann út að leika :)

katosk | 17:29

27.maí

Brunarústir eftir 28°c hita

o.k. ég átti að vera að læra í allan dag, vaknaði klukkan 10 til að fara að læra og lærði fram að hádegi en gat þá ekki haldið mér hérna inni lengur og tók tölvuna og tvær bækur með mér út í garð en eins og allir vita getur maður lítið gert við tölvu í glampandi sól þannig að ég reyndi að lesa en gafst svo bara upp :( þannig að það verður bara læradómur fram á nótt hjá mér í staðinn hehehe nema hvað ég, Stulli og Hákon sátum hérna úti í garði hjá mér og spjölluðum, fengum okkur Sun Lolly og spiluðum smá Backgammon og svo skellti ég mér í göngutúr með Sibbu og Marlý niður í bæ þannig að þið getið rétt ýmindað ykkur hvílík brunarúst ég er á öxlunum eftir allan þessa sól og hitann sem því fylgir :/

katosk | 21:43

26.maí

Afmæliskveðjur

Elsku Margrét og Heiðrún Björt til hamingju með afmælin ykkar í gær og í dag :) Ég vona að Margrét fyrirgefi mér það að hafa ekki skrifað í gær, mér líður ömurlega yfir því að hafa ekki óskað henni til hamingju með stórafmælið í gær :/ Er ég ömurleg??

katosk | 00:56

 

Unglingur sofandi undir rúmi

Ég var að gramsa í dóti hérna áðan og fann þessa grein sem var klippt úr dagblaðinu fyrir tveimur árum :) já spáið í það það eru tvö ár síðan hehehe en hérna kemur greinin:

"Konu  sem býr í suðurbæ Hafnarfjarðar brá í brún þegar hún kom heim til sín snemma á sunnudagsmorguninn því undir rúminu sínu fann hún 14 ára ungling steinsofandi.  Konan kallaði á lögregluna því hún kannaðist ekkert við unglinginn.  Unglingurinn mun hafa verið undir áhrifum áfengis og ekki getað gert grein fyrir veru sinni á heimili konunnar.  Einnig varð fátt um svör þegar hann var spurður um val hans á náttsað"  Mér finnst að það hefði átt að vera ungri konu eða stúlku hehehehe

katosk | 19:06

25.maí

Sól sól skín á mig

Já það vantaði sko ekki sólina í baunaveldi í dag, það var örugglega 25 stiga hiti og glampandi sól mmmmmm mig langar ekki heim á föstudaginn buhuhuhu en ss spáin sem danirnir spáðu um brjálað veður í gær var svo eftir allt saman rétt, ég sem hélt að þeir hefður bara verið svona fúlir yfir því að vera ekki með í Júróvisjón hehehe en það voru þvílíkar þrumur og eldingar og beljandi rigning á meðan Júró stóð yfir að það var ekkert smá og ég held að margir hafi misst smá af Júró af því að það var svo spennandi að horfa út um gluggann.  Nú svo ég vindi mér nú aftur í spána mína já það var nefnilega eins og ég hafði spáð að spáin mín myndi breytast þegar ég horfði á keppnina því mér fannst belgíska lagið soldið töff og Austurríki fannst mér ógeðslega fyndið og datt í hug að þau myndu fá einhver atkvæði já og svo setti ég Ísland í 8.sæti en ég eiginlega samt hélt ekki að  Tyrkir myndu vinna þetta og ég hélt að Frakkland yrði ofar.  Nema hvað mér fannst soldið margar þjóðir syngja falskt og má þar helst nefna Rússland og England en Birgitta stóð sig eins og hetja og maður fékk alveg gæsahúð að horfa á hana.  Jæja ég ætla að fara og finna eitthvað kælandi á sólbrunann minn :/

katosk | 22:03

23.maí

Spáin mín

o.k. þið megið alveg segja að ég sé biluð en ég er búin að hlusta á öll lögin fyrir Júróvisjón og ég spái því að eftirfarandi lönd verði í topp 10 ég er nú ekki alveg viss um að þetta verði röðin á þeim en við skulum bara sjá hvernig það endar :) já heyrðu ég set bara sætin svona og svo sjáum við bara til, ástæðan fyrir því að Rússland er í fyrsta sæti er alls ekki út af því að mér finnist lagið gott heldur af því að ég held að aðdáendur þeirra um alla Evrópu muni kjósa þær í símakosningu bara af því að þær eru t.A.T.u :) Mig langar nú soldið að setja okkur í fyrsta sætið en í þetta eina skipti ætla ég ekki að vera of bjartsýn eins og ég er alltaf :) við vonum bara hið besta :) Ég held samt að maður þurfi að sjá þetta betur á morgun í keppninni og spáin mín gæti nú alveg breyst, þetta er bara svona létt spá eftir að hafa séð brot úr öllum vídeóunum :)

                                           1.Rússland - af því að þær eru þær

                                           2.Slóvenía - lag sem ég held að sé grípandi

                                           3.Ísland - af því að ég vil ekki vera of bjartsýn

                                           4.Spánn - fínt lag barasta

                                           5.Tyrkland - já já og þetta líka

                                           6.Noregur - voða væmið og sætt

                                           7.Holland - fín lag

                                           8.Frakkland - mér finnst þetta flott lag

                                           9.Borsnía - bara til að setja eitthvað

                                         10.Svíþjóð - bara af því að þau eru sænsk hehe

katosk | 02:16

t.A.T.u

Hvað er eiginlega málið með þessar t.A.T.u gellur??? Ég er alveg pottþétt á því að þær ætla að reyna að hneyksla evrópu heví mikið annað kvöld (sjá hér) og maður er eiginlega bara farinn að hlakka til að sjá hverju þær ætla að taka uppá, mér finnst þær nú samt hálf halló verð ég að segja og ekki finnst mér þær sinni þjóð til sóma hmmmm hvað finnst ykkur??

katosk | 00:46

Miss Iceland

Var að skoða moggann og þar segir að Ungfrú Íslands keppnin sé í kvöld þannig að ég varð að sjálfsögðu að kíkja á vefinn þeirra :) og skoða stelpurnar og ég segi nú bara "hvað er með hárið á þessari?"  Allar hinar eru með slegið hárið og svo er blásið á þær með hárþurrku svo það sé eins og þær séu í svaka vindi, alveg fínt sko en svo er þessi eins og út úr kú :/ heheh ég var næstum því búic skrifa belja úr kú hehe ég og máltæki eða er það máltök ;)

 

"Open your heart, show me the pain

It´s all part of who you are

tell me your dreams your hopes and your fears

just open you beating heart to me"

 

Er sko alveg að verða komin með textann á hreinu :) eins gott að geta sungið með á morgun :)

 

Hey ef þið misstuð af einhverjum þáttum af Melrose Place eða Beverly Hills næn ó tú von ó þá get ég alveg tekið þá upp gegn smá greiðslu hehehe það er nebblega verið að sýna þetta allt í imbanum hérna híhíhí að maður skuli hafa horft á þetta og reynt að missa ekki af þætti ;)

katosk | 16:06

Húgt on Júróvisjon

Ég er með algjört Júróvisjon æði þetta árið og fylgist með bloggi Loga og Gísla Marteins á hverjum degi og stundum oft á dag.  Ég vona að við verðum ofarlega og ég heyrði í úbartinu áðan viðtal við einhvern danskan júróvisjón sérfræðing og hann sagði að Ísland ætti mikla möguleika á því að vinna keppnina :) það væri nú ekki leiðinleg ha og ef við vinnum þá ætla ég að keppa fyrir íslands hönd á næsta ári hehehehe :) það gerist víst sennilega bara í draumunum mínum :)

katosk | 15:18

22.maí

WOW wow wow

Nú er ég búin að vinna yfir mig úff púff húff en ég náði þó að klára það sem ég á að skila á morgun :) en núna kallar rúmið á mig hárri röddu þannig að ég verð í sambandi á morgun :) Hey það er bara vika þangað til ég fer heim :) ekkert smá fljótt að líða, mér fannst ég vera þar í gær eða kannski fyrradag o.k. hehe

katosk | 02:25

ég..........

..........................sakna Möggu Pálma!!!!!!

katosk | 16:32

Neglur

Hvað er þetta með neglurnar á mér??? Þær byrja alltaf að vaxa þegar ég vil það ekki :/ núna er ég til dæmis á fullu að vinna í lokaverkefninu mínu og ef ég ætla að fara að safna nöglum þá verð ég að hætta við að skila verkefninu því ég get hreinlega ekki pikkað inn í tölvuna með einhverjar hjúds neglur hehehe jæja þá er bara að fara að finna naglaklippurnar :) Þetta er svona svipað og þegar maður fær bólu kvöldið sem maður ætlar út að skemmta sér djö hvað þetta bjútí stöff er hard maður :)

katosk | 16:09

21.maí

Óskemmtileg reynsla

Við "fjölskyldan" lentum í óskemmtilegri reynslu í dag þegar við vorum að keyra niður í bæ í dag.  Umferðin var mikil enda allir á leiðinni heim úr vinnunni og svo var allt stopp á einum stað og fullt af löggubílum þannig að við héldum að þar hefði verið árekstur.  Nú þegar við loksins komumst af stað og keyrðum framhjá lá lík á götunni og svo var verið að bera einn inn í sjúkrabíl :/ þá hafði trukkur með tengivagn keyrt á einhverja skokkara.  Þetta var frekar óþægilegt og kennir manni kannski að vera ekki svona forvitinn þegar maður sér slys :( næst ætla ég ekki að kíkja þegar ég sé svona marga löggubíla, mest fannst mér þó skrítið að þeir skyldu ekki hylja líkið betur, mér finnst eiginlega að löggan ætti að hafa svona einhvers konar skerma sem þeir geta sett í kringum því þarna var fullt af fólki sem neyddist til að keyra, hjóla eða labba framhjá og gat ekkert farið í aðra átt.

katosk | 23:48

20.maí

Þurr á munninn eða.......

Ég er alveg ferleg í málsháttum og máltökum og það sannaðist í dag þegar ég fór að tala um að manneskja væri þurr á munninn hehehe það á víst að vera þurr á manninn :) Nú gleðifréttir dagsins eru þær að ég fékk vinnu með skólanum frá og með 1.sept og er ekkert smá glöð með það, nú ég sá the sexiest man alive eða allavega einn af þeim og vá ég átti bara erfitt með mig hehehe, ætla nú ekkert að vera að láta nafn hans hérna ef hann skyldi nú lesa þetta einn daginn (á samt ekki von á því).  Nú fer að styttast í júróvisjón þannig að maður er svona að komast í þann gír, mér finnst íslenska lagið bara ansi fínt en dömurnar í T.A.T.U. eru eitthvað ekki að meika það finnst mér þó svo að þeim sé spáður sigur :/ en það er nú alveg týpískt ég að finnast eitthvað allt annað en það sem er spá sigri flottast :) Í dag datt ég svo inn á síðu sem er búið að búa til í kringum keppnina þar sem Logi Bergmann og Gísli Marteinn blogga um það sem er að gerast þarna út og að sjálfsögðu fylgist ég með því núna ;) eins og sannur íslendingur í útlöndum :) hehehe

katosk | 00:05

19.maí

Skólinn og Tupperware

Jæja við fengum að vita um hvað lokaverkefnið okkar átti að vera í dag og við eigum ss að búa til Digital Magazine og ég er heldur betur heppin með það þar sem ég var einmitt að spá í að búa til einhvers konar upplýsingasíðu :) en það var nú heldur betur drama sem kom á hópinn þegar átti að fara að para sig saman í hópa og trúið mér það féllu tár og allt og ég var guðfegin að ég ætla að vera ein í hóp því ef ég hefði ekki meikað það að særa eina vinkonu mína með því að segja henni að ég gæti ekki verið með henni í hóp af því að hún kann ekki nógu mikið :/ en þið getið rétt ýmindað ykkur andrúmsloftið í bekknum það sem eftir var af deginum.  Í kvöld fór ég á tupperware kynningu og keypti ekki neitt þar sem að ég á ekki heimili og já líka af því að ég á ekki pening hehehe en wow hvað maður getur fundið að manni vantar ýmislegt á svona kynningum þó svo að manni vanti það ekki neitt hehehehe en Kalli tók sig vel út þarna með okkur hinum stelpunum og sýndi þeim hvernig best væri að koma þessu dóti fyrir í ískápnum :) ég held barasta að hann hafi á þátt í því að sumar keyptu einhverjar dollur :)

katosk | 23:54

18.maí

Frekar fyndið

Ég er búin að vera að fletta á netinu í leit að efni fyrir verkefnið mitt og VÁ hvað maður dettur inn á skrýtið dót hehehe þessi síða er t.d. frekar fyndin og heitir því góða nafni rathergood.com. Nú svo var ég að skoða síðu hjá stelpu sem hafði fundið liti ýmissa fyrirtækja úr m&m's hehehe læt myndina fylgja og  á þessari síðu var linkur á m&m's þar sem maður getur pantað sína liti hehehehe kíkið :) 

 

 

Annars nýtti ég daginn vel fyrst ég komst ekki í sólbað og þreif hjá mér og fór í þvottahúsið :) voða dugleg, ég meira að segja kalkhreinsaði baðherbergið hjá mér þannig að núna er hægt að spegla sig í flísunum :)

katosk | 01:44

Algjört svind

Hvað er eiginlega að þessum veðurguðum??? Sko ég ákvað að vera voða voða dugleg í dag og þrífa hjá mér og allt í góðu með það nema að allt í einu kemur þessi líka svaka sól og 20°c hiti og þá er að sjálfsögðu ekkert annað í málinu en að skella sér út í sólbað eða allavega sitja úti í sólinni voða fínt, nú svo dregur aðeins fyrir sólu og ég ákveð að fara í þvottahúsið og viti menn þegar ég kem upp aftur þá er bara komin grenjandi rigning og ég á hlírabolnum hleyp nottulega heim þar sem ég var með mottuna mína úti til að viðra hana :/ frekar fúlt get ég sagt ykkur :(  þannig að núna er maður bara kominn inn aftur og sestur fyrir framan tölvuna í von um að einhver hringi eða skrifi manni eitthvað skemmtilegt :)  Ég er allavega farin úr hlírabolnum og komin í stutterma :( ógisslega fúl

katosk | 16:08

Voða góð stelpa

Já það einmitt orðið sem myndi lýsa mér núna góð stelpa hehe sem þýðir bara það að ég er búin að vera heima hjá mér alla helgina og ekkert fara á djammið hehehe bara safna orku fyrir næstu vikur þegar ég þarf að vinna eins og brjálæðingur í verkefninu mínu :)  Í gær fór ég í barnaafmæli sem stóð yfir í rúma fimm klukkutíma, voða voða gaman, ég er alveg að fíla þessa dönsku stemmingu í tætlur :) Hey, til hamingju með afmælið Borghildur :) vona að þú eigir góðan dag :) og hvað á ég að segja meira hérna??? Ég bara hef ekki hugmynd maður hefur svosem ekki mikið að segja þegar maður gerir ekki neitt þannig að ætli það sé ekki best að ég fari að gera eitthvað svo ég hafi frá einhverju að segja :)

katosk | 13:46

16.maí

Dauðablokkin lifnar við

Blokkin sem ég bý í er ss kölluð dauðablokkin og nú er ég búin að búa hérna í hva 9 mánuði og það hefur aldrei verið partý í eldhúsinu okkar nema hvað að í nótt var svo loksins partý og þá var ég ekki að djamma :S er þetta ekki týpískt hehe en ég kíkti nú aðeins á fólkið þar sem það var hvort sem er búið að vekja mig en svo fór ég bara aftur að sofa :)  Í dag er frídagur í DK og ég er bara búin að vera að dúlla mér í heimsóknum hér og þar og sofa smá þar sem ég var með svo mikla vöðvabólgu :/ kenni þar um veðurfari hehehe það er allt í einu bara hætt að vera svona æðislegt veður eins og var um daginn :( þetta er ekki hægt, ég vil fá sól og hita aftur takk.

katosk | 01:19

14.maí

"jæ prottar ikke svenska"

Jæja þá er skólinn formlega búinn og ég komin í helgarfrí en á mánudaginn fáum við svo að vita um hvað lokaverkefnið okkar á að vera.  Það var rosalega gaman í Sverige en ég gleymdi að segja bless á sænsku við einhvern ohhh en það kom aftur á móti kona til mín í H&M og sagði eitthvað á sænsku og ég sagði bara "jæ prottar ikke svenska" hmmm með sænskum hreim og allt og konugreyið bara horfði á mig og labbaði svo í burtu enda myndi ég nú gera það sama ef einhver segði við mig á íslensku "ég tala ekki íslensku" ha já voða gott að geta sagt á nokkrum tungumálum að maður tali ekki tungumálið "sju ne parle pa franse" sko kann það líka á frönsku.  Við kíktum í svona ameríska búð og sáum fullt af sniðugu dóti sem okkur langaði að kaupa en við vorum ekkert að eyða neitt allt of miklum pening þarna nema hvað við keyptum vanillukók sem við svo smökkuðum í kvöld og það var alveg eins og kaptein morgan í kók þannig að ef maður fer á barinn núna og fær óvart kaptein í vanillukók þá eru miklar líka á því að maður segi "fyrirgefðu en ég bað um einfaldann" nei ég segi nú bara svona.  Í kvöld var svo líka horft á söngkeppni framhaldsskólanna sem hún Lilja var svo yndisleg að lána okkur og keppnin var bara alveg ágæt þó að úrslitin hafi ekki alveg verið eftir mínu höfði :) það var nú soldið fyndið í dag í imbanum ;) ég var sko að horfa á Weakest Link á BBC Prime og ein spurningin var "í hvaða borg er Christiania" og ég nottulega fljót að svara Köben, ég man nú ekkert hvað gæinn svaraði nema hann svaraði rangt og Ann sagði "that's wrong it's in Oslo" ég vissi ekki að það væri búið að færa Stínu til Osló og ef svo er þá fór ég á kaffihús í Osló með bekknum mínum í dag :) hehe mér fannst þetta frekar fyndið.

katosk | 01:29

12.maí

Sól í gær þrumur og eldingar í dag

Ég hef bara aldrei upplifað annað eins og þrumurnar og eldingarnar sem voru hérna í dag og vá hvað það var mikil rigning herre hud það var ekki hundi út bjóðandi en þetta gerðist allt á meðan ég var í skólanum og svo þegar skólinn var búinn þá var búið að stytta upp og ég keyrði heim með sólgleraugu :) nema hvað, ég er búin að fá vinnu frá miðjum júní og það er bara frábært mál fyrir mig get ég sagt ykkur :) Annars hef ég nú ekki mikið að segja núna, ég er bara rosalega glöð yfir því að vera búin að fá vinnu og þurfa ekki að vera með magapínu yfir því lengur :)  Á morgun ætlum við fjöskítan að kíkja Sverige heja lúppa eða hvað þeir nú segja og hver veit nema maður reyni að keyra framhjá þar sem ma og pa áttu heima í den fyrir mína tíð ;)  annars er ég þessa dagana bara að bíða eftir því að næsti mánudagur renni upp svo ég geti byrjað á verkefninu mínu en við fáum að vita þá hvað við eigum að gera :) Jæja ætla að glápa aðeins á imbann áður en ég fer í bólið hej hej

katosk | 23:39

11.maí

Í sandölum og ermalausum bol

Gjeggjað veður!!! Hitinn fór upp í 24°c í dag :) og ég er bara eiginlega soldið sólbrennd enda búin að sitja úti í sólinni í fimm tíma í dag :)  En þetta er sko búin að vera löng helgi get ég sagt ykkur :) úff föstudagurinn byrjaði á því að við skiluðum prótótýpu af heimasíðunni okkar fyrir verkefnið sem við fengum svo lága einkunn fyrir og guess what!!! Haldiði að kennarinn sem sagði að við værum heimsk hafi ekki komið til mín, beðist afsökunar á því hvernig hann kom fram við okkur og svo sagt okkur að við værum með annað flottasta verkefnið hehehe sem sannar það að við fórum bara eitthvað í taugarnar á honum en hann sá að við erum ekki heimsk og kunnum sko að gera góð verkefni og hann þurfti að súpa allt ofan í sig aftur hehehe mér finnst samt frábært að hann hafi gert það.  Nú til að fagna þessu fórum við á fredagsbarinn og úbbs vorum þar í næstu 9 klukkutímana :S þið getið rétt ýmindað ykkur að við hálf ultum út af barnum hehe og svo fórum við í eitthvað mexíkanst partý og sem betur fer hafði ég nú vit á því að fara heim með síðustu lest og var komin upp á Kagså um eitt leytið svo að ég lifði nú daginn í gær af hehehe.  Núna bíð ég bara spennt eftir svari um það hvort ég fái vinnu eða ekki en ég er ss búin að kaupa mér flugmiðann heim þannig að ég verð eiginlega að fá svar strax á morgun svo ég geti nú líka auglýst herbergið mitt til leigu :)

katosk | 20:13

8.maí

Ekkert kosið þetta árið

Nei ég ætla ss ekki að kjósa þetta árið, nenni ekki að standa í því fyrst ég gleymdi því á meðan ég hafði nægan tíma og svo er svo stutt kosningar að  maður þarf að vesenast ætli maður að koma sínu atkvæði að.  Sko fyrst þarf ég að fara í  sendiráðið (á morgun) og kjósa og svo þyrfti ég að keyra út á flugvöll og fá einhvern sem er á leiðinni á klakann til að taka mitt atkvæði og fara með það eitthvert :/ frekar fáránlegt að það skuli ekki bara vera hægt að kjósa hérna úti og telja atkvæðin hérna líka eða þá að maður skuli ekki getað kosið á netinu hmmm annars er maður nottulega ekkert búinn að fylgjast með þessu þannig að maður veit ekkert hvað maður á að kjósa, eitt veit ég bara og það er að ég vil Ingibjörgu Sólrúnu ekki sem forsetisráðherra hún fer bara í mínar fínustu taugar konan :/ o.k. ég veit að ég er ekki að kjósa persónuleikann en ég er ekki viss um að ég myndi nenna að horfa á fréttir heima eða skoða blöðin með hana í annari hvorri frétt hehe þið megið sko alveg setja út á mig fyrir að segja þetta en þetta er bara það sem mér finnst og því fær enginn breytt :)  Vá ég er alveg farin að tala um kosningar hérna hehehe eigum við að fara út í veðrið?? Já það er nebblega rosa gott veður í kóngsins kuben maður þarf ekki lengur að vera í peysum, núna er það bara stuttermabolurinn og bráðum fer maður bara að vera á stuttbuxum :) þ.e.a.s. ef ég næ því veðri hérna, kannski kem ég nebblega bara heim 30.maí :)  Hey ég fór á X-Men 2 áðan og VÁ hún var bara ferlega góð þannig að Sibba fékk lánaða fyrir mig mynd númer 1 af því að hana hafði ég ekki séð og við  horfðum á hana áðan :)  Jæja farin í háttinn, verkefnaskil í fyrramálið þannig að ég verð að vakna snemma :D chiao

katosk | 00:38

7.maí

Officially hötuð

Já ég held það barasta að einn kennarinn minn hati mig endanlega núna og muni reyna að gera allt sem hann getur til að fella mig :/ jöminn og ég sem hélt að það væri ekki hægt að hata mig þessa líka geðgóðu manneskju en í dag tapaði ég mér næstum því alveg þegar kennarinn sagði "if you work that way your plain stupid" hmmm þið getið rétt ýmindað ykkur hvað ég sá rautt og spurði manninn hvort það væri ekki hugsanlegt að við værum ekki heimsk heldur að við fengjum fáránlega lélega kennslu og að við þyrftum að kenna okkur sjálf og Ricardo bætti við að við værum sko læs og gætum alveg lesið glærurnar hans sjálf hann þyrfti ekkert að lesa þær fyrir okkur eins og hann gerði hehehe nema hvað við fengum falleinkun fyrir vikið af því að það vantaði grúbbunúmerið á forsíðuna á verkefnið :/ ekki það að mér sé ekki sama þar sem þetta kemur ekki inn á lokaeinkunn en wow og við vorum ekki eini hópurinn sem fékk svona lélegt heldur allir nema einn og n.b. það var bara aktívi hluti bekkjarins held ég sem skiluðu inn verkefni hinir gátu ekki sett neitt á blað :) ég hlakka bara til á föstudaginn þegar þessi kennari hættir að kenna okkur :)  Annars er lítið að frétta af mér úr danaveldi, er að spá í að fara á morgun og kjósa en það er ekki alveg ákveðið já og núna verð ég sennilega að hætta í dópinu af því að það er verið að fara að loka Kristjaníu hehehe af því að ég er nebblilega alltaf þar hehehe ég veit ekki hvernig strákarnir í bekknum mínum fara að eftir lokun þeir virðast alltaf vera high :/  Hey ég var að horfa á frábæran þátt eða sko endinn á honum á BBC Prime en þar var gamalt fólk að prufa tetris og kenna hvort öðru, þetta var alveg frábært hehe ég sé ömmur mínar í anda spilandi tetris híhíhí :) over and out.........

katosk | 23:32

6.maí

Töff talva

Ég var eitthvað að fletta á netinu í gær í leit að efni fyrir verkefnið mitt í skólanum og sá þessa líka fínu tölvu hehehe það eru samt bara tvær manneskjur sem ég veit um að myndu fíla sig í botn með svona tölvu og það eru Júlía Sól og katrin.is ég þekki þá síðarnefndu að vísu ekki neitt en þær virðast eiga sama uppáhaldslit :)

katosk | 11:18

5.maí

Komment

Hefur aldrei neinn af ykkur sem les þessa síðu neitt að segja??  Eða þorið þið kannski ekki bara að skrifa neitt??  Æ mig langar bara svo stundum að fá eithvað í kommentin hjá mér, það eru alltaf núll skilaboð buhuhuhuhu :/

katosk | 16:12

4.maí

Hafið þið séð hund með hanakamb??

Systur mínar létu setja hanakamb á hundinn sinn ;) frekar fyndið hehehe endilega kíkið :) Hérna fyrir neðan eru svona fyrir og eftir myndir hehehehe ;) 

Ég var hjá Sibbu og Kalla í kvöld að horfa á aids söfnun sem Kalli sá um ljósin hjá nema hvað að þar var helvíti góður textir við Babuska lagið hennar Kate Bush eða hvað það nú heitir lagið og textinn við viðlagið var eitthvað á þessa leið: Store Tyr, du gør mig så vild, tag min mødom, igen og igen for en dollar, íslensk þýðing: Stóra Naut, þú gerir mig óða, tak minn meydóm, aftur og aftur fyrir dollar hehehehe frekar fyndið fannst mér allavega :)

 

  

katosk | 00:40

Til hamingju Olga og Gísli

Með litlu stelpuna ykkar :) Það verður nóg að gera hjá manni í því að heimsækja öll þessi nýju börn sem eru að fæðast í vinahópunum mínum hehe ;)  Ég fæ nottulega eina alveg í æð og það er voða voða gaman.  Annars var gærkvöldið hjá mér bara rólegt, fór í matarboð með Sibbu og Marlý til Erlu og Jóns og ég smakkaði bláar kartöflur já einmitt þær voru bláar en mjög góðar, næst verð ég að smakka bláu tómatsósuna og græna Sprite-ið hehehe hvað er þetta með mat í dag og liti??? Þessar bláu kartöflur voru samt svona ökólogiskar eða er lífrænt ræktaðar þannig að það var enginn matarlitur þar á ferð.  Nú við sátum svo og horfðum á DVD og sötruðum rauðvín og svo fór ég bara heim að sofa, voða góð stelpa eftir djammið á föstudaginn sem skemmdi helminginn af gærdeginum hjá mér :)

katosk | 12:21

 

2.maí

Happy happy happy happy talk

ohhhhh ég er svoooo glöð og loksins loksins loksins virðist bara allt ætla að ganga upp hjá mér ég er ss mjög svo sennilega á leiðinni heim á klakann um næstu mánaðarmót og vonandi á leiðinni í vinnu júhúhú ég ss fékk leyfi til að gera lokaverkefnið í skólanum ein og þess vegna get ég bara unnið dag og nótt núna í maí við að klára það og svo farið heim.  Nú vantar mig bara kall, barn og íbúð og þá er lífið fullkomin hehehehehe nei nei ég er bara að grínast ekkert á leiðinni í þann pakkann strax.  Ég fór í skólann í morgun og sat þar og gerði ekki neitt í næstum því þrjá tíma nema fara yfir enskuna hjá hinum hópunum, spjalla á MSN og skoða moggann nema jú svo spjallaði ég aðeins við uppáhaldskennarann minn og við vorum ss að ræða það hvað okkur fyndist kennslan í þessu sem við erum búin að vera í hafi verið léleg og hann sagði að honum fyndist ekki eiga að kenna þennan áfanga og ó mæ got hvað ég var sammála honum.  Núna er hann ekki bara uppáhalds kennarinn minn heldur líka besti vinur minn híhíhíhí en í alvöru talað þá er hann frábær.  Eftir skóla kíkti ég á fredagsbarinn og spjallaði við strákana sem voru að sjálfsögðu komnir með bjór í aðra höndina og jónu í hina eins og alla föstudaga, skrítið að þeir skuli hafa eitthvað í hausnum til þess að læra með þeir reykja svo mikið, nema hvað ég sagði þeim að íslenskt brennivín væri nú skárra fyrir heilsuna en þessar jónur og gaf þeim smá en þeim fannst það bara vont.  Ekki það að ég gangi með brennivín á mér alla daga heldur hafði ég keypt í fríhöfninni tvær svona litlar flöskur til að gefa Massimo og Ricardo í smakk :) Eníhú þá ætla ég bara núna að skella mér á barinn með stelpunum og spila smá púl of fá mér einn til tvo öllara svona í tilefni dagsins :)

katosk | 20:48

1.maí

Það er sko ekki frí í DK

Nei nei danir held ég að haldi ekki upp á 1.maí nema eftir hádegi hehehe þannig að ég gat ekki farið að skemmta mér eins og sum ykkar í gær :) en ég talaði í tvo klukkutíma í símann og skemmti mér konunglega þannig að jú ég skemmti mér aðeins hehehe það er nú annars ekki mikið að frétta af mér, maður er bara í skólanum og ég bíð spennt eftir því að fá að vita hvort ég fái undanþágu með lokaverkefnið mitt, ég er sko ef ég var ekki búin að segja ykkur að reyna að fá að skila lokaverkefninu mínu ein og fyrr en hinir svo ég komist fyrr heim á klakann að reyna að finna mér vinnu :)

katosk | 11:51

30.apríl

Fyrri hluti verkefnis, BÚINN

Ég var svoooo dugleg í dag í skólanum að við náðum að klára fyrri hluta verkefnis okkar og svo er bara ein vika eftir og næsta föstudag skilum við næsta hluta og þá er bara lokaverkefnið eftir og svo sumarfríííí ííííhaaaaaa ;)  Ég er nú samt ekki búin að gera mikið til að fagna því að hafa loksins klárað verkefnið fyrir utan það að ég fór til Sibbu og fékk að passa Marlý og þvílíka krúttið hún var bara ógeðslega góð og svaf og svaf á meðan mamma skrapp frá í smá stund þannig að ég þurfti ekkert að gera nema horfa á hana og dást að henni.  Ég neita því ekki að bjöllurnar hringdu smá en ekkert voðalega mikið sko ;) hehehe en núna er kominn tími til að fara í háttinn svo maður vakni nú í skólann á morgun :) Sí jú leiter!!!

p.s. til hamingju með daginn Ingvi ef þú lest þetta þ.e.a.s. ;)

katosk | 23:30

29.apríl

Ferlega latur aumingi

Já það er ég sem er þessi lati aumingi sem nenni ekki neinu og er í einhverri lægð í skólanum en sem betur fer eru bara þessi vika og næsta eftir og svo byrja ég á lokaverkefninu og svo fer ég bara aftur á klakann og vona að einhver ætli að ráða mig í vinnu. Hvað gerir annars námsmaður ef hann fær hvergi vinnu á sumrin??? Er einhver sem les þetta sem veit það??

katosk | 15:39

27.apríl

Úff púff og allt það...

Átti eiginlega ömurlegan dag í dag :/ og get ég þar sjálfri mér algerlega kennt um það :/ ég ss drakk aðeins og mikið í gær og kom allt allt allt of seint heim :( það er alveg ótrúlegt með mig stundum hvað mér finnst ég alltaf þurfa að vera með þeim síðustu heim úr partýum en ég ss fór í partý hjá körfudeild íþróttafélagsins Gúðrún í gær og skemmti mér mjög vel :) endaði að vísu í vatnsslag við Hrafnhildi en það var bara gaman :) en ég ss vaknaði um 14:30 fyrir vikið og var svo bara ónýt í allan dag og fór ekki almennileg framúr fyrr en um átta leytið enda orðin mjög svo hungruð þá :) þar sem ég átti nottulega ekkert í ískápnum nema ávexti varð ég nottulega að finna önnur ráð í matarmálum og fann ég núðlur, kókosmjólk og red kurry paste í skápnum mínum þannig að ég sauð núðlurnar í kókosmjólkinni og setti kurry paste út í og svo skar ég einn banana útí líka og viti menn ég var komin með hinar líka bestu núðlur bæjarins á diskinn hjá mér :) ég get nú stundum verið soldill kokkur í mér að vísu mjög sjaldan en ég á þetta til þegar ég neyðist hehehe jæja hérna eru nokkrar myndir handa ykkur frá gærkvöldinu :) ég nenni ekki að skrifa meira í dag :)

katosk | 23:48

24.apríl

Gleðilegt Sumar!!!

Ég hefði eiginlega alveg verið til í að vera heima út þessa vikuna en  maður getur víst ekki fengið allt sem maður vill :) Ég fæ bara gott veður í staðinn hehehe.  Ég hefði svosem ekki misst af neinu í skólanum þar sem ég held að kennarinn sem kennir mér núna sé með alzheimer light, hann er búinn að kenna okkur sama hlutinn aftur og aftur og aftur og honum finnst hann alltaf vera að kenna okkur eitthvað nýtt en það var nú samt soldið fyndið í dag þegar hann bað fólk um að slökkva á símunum sínum og ætlaði að kenna okkur að það væri hægt að láta símann bara pípa einu sinni það þyrfti ekki endilega að slökkva hahahahaha halló hvað heldur hann að við séum gömul, nema hvað að ég var nottulega ennþá þreytt eftir heimkomuna og steinsofnaði í tímanum hjá honum og vaknaði við það að hann stóð yfir mér og ég sem var svona með hausinn í höndunum þóttist bara að vera með hausverk og fór að nudda á mér hausinnn svo hann myndi nú ekki fara að segja eitthvað við mig hehehe :) Mig langar allt í einu svo mikið á ball með Skítamóral ef einhver hefur upplýsingar um það hvar þeir spila í sumar þá eru þær uppl. vel þegnar, ég held nebblilega að ég verði að skella mér á eitt ball með þeim :)

katosk | 15:33

23.apríl

Komin heim í baunaveldi

Jæja mín er bara komin í 22°c hita og læti í DK, voða voða fínt :)

katosk | 16:44

22.apríl

Fer heim til DK á morgun

Æ það er búið að vera frábært hérna á klakanum um páskana en ég hlakka nú líka smá til að fara aftur út sérstaklega þar sem ég hef heyrt að veðrið sé alls alls ekki slæmt hehehe, ekki að það sé slæmt hérna heima bara kannski aðeins kaldara.  Ég er búin að vera ógeðslega léleg að taka myndir þannig að það er ekkert að sjá nema úr partýinu á laugardeginum eftir að ég kom en vonandi verð ég nú duglegri í sumar með þessa myndavél og vonandi verður þá lika búið að gera við hana enda ekkert skemmtilegt að taka myndir á bilaða myndavél :) Jæja þá er að drífa sig út og klára ýmis ókláruð mál áður en ég fer í flugvélina aftur :)

katosk | 09:38

19.apríl

Æm a læf

Já já ég er hérna :) hafði bara ekki tíma til að skrifa í í gær og í fyrradag það er svo gasalega mikið að gera hjá manni sko :)  Nema hvað að í fyrradag gerði ég eiginlega ekki neitt nema sofa eftir vökunótt, heimsótti að vísu ömmu aðeins og fór svo aftur að sofa, borðaði svo æðislegan mat, kíkti í heimsókn á Sirrý, Svenna og Heiðu og fékk geðveikan eftirrétt og sofnaði svo í sófanum hjá þeim :/ skemmtilegur gestur finnst ykkur ekki hehehe en ég var sko roooosalega þreytt hafði farið til Beggu kvöldið áður og horft á stelpurnar föndra með öðru og svo á fegurðarsamkeppnina með hinu n.b. ég var ekki sammála úrslitunum og var frekar góður dómari þarna að eigin mati hehe og svo lenti ég á spjalli alla nóttina og fór ekki að sofa fyrr en um 7 um morguninn :/ kannski ekki skrítið hvað ég var þreytt :)  Nú svo í gær eyddi ég deginum í það að búa til sushi handa familíunni og við vorum hérna 10 í mat voða gaman og ógisslega gott og svo kom vinahópurinn og ég og Binni æfðum fyrir brúðkaupið hjá Svenna og Erlu og svo skelltum við okkur í pottinn og höfðum það næs með bjór og fleira í glösunum :)  Nú í dag fórum við Binni svo og spiluðum og sungum í brúðkaupi og skírn hjá Erlu og Svenna og þetta var æðisleg athöfn, Erla var æðislega sæt og svo var presturinn svoo skemmtilegur og sagði brandara og svo lét hann klappa fyrir mér og Binna hann var sko algjört æði, ef ég á eftir að gifta mig einhvern tíman þá ætla ég að finna svona prest skal ég segja ykkur.  Nú svo skírði hann Helgu sem bara hjalaði til prestsins og var algjör prinsessa og þetta var alveg æði bara.  Planið fyrir kvöldið er svo að kíkja á heim til Sirrýar og Svenna og fá sé einn til tvo öl eða fleiri :) Sííííja ;)

katosk | 19:18

16.apríl

Spúkí hlutur sem gerðist í dag

Ég fór í lyftu í dag sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir það að ég fór að lesa á miðann þar sem allt stendur um hvenær lyftan var skoðuð síðast og svoleiðis og jú jú það var nýbúið að skoða hana og ég fór að hugsa um ef maður skyldi nú festast inni í lyftu nú svo fór ég bara mína leið,  seinna í dag fór ég svo í aðra lyftu og aftur fór ég að skoða miðann og sú lyfta var ss skoðuð 10.12.2002 man það sko af því að mér fannst þetta flott dagsetning nema hvað að hún er eitthvað voðalega lengi á leiðinni upp og ég sagði við konuna sem var með mér í lyftunni "er þessi lyfta ekki óeðlilega lengi á leiðinni?" hún var sammála mér nú svo loksins komumst við upp á fjórðu hæð og stelpa tekur lyftuna niður, nema hvað að þegar lyftan kemur aftur upp full af fólki festist hún og greyið fólkið var fast í lyftunni í örugglega hálftíma, við reyndum eins og við gátum að opna hana en það gekk ekki en VÁ hvað ég var heppin að þetta var ekki ég :) og hér eftir fer ég ekki í lyftur hehhehehe nei djók ég fór nú í lyftu niður aftur, valdi bara aðra hehe

katosk | 20:26

Nú er ég bara flutt heim...

Nei bara grín :) Ég fór sko á kóræfingu hjá Gospelsystrum í gær og það var ÆÐI, þær voru að syngja með KK og Ellen Kristjáns og ég öfundaði þær svoooo mikið að ég var bara næstum því búin að ákveða að flytja bara heim aftur :) En það er bara svo fínt að búa í Köben að ég tími því eiginlega ekki, annars er bara búið að vera ferlega gaman hjá mér, ég er búin að hitta fullt af fólki og sækja um fullt af vinnum eða svona næstum því hehehehe allavega tvær híhí stelpurnar á hárgreiðslustofunni í gær spurðu hvort ég vildi ekki bara koma og vera sópari og hárvaskari hjá þeim fyrst mér liði alltaf svona vel á hárgreiðslustofum en ég held að ég þurfi nú aðeins meiri ábyrðardjobb en það.  Í dag ætla ég að fara að tala við vini mína hjá Lánasjóðnum og svo ætla ég eiginlega bara að dúlla mér eins og mér einni er lagið :) heimsækja fólk og svoleiðis ohhh hvað það er gaman hjá manni núna og ohhh hvað það er nú gott að vera í páskafríi :)

katosk | 10:36

13.apríl

Geggjað stuð á klakanum

Fór í æðislegt partý í gær og það var sko geggjað stuð á okkur vinkonunum, byrjaði að vísu daginn á því að liggja í tvo klukkutíma í heita pottinum og var gjörsamlega soðin og svo þegar ég leit í spegil var ég ein frekna af því að það var svo mikil sól :) en það er nú heldur betur fínt :)  Er svo eiginlega bara búin að vera í þynnku í dag en með brosið allan hringinn skal ég segja ykkur vúhúhú :) það var ógeðslega gaman, ég nenni því miður ekki að skrifa einhver ósköp hingað inn á meðan ég er hérna heima en ég skal reyna að vera dugleg að henda inn myndum, hérna er eru myndirnar frá því í gær :) Svo ég lýsi þessu nú aðeins þá byrjuðum við á því að borða góðan mat heima hjá Hildi, fórum svo á einhvern veitingastað til að halda partý en máttum ekki gera neitt þar inni þannig að við fórum bara í partý hjá Ágústu og Begga í nýja fína húsið þeirra :)

katosk | 17:10

9.apríl

Snjókorn falla á allt og alla......

Já það snjóaði sko heldur betur hérna áðan og sko engum litlum snjókornum neeeiii heldur hreint og beint jólasnjókornum og þeir spiluðu Last Christmas í úbartinu og allt :) en snjórinn er samt farinn núna sko hann stoppaði stutt við.  Hey ég fer heim ekki á morgun heldur hinn vúhúhú :) 

katosk | 16:56

8.apríl

Danir léttir á því

Ég gleymdi að segja ykkur það um daginn hvað danir eru nú léttir á því :) Ég og Dóra vorum hjá Sibbu á spítalanum þegar tveir vinir þeirra koma í heimsókn (þeir eru ss danir) og þeir eru með poka með sér og í pokanum var bjór, nú ég hugsaði með mér æji greyið hann hefur tekið vitlausan poka inn með sér, gleymt sængugjöfinni og komið með bjór :/ hehe nema hvað að við Dóra förum niður og kaupum okkur kók og þegar við komum upp aftur þá sitja þeir og skála í bjór, já já það ss tíðkast hérna í baunalandi að skála fyrir barni og móður og þykir ekkert sjálfsagðara en að taka bjór með sér á spítalann, ég er nú hrædd um að á klakanum yrði fólki hent öfugu út af spítölunum en hérna bara er fólk meira að segja kvatt til að skála í rauðvíni eða einhverju eftir að barnið fæðist, það má ss taka með sér áfengi á fæðingardeildina hehehehe frekar fyndið :)  Ég ætla nú að hvíla ykkur á skólasögum í dag þó svo að ég hafi fullt að segja um hann eins og venjulega hehehe hey og vitiði hvað ég gerði?? Nei auðvitað ekki :) sko kattarfíflið sem kom hingað inn um daginn og nældi sér í harðfiskinn minn er hættur að koma (í bili allavega) 7, 9, 13, ég nefnilega tók harðfiskinn þar sem ég vildi nú ekki éta hann eftir að köttur væri búin að sleikja hann og setti hann í garðinn hjá stelpunni sem á köttinn hehehe þannig að vonandi mjálmar hann þar fyrir utan á nóttunni núna ;) og ef hann kemur aftur þá ætla ég að fara og kaupa kattarmat og dreifa honum fyrir framan dyrnar hjá henni þannig að allir kettir í hverfinu komi til hennar ;) ohhh er ég ekki sniðug :o) Núna eru aðeins 3 dagar í heimkomu og ég hlakka svooo til...

katosk | 19:12

7.apríl

Hmmmmmmm

Já hmmmm er það eina sem ég get sagt um skólann minn í dag :/ Við erum komin með svo lélegan kennara að það hálfa væri miklu meira en nóg.  Kallinn talar varla ensku og í dag þegar við þrættum við hann og sögðum honum að orðið concretize væri ekki til þá fór hann í fýlu og fór að leita í enskri orðabók og fann að sjálfsögðu ekki orðið, við vildum að hann setti define í staðinn og þá fór hann að segja að define og finalize væri sama orðið og þýddi það sama hellóó farðu á enskunámskeið áður en þú ferð að kenna enskumælandi bekk ohhhh ég var orðin svo pirruð á honum arrrrg það tók hann fimm klukkustundir að sýna okkur 15 glærur (powerpoint) um hvernig ætti að setja upp verkefni eða ritgerð og hvernig við ættum að merkja geisladiskana sem við eigum að skila verkefninu inn á hallóóó again erum við komin í framhaldsskóla aftur??? Ég lærði þetta í námstækni í Flensborg hjá henni Kristínu vinkonu minni sem ætlaði nú samt að reka okkur Heiðu hmmm nema hvað ég man alveg hvernig þetta er gert og tel mig hafa skilað inn þónokkrum verkefnum :) Æ sorry að ég skuli leggja þetta á ykkur að þurfa að lesa þetta en ég bara varð að koma þessu út úr mér :)

katosk | 00:16

6.apríl

En dejlig Årsfest

Veit að vísu ekkert hvort þetta er rétt skrifað eða orðað en það skiptir engu það var ógeðslega gaman á árshátíðinni í gamla skólanum mínum og ég ætla sko aftur á næsta ári held ég barasta :) Það voru þrjú svið á göngum skólans með böndum sem voru hverju öðru betra og svo voru allir í mega mega stuði.  Ég fór nottulega eins og vanalega heim með þeim síðustu eða um 6 leytið og þá var nú líka heldur betur kominn tími á mann að fara heim sérstaklega þar sem ég var farin að tala við fólk á mínu eigin tungumáli sem var bland af íslensku, dönsku og ensku :) Nú svo ætlaði Arnar að láta mig labba heim en ég hélt nú ekki og við fórum í taxa sem komst ekki hraðar en upp í 50 þannig að ætli við hefðum ekki bara verið jafn flót að labba hehehe nei nei bara grín en leigubílstjórinn vildi samt ekki gefa okkur afslátt sökum seinagangs hehehe æ þetta var svona had to be there. En hérna eru svo myndir af geiminu :)  Í gærkvöldi kíktum ég og Dóra  svo í bjór á barnum hérna  og við skemmtum okkur konunglega verst að hún þurfti að fara í dag það var nebblega svo ágætt að hafa hana fyrst Sibba er á spítalanum en Sibba fer nú vonandi að koma heim bráðum.  Ég nenni eiginlega ekkert að skrifa meira í dag þannig að ég bið bara að heilsa í bili :) en endilega kíkið á myndirnar frá föstudeginum :)

katosk | 14:56

4.apríl

Manni

Ég, Sibba og Dóra erum orðnar húkt á því að spila manna og sitjum tímunum saman á spítalanum hjá Sibbu og spilum manna á milli þess að horfa á Margréti Allý sofa :) voða gaman hjá okkur og minnir þetta óneitanlega á spilakvöldin heima hjá Hildi uppi á Holti :)  Planið fyrir kvöldið er annars það að skella sér á Årsfest IHK eða árshátíð gamla skólans míns fyrir þá sem ekki skilja :)  Ég ætla sko fyrst heim til Betu og Gunna og horfa með þeim á úrslitin í Stjerne for en aften og fá mér smá öl þar af því að ég tími ekki að drekka á barnum í skólanum :/ Jæja ætli maður verði ekki að drífa sig í sturtu og koma sér af stað :)

katosk | 19:03

Frábærir vinir og fjölskylda

Það er ekki að spyrja að því hvað maður á frábæra vini og fjölskyldu skal ég segja ykkur :) Takk elsku vinkonur og vinir sem eru búin að senda mér mail og vorkenna mér yfir gærdeginum og takk elsku bestu frábærustu mamma og pabbi :) Þið eruð BEST!!!!!!!!!!!!

Ég svaf þokkalega yfir mig í morgun og fór ekki í skólann en sem betur fer er bara einhver kynning í gangi þannig að ég er ekkert að stressa mig á því að missa af einum degi :)

katosk | 11:56

3.apríl

Sumir dagar eru bara ekkert grín

Jæja það kom að því að ég myndi eiga ömurlegan dag í DK og ég fékk hann heldur betur með trompi í dag :/ byrjaði á því að fara í skólann í morgun og fékk tvo nýja kennara sem töluðu við okkur eins og við værum fimm ára og ég var nú ekki sátt við það, nú svo sögðu þeir okkur að verkefnið okkar á þessu námskeiði væri að búa til heimasíðu fyrir skólann en nota bene danska línan fékk að fara út og finna sér fyrirtæki og ekki skánaði skapið þá hmmm þannig að ég og nokkrir aðrir kvörtuðum í umsjónarkennarann okkar í frímínútunum og við sögðum að við værum virkilega móðguð að þeir skyldu ekki treysta okkur í þetta, hann skildi okkur vel og ætlaði að fara með kvörtunina til hærri manna o.k. og svo halda hinir tveir áfram að kenna og fara að segja okkur að þeir séu nú ekki með fullkomna námsskrá handa okkur af því að þeir væru ekki búnir að sjá hvar kunnátta okkar lægi helló earth to stupid erum við ekki í skóla til að læra en ekki bara gera eitthvað sem við kunnum og þá gat ég bara engan veginn haldið kjafti lengur og hellti mér yfir kennarann og sagði honum að mér þætti þetta bara verulega hallærislegt og spurði hvort þetta hefði gengið yfir dönsku línuna líka og þetta væri nú bara mismunun og ef þeir ætluðu að mennta okkur sem margmiðlunarhönnuði þá blablabla ég var sko ekki glöð en svo kom umsjónarkennarinn aftur til okkar og sagði okkur að það hefði verið gott að við skyldum segja eitthvað af því að nú megum við velja fyrirtæki sjálf :)  Úff ég bara skrifa og skrifa og svo skilur kannski enginn neitt í því sem ég skrifa en hvað um það hehe nema hvað að svo fór ég að rífast við vin minn og svo kom ég heim til að sjá tvö e-mail, annað frá bankanum mínum að segja mér að þeir geti því miður ekki hjálpað mér lengur og svo annað frá flugfélaginu að segja að ég þurfi að borga 4000 kall ef ég ætla að breyta fluginu mínu :/ og ekki nóg með það að ég fór á spítlann til Sibbu og spilaði Manna við hana og Dóru og skíttapaði það er nú ekki hægt að leggja svona marga leiðinlega hluti á eina manneskju á einum degi finnst ykkur það??? En vonandi verður morgundagurinn bara margfalt skemmtilegri í staðinn :) Hey hvað er með þennan gæja í Bachelor??? Var hann með öllum konunum í þessum  þætti?? Ég er að vísu bara búin að sjá auglýsingar fyrir þáttinn og þar er hann sýndur kyssa þó nokkrar, þið megið alveg segja mér, ég ætla nebblega ekki að fylgjast með þessum þáttum.

katosk | 01:57

2.apríl

Bankarán í Hafnarfirði

Mér finnst nú soldið fyndið þetta bankarán þarna í heimabænum mínum :/ það er hægt að búa til marga hafnfirðingabrandara úr þessu held ég hehehehe það er nottulega ekkert sniðugt þegar svona gerist en o.k. dæmi hver fyrir sig en sko hver rænir banka kl. 9:40 um morgun á 1.apríl með nælonsokk á hausnum ;) Ef ég hefði verið þarna hefði ég nú fyrst bara farið að hlægja og haldið að þetta væri djók hehe en það var kannski ætlunin hjá honum hehehe en svo þetta með að ræna banka svona snemma að morgni, er það bara ekki ástæðan fyrir því að löggan vill ekki segja hve miklu var rænt?? Það voru nebblega ekki svo miklir peningar í kassanum hehehe mér finnst þetta soldið fyndið og nælonsokkur halló er ekki í lagi heima hjá þessum gæja?? Ég er viss um að ef þetta er hafnfirðingur þá þekkir hálfur hafnarfjörður hann, ég meina þekkja ekki allir alla þarna heima??? Allavega hélt ég að þetta væri aprílgabb í gær og svo var ég að spá í hvort að ránið í bókasafnið væri gabb en hætti við að halda það, hver vill ræna bókasafn hehehe að vísu er fullt af tölvum þar núna en niiiii það eru bara skrítnir menn sem fremja bankarán og ræna skrítna staði ;) En nú er ég farin að bulla heilmikið og ætla bara að hætta því og fara í háttinn ;)

katosk | 23:01

1.apríl

Engir hrekkir að ráði

Lilja systir var sú eina sem eitthvað reyndi að plata mig í dag annars hef ég verið laus við allt plat :) Hún Margrét vinkona mín fæddi dreng á laugardaginn, stóran og myndalegan :) ég segi nú bara "það er eins gott að vinahópurinn verður ekki þrítugur á þessu ári" það eru nefnilega svo mörg börn að fæðast að maður hefur varla við að kaupa sængurgjafir :)  En innilega til hamingju með dúlluna þína Margrét og vonandi fæ ég myndir fljótlega.  Það er nú ekki mikið að frétta af mér, kennarinn minn byrjaði morguninn á því að segja okkur að hann ætlaði að sýna okkur mjög flotta heimasíðu sem væri unnin í FrontPage svona til að sýna okkur að við gætum þetta öll og svo kallaði hann mig upp og bað mig um að sýna bekknum heimasíðuna mína :) hann var að vísu búinn að tala um þetta við mig um daginn en svo varð ekkert úr þessu þannig að ég hélt að hann hefði hætt við en mér fannst þetta mjög mikið hrós og mér finnst hann nottulega ennþá frábærari núna en þetta var síðasti dagurinn hans með okkar bekk í bili :( Þessi maður er algjör perla skal ég segja ykkur og ég á eftir að sakna hans, sérstaklega af því að ég veit að kennarinn sem við fáum núna er víst ekkert spes :/

katosk | 21:22

30.mars

Sumartími

Það er búið að breyta yfir í sumartíma hérna í DK þannig að núna er tveggja tíma mismunur á klakanum og baunaveldi.  Ef ég á að segja eins og mér finnst þá finnst mér nú hálf hallærislegt að breyta svona tímanum af hverju má hann ekki bara vera eins og hann er??  Helgin hjá mér er annars bara búin að vera mjög róleg, ég fór að vísu í gær með Betu niður í Bymidte að sjá keppendurna í Stjerne for en aften og það var rosalega gaman og svo kíkti ég á barinn í gær með Hákoni, Stulla og Hrafnhildi og ég og strákarnir spiluðum smá púl og ég gjörsamlega rústaði þeim hehehehehehe eða sko næstum því ;) Ég er nú ekki góð í púl en ég er rosalega heppin, sérstaklega þegar það þarf að skjóta fast þá stundum lauma nokkrar kúlur sér niður götin, ekki alltaf í mínum lit en það er allt í lagi ;)

katosk | 20:01

28.mars

Dagbókin er 1 árs í dag :)

Vá ég er búin að skrifa í þessa dagbók í eitt ár í dag :) djöfull er ég dugleg, ég ætla nú ekki að syngja afmælissönginn  hehehe en í staðinn verður bara allt skrifað í bjartari lit í dag :) Annars er bara rosaleag gott veður í kóngsins Köben í dag eða eitthvað um 16°c ;) ekki slæmt ha ;)  Margrét Allý var búin að þyngjast um 55gr. þannig að ég vann veðmálið í gær hehehe sagði sko að í dag yrði hún orðin 2070gr. en hún var 2080gr. þannig að hún vann eiginlega bara sjálf hehehe eintóm gleði í DK í dag skal ég segja ykkur :) Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir ;)

katosk | 15:48

27.mars

Ég er í fríi

Jamm ég er sko í fríi í skólanum og er eiginlega barasta ógeðslega löt og þá meina ég ógeðslega löt, gæti svosem farið í það að læra heima bara verst að ég er soldið langt á undan hinum í bekknum :/ heimaverkefnið var sko að búa til heimasíðu og döhhhh hvað er þetta hehe nei ég segi nú bara svona ég gæti til dæmis verið að gera heimasíðu fyrir mömmu og pabba :) hey já ég kannski verð bara dugleg að læra heima um helgina og geri það :) ohhh það er svo sniðugt svona þegar maður hugsar upphátt og skrifar það niður á heimasíðuna sína og leyfir öllum að lesa en svona er það þegar það eru engar fréttir :) eru ekki engar fréttir góðar fréttir :) hey jú ég fékk símtal í gær og var beðin um að hafa það á bakvið eyrað að vera prufuð í hljómsveit og mér finnst það baaaaaara frábært og er svoooooo til í það :) En hvað er að frétta af ykkur??? Af hverju segir aldrei neinn neitt í kommenta kerfið hjá mér??? Þið megið segja hvað sem er þar I promise ég verð ekki fúl :) híhíhíhí

katosk | 23:36

26.mars

Stutt í heimkomu

Það eru ekki nema 16 dagar í að ég komi heim og þeir verða held ég mjög fljótir að líða, í fyrsta lagi vegna þess að ég er komin í helgarfrí í skólanum, það er sko rustur en ég ákvað að fara ekki því þá myndi ég ekki sjá Marlý í 3 daga og sem betur fer ákvað ég ekki að fara af því að þegar ég var búin í skólanum þá hringdi Sibba og bað mig um að sækja sig á spítalann en þeir útskrifuðu hana sökum plássleysis.  Nú í öðru lagi þá er svo gaman að læra html í skólanum að næsta vika á eftir að fljúga frá mér og þá er aftur komin helgi og þá eru bara 5 dagar í að ég kem heim júhúhúhúhú.  Nú í kvöld gerðist ég aukamamma fyrir Marlý á meðan mamma hennar var í mjólkun og hún bara svaf í fanginu á mér litla rúsínan ohh þið getir rétt ýmindað ykkur að bjöllurnar fóru af stað :)  Leiðinlegu fréttirnar eru þær að mig vantar nýja bremsuklossa á bílinn minn og á ég að segja ykkur soldið fyndið :) ég veit hvernig á að segja það á ensku hehehehe eða sko ég held að það sé klötses :) núna ætla ég að fara og hella sjóðandi eða var það ísköldu vatni á helvítis köttinn og fara svo að sofa :) ÉG HATA KETTI!! bara svona svo þið vitið það :D  Kann einhver ráð til að losa sig við óvelkomna ketti??? Þá meina ég annað en heitt/kalt vatn.

katosk | 23:49

25.mars

Helvítis kettir

Ég er að verða geðveik á þessum helvítis köttum hérna í hverfinu og þá sérstaklega einum sem mjálmar alltaf hérna fyrir utan hjá mér og er alltaf að koma inn í eldhús hjá okkur, ég held að ég sé búin að henda honum út svona tíu sinnum arrrrrgg og ekki nóg með það þá hljóp ég yfir til Kalla í fimm mínútur áðan og fór út um svaladyrnar haldið þið ekki að helvítis kötturinn hafi náð að opna hurðina og fara inn og finna pokann sem harðfiskurinn frá Jóhönnu var í og byrja að narta í hann, dísuss kræst ég var ekki lengur í burtu en 5 mín, sko ég er ekki langt frá því að fara og kaupa rúðupiss og gefa honum í skál, verst að ég er dýravinur :/ en ég hata þennan skal ég segja ykkur...........sorry en ég ætlaði nú að segja ykkur frá því að það er ekki hægt að skoða allar myndir eins og er því ég er að laga síðuna og gera hana skemmtilegri :) sérstaklega út af því að á morgun á ég að sýna hana í bekknum mínum og segja frá því hvað það er auðvelt að búa til heimasíðu :)

katosk | 23:39

24.mars

Fékk að halda á Marlý og er að leita að VINNU

Þvílíkt krútt sem hún Margrét Allý er að maður bara fær kökk í hálsinn í hvert sinn sem maður sér hana, eða kannski er það bara ég sem er svona viðkvæm en ég fékk allavega að halda á henni í dag og ég fékk kökk í hálsinn og svo fóru bjöllurnar af stað hehehe en þær verða bara að klingja aðeins lengur hehehehe en veit einhver um VINNU handa mér í sumar?? Var ég kannski búin að spyrja að þessu?? Eins og staðan er í dag virðist ég ætla að vera atvinnulaus í sumar sem er ekki gott :( þannig að ef þið heyrið af einhverjum sem vantar hressa og skemmtilega duglega manneskju í vinnu þá er ég til ég er til í hvað sem býðst :) Hérna eru nokkrar myndir frá heimsókn Jóhönnu og félaga.  Ég gleymdi að segja ykkur frá einu mjög fyndnu sem gerðist á laugardaginn þegar við fórum út að borða hehe sko Guðni ætlaði að vera ferlega klár og byðja um bjór á dönsku, nema hvað að þegar þjónninn kemur þá segir hann við hana "jæ skal have en litten öl" og hún segir o.k. og þegar hún kemur til baka þá kemur hún með einn líter af bjór hahahahaha og Guðni greyið ætlaði bara að kaupa einn lítinn bjór hehehe þetta var samt svona had to be there en konugreyið kom svo með lítinn bjór handa Guðna sem var eiginlega bara eins og fingurbjörg eftir að við sáum hinn hehehe

 

katosk | 21:42

23.mars

Meira rúnt og heimsókn á spítalann

Ó mæ got hvað ég fékk að sjá lítið krútt í dag en Sibba hringdi í mig í morgun og sagði mér að koma og heimsækja þær mæðgur og fá að sjá litla krúttið :) ég er alveg í skýjunum þetta var æði :)  Ég tók tvær myndir af litlu fjölskyldunni eins og þið sjáið hérna niðri en Kalli er með fullt af myndum og ef þið viljið skoða þá er slóðin saeberg.com og þar er Kalli meira að segja búin að setja videó af dúllunni. Hún er ekkert smá sæt finnst ykkur það ekki :) 

 

 

 

Annars fór ég svo í dag að hitta Jógu, Guðna og Yngva aftur og var algjör vitleysingur og keyrði eitthvert lengst upp í sveit en ætlaði sko annað sem átti ekki að vera langt í burtu þannig að þau greyin sátu bara í bílnum hjá mér á rúntinum í allan dag, ég vona að þau fyrirgefi mér asnaskapinn :/ hehehehehe og að þau meti það bara að hafa verið með mér svona stórskemmtilegri manneskjunni hahahhaha hey færslurnar mínar síðan í gær og í fyrradag hafa ekki farið inn æ em só sorry ;)

katosk | 19:25

22.mars

Margrét Allý er fædd

Sibba og Kalli eignuðust pínkuponsulitla stelpu í dag, hún var 8.5 merkur, ohh hvað ég hlakka til að sjá hana :)  Hún fékk ss nafnið Margrét Allý sem er eftir báðum ömmunum :)  Í dag fór ég fyrst og keyrði hann bróður minn á flugvöllinn en hann ákvað að fara bara heim fyrst hann fékk ekki vinnu hérna og svo fór ég og hitti Jóhönnu og Guðna og Yngva vin þeirra og við keyrðum og löbbuðum um Köben, skoðuðum Nyhavn, Litlu Hafmeyjuna, Stínu, Istegade og eitthvað meira og svo kom Jóhanna með mér hingað heim og ég skipti um föt og gerði mig sæta fyrir kvöldið en ég fór ss með þeim út að borða á mexíkönskum veitingastað, þetta var alveg bara frábær dagur, það er svo gaman að fá gesti :)

katosk | 01:53

21.mars

Hellingur af börnum þessa dagana ;)

Já það er svo mikið af óléttum konum í kringum mig að það hálfa væri nóg :/ Eva Lind eignaðist tvíbura, helmingur af vinkonum mínum er óléttur eða það finnst manni og þ.m.t. Sibba sem ætlar vonandi að eiga á morgun eða þá á sko að setja hana af stað :) þannig að það er mikið að  gerast :) já og svo er ein stelpa ólétt sem ég veit um og má ekkert segja en trúið mér að þegar það má segja þá er það sko verí sörpræsíng :) já nei nei þetta er leyndó ennþá en þeir sem fatta þeir bara fatta og þeir sem ekki fatta hahahahahhaha en nema hvað þá skiluðum við verkefninu okkar í dag og fengum rosalega góða dóma miðað við það að við vorum ekki nógu ánægð sjálf en ef við hefðum haft eina viku  í viðbót þá held ég að verkefnið hefði verið miklu flottara en í tilefni dagsins skellti ég mér bara á djammið og var að koma heim ;) á morgun ætla ég svo að hitta Jóhönnu og Guðna og sýna þeim Köben eða það sem ég þekki af henni og veit hvar er.

katosk | 04:23

19.mars

Stríð, lélegt verkefni, kríli og heimsóknir

Er barasta komið stríð?? það þykir mér nú frekar leiðinlegt hmmm eruð þið ekki sammála?? Ég er eitthvað voðalega andlaus og nenni ekki einu sinni að bulla, það eina sem kemst að í hausnum á mér núna er skólinn og hvað ég er fúl yfir því að verkefnið okkar verður ekki eins flott og ég vildi hafa það af því að ég er sú eina sem er með fullkomnunaráráttu í hópnum :( hinum er eiginlega bara allt í einu alveg sama, well ekkert við því að gera nema bara brosa og gera betur næst :)  Sibba ætlar að fæða lítið kríli á laugardaginn eða sunnudaginn og ég hlakka voða voða til og svo ætlar Jóga vinkona að koma til Köben á morgun og ég hlakka ekkert smá til :) þannig að endalaus gleði ríkir hjá mér aftur þessa helgi eins og þá síðustu :) Ég held svei mér þá að maður fagni bara um helgina :)

katosk | 23:15

18.mars

Skóli, skóli, skóli og nýjar myndir

Ég er bara í skólanum þessa dagana og það kemst eiginlega ekkert annað að í hausnum á mér, samt næ ég ekki að einbeita mér og fæ bara hausverk af þessu öllu saman ég ákvað að fara snemma úr skólanum í dag eða um sex leytið og kíkti með vini mínum á kaffihús í Stínu nema hvað að það er ekki í frásögur færandi nema fyrir það að á þessu kaffihúsi er bannað að reykja annað en sígarettur (n.b. við sátum þar) og svo er svona nokkurs konar garðhús fyrir utan (fyrir þá sem þekkja Café Nemos eða eitthvað svoleiðis) og þegar við erum að koma og kíkjum þangað inn sjáum við mann vera að æla og æla og æla og ég sver það að ég held að ég hafi bara aldrei séð svona mikla ælu á ævinni (fyrir utan græna fylleríið hjá einni sem við skulum ekki nefna á nafn en þeir muna sem þar voru) hehe  ;) og svo er maður alltaf svo mikill asni að maður kíkir alltaf og ég byrjaði þvílíkt að kúgast og var bara næstum því farin að æla sjálf hahaha ég er svo mikil hæna stundum hehehehe en það lagaðis nú fljótlega.  Mér er nú bara spurn: Hvernig nennir fólk að vera svona??? Jæja ef þú náðir að lesa í gegnum þetta allt saman held ég að þú sért jafn klikkuð/aður og ég hahahah þvílíkt og annað eins bull að nenna að skrifa um hmmmm en hérna eru allavega myndir frá því á laugardaginn :) svona af því að þú nenntir að lesa ;) nei sko það var verið að tala um Ísland og lundapysjur í C.S.I. svo ég haldi nú áfram að tala um ekki neitt hehehehe en núna er ég hætt ;)

katosk | 22:41

17.mars

Endalaus gleði.....

Ég er eiginlega bara með bros hringinn get ég sagt ykkur :) sko í fyrsta lagi af því að Sibba fékk að koma heim af spítalanum í dag og ég fór í heimsókn til hennar að sjálfsögðu og við horfðum á Fame Academy saman sem er uppáhalds þátturinn okkar núna en þeir eru ss sýndir á BBC Prime á þri, fim og fös fyrir þá sem vilja kíkja og þið hin sem lesið þessa síðu og búið í UK og eruð búin að sjá þættina PLÍS ekki kjafta :)  og svo seinni gleðin er út af því að ég er home alone núna húrra húrra húrrrrrraaaaaa ef ég mun nokkurn tíman kvarta yfir því á næstunni að eiga ekki kærasta þá megið þið slá mig o.k. ég veit að það er ekki það sama að búa með kærasta og að búa með bróður en kommon af hverju er ekki hægt að setja klósettsetuna niður eftir notkun???? Svo er annað sem ég skil ekki við suma karlmenn og það er að þeir skilja sumir ekki nei, sérstaklega einn hérna á kollegi-inu, hann heldur því fram að hann geti gert mig svo hamingjusama og blablablabla en sorry ég bara hef ekki áhuga :/ ég er búin að reyna að segja NEI og NO og NEJ en hann virðist ekki skilja þessi tungumál, kann einhver að segja nei á tungumálinu sem er talað í Búrúndí???  Annars er ekkert mikið að frétta af mér, ég hlakka soldið til að fara heim um páskana en þangað til hlakka ég auðvitað til að hitta Jógu næstu helgi þegar hún kemur :) Þið verðið að afsaka að í gær skrifaði ég óvart 17.mars en sko ég fylgist svo lítið með dagsetningum að ég fattaði ekki neitt hérna í DK er allt svo ligeglad að maður þarf ekkert að vera að stressa sig á því hvaða dagur er eða hvað klukkan er nema þegar nær dregur íslandsför svo er líka eiginlega alltaf fimmtudagur hérna.

katosk | 23:50

16.mars

Frábært partý og dagur þynnku :/

Ég fór í frábært afmælispartý hjá Hrafnhildi og Ásu í gærkvöldi og þar var fullt af fólki sem skemmti sér konunglega :) Kalli sá um tónlistina og eins og alltaf náði hann upp geggjaðri stemmingu.  Ég kíkti nú líka aðeins á Radison SAS hótelið til að hitta Fríðu en hún var ss þar á árshátíð með Skýrr og þar hitti ég líka Mæju og Þossa og Heiðu Gospelsystir með meiru og það setti bara plús á kvöldið :)  Nú dagurinn í dag endaði nottulega bara í þynnku þar sem boðið var upp á bollu, bjór og Hot & Sweet í afmælinu í gær ;) nema hvað að auðvitað tók ég fullt af myndum (misgóðar að vísu) sem ég verð bara að setja hérn inn seinna þar sem dagurinn var eiginlega ónýtur af þynkunni ;)

katosk | 23:11

15.mars

Úr lopapeysu í stutterma

Já haldið þið ekki að sumarið sé bara komið í heimsókn og það er hægt að fara út á stuttermabol :)  Í gær fórum við Hilmir í heimsókn til Jonna og svo kíktum við í bæinn á pöbbarölt, ég var nú bara keyrandi af því að ég er að fara á djammið í kvöld en það var samt rosalega gaman :)  Ég verð nú samt að viðurkenna að ég er hálf vængbrotin án Sibbu, ég sakna hennar svo mikið en maður ræður víst ekki öllu og hún greyið þarf bara að vera á spítala það sem eftir er meðgöngunnar :/ en ég reyni nú að vera dugleg að heimsækja hana :)  Jæja, ég er farin út í sólina....................bið að heilsa ykkur :)

katosk | 15:35

13.mars

Langur dagur, reykingar og fullkomnunarárátta

Fimmtudagar eru ógeðslega langir dagar hjá mér og núna annan annan fimmtudaginn í röð er ég í skólanum til 23:30 úff, ekki það að þetta sé leiðinlegt heldur bara langaði mig eiginlega meira að fara og heimsækja Sibbu.  Það er samt ekkert smá gaman í skólanum og maður kynnist fólkinu miklu betur þegar maður er að vinna svona frameftir :) ég er nottulega búin að láta stimpla mig sem einhverja tík af því að ég bannaði einum strák að reykja yfir mér um daginn þegar ég var veik og núna spyrja mig allir hvor þeir megi reykja hehehe frekar fyndið en mín vegn má alveg reykja þarna og það þarf ekki að spyrja mig um leyfi :) nú og svo vill örugglega enginn vera með mér í grúppu aftur af því að Massimo sem er með mér í hóp segir að ég sé með fullkomnunaráráttu hmmmm ég með fullkomnunaráráttu haaaa passar það nokkuð hmmmm hehehehehehe nei ég segi svona, það ætti nú að vera kostur í svona námi og við skilum alltaf flottum verkefnum :)

katosk | 01:20

12.mars

Steiktir pakistanar, skrítin hrísgrjón

Já þá meina ég frekar steiktir,  tveir í bekknum mínum komu til mín í dag og spurðu mig hvort ég væri til í að teikna persónurnar í þeirra teiknimynd ef ég hefði tíma :/ helllóó við eigum að skila verkefninu eftir rúma viku og þeir eru ekki búnir að teikna fígúrurnar ó mæ got og ég átti að hafa tíma til að teikna fyrir þá, já nei takk ég hef nóg með mitt verkefni að gera!!!  Þeir eru næstum því jafnskrítnir og hrísgrjónin sem búa með mér en þegar ég skrapp aðeins út á mánudagskvöldið kom einn hlaupandi á móti mér á silkináttfötum hehhe ég veit ekki hvar hann var að gera úti á náttfötunum en þau voru fallega blá eins og heimasíðuan mín hehehe. Annars kom lille bró aftur til mín í dag þar sem það klúðraðist eitthvað með húsnæði þarna í Århus og hann ætlar að vera hjá mér í smá tíma.  Nú og svo er ég á fullu að vinna í síðunni og því að gera hinar síðurnar í henni eins og forsíðuna já og breyta myndasíðunni fullt og svo koma helling af myndum sem ég virðist hafa gleymt að setja inn :)

katosk | 00:33

 

11.mars

Frábær kennari og nasahár

Ég er með fyndnasta kennara ever, hann hefur mjög spes fatastíl og þá meina ég MJÖG spes hehehe hann á t.d. buxur úr þunnu efni með tiger munstri og fullt af gallabótum og svo er svona gallastroff neðst á buxunum, hann er með rauðfjólublátt axlarsítt hár og plokkaðar augabrúnir.  Í dag mætti hann svartklæddur í tíma og ég var mjög hissa að sjá hann svona "venjulegan" en það varði þó ekki lengi get ég sagt ykkur því hann var í svörtum buxum sem voru mjóar niður og svo var hann í stígvélum með fimm sentimetra háum hæl, ég var að kafna úr hlátri inni í mér en hann er samt svo mikil týpa að þetta er í lagi, ég er ekki viss en hann gæti alveg eins verið hommi og ég var eitthvað voðalega að spá í þetta í morgun þegar ég mætti og hló nottulega inni í mér nema svo fer hann að logga sig inn í tölvuna og þá er logginnið hans bgay og þá hélt ég að ég yrði ekki eldri hehehehe hann er alveg flottastur!!!!!! Það var gömul mynd af honum á heimasíðunni hans sem ég læt fylgja með þannig að þið getið svona aðeins ýmindað ykkur manninn :)

Picture of Me

Nú við bjuggum til leik í dag sem enginn getur svo opnað ekki einu sinni ég af því að hann er .exe og biðst ég bara afsökunar á því :/ En svo ég tali nú meira um fólkið í skólanum mínum þá skal ég segja ykkur það að ég mun aldrei framar kvarta yfir því að þurfa að plokka á mér augabrúnirnar eða lita eða halda því fram að ég sé með of dökk hárin fyrir ofan eftri vörina hmmm nei nefnilega út af því að ein sem er með mér í verkefni þarf að plokka sig á tveggja daga fresti, hún þarf að lýsa hárin og það er alltaf eins og hún sé illa máluð svo þykk eru augnhárin hennar og svo er hún með "skegg" sem hún þarf að eyða burt og bíðið þetta er ekki búið, greyið stelpan er með hár í nefinu líka og þau eru kolsvört, ég eiginlega vorkenni henni soldið mikið en svona er þetta fólk bara frá þessum arabalöndum hmmm ekki mikið við því að gera.  Ég ætla að byrja á því frá og með deginum í dag að hafa titla á dögunum :)

katosk | 20:59

 

9.mars

Úff ég var að horfa á ógeðslega mynd :/ ég er held ég orðin verri en Heiða vinkona og þá er nú mikið sagt en ég ss var alltaf að skoppa upp í sófanum hjá Sibbu og Kalla og ég var með puttana upp í eyrunum næstum því alla myndina, ég geri það nebblilega út af tónlistinni, ég gæti sennilega horft á hryllingsmyndir ef ég væri heyrnarlaus því það er tónlistin sem gerir mig alltaf svo hrædda, nema hvað við vorum ss að horfa á Signs með Mel Gibson mjög spúkí og talandi um spúkí þá var ég um daginn að skoða mynd frá Þorrablótinu sem ég læt fylgja hérna með og segið mér nú..........sjáiði mig tvisvar á þessari mynd???? Á ÉG TVÍFARA SEM BÝR Í KÖBEN brrrrr mér finnst þetta frekar spúkí sko hmmmm

 

katosk | 01:09

 

Gleymdi einu áðan, Lilja og Jónas eignuðust lítinn strák áðan og óska ég þeim innilega til hamingju með Magna Snæ :) (ég vona að ég sé að muna þetta rétt)

katosk | 20:34

 

Hann á afmæl'í dag

Hann á afmæl'í dag

Hann á afmæl'ann Guðjón

Hann á afmæl'í dag

 

Innilega til haimingju með afmælið frændi :)

Þetta ætlar nú heldur betur að enda sem letidagur hjá mér í dag, svaf út og er bara búin að vera að dúlla mér í allan dag og kvöldið fer svo í dvd hjá Sibbu og Kalla.  Hey jú ég reyndi að þrífa eldhúsið áðan og varð að hætta af því að mér var orðið flökurt af lyktinni af matnum sem kínverska stelpan var að elda ojjjjbarasta hún er búin að vera með kjöt í potti og mallsjóða það síðan um eitt leytið dísuss kræst hver vill borða svoleiðis ógeð.....ég fór líka í smá bíltúr með Hrafnhildi áðan að sækja Atla í afmæli og það var bara næs og fékk mann aðeins út úr húsi í letinni og í leiðinni skrapp ég í bíltúr með Arnari en hann var að athuga hvort bíllinn minn væri bilaður og hann er það ekki vúhúhúhúhú enda bila Toyotur ekki skal ég sko segja ykkur :)

Hérna eru nokkrar myndir frá Karókí kvöldinu um daginn :)

katosk | 19:43

 

8.mars

Ef þú ert á leiðinni til DK þá mæli ég með Harefords (held að þetta sé rétt skrifað) en ég & Sibba fórum ss þangað í gærkvöldi í boði Jónsa sem var hérna í bissnessferð :) Þetta var sko heldur betur hvítlaukskvöld hjá mér því ég fékk mér snigla í hvítlaug í forrétt og svo fékk ég nautafillet með hvítlauskssmjöri og bakaða kartöflu  með hvítlaukssmjöri í aðalrétt mmmm hvað þetta var gott ;) Bara enn og einu sinni TAKK FYRIR MIG!! Jónsi :)  Nú svo kom páskabjórinn út í gær þannig að við fengum okkur svoleiðis eftir matinn eða sko ég og Jónsi, Sibba nottulega bara í kókinu.  Ég veit að ég var búin að lofa einhverjum myndinum hingað inn i vikunni en það er bara búið að vera svo brjálað að gera í skólanum að ég hef ekki haft tíma þannig að ég geri það við fyrsta tækifæri :)

katosk | 20:18

6.mars

Bara stutt núna, brjálað að gera, og ég var í skólanum í 14 og 1/2 tíma í dag þannig að ég er soldið þreytt.  Þið fáið stóran + fyrir að vera svona duglega að skrifa í kommentin hjá mér í síðustu færslu :) endilega haldið svona áfram ;) ég ákvað að skrifa dagsetninguna 6.mars þó svo að það sé kominn 7 af því að það ruglar mann annars bara, hjá mér er allavega ennþá fimmtudagur well got to go yo sleep ;) L8R.................p.s. mig langar svo að vita hverjir það eru sem lesa þessa síðu þannig að ef þú ert að lesa þetta þá settu nafnið þitt í kommentin hérna fyrir neðan og kannski ég sendi þér þakkarkort ;)

katosk | 01:42

4.mars

Ohh ég er orðin ömurleg í myndatökum :( ég tók bara eina mynd af bróður mínum og hana tók ég í bílnum þegar ég var að kveðja hann í dag :/ ég kenni nú veikindum um þetta en ég virðist ekki ætla að ná þessari flensu úr mér enda ekki búin að ná að halda mér í rúminu í heilan dag ennþá hehhe þetta virðist nú allt vera að koma og það var nú gaman að hafa lillebror í heimsókn :) Við Sibba horfðum á Eurovision á sunnudaginn og vorum sammála því að lagið sem Birgitta söng var nú bara besta lagið og mest grípandi þannig að við vorum ekki alveg sammála því að hún hafi bara verið valin út á það að hún er svo fræg á klakanum í dag, þetta var bara rosalega flott hjá henni :) annars vorum við að spá í að semja lag fyrir næstu júróvisjón og sko hún ætlar held ég að semja það og ég að syngja og svo ætlum við að láta Kalla sjá um ljósin því þessir kallar sem vinna hjá RÚV kunna sko ekkert að vera með flott ljósashow, nú við fengum líka senda videóspólu með hlustendaverðlaunum FM957 og ó mæ god hvað það var ljót sviðsmynd :/ og svo er bara halló að láta þetta útvarpslið kynna með einhverjum frægum það verður eitthvað svo vandræðalegt og svo er glatað að stela upphafsatriðinu úr MTV verðlaunaafhendingunni (sorry þið sem ég þekki sem vinna hjá FM og PoppTíví vonandi no hard feelings) en við Sibba sko ákváðum líka að við ætluðum líka að sjá um þá keppni á næsta ári og nýta sviðið í Borgarleikhúsinu betur og gera flottari sviðsmynd og kenna kynnunum að koma fram, hey Helga Braga var samt kúl sko :) já og Pétur líka heheh hann var í flottum jakkafötum og svo á Kalli að sjálfsögðu að sjá um ljósin og hann mun líka gera flotta tölvugrafík með tilnefningunum með minni hjálp sko ;) þannig að það verður nóg að gera hjá okkur á næsta ári hehehehehe þið haldið örugglega að ég sé rugluð og eitthvað en nei nei það er bara fullt af hugmyndum í kollinum á mér núna sko.  Ég fattaði það í dag að mig bráðvantar lítinn sætann diktafón eða svon lófatölvu eða minidisk því ég fæ alltaf svo fullt af hugmyndum um hvað ég ætla að skrifa hérna á daginn en er svo búin að gleyma því þegar kemur að því að skrifa eitthvað hingað inn :/  bara svona ef ykkur vantar hugmynd fyrir afmælisgjöf á næsta ári HAHAHAHAHA, ég ætti kannski að fara að safna áfengi fyrir þann dag hmmmm og senda smátt og smátt heim þar sem það er nú ódýrara hérna en heima ;) hey nú er ég hætt ég veit ekki hvað er að gerast í hausnum á mér núna ;)

katosk | 22:10

1.mars

Sji...... hvað tíminn er fljótur að líða það er kominn mars og bara rétt rúmlega mánuður þangað til ég fer heim og trúið mér það á eftir að líða fljótt sérstaklega þar sem þetta er mánuður heimsókna og maður á eftir að hitta fullt fullt af fólki og svo er nottulega brjálað að gera í skólanum en svona af gestagangi að segja þá fórum við Sibba og hittum Guðnýju Öglu niðri í bæ í gær, Olga systir hans Kalla kom í dag og Hilmir bróðir kemur á morgun, Jónsi kemur næstu helgi svo skilst mér að Fríða verði hérna helgina eftir það og þarþarnæstu helgi kemur svo Jóga vinkona og mars verður svo bara liðinn án þess að maður taki eftir því. Nú er ég búin að komast að því að einu mennirnir hérna í danmörku sem heillast að mér eru afríkubúar og múslimar úúú heppin ég eða hitt þó heldur :/ ég er ekki að vera rasisti eða eitthvað svoleiðis en wow hvað þessir menn eru ágengir dísuss kræst og skilja ekki nei, ég er hætt að kvarta undan karlmannsleysi takk fyrir..

Ég fór í afmæli í gærkvöldi hjá stelpu sem var með mér í bekk í IHK og hitti gömlu bekkjarfélagana en stoppaði nú ekkert voðalega lengi þar þar sem afmælið var haldið á minnsta kollegipöbb sem um getur og ég var að kafna úr sígarettureyk ekki beint auðvelt fyrir manneskju með bullandi kvef og hálsbólgu að anda þar inni og ég sem hélt að Öresundkollegibarinn væri ógeðslegur en hann var nú hátið miðað við barinn þarna á Herlevkollegi, nema hvað að mamma og pabbi (Sibba og Kalli) komu og sóttu mig og ég ákvað að labba í gegnum flottasta og bestasta kollegibarinn á Kagså og fara svo heim að sofa en að sjálfsögðu hitti ég fullt af skemmtilegu fólki og fór ekki að sofa fyrr en um fjögur leytið :( það bregst nú ekki að alltaf þegar maður ætlar að fara snemma í háttinn þá fer maður á óvænt djamm :/ Nú svo í dag var ég bara að hjálpa Sibbu og Kalla að gera sushi fyrir matarboð sem var í kvöld og að sjálfsögðu hjálpaði ég svo við að borða það líka og mmmmm þeir sem hafa ekki smakkað sushi þið vitið ekki af hverju þið eruð að missa mmmmmmm í vikunni fáið þið svo að sjá fullt af myndum, bæði frá karókí kvöldinu síðustu helgi og svo afmælinu í gær og sushi í kvöld :) er ég ekki góð :) en núna ætla ég í háttinn svo ég vakni nú til þess að sækja hann bróður minn á flugvöllinn.

katosk | 00:36

 

27.febrúar

Minn er bara lasinn í dag og búin að sofa og sofa og sofa :( ekkert fjör.........og svo má ég bara helst ekkert vera veik :( er að fara að hitta Guðnýju Öglu á morgun og svo í afmæli annað kvöld, matarboð á laugardaginn og svo kemur litli bróðir á sunnudaginn þannig að það þýðir ekkert að vera bara lasinn sko hmmm.

 

katosk | 15:52

25.febrúar

Lenti í soldið fyndnu í skólanum í morgun hehehe við vorum að vinna í verkefninu okkar og ég var með tyggjó sem er nú ekki í frásögur færandi nema það að ég er alltaf að sprengja kúlur, reyni að gera það ekki með miklum látum og stundum bý ég til nærbuxur úr tyggjóinu svona eins og þegar maður var krakki (ég er nottulega svo mikið barn ennþá) nema hvað að honum Massimo sem er með mér í verkefni honum fannst þetta líka svona rosalega töff og átti ekki orð yfir því hvernig ég gerði þetta og bað mig um að kenna sér hahahahaha ég hélt ég yrði ekki eldri og spurði hvort hann væri að djóka en nei nei hann bara gat þetta alls ekki og ég hló mig nottulega máttlausa af þessu ;) æ kannski er þetta svona had to be there dæmi hehehe en svo ég vindi mér nú að öðru.....ER ENGINN BÚINN AÐ FINNA MANN HANDA MÉR??? ;) Það er nú ekki eins og ég sé að biðja um mikið hehehehe annars fór ég í bíó áðan með Sibbu og Betur á svaka rómó mynd "Two weeks notice" og auðvitað langar mann alltaf meira og meira í kærasta þegar maður horfir á svona :( finnsti ykkur nokkuð eins og ég sé desperate eða eitthvað svoleiðis?? ;)

katosk | 19:13

24.febrúar

Ykkur er greinilega alveg sama þó að ég pipri buhuhuhu það er ekki ein einasta manneskja búin að skrifa komment á ástarmál mín :( well hvað get ég gert ég er bara að reyna að fá vini mína til að hjálpa mér eins og ég átti að gera skv. bókinni hennar Hrafnhildar, Bókin með svörin en það er greinilega ekkert hægt að treysta á vini sína nú til dags :/ maður þarf bara að gera allt sjálfur ;)

Hey fréttir ársins eru þær að það er líf í eldhúsinu mínu og fólk að horfa á sjónvarpið :) vúhúhú kannski verður bara partý bráðum hver veit :) ég vona að þetta hætti að verða dauðablokkin allavega bráðlega :) en ég er svo löt núna að ég ætla ekki að joina þeim og liggja bara uppi í rúminu mínu með sængina mína og horfa á imbann :)

katosk | 20:20

 

Hvernig er það með ykkur fólk sem les þessa síðu hafið þið aldrei neitt til orðanna að leggja? Er allt svona skemmtilegt sem ég segi að þið þurfið bara ekkert að segja heheheh það væri nú alveg æðislegt ;) en þið megið sko alveg skrifa í "hvað segirðu um það" mér fyndist það svoo gaman :) þá veit ég að ég er að skrifa hingað inn ekki alveg að ástæðulausu og bara fyrir sjálfa mig :) og þið getið komið því á framfæri sem ykkur liggur á hjarta :) það má jafnvel búa til spjall úr þessu heheh ;) er ég kannski leiðinleg núna??? nei það getur nú ekki verið, ég leiðinleg heheheh þvílíkur brandari hohohohoho eða hvað?? ;) Jæja sælla er að gefa en þyggja þannig og ég er rosalega góð í því þannig að ég verð bara að sætta mig við þetta eins og er og halda áfram........

katosk | 11:54

 

Jæja helgin búin og ný vika tekin við :) úúú ein voðalega formleg :) nema hvað að það er frí í skólanum hjá mér í dag og ég ligg bara í leti og nenni ekki að hreyfa einn einasta útlim nema kannski bara puttana til að geta tæpað þetta hingað inn :) Þið ættuð að sjá dömuna núna hérna liggjandi uppi í rúmi með tölvuna í kjöltunni, vantar bara kall hingað við hliðina á mér til að getað kúrað öðru hverju hjá :) Ég aulýsi hér með eftir karlmanni og ef þið vitið um einhvern sem hentar mér og er á lausu þá endilega skrifið í kommentin heheheheh nei ég segi nú bara svona ég er nú ekki alveg svona á þörfinni ;) en svo ég fari nú aftur í helgina þá fór ég í afmæli hjá Hrafnhildi á laugardaginn og svo var ss afmæli barsins líka og karókí í tilefni þess, voða gaman og fyndið hvað færeyingarnir voru sjúkir í að syngja og stóðu bara á sviðinu allt kvöldið :) heheheh en það var rosalegt stuð á barnum og fólk var soldið mikið fullt þar sem öll skot voru á tilboði :) Nú svo fór ég í barnaafmæli hjá Mariam í gær og svo í mat hjá Sibbu og Kalla og svo í kvöldkaffi hjá Lilju og Jónasi þannig að það var nóg að gera get ég sagt ykkur þannig að letin í dag er bara algjör plús á helgina :) TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Í GÆR KRISTÍN :) ég sko var ekkert við tölvuna í gær og gat því ekki skrifað þetta þá :)

katosk | 11:54

21.febrúar

O.K. núna fer aðeins að hægja til hjá mér allavega næstu vikuna en svo byrjar aftur fjör í skólanum eins og var þessa vikuna, en við ss vorum með svona presentation í dag á fyrsta uppkasti af okkar verkefni en þetta er ss verkefni sem er næstu fimm vikurnar og það er á þessum fimm vikum þrisvar sinnum svona presentation day :) að sjálfsögðu var verkefni míns hóps eitt af tveimur flottustu (það eru sko átta hópar) enda ekki við öðru að búast þegar frekjan ég er nálægt hehehehe en þetta er rosalega gaman og við erum að gera svona nokkurs konar teikni/flash-mynd og eigum að velja viss skilyrði fyrir verkefnið eins og t.d. okkar er unnið af sögunni um Pétur Pan og svo völdum við Pop Art sem þema, sagan gerist á klósetti, er um fíkniefni, þetta verður svo grínteiknimynd hehehe og nú verðið þið bara að leyfa ýmindunaraflinu að ráða :)

Hey þessi teljari.is er ekkert smá sniðugur :) ég get farið og svona nokkurn veginn séð hverjir skoða síðuna mína jájájá sko ég skrái þetta hjá mér skal ég segja ykkur híhí nei bara djók nema hvað að ég ss get séð ef fólk hefur farið inná síðuna af einhverri annari síðu og guess what ?? Ef fólk fer á leit.is eða google.com eða eitthvað af þessum leitarvélum (mynnir samt að það hafi aðallega verið á leitinni) og flettir upp t.d. haloscan, lággjaldaflugfélag eða og lesið nú vel Ég veit ég er frábær þá fær það upp mína síðu hahaha mér fannst þetta frekar fyndið, þannig að núna vita allir að ég er frábær :) híhíhí

Nú Hrafnhildur á stórafmæli í dag :) TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN HRAFNHILDUR!!! og á morgun ætlum við gengið í mat til hennar og svo í afmælispartý og karókí á barnum eftir matinn :) og að sjálfsögðu verður megastuð hjá okkur eins og venjulega :)

katosk | 23:38

18.febrúar

Hef voðalega lítið að segja í dag, er að drepast í bakinu og nenni því ómögulega :( hey jú ég get sagt gleðifréttir :) verð á Íslandi 11-22 apríl :) júhúhú

katosk | 21:05

17.febrúar

Þetta gerist sjaldan að það líði svona margir dagar á milli skrifa en það er búið að vera mjög mikið að gera hjá mér síðustu daga bara svo þið vitið það :) Nema hvað að ég fór á geggjað Þorrablót á laugardaginn og borðaði þorramat, söng í fjöldasöng og dansaði eins og ég ætti aldrei eftir að dansa aftur því ég byrjaði að dansa með fyrsta laginu sem hljómsveitin spilaði og hætti ekki fyrr en það síðasta var spilað fyrir utan nokkrar klósettferðir og barferðir :) En það voru strákarnir Í Svörtum Fötum sem spiluðu og ég mæli sko tvímælalaust með þeim á balli!!!!!!  Nú hann bróðir minn var nú eitthvað búinn að tala við trommara bandsins og láta kalla mig upp til að syngja eitt stykki lag sem ég gerði og það var rosa gaman :)  Hérna fyrir neðan eru svo myndirnar af blótinu bæði frá mér og Sibbu, endilega kíkið :)

 

Þorrablót (Katrín)

Þorrablót (Sibba)

 

Nú fyrsti skóladagurinn var í dag þ.e. með kennslu og það var rosalega gaman ég lenti í góðri grúbbu og ég held að þetta verði bara skemmtilegt, var smá í vafa með að vera á international línu af því að það voru bara útlendingar sem töluðu mjög svo bjagaða ensku en sem betur fer lenti ég með krökkum þar sem helmingurinn talar mjög góða ensku :)  Morguninn byrjaði á því að kennarinn tók upp gítar og svo var sungið lagið I get by with að little help from my friends og þetta á víst að gera á hverjum morgni hahaha var það ekki eitthvað fyrir mig :)

 

Jæja meira á morgun (vonandi) :) og svo ætla ég að fara að breyta um lit á þessari síðu MJÖG bráðlega, þetta átti alls ekki að vera svona svona lengi, eruð þið ekki komin með grænar á þessu græna hehehehe ég er það allavega.  Sumir glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir því að ég er loksins búin að fá mér teljara frá teljari.is :)

katosk | 22:55

12.febrúar

Takk fyrir að krossleggja fingurna fyrir mig það virkaði heldur betur og ég byrja í skólanum á föstudaginn :) TAKK TAKK TAKK TAKK og hundrað kossar :)

katosk | 15:35

11.febrúar

Olga vann ferð fyrir tvo með rauðu þrumunni í Litlu Hafmeyjarskoðun og konungshallarskoðun næst þegar hún kemur til Köben hehehe þannig að Olga þú verður að heimsækja mig sem fyrst ;) og Fríða þar sem þú varst í öðru sæti þá færð þú líka svona ferð :) heheh :) Olga þú getur svo selt Jóhönnu þína ferð ef þú býst ekki við að vera á ferðinni í DK á næstu árum en hún er ss að koma hingað í mars :)  Ekkert smá kúl að eiga PrtSc af númer 5000 og 5001 en hvernig er það með þetta fólk sem ég þekki og skoðar þessa síðu hafið þið aldrei neitt til málanna að leggja??? Það er mjög sjaldan skrifað eitthvað í kommentakerfið mitt samt eru allavega um 40 flettingar frá því í gær hmmmm ég trúi því ekki að Olga og Fríða séu bara að fletta og fletta hehehehehe nema hvað svo ég breyti nú um umræðuefni þá fór ég með Sibbu niður í bæ í dag og hún kenndi mér að vinna í barnafataversluninni Óli Prik en ég er ss búin að taka það að mér að vinna þar á fimmtudaginn þar sá ég vaktaskipti hjá drollunni með lúðrasveit og alles, svaka flott og svo fór ég til Helenu í litun en ég var komin með voða smart rót í bunden hehehe jæja farin í bili :) síja p.s. á morgun koma fréttir um skólann :)

 

 

katosk | 21:23

10.febrúar

Hey nú verður bráðum einhver með flettingu númer 5000 á síðunni vúhúhú ef þú nærð PrtSc (takkinn heitir það á tölvunni stytting af Print Screan fyrir þá sem ekki vita) og peistar því í word skjal eða eitthvað og sendir mér þá er aldrei að vita nema þú fáir verðlaun :) Hmmm hvað ættu verðlaunin að vera??? Einhverjar uppástungur?? Já og svo eitt í viðbót TAKK til ykkar sem eruð með fingurna krossaða fyrir mig :)

katosk | 18:46

 

Vaknaði snemma í morgun til að fara og sækja um nám í Multimedia Design og að fá að koma inn á miðja önn og góðu fréttirnar eru þær að studievejlerinn (held að það sé námsráðgjafi) tók bara rosalega vel á móti mér og virtist vera mjög jákvæð á að ég geti byrjað í næstu viku en ég á ss að koma til hennar aftur á miðvikudaginn með einkunnirnar mínar úr Flensborg, NTV og IHK og svoleiðis og skrifa svo ritgerð um sjálfa mig og af hverju mig langi í þetta nám og þegar hún er búin að sjá það þá ætlar hún að ákveða sig :) húrra húrra þið verðið samt að halda áfram að krossleggja fingur fyrir mig :)

katosk | 16:00

9.febrúar

Það voru íslenskir dagar á TV2 Zulu í kvöld og að sjálfsögðu varð maður að glápa :) Fyrst var sýndur mjög fínn þáttur um Björk og svo tónleikarnir hennar þar sem grænlenski kórinn syngur með henni eftir það var sýnd myndin På røven i Reykjavik eða réttara sagt Lalli Johns hehe það er svo fyndið hvernig danir þýða og svo núnar er Cold Fever en ég nenni ekki að horfa á hana. Ég segi nú ekki að þeir hafi valið það allra besta íslenska sjónvarpsefni hehe en þátturinn um Björk var fínn.  Nú í tilefni dagsins tóku Sibba og Kalli fram Malt & Appelsín og svo Nóa Kropp svona til að gera smá íslenska stemmingu.  Fyndnast við þetta allt saman fannst mér að horfa á Lalla Johns og lesa alltaf danskan teksta þegar maður skildi ekki íslenskuna hjá fyllibyttunum ;) Annars er þetta bara búin að vera mjög róleg helgi, í dag svaf ég bara út og fór svo að þrífa barinn með Sibbu og svo fórum við heim til hennar og Kallaað borða pizzu og horfa á íslenska kvöldið :) Núna er bara að vona að morgundagurinn verði frábær og ég komist inn í skólann strax þannig að krossið fingurna með mér...

katosk | 23:52

 

Ja svei mér þá það er bara kominn 9.febrúar :) Tíminn er ekkert smá fljótur að líða :)  Helgin er bara búin að vera róleg, á föstudaginn fór ég og seldi bækurnar mínar og reddaði pappírum fyrir Lín og svo eyddi ég restinni af deginum með Sibbu í reddingum fyrir barinn, við fórum í Metró sem er svona svipað og Gripið og Greitt held ég nema bara miklu stærra og sem dæmi um stærðir getið þið séð myndirnar hérna fyrir neðan hehe þær eru soldið óskýrar þar sem að ég vildi nú ekki vera að taka myndir þarna og leyfði bara vélinni að stinga höfðinu uppúr töskunni minni hehehe

 

 

 

Mamma og pabbi eru búin að opna síðuna sína og ég bjó til svona smá stikkprufu fyrir þau til að setja á netið :) ég ætla nú að búa til flotta síðu handa þeim við tækifæri og vonandi get ég það í nýja skólanum sem ég ætla að reyna að komast inn í á mánudaginn :)  En núna er ég nú bara að spá í að fara í háttinn.........l8r  :)

katosk | 03:06

6.febrúar

Setti myndirnar frá helginni hennar Hildar inn :) þær komu að visu í vitlausri röð en það verður bara að hafa það, verður ekki þannig á nýju síðunni ;)

katosk | 15:29

 

Jahá, ég er nú ekki í miklu stuði að skrifa eitthvað hingað inn en vildi samt leyfa ykkur að fylgjast með mér og nýjustu fréttirnar eru þær að ég er að hætta í skólanum :( og ætla að fara að finna mér vinnu fram á næsta haust en þá ætla ég að byrja í multimedia design eða grafískri hönnun ef ég kemst inn í það nám. Ég er ekki alveg að fíla þessa verkfræði :( Leiðinlegt en svona er þetta bara................

katosk | 13:58

4.febrúar

Vildi bara koma því á framfæri að mér þykir það voðalega leitt en þið verðið að þola þennan græna lit aðeins lengur :/ ég veit hann er þreyttur, núna er ég ss næstum því búin að ákveða hvernig nýja síðan verður en hún kemur ekki fyrr en hún er alveg tilbúin, ég ákvað sko að hætta að setja tilraunirnar beint á netið annars er ekkert búið að vera neitt svakalegt stuð á mér í gær og í dag :( bara lasin aumingi en á morgun fer ég hress og kát í skólann enda komin með nett ógeð á herberginu mínu.

katosk | 13:32

3.febrúar

Jæja þá er Hildur farin :/ ohhhh vildi óska þess að hún hefði verið lengur :) Það var ekkert smá gaman að hafa hana hérna :) en ég og Sibba ss keyrðum hana á flugvöllinn í morgun og svo fór ég bara heim hálfslöpp eitthvað, held að ég sé að verða veik enda ekki skrítið þegar veðrið er eins og það er :/  Það er búið að vera ógeðslega kalt síðan á fimmtudaginn og svo allt í einu í gær hlýnaði en það snjóaði og snjóaði og snjóaði en það er nú sem betur fer næstum því allt farið núna :) Nema hvað svo ég fari nú aðeins út í helgina þá fórum við á laugardagskvöldinu út að borða á Sticks & Sushi og ég held barasta að ég sé komin með æði fyrir sushi mmmm nú svo fórum við á Sams bar og sungum í karókí og dönsuðum dansinn við Saturday Night eða hvað það nú heitir lagið og ég set myndirnar inn vonandi í dag, já við ss gerðum okkur að algerum fíflum þar hehehe en það var allt í lagi því það þekkti okkur enginn já og svo fórum við á Absalon og dönsuðum eins og vitleysingar ógislega gaman.  Í gær komu Steina og Hildur svo í heimsók á Kagså og við bökuðum köku og pöntuðum svo pizzu í kvöldmat, skoðuðum fullt af myndum og spjölluðum :) semsagt á heildina litið alveg hreint frábær helgi og þið megið endilega koma í heimsókn öll sem lesið þessa síðu ;)

katosk | 12:08

2.febrúar

Til hamingju með afmælið Oddný :)

katosk | 16:45

1.febrúar

Jæja þetta er svei mér búinn að vera skemmtilegur dagur og allt kvöldið framundan vúhúhú kom sko bara heim rétt til að setja smá meik-up og skipta um föt :) Ég og Sibba hittum Hildi og Steinu kaffihúsi niðri á Amager og wow ég fékk þá bestu kjúklingasamloku ever, nema hvað að Hrefna kom og hitti okkur þarna og svo skelltum við okkur að kíkja á Litlu Hafmeyjuna og svo Konungshöllina og svo fórum við í Kristjaníu og svo skoðuðum við einhverja kirkju og grafhýsi voða gaman :) hérna fyrir neðan er smá preview :) Nema hvað í gær eftir að ég fékk mér power nap fórum við Kalli og hittum Hildi, Sibbu og Steinu niðri í bæ og við skoðuðum í búðir, kíktum á Istegade í fullorðinsdótabúðir og það heyrðust bara oj og oj og oj úr okkar munnum hehehe frekar fyndið og svo pöntuðum við okkur Dominos og fórum heim til Steinu og átum og drukkum fram á nótt ohhhh það er svo gaman að fá gesti :) en meira á morgun chiao!!!

 

   

katosk | 14:35

 

31.janúar

Ég, Kalli og Rauða Þruman erum komin heim og núna verður lagt sig í klukkutíma áður en við förum niður í bæ að hitta Sibbu, Steinu og Hildi, góða nótt ;)

katosk | 14:35

 

Ég er í Road Trip með Kalla þessa stundina á leiðinni til Århus að sækja Rauðu Þrumuna ;) Hildur kom í gærkvöldi um kvöldmatarleytið og ég og Sibba tókum á móti henni, ferðamaðurinn Hildur ætlaði sko ekki í strætó með okkur dönunum skal ég segja ykkur og heimtaði að fá að taka leigubíl heim til Steinu hehe og við samþykktum það eftir að við vorum búnar að segja henni að okkur fyndist það nú frekar mikil óþarfa eyðsla á peningum ;) já maður er fljótur að verða nískur á að búa í DK ;) nema hvað að þegar við löbbum í leigubílinn viljum við að Sibba sitji frammí en leigubílstjórinn bara harðneitaði af því að það væri bannað skv. lögum í danmörku að láta börn sitja frammí hehehe við hlógu mikið og sögðum honum að barnið "okkar" væri 28 ára og ólétt, þetta var ógeðslega fyndið en svo ég fari nú aftur í Road Trippið okkar Kalla þá lögðum við af stað kl. 5 og ætluðum að vera soldið tímalega nema það að strætó byrjaði ekki að ganga fyrr en 10 mínútum seinna en við héldum og var ofan á það of seinn þannig að við þurftum að flýta okkur úr strætó í lestina sem við sem betur fer náðum og hún kom tveimur mínútum á eftir okkur nú við héldum þá að við værum frekar seif nema auðvitað eins og mín heppni er nú þá stoppaði lestin tvisvar á leiðinni eitthvað biluð og við mættum í lestina til Århus einni mínútu fyrir brottför og þurftum að hlaupa til að ná henni, jæja ég skrifa meira seinna þar sem ég get hvort eð er ekkert publishað þessu hérna í lestinni og svo er ég líka á góðri leið með að verða bílveik á því að horfa svona mikið á tölvuskjáinn :) eins og mér einni er lagið hehehe

katosk | 07:42

30.janúar

Jibbííí ég er að fara að sækja bílinn minn í nótt hehehe já í nótt, ég og Kalli eru sumsé að fara með lest til Århus kl. 5 í nótt til að sækja bílinn minn, jibbbbbbíííí dísuss hvað ég hlakka mikið til að fá alls konar dót frá klakanum og það verður sko pulsupartý hjá mér, Sibbu og Kalla á næstunni ;) og svo er annað jibbíí og það er af því að Hildur er að koma í dag :) og ég fer sennilega að taka á móti henni eftir 2 og 1/2 klukkutíma eða svo :) það er gaman gaman í Danmörku í dag :) Hey svo verð ég nú að segja ykkur af honum Guðjóni Geir frænda mínum, hann er 11 ára og hann er búinn að búa sér til heimasíðu alveg sjálfur :) ótrúlegir þessir krakkar í dag :) en endilega kíkið á afrekið hans hérna. Svo var ég að skoða eitthvað í þjóðskránni og spáið í það ég á 3 alnöfnur,  ég gæti verið mamma þeirra allra en það sem er svo fyndið er það að af fjórum Katrínum Óskum Einarsdætrum eru 3 sem eiga afmæli í janúar :) Fyndið :)

katosk | 15:27

29.janúar

Snjór :( Já það er ss kominn snjór aftur í DK :( buhuhuhuhu en vonandi fer hann nú fljótt aftur það er nógu anskoti kalt hérna fyrir.  Ég er að reyna að búa til nýja heimasíðu sem en gengur ekkert allt of vel þar sem ég er svo óákveðin og með allt of margar hugmyndir :/ en þið fáið að sjá breytingar á næstu dögum, ég vona bara að þið sættið ykkur við græna litinn á forsíðunni á meðan :) Takk Fríða fyrir að segja að þér þyki þetta flott ;)

katosk | 13:44

28.janúar

Já ég er ss að gera smá svona prufanir fyrir nýja heimasíðu, leika mér í photoshop með myndir af sjálfri mér og svoleiðis, voða gaman svona af því að ég er í fríi :)  og nei síðan verður ekki svona græn hehehe ég var bara svona að prufa að leika mér með liti í myndinni hérna hægra megin og prufaði að taka einn litinn þaðan :) ég breyti þessu aftur í kvöld, ég lofa ;)

katosk | 14:45

Er þetta málið?? Eða viltu bara gamla lúkkið aftur???

katosk | 02:50

27.janúar

Ó mæ god Stulli ég vona að þú fyrirgefir mér fyrir að kalla þig alltaf Stefán :/ Hrafnhildur takk fyrir að benda mér á þétta :) En ég ss breytti fyrri færslu hehehe.  Fyrir þá sem ekki þekkja þá á ég tvo vini hérna sem heita Hákon og Stulli en ég átti einu sinni tvo vini sem heita Hákon og Stefán og svo þekki ég bræður í USA sem heita líka Hákon og Stefán en ég skal reyna mitt besta til að gera þetta ekki aftur ;)

katosk | 10:35

26.janúar

Í dag var annar í afmæli hjá mér MMMmmmmm If you know what I mean hehehe jú jú það passar ég og Sibba stóðum sveittar í eldhúsinu hjá henni og bökuðum kökur ;) ég ss fékk súkkulaðiköku þrátt fyrir allt :) svo buðum við Betu, Gunna og strákunum, Hrafnhildi og Atla, Lilju og Jónasi og Hákoni og Stulla í kaffi og kökur og það var bara alveg ferlega gaman en eins og allir vita er nú ekki leiðinlegt að borða góðar kökur :)  Á morgun ætla ég að sofa út og dúlla mér eitthvað svona fyrsta daginn í fríi, kannski ég fari og sæki um bankareikning :) nú eða bara taka því rólega fyrst maður er orðinn svona gamall :/ Hef ég nokkuð elst mikið í útliti? Þarf maður að fara í húðstrekkingu or something?? :/ Ég passa mig á því núna að fara reglulega á egó flipp með myndavélina svo Heiða skammi mig ekki fyrir að vera ekki með myndir af mér hérna ;)

 

katosk | 23:48

25.janúar

Jahá það er nú aldeilis búið að vera skemmtilegt hjá mér í dag :) Ég byrjaði nú á því bara að sofa út og svo fór ég að gera mig tilbúina fyrir leikhúsferðina í boði Kalla og WAOW hvað það var ógeðlsega gaman, við sáum ss hinn fræga Cabaret að vísu ekki með Lisu Minelli en alls ekki lélegum leikurum :)  Aðalhlutverkin voru leikin af Papriku Steen sem fólk man kannski eftir úr Festen og svo einum leikaranum úr I Kina spiser de hunde, mig minnir að hann heiti Troel eitthvað og hann var hreint út sagt geggjaður :)  Fyrsta atriðið úr sjóinu var það sama og var hjá okkur Gospelssystrum í maí á síðasta ári og ég fékk bara næstum því kökk í hálsinn ég sakna stelpnanna svo mikið :) nema hvað ef þú leið til Köben á næstunni og langar að sjá skemmtilegan söngleik þá kíktu á þennan!!!  Nú eftir leikhúsið fórum við niður í 189 (heima hjá Sibbu & Kalla) hehehe ég er númer 151 sko :) og pöntuðum okkur arabapizzu og horfðum á Stjerne for en aften sem er svona dönsk söngkeppni voða gaman og svo sáum við á MTV þáttinn Lick sem var tekinn upp á Íslandi og vá hvað við fengum góða auglýsingu í þeim þætti eða réttara sagt landið okkar nema hvað að sjálfsögðu var þarna fólk sem þurfti að gera sig að smá fíflum hehehe og já greyið stelpurnar í Real Flavaz sungu offbeat :/ sem var ekki nógu flott, hefði eiginlega verið skárra ef þær hefðu bara stoppað og byrjað upp á nýtt en :/ Svo núna áðan áður en ég fór heim kíktum við Sibba við á barnum og ó mæ god :/ þar var eitthvað lið sem við þekktum ekki og allir með glóðaraugu og svo liðið sem við þekktum hafði greinilega sleppt sér á fylleríi í gær og þau voru öll krúnurökuð eða með hanakamb :S frekar ljótt hehee talandi um gærkvöldið þá fórum við á Hard Rock svona í tilefni afmælisins og fengum vægast sagt lélega þjónustu og vondan mat þannig að ég mæli ekki með HRC í DK :( Fyndið samt að fara á veitingastað í danmörku og ekki einn einasti þjónn talaði dönsku hehe ekki það að mér leið alveg ágætlega, fyrsta skiptið síðan ég kom hingað þar sem ég kunni tungumálið best hehehehe þjónninn okkar talaði að vísu ekki góða ensku en hún kom til mín og sagði "jú order bigg sandvits?" og ég alveg "ha??" og hún aftur "jú order bigg sandvits?" og ég sagði þá "ar ðer tú sæses?" nei nei þá var daman að spyrja mig hvort ég hafið pantað PIG sandwich hehehehe nú eftir HRC fórum við á ástralskan pöbb en vinkona hennar Betu var að syngja með hljómsveit sem spilaði þar og það var alveg o.k. fyrir utan það að við þekktum ekki eitt einasta lag sem þau spiluðu þannig að við fórum bara á lókalinn og svo heim :)

katosk | 23:59

24.janúar

Vá, takk fyrir öll e-mailin, og kveðjurnar hérna á síðunni og já símtölin :) það er ógeðslega skrítið að eiga afmæli svona í útlöndum, engin súkkulaðikaka a la Lilia eða Hilmir þannig að ég verð bara að reyna að bara hana sjálf :/ en í kvöld reynir maður nú að sletta aðeins úr klaufunum, planið er að fara á Hard Rock og fá sér í svanginn og svo á barinn á eftir, ég er barasta að spá í að skella mér í afmælisbaðið og vera sæt og fín í kvöld :) hey já og myndirnar frá jólafríinu mínu eru komnar inn, á bara eftir að setja janúar inn.

katosk | 15:46

 

O.K Ég er orðin 29 samt sko þá má maður snúa annari tölunni við er það ekki?? Þannig að ég er bara 26 and I´m proud of it hehehe ;)  Hey þessi sniðugi ættfræðivefur heitir islendingabok.is og maður þarf að bíða eftir lykilorði í pósti heheh nema hvað að ég er búin að fá að vita að ég er skyld Sibbu og Dóru og Gesti manninum hennar Dóru ;)

katosk | 11:55

 

Ó mæ god ég er orðin 29 :/ og mér sem líður bara eins og ég sé 23 ;) úff úff úff samt eiginlega tæknilega séð þá er ég ekki orðin 29 sko í fyrsta lagi út af því að ég er klukkutíma á undan hérna úti í Danmörku og þá er klukkan ekki nema 11.10 á klakanum og svo líka vegna þess að ég sko fæddist kl 3.55 um nóttu þannig að eiginlega verð ég ekki 29 fyrr en eftir tæplega fimm klukkutíma ;) sko maður finnur sér alltaf afsökun híhíhí en ég ætla nú samt að syngja afmælissönginn fyrir sjálfa mig :)

 

Ég á afmæl'í dag

Ég á afmæl'í dag

Ég á afmæl'í dahahag

Ég á afmæl'í dag

 

p.s. Dóra systir hennar Sibbu var að skoða eitthvað ættartal og fann það út að ég og Sibba já og auðvitað Dóra líka erum fjarskyldar í 9.ættlið eða eitthvað svoleiðis ;) Ég þarf að komast í þessa síðu og athuga með allar hinar vinkonur mínar híhí

katosk | 00:10

23.janúar

Hver er Gulli geimvera sem skrifar í gestakortið mitt???? Svör óskast :)

katosk | 18:58

 

Ég var að skoða Moggann og rakst á frétt sem segir að 20 ár séu liðin frá snjóflóðunum á Patreksfirði VÁ hvað tíminn er fljótur að líka og VÁ hvað ég er að verða gömul :/ ég var ss 8 að verða níu eftir tvo daga þegar þetta gerðist og átti heima á Patró þá, ég man þetta nú kannski ekkert rosalega vel en ég man að það flutti hellingur af fólki heim til mín af því að við bjuggum niðri á eyrinni og soldið frá snjóflóðahættusvæði en VÁ 20 ár er langur tími.... ó mæ god hvað ég er að verða gömul á morgun :/

katosk | 14:57

 

Hún Fríða er svoooo mikill snillingur :) Hún ss fann javascript villuna á síðunni minni þannig að nú ætti fólk að hætta að fá Error on page júhúhú :) ég er alltaf að þykjast vera svo mikill tölvunörd og svo kemur það bara í ljós að ég er það ekki :/ dísuss.  Nema hvað í morgun fór ég í spænsku í skólanum og það var ekkert smá gaman :) það var svo gaman að tíminn sem átti ss að hætta kl.12 var ekki búinn fyrr en 12:30 og þó svo að næstum því allir í bekknum mínum kunni eitthvað í spænsku og ég ekki neitt þá gekk mér bara mjög vel :) Lærði t.d. að segja no me gusta el café eða mér líkar ekki kaffi hehehe, ég kom ss mjög glöð heim úr skólanum með bros á vör sem er soldið annað en eftir þýskutímana þar sem mér leið eins og ég væri algjör hálfviti sem kynni ekki neitt og svo ofan á allt skildi ég ekki skrift kennarans og ekki bætti það úr :S en fyrir þau ykkar sem ekki vita það fyrir þá hef ég ss aldrei lært skrifstafi og á þess vegna mjög erfitt með að lesa texta skrifaðann með skrifstöfum :)

katosk | 13:59

22.janúar

Sprigs dú dojds er út úr myndinni og habbla spanjóla komið inn ;) þannig að núna þarf ég að fara að æfa mig á fullu að læra spænsku.  Ég meikaði ekki þýskuna í skólanum og tók þá ákvörðun að ég væri jafnilla sett í báðum tungumálum og spurði hvort ég mætti fara í það sem mér þætti skemmtilegra :) Sé mig líka frekar fyrir mér á fimmtu önn á Spáni en í Þýskalandi hehehe.  Rauða þruman er á leiðinni til DK og það tók vel á budduna sú ákvörðun en það verður bara að hafa það :/ mér var sagt í dag að ég ætti ekki að hafa peningaáhyggjur fyrr en eftir námið en ef þið viljið styrkja fátækann námsmann þá er reikningurinn minn í SPH 1101-26-9106 þannig að ef þið megið missa þó ekki væri nema 100kr þá er það vel þegið í námssjóðinn hehehehehe en ef þið hafið hugmyndir um það hvernig ég get aflað mér monní á skjótan og auðveldan hátt án þess þó að selja mig eða gerast dópsali þá er það líka mjög vel þegið :)  Hey ég ætti kannski bara að gera eitthvað dæmi eins og þessi gerði hmmm hvað segið þið um það???

katosk | 22:54

21.janúar

Fólk er eitthvað að misskilja mig :/ ég á ekki afmæli sjálf í dag heldur á föstudaginn, ég var bara að syngja fyrir Hildi vinkonu sem á afmæli í dag jú sí :) meira að segja systir mín óskaði mér til hamingju með afmælið :/ samt veit hún alveg hvenær ég á afmæli, annaðhvort er ég búin að rugla fólk eða þá að það er bara svo kalt á Íslandi að fólk er með brainfreeze hehehe nema hvað þá er nýja gestabókin hérna til hliðar UNDIR teljaranum komin í lag endilega skráið ykkur :)

katosk | 23:59

 

o.k.Ég er búin að vera í einhvern klukkutíma að reyna að laga nýju gestabókina mína af því að ég hélt að ég hefði gert einhverja vitleysu svo kom það bara í ljós að það er eitthvað bilað hjá þeim en ekki mér ;)

katosk | 22:32

 

Ég veit að það er glatað en ég þurfti að eyða út öllum gestunum úr nýju gestabókinni buhuhu af því að ég breytti kortinu úr heimskorti í Evrópukort og þá kom eins og allir gestirnir mínir væru einhvers staðar úti á hafi :) Þannig að endilega skráið ykkur aftur :) passið ykkur bara að vera ekki ofan á hvort öðru hehehehe :)

katosk | 20:17

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'ún Hildur

Hún á afmæl'í dag

 

Það eru svo margir í kringum mig sem eiga afmæli í janúar að það hálfa væri helmingi meira en nóg hehehe nei ég segi nú svona en ég ætla samt ekki að syngja fyrir alla það tekur svo mikið pláss en allavega Hildur fær hérna lag í tilefni dagsins, innilega til hamingju með að vera orðin dörtí hehehehe ;) 

Annars er bara allt fínt að frétta, er bara búin að vera hjemme í dag þar sem ég svaf yfir mig í morgun og missti af þýskutímanum mínum :( frekar fúlt en í staðinn er ég búin að vera í stöðugu sambandi við klakann til að fá bílinn minn sendann hingað út og ó já greyið fjölskyldan mín að þurfa að eiga mig hérna í útlandinu þetta er bara eilíft vesen :) Þau eiga bara svona milljón greiða inni hjá mér eins og er :/

Hey ég setti voða sniðugt hérna undir teljaranum mínum endilega skráið ykkur :)

katosk | 15:39

 

20.janúar

Þegar maður nennir ekki í háttinn þá fer maður stundum að gera eitthvað skrítið :/ og núna áðan þá var ég að prufa að leyta að sjálfri mér á google.com og guess what :) ef þú slærð inn katosk þá ég ég númer 1 og 2 og 3 hehehehe sjáðu bara :) Annars var ég á netinu til þess að fá það staðfest hvaða hljómsveit ætti að vera á þorrablótinu 15.febrúar næstkomandi og það er engin önnur en Í Svörtum Fötum þannig að það verður alveg pottþétt stuð þar :)  og ég mæli með því að fólk komi og heimsæki mig þá hehehe ;) Ég veit að vísu ekki ennþá hvort ég ætli að vera í matnum en það kemur bara í ljós síðar, já og nánari fréttir af partýinu sem ég ætlaði að halda úti í sentri næsta föstudag, því hefur ss verið frestað til betri tíma þar sem hljómsveitarmeðlimir verða ekki allir á staðnum það kvöld :)

p.s. sorry en myndirnar frá jólafríinu virðast ekki hafa komið inn :( veit ekki alveg hvað er í gangi en ég lofa að laga þetta við fyrsta tækifæri :) 

katosk | 00:47

19.janúar

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'ún Jóhanna

Hún á afmæl'í dag

 

Annars er helgin búin að vera ljúf, fór í bíó á föstudaginn og sá mjög spes mynd sem mig minnir að heiti It´s all about love og svo kíktum við á barinn um kvöldið, ég nottulega endaði í partýi í einni af blokkunum hérna fram á morgun :/ þannig að gærdagurinn var soldið þunnur nú í dag fór ég svo aftur í bíó en við gerðum þriðju tilraun með að fara á 8 Miles með Emminnemm (hvernig sem það er nú skrifað) og fengum loksins miða í dag á hádegi með því að panta á netinu :)  Nú ég er búin að koma upp sér síðu fyrir jólafríið mitt með myndum þannig að þið getið nú loksins skoðað en ég á samt eftir að setja inn myndir frá janúar ég bara nenni ekki að sitja í tölvunni lengur :/ geri það í vikunni :) en þar eru t.d. myndir úr afmælinu hans Stulla.  Á morgun byrjar svo streðið aftur en næsta viku verð ég bara í þýsku í skólanum :(

 

katosk | 18:03

16.janúar

Jæja þá er lokaverkefnið loksins búið húrra húrra húrrrraaaa og hópurinn minn fékk 9 en við vorum soldið vonsvikin með það af því að hópurinn sem var á móti okkur var með miklu lélegra verkefni, miklu lélegri ritgerð og fengu það sama og við :/ vot ðe fokk is rong viþ pípúl en við verðum bara að sætta okkur við þetta :)  9 er svosem alls ekki slæm einkunn en við áttum hærra skilið finnst mér ;)  Nema hvað að af því að við vorum búin að vera svo dugleg ákvað ég að slappa af í dag og svaf til 2 gerði svo ekki neitt það sem eftir var að deginum og klæddi mig ekki einu sinni fyrr en klukkan að verða 6 mmmmm það er gott að vera í fríi :) well ætla að næla mér í enn meiri beauty sleep svo að ég verði nú falleg einhvern tíman :) ég var nú bara alveg ótrúlega hress rétt fyrir prófið og náði að fá smá roða í kynnarnar rétt áður en við fórum í prófið en um morguninn höfðum við skiptst á klósettferðum sökum stress ehehehehe en hér er ss mynd sem var smellt af mér rétt fyrir prófið :)

 

katosk | 23:27

15.janúar

Úff púff púff, var í hvorki fleiri né færri en 14 klukkutíma í skólanum í dag að læra fyrir prófið á morgun með hópnum mínum en við þurftum ss að byrja upp á nýtt með kynninguna okkar af því að við misskildum þetta eitthvað og vorum að gera allt vitlaust eða næstum því allt, ekki beint gaman þegar maður er búinn að leggja mikla vinnu í hlutina :( nema hvað eftir morgundaginn er ég komin í smá frí :)  Well það heldur áfram að rigna hérna og snjórinn er allur farinn fyrir utan nokkra skafla sem eiga í vandræðum, skrítið að upplifa allt á kafi í snjó einn daginn og svo farinn nokkrum dögum seinna og ekkert slabb og læti :)  Well verð að fá mér beauty sleep fyrir morgundaginn.....

p.s. Gunni hennar Huldu á afmæli í dag og ég ss óska honum til hamingju :)

 

katosk | 00:40

14.janúar

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'í dag

Hún á afmæl'ún Guðrún

Hún á afmæl'í dag

 

Elsku litla systir mín sem er orðin allt of stór :/ innilega til hamingu með 15 ára afmælið, þú færð pakkann þinn sennilega í pósti í næstu viku :)  Love you!!!  p.s. ég er búin að setja inn fullt af fólki í krækjurnar hjá mér og ef ég gleymdi einhverjum þá endilega látið mig vita hérna fyrir neðan :)

katosk | 00:20

13.janúar

Það ótrúlega getur gerst ;) Í dag er fyrsti dagurinn síðan í október (að mig minnir) sem hitastigið er hærra í Danmörku en á Íslandi júhúhú ;) það er ss rigning hérna eins og heima nema hvað að hér er 4ra stiga hiti en á klakanum 2ja stiga ;)  Vildi bara láta ykkur vita :) Ég er nebblilega svoooooooo glöð yfir þessu og núna get ég kannski farið að nota hjólið mitt aftur þ.e. ef ég nenni að bæta afturdekkið :/

katosk | 21:56

12.janúar

Æ em só só só sorry að ég skuli ekki vera búin að skrifa neitt hérna inn svona lengi en ég er svona bara búin að vera að átta mig á því að ég er farin frá íslandi aftur buhuhu og komin til DK sem er samt gaman þó það sé erfitt að hafa ekki familíuna hjá sér nú og svo er bara allt brjálað í skólanum, fór í stærðfræðipróf daginn eftir að ég kom frá klakanum eða 9.jan til að vera akkúrat á þessu og svo er ég bara búin að vera á fullu í lokaverkefninu sem við eigum ss að presentera á miðvikudaginn þannig að það verður lítið um skrif og myndir næstu daga en um leið og við erum búin með verkefnið þá lofa ég að skrifa hingað eins og mad woman :)  En þangað til næst hafið það gott og brosið því það er einmitt það sem ég ætla að gera :)   Það er nú ekki hægt annað en að láta fylgja með mynd af mér í snjónum hérna í DK :)

 

 

katosk | 22:45

2.janúar

Hæ hæ og gleðilegt ár öllsömul sem lesið þessa síðu mína :) Ég veit það nú best sjálf hvað ég er búin að vera hryllilega léleg að setja eitthvað hérna inn en eftir 8.jan lagast það nú því þá fer ég aftur til DK.  Það er nú voðalega lítið að frétta, er bara búin að vera í boðum og borða góðan mat og svo er maður bara að plana næstu djömm ;) sem verða um helgina en ég ætla ss vonandi að hitta saumóinn minn annað kvöld og svo er það fertugs afmæli hjá Stulla frænda á laugardaginn, ég á nottulega að vera að læra undir próf en................já eigum við að tala um eitthvað annað???  Núna er ég að spá í að fara í heimsókn eitthvað og fá mér frískt loft í leiðinni og já svo ætla ég að elda eitthvað létt í kvöldmatinn fyrir familíuna svo maður fái nú eitt kvöld án hlaðborðs hehehe ;)

katosk | 13:41

 

 

 

 

 

     

 

 

Sendu mér e-mail:

 

katosk@simnet.is

katosk@kagsaa.dk