Tónlistarmeðferð - Tónræn myndleiðsla

Home Póstur Innihald Leit Krækjur

Forsíða

Forsíða     Ýmislegt fróðlegt     Músikþerapía     GIM

 

Home
Ýmislegt fróðlegt
Músikþerapía
GIM

Velkomin!

Ég heiti Perla og er músikþerapisti og GIM þerapisti.

 Á síðunni getið þið kynnt ykkur hvað tónlistarmeðferð og GIM meðferð er

 Það er líka hægt að lesa fyrir hvern músikþerapía er og hvernig hún virkar

 Ef þú vilt nánari upplýsingar er þér velkomið að hafa samband!

Ljóð og söngvar eru ekki eitthvað

sem að maður getur gripið sí svona í loftinu;

Þau grípa mann og það eina sem að maður getur gert...

...er að fara á stað þar sem þau geta gripið mann.

(Bangsímon)

mynd eftir Unni Kolka Leifsdóttur

Tónlistarmeðferð - Tónræn myndleiðsla

Við mannfólkið erum ólík og höfum ólíkar þarfir. Í lífsins ferðalagi eru bæði hæðir og dalir. Við bregðumst mismunandi við þegar við fáum mótbyr. Viðbrögð okkar byggjast bæði á persónleika okkar og lífsreynslu. Hvernig við vinnum úr málunum er líka ólíkt og þess vegna er mismunandi hvaða meðferðir henta okkur.

Tónlistarmeðferð eða músikþerapía er ekki ný af nálinni en þó talsvert lítið útbreidd á Íslandi ennþá. Þetta er meðferð sem hentar öllum, sama á hvaða aldri þeir eru eða hver geta þeirra er. Tónræn myndleiðsla eða GIM er ein tegund af músikþerapíu og hentar hún vel þeim sem eru komnir með þroska til að hugleiða og hugsa táknrænt. Ekki er nauðsynlegt að þekkja tónlist eða kunna á hljóðfæri til að nýta sér músikþerapíu. Við erum öll músikalskar verur þar sem þetta snýst um að láta tónlistina hafa áhrif á sig og hreyfa við sér.

Hvort sem þú hefur vilt vinna úr erfiðri lífsreynslu, stríðir við eitthvað vandamál eða bara vilt vinna með sjálfan þig gæti músikþerapía hentað þér. Skoðaðu síðuna til að fræðast meira.

Músikþerapistinn

Ég heiti Margrét Perla Kolka Leifsdóttir og er með MA gráðu  í músikþerapíu frá Álaborgarháskóla, auk þess að vera á lokastigi sérnáms í GIM.

Músikþerapíunámið er fimm ára háskólanám lýkur með mastersgráðu. Námið samanstendur af bóklegu námi í sálfræði, músikþerapíukenningum, rannsóknarfræðum, ásamt verklegum tónlistarfögum. Einnig er eigin meðferð og fjórskipt verknám hluti af náminu. GIM námið er þriggja ára sérnám undir leiðsögn erlendra sérfræðinga en í því felst eigin meðferð, æfingartímar, handleiðsla auk námskeiða.

Ég er meðlimur FÍSMÚS (Félagi músikþerapista á Íslandi) og AMI (Association for Music and Imagery) og starfa eftir siðareglum þessara félaga.

Hafa samband

Ef þið viljið nánari upplýsingar eða bóka tíma er ykkur velkomið að hafa samband í síma eða senda mér tölvupóst.

Sími
8936669
 
Netfang
Almennar upplýsingar: musiktherapia@simnet.is 
Vefstjóri: musiktherapia@simnet.is

 

[ Home ] Ýmislegt fróðlegt ] Músikþerapía ] GIM ]

Ef þú hefur athugasemdir varðandi síðuna getur þú sent póst á musiktherapia@simnet.is.