|
Forsíða Ýmislegt fróðlegt Músikþerapía GIM
|
|
Hérna fyrir neðan kemur stutt lýsing á náminu og svo listi yfir þjálfara sem taka að sér nemendur víðsvegar í heiminum. Þessi listi kemur frá AMI - heimssamtökum GIM. Ég mæli með því að áhugasamir kynni sér þá síðu betur. Inntökuskilyrði inn í GIM námið er BA gráða og einhver reynsla af því að vera með fólk í meðferð. Sem dæmi um þetta eru sálfræðingar, geðhjúkrunarfræðingar, músikþerapistar, og sérkennarar. Einhver tónlistarkunnátta er æskileg en ekki skylda. Hver verður að vinna með að bæta sína kunnáttu á meðan námi stendur. Náminu er skipti í þrjú stig. Fyrsta og annað stigið eru eitt námskeið hver, en á þriðja námskeiðinu eru 5 námskeið - haldin með u.þ.b. 6 mánaða millibili. Aðrar kröfur fyrir hvert stig eru ákveðinn fjöldi eiginmeðferðartíma, handleiðsluskipta og tímar með sína eigin skjólstæðinga. Ofan á þetta bætist svo skrifleg og verkleg verkefni. Endað er með lokaverkefni. Þetta nám er jafngildi mastersnáms. Í mínum hóp hjá Torben Moe eru fólk frá Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Námið tekur um þrjú ár ef að vel er haldið á spöðunum. Hægt er að vinna með náminu og það er hægt að stjórna hraðanum upp að vissu marki. Námið er mjög kostnaðarsamt. Námskostnaðurinn felst í flugfargjöldum, námskeiðisgjöldum, greiðslu fyrir handleiðslu og eiginmeðferð. Á móti getur þú tekið fyrir þá tíma sem þú gefur þegar þú ert komin/kominn á þriðja stig í náminu. Listi yfir þjálfara - Directory of Primary TrainersThe following AMI-approved training programs and primary trainers offer specialized levels of training for students interested in experiencing or becoming practitioners of the Bonny Method of Guided Imagery and Music. Please contact the training programs directly for specific information about training schedules, content, cost, and location.
|
|
Ef þú hefur athugasemdir varðandi síðuna getur þú sent póst á
musiktherapia@simnet.is.
|