|







| |

- Hvað er músikþerapía?
-
Músikþerapía er
meðferð þar sem eiginleikar tónlistarinnar eru notaðir til að vinna með
líkama og sál. Tónum, hljóðum og hreyfingu er beitt til að auka vellíðan,
viðhalda og þróa andlega og líkamlega
heilsu og getu.
lesa meira
-
Hverjir geta nýtt sér
músikþerapíu?
-
Músikþerapía
hentar öllum óháð aldri eða getu. Ekki er nauðsynlegt að kunna á hljóðfæri
eða þekkja tónlist til að geta nýtt sér músikþerapíu. Allir eru í eðli sínu
músikalskir þar sem þetta snýst um að láta tónlistina hafa áhrif á sig og
hrífast af henni.
lesa meira
- Mismunandi stefnur og
aðferðir
-
Innan
músikþerapíunnar finnast margar stefnur og aðferðir. Í raun er hægt að finna
músikþerapista sem vinna eftir flestum stefnum sálfræðinnar. Mismunandi
"skólar" innan músikþerapíunnar hafa jafnan þróast út frá starfi frumkvöðla
sem hafa unnið með ákveðinn hóp skjólstæðinga svo sem fatlaða eða geðsjúka.
Í dag má finna flesta hópa skjólstæðinga innan raða hverrar stefnu. Margir
músikþerapistar hafa líka tileinkað sér aðferðir frá mismunandi skólum og
gert að sínu.
lesa meira
-
Saga músikþerapíunnar
-
Skrif um áhrif
tónlistar á líkama og sál finnast frá því í fornöld. Heimildir og tilvísanir
í notkun tónlistar til læknandi áhrifa á fólk finnast víða og í flestum
samfélögum. Þekkt dæmi úr Biblíunni er frásögnin af Saul og David (1. bók
Samúels, kafli 16). Ekki síður þekkt er goðsögnin um Orfeus.
lesa
meira
-
Nám í músikþerapíu
-
Í dag er allt
nám í músikþerapíu háskólanám og víða er krafist mastersgráðu til að mega
starfa. Nám í músikþerapíu er kennt víða, m.a. á Norðurlöndunum, Bretlandi,
Bandaríkjunum, Ástralíu og víðar. Inngönguskilyrði eru mismunandi en
stúdentspróf og tónlistarmenntun og hæfileikar eru alltaf skilyrði. Á mörgum
stöðum er líka inntökupróf þar sem áhugi, næmni og hæfni er metin.
-
lesa
meira
-
Músikþerapistar á Íslandi
-
Fyrsti
íslenski músikþerapistinn heitir Eyjólfur Melsted og var hann fyrstur til að
kynna músikþerapíu árið 1970. Hann starfaði bæði með fjölfatlaða á
Kópavogshælinu og í Safamýraskóla. Hann býr og starfar nú í Austurríki. 11
Íslendingar hafa lokið námi í músikþerapíu svo vitað sé. Nokkrir í viðbót
eru í námi og því fer óðum fjölgandi í stéttinni. Músikþerapistar á Íslandi
hafa aðallega starfað með fötluðum en einnig hafa þeir unnið með aldraða,
geðsjúka og fólk með líkamlega sjúkdóma. Fyrir utan sérskóla á vegum
ríkisins hafa íslenskir músikþerapistar unnið á hinum ýmsu deildum
Landspítalans. Síðan 1987 hefur Valgerður Jónsdóttir rekið Tónstofu
Valgerðar þar sem 70 einstaklingar með sérþarfir hafa notið
tónlistarsérkennslu og músikþerapíu í viku hverri.
-
lesa
meira
|