|
Forsíða Ýmislegt fróðlegt Músikþerapía GIM
|
|
Tíminn skiptist í fjóra hluta og varir oftast í 1 ½ klukkustund. 1) Byrjað er á stuttu inngangssamtali þar sem farið er yfir óskir þínar og þarfir og að hverju athyglinni verður beint að þessu sinni. Það er út frá þessu samtali sem tónlist við hæfi er valin. 2) Þar á eftir er þér hjálpað til að slaka á sem undirbúning fyrir tónlistarhlustunina og hentug leið inn í tónlistina fundin. 3) Í tónlistarferðinni, sem oftast (eins og slökunin) fer fram liggjandi með lokuð augun, er þér fylgt og leiðbeint svo að þú getir rannsakað þínar innri upplifanir á tryggan hátt í samtali við þerapistann. 4) Að lokinni tónlistarferðinni hefur þú möguleika á að vinna úr henni á skapandi hátt, svo sem með því að gera mandalateikningu sem myndræna tjáningu fyrir þínar innri upplifanir. Mandalateikningin getur verið verðmæt viðbót við lokasamtalið sem gerir þér kleift að vinna úr ferðinni. Þráðurinn til upphafssamtalsins er fundinn og spurningum um hvaða þýðingu upplifanirnar hafa fyrir þig og líf þitt er velt upp. |
|
Ef þú hefur athugasemdir varðandi síðuna getur þú sent póst á
musiktherapia@simnet.is.
|