|
Forsíða Ýmislegt fróðlegt Músikþerapía GIM
|
|
GIM getur haft áhrif á líkamlegt, sálrænt og andlegt ástand okkar. GIM getur aukið slökun og stuðlað þannig að aukinni vellíðan og bættum lífsgæðum. Fyrir suma er þessi upplifun aðallega afslappandi og upplífgandi en fyrir aðra inniber hún losun um sterkar tilfinningar og sársukafullar minningar. Margir fá þar að auki fallegar og jafnvel andlegar upplifanir. Gim ferlið getur meðal annars:
Tónlist endurspeglar tilfinningar og stemmningar, vekur hugartengsl og minningar. Tónlistin bæði hreyfir og fastheldur, ögrar og styður, skapar spennu og lausn með virðingu fyrir okkar eigin hugsunum. Tónlist hefur áhrif á líkama og sál. Þess vegna erum við öll músikalskar verur. Þegar við hlustum á tónlist litast upplifun okkar af skilyrðum nútíðarinnar, en við upplifum líka út frá þeirri reynslu sem við berum með okkur. Við getum deilt tónlistarupplifunum hvort með öðru og á þann máta fengið nýjan skilning á okkur sjálfum og þeim aðstæðum sem að við lifum við. Í GIM er tónlistarupplifunin miðpunkturinn. Tónlistin sem notuð er, er sérvalin klassísk tónlist sem getur kallað fram innri upplifanir í formi mynda, líkamstilfinninga, hugsana, tilfinninga, minninga og fleiri slíkra. Tónlistin tjáir hið ósegjanlega... þegar orð fá því ekki lýst.
Mannshugurinn tjáir sig aðallega á þrjá vegu – í orðum, með líkamstjáningu og með innra myndmáli. Þetta innra myndmál sjáum við í draumórum, hugrenningum, hugsjónum, draumum, minningum, táknum, goðsögnum, osfrv. Í samspili við þetta innra myndmál getum við endurskoðað heimsmynd okkar, viðbragðsmunstur okkar og gildi. Þetta skapar jarðveg fyrir nýja þekkingu og skilning á okkur sjálfum og eigin gjörðum/viðbrögðum. Í GIM ferðumst við í okkar innra heimi þar sem lífsins þema sýnir sig í táknum og myndlíkingum. Tíminn skiptist í fjóra hluta og varir oftast í 1 ½ klukkustund. 1. Inngangssamtal 2. Slökun 3. Tónlistarferðin 4. Lokasamtal Einnig er stundum notast við mandöluteikningar og þá í inngangs- og/eða lokasamtölunum. Mandalateikningar geta verið verðmæt viðbót við tónlistarferðirnar í GIM meðferðinni. Með þeim er hægt að á skapandi hátt að tjá innri upplifanir og þannig gera þér kleift að vinna úr upplifunum úr tónlistarferðunum. Mandölugerð krefst engrar kunnáttu eða hæfileika á sviði myndlistar því hún snýst um að tjá sig á orðlausan hátt. Mandölur eru mjög víða notaðar og þekktar úr ýmsum samfélögum í gegnum tímann GIM námið tekur u.þ.b. þrjú ár og inntökuskilyrðin eru BA gráða. Námið jafngildir mastersgráðu og samanstendur af námskeiðum, eiginmeðferð, æfingarmeðferð, handleiðslu og skriflegum verkefnum. |
|
Ef þú hefur athugasemdir varðandi síðuna getur þú sent póst á
musiktherapia@simnet.is.
|