Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu


 

 

 

Skrifstofa
Orlofsmál
Tenglar
Kjaramál

Aðalfundur 1.10.

Reglur styrktarsjóðs BSRB

Umsóknareyðublað styrktarsjóðs BSRB

 

Orlofsfréttabréf 2005

Fréttabréf 01.2005

Fréttabréf

Orlofsfréttabréf  2004

 

Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu

Grundargötu 40,

350 Grundarfirði

 

Sími     436 1077

Fax       436 1078

Gsm sími formanns

899 7090

 

 

 


Velkomin á heimasíðu S.D.S.

Stofnað 8. mars 1987

 Fréttir

7.3.2006

Nú er slóðin á heimasíðuna orðin www.sds.is og bið ég ykkur að uppfæra þær upplýsingar hjá ykkur. Fréttir og fleira munu því framvegis eingöngu sjást á slóðinni www.sds.is en ekki á þessari slóð!

 

3.3.2006

Merki félagsins

Á stjórnarfundi 13. febrúar sl. fór stjórn yfir tillögur að merki félagsins og eftir ákveðna yfirlegu komust stjórnarmenn að samkomulagi um hvaða merki skyldi velja. Merkið hefur nú verið fullhannað og má sjá það hér ofar til vinstri á síðunni. Það var Menja Von Schmalensee í Stykkishólmi sem hannaði og útfærði merkið og var það einnig útfært til notkunar á bréfsefni. Stjórn S.D.S. vonar að félagsmenn séu sáttir við merkið og eigum við vonandi eftir að heyra hvað félagsmönnum okkar finnst á aðalfundinum sem áætlað er að halda 8. apríl nk. í Stykkishólmi. Merkið verður einnig kynnt nánar í fréttabréfinu í vor.

 

1.3.2006

Þessa dagana er verið að vinna að því að breyta slóðinni á heimasíðu S.D.S. í www.sds.is og munum við tilkynna nánar þegar sú breyting gengur í gegn.

 

14.2.2006

Úthlutunarnefnd starfsmenntunarsjóðs S.D.S. hélt fund í gær á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar. Teknar voru fyrir 30 umsóknir frá félagsmönnum. Verið er að vinna í því að senda tilkynningar um úthlutun til viðkomandi félagsmanna og mun gjaldkeri félagsins væntanlega greiða styrkina út seinnipart febrúarmánaðar.

Ritari er að vinna að fréttapistli um helstu atriði stjórnarfundarins og er von á því innan tíðar.

 

9.2.2006

Mánudaginn 13. febrúar næstkomandi kl. 16:00 er fyrirhugað að halda fund hjá úthlutunarnefnd Starfsmenntunarsjóðs S.D.S. og hefur þegar borist talsvert af umsóknum sem bíða afgreiðslu.

Seinna þann sama dag verður fundur hjá stjórn S.D.S. þar sem fjölbreytt mál verða á dagskrá og segjum við nánari fregnir af því að afloknum fundi.

Að lokum má þess geta í fréttum dagsins að líklegt er að Dalabyggð fari sömu leið og Grundarfjarðarbær, Snæfellsbær og Stykkishólmsbær og samþykki þá hámarksleið sem launanefnd lagði til, en hækkunin gildir frá 1. janúar sl. Þessum fréttum ber að fagna!

 

8.2.2006

Nýr fulltrúi hefur verið skipaður í úthlutunarnefnd Starfsmenntunarsjóðs í stað Jóns Guðmundssonar í Ólafsvík. Það er Hafdís Rán Brynjarsdóttir í Ólafsvík sem tekur sæti Jóns í nefndinni. Nefndin er þá þannig skipuð: Magnína Kristjánsdóttir í Búðardal, Íris Huld Sigurbjörnsdóttir í Stykkishólmi, Helga Hjálmrós Bjarnadóttir í Grundarfirði og Hafdís Rán Brynjarsdóttir í Ólafsvík eins og áður segir. Félagsmönnum er bent á að setja sig í samband við fulltrúa á sínum stað ef þeim vantar upplýsingar um starfsemi sjóðsins. Umsóknir um styrk úr sjóðnum skal senda til Írisar á heimilisfangið: Starfsmenntunarsjóður SDS, b.t. Írisar H. Sigurbjörnsdóttur, Ráðhúsinu Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi. Reglulegir fundir nefndarinnar eru í október og febrúar ár hvert og svo hefur nefndin samband með rafrænum hætti þess á milli ef þörf er á.

 

3.2.2006

Skv. frétt á heimasíðu Stykkishólmsbæjar samþykkti bæjarráð Stykkishólms á fundi sínum í gær þá hámarksleið sem Launanefnd sveitarfélaga leggur til, vegna stéttarfélaga sem samið hafa um starfsmat við nefndina. Samkvæmt upplýsingum frá bæjarstjóra Grundarfjarðarbæjar verður sú leið líka farin í Grundarfirði, ákvörðunin verður formlega tekin á bæjarstjórnarfundi í næstu viku. Stjórn S.D.S. fagnar þessum góðu fréttum og bíður átekta eftir fréttum frá Dalabyggð og mun koma tilkynning inn á síðuna um leið og fréttir berast.

 

2.2.2006

Neðangreint bréf var sent til trúnaðarmanna félagsins 1. febrúar og kemur þar fram hvatning til félagsmanna um að fylgjast vel með framgangi mála næstu daga.

Bréf formanns SDS til félagsmanna.

 

1.2.2006

Hér fyrir neðan má finna samþykkt Launanefndar sveitarfélaga frá fundi 28. janúar um heimildir til sveitarfélaga að samþykkja viðbætur við gildandi kjarasamninga við BSRB og ASÍ félög.

Stjórn S.D.S. bíður nú átekta á meðan sveitarfélögin á starfssvæði félagsins taka ákvörðun um hvort þau muni nýta sér þessar heimildir. Þegar er orðið ljóst að Snæfellsbær hefur tekið af skarið og greiddi út skv. hámarksheimildum í dag 1. febrúar. Stjórn S.D.S. sendi í dag þakkarkveðju til Snæfellsbæjar fyrir flott framtak.

 

Samþykkt LN vegna skilyrtra heimilda

Fylgiskjal

 

31.1.2006

Skrifstofa S.D.S. hefur flutt sig um set og er nú staðsett að Grundargötu 28, kjallara. Félagið mun hafa þetta aðsetur fram yfir sveitarstjórnarkosningarnar 27. maí þar sem fyrra húsnæði félagsins verður notað sem kosningaskrifstofa.

 

24.1.2006

Ályktun Samflotsfundar föstudaginn 20. janúar 2006

 

"Mikil vonbrigði

 

Það eru Samfloti bæjarstarfsmannafélaga mikil vonbrigði að Launamálaráðstefna sveitarfélaga hafi ekki gefið skýr skilaboð um hvernig eigi að leysa þann hnút sem launamál sveitarfélaganna eru í. Gert hafði verið ráð fyrir að ákveðin niðurstaða myndi fást á ráðstefnunni þar sem sveitarstjórnarmenn höfðu vísað erindum og beiðnum um leiðréttingar á kjörum starfsmannafélaga þangað til úrlausnar.

 

Miklar væntingar voru bundnar við þessa ráðstefnu og niðurstöður hennar, sér í lagi þar sem aðdragandi hennar var langur. Nú er ljóst að enn er málið í bið þar sem niðurstaða Launamálaráðstefnu Sambands sveitarfélaga er á þá leið að Launanefnd sveitarfélaga var falið að fjalla um tillögur og hugmyndir sem þar komu fram. Þær niðurstöður verða ekki kynntar sveitarstjórnum fyrr en 10. febrúar nk. en ljóst er að þolinmæði starfsmanna sveitarfélaga endist ekki svo lengi. Fjöldi starfsmanna innan bæjarstarfsmannafélaga eru í nákvæmlega sömu stöðu og félagsmenn í Leikskólakennarafélagi Íslands og þess vegna er óviðunandi ef ætlunin er að skoða eingöngu sértæka hópa."

 

23.1.2006

Búið er að setja inn nokkrar myndir úr bústaðnum okkar í Húsafelli og má sjá þær undir hlekknum Orlofsmál og svo Húsafell, Ásendi 6. Félagsmenn eru minntir á möguleika á vetrarleigu bústaða bæði í Húsafelli og í Munaðarnesi enda fátt huggulegra í skammdeginu en að skella sér í bústað og nota heita pottinn og láta fara vel um sig. Það eru orlofsnefndarmenn á hverjum stað sem gefa upplýsingar um bústaðinn í Húsafelli en vetrarleiga í Munaðarnesi fer í gegnum skrifstofu BSRB í síma 525-8300.

 

23.1.2006

Stjórn SDS vill minna félagsmenn sína á starfsemi Styrktarsjóðs BSRB eins og sjá má nánar aðeins neðar í fréttum. Hér til vinstri á síðunni er nú einnig kominn tengill á reglur um styrktarsjóðinn og tengill á umsóknareyðublöð í sjóðinn.

 

11.1.2006

Formaður SDS, Helga Hafsteinsdóttir er nýkomin af formannafundi Samflots bæjarstarfsmannafélaga þar sem neðangreind ályktun var samþykkt. Ályktunin hefur verið send sveitarstjórnarmönnum á starfssvæði SDS.

 

Ályktun formannafundar Samflots bæjarstarfsmannafélaga

Formannafundur Samflots bæjarstarfsmannafélaga, haldinn 10. janúar 2006, skorar á fulltrúa á Launamálaráðstefnu sveitarfélaga sem haldin verður þann 20. janúar nk. að tryggja að sambærileg og jafnverðmæt störf verði launuð á sama hátt, óháð kynferði eða búsetu þess er starfinu gegnir.

 

Reykjavík 10. janúar 2006

 

Elín Björg Jónsdóttir,

formaður Samflots

 

1.1.2006

Gleðilegt ár! 1. janúar tekur gildi ný launatafla og má nálgast hana hér. Félagsmenn athugið að fylgjast með hvort ykkur sé raðað í rétt þrep miðað við lífaldur. Munið líka hótelmiðana sem er hægt að panta hjá orlofsnefndarmanni á hverjum stað fyrir sig. Nánari upplýsingar aðeins neðar á síðunni.

 

 

Eldri fréttir

 


 

Netfang: sds@simnet.is