Hugmyndin að þessum vef kviknaði þegar ég
fékk sent efni sem safnað hafði verið saman um fólk af
þessum meiði. Þau Elísabet Pálmadóttir og Guðmundur
Ragnar Rúnarsson viðuðu að sér þessum upplýsingum í
tengslum við ritgerð sem Ragnar þurfti að skila inn í
námi sínu við Iðnskóla Reykjavíkur. Þau eiga því
heiður skilinn fyrir vel unnið verk og nú er okkur ekkert
að vanbúnaði að bæta við það sem þegar er komið.
Nú er það von mín, Sigurveigar
Pálmadóttur, sem sá um að setja upp vefinn, að þið
takið nú höndum saman og deilið með okkur frekari
upplýsingum og áhugaverðu efni um fólk af þessari grein.
Einnig að þið sem fáið upplýsingar um hvar vefinn er að
finna látið orðið berast til annarra.
Þeir sem óska eftir að bæta við efni á
vefinn vinsamlegast sendið efnið til Sigurveigar
Pálmadóttur í gegnum tölvupóst, tölvupóstfangið er: sigpalm@simnet.is
eða ef þið óskið frekar að senda með gamla laginu þá
er heimilisfangið:
208 Crestview Court
Frederick, MD 21702
USA
Njótið vel