Tilgangur
- Að vernda náttúruna
- Að veita fólki tækifæri til þess að vinna að náttúruvernd
- Að auðvelda fólki umgengni um náttúruna, að fræðast um hana og njóta náttúrufegurðar


Stjórnin    Gerast félagsmaður    Um tilhögun ferða og ferðaáætlun 2012       

 

Hver vill kynnast landinu vel?

Hver vill ferðast um landið með litlum tilkostnaði og leggja um leið sitt af mörkum við að vernda náttúruna?

Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd voru stofnuð 1986.  Þau skipuleggja vinnuferðir með skemmtilegu ívafi víðsvegar um landið. Í sumar verður eins og venjulega unnið að fjölbreyttum verkefnum s.s. stikun, merkingum, stígagerð, landgræðslu og snyrtingu í skógarlundi.Oftast er unnið á svæðum sem eru eftirsótt af ferðamönnum.

Samtökin hafa mest unnið að því að gera greiðan aðgang ferðamanna að náttúruperlum víða um land. Sum svæði eru bara stikuð og merkt og gert sem allra minnst annað, á öðrum þarf að laga skemmdir og búa þau undir átroðning. Alltaf er vandað til verka og fylgst með hvernig verkin endast. Reynt er að láta allt falla vel að náttúrunni, stiklur eru látnar í læki ef mögulegt er að komast hjá því að setja trébrú, í skóglendi eru trjástofnar notaði í tröppur en í grýttum brekkum eru tröppur gerðar úr náttúrugrjóti. Nauðsynlegt er að huga vel að vatnsrennsli sem getur skapast í leysingum. Öryggi verður líka að ganga fyrir útliti; t.d. var settur pallur með handriði við Gunnuhver á Reykjanesi skammt frá Reykjanesvita og grjótveggur við Koluhver rétt hjá gömlu sundlauginni á Reykjanesi við Djúp.

Sem dæmi um staði sem unnið hefur verið á má nefna Dimmuborgir, Skógarfoss, Lónsöræfi, Dynjanda, Strandir, Reykhólahrepp, Helgafell, (stíg frá leiði Guðrúnar Ósvífursdóttur).og Reykjanesfólkvang. Um leið og gert er gagn með vinnuframlagi eru þetta mjög ánægjulegar ferðir fólks með sameigileg áhugamál. Í minningunni er alltaf sólskin svo fólk verður hissa þegar það sér sig regnklætt á myndum.

 


 

Stjórn 2011 - 2012

Þorvaldur Örn Árnason      

formaður   

sími

424 6841

Jóhanna Berghild Hergeirsdóttir 

gjaldkeri

sími

698 3153

Grétar Einarsson

ritari 

sími

897 3136

Sveinn Jóhannsson

meðstjórnandi 

sími

843 1681

Sigrún Helgadóttir

meðstjórnandi

sími

661 7299

Ebeneser Bárðarson

varamaður

sími

897 0453

Sigríður Rut Skúladóttir

varamaður

sími

846 2136

 

Dóróthea Lárusdóttir er endurskoðandi.

Vigfús Ó. Vigfússon, s. 863-5116 og Sveinn Jóhannsson

sjá um útgáfu fréttabréfsins. 

 

Heimilisfang samtakanna: Pósthólf 8468, 128 Reykjavík 

Sími: 881 0551 (símsvari)

 

Viltu senda stjórninni netpóst? Netfangið er: sja.is@simnet.is

              

Fésbókin:   Sjá er komið með síðu í fésbókinni, slóðin er:

http://www.facebook.com/pages/SJ%C3%81LFBO%C3%90ALI%C3%90ASAMT%C3%96K-UM-N%C3%81TT%C3%9ARUVERND/119960348030736

                                                          

Gerast félagsmaður       

Félagsgjald er 1.500,- kr fyrir árið 2012

Bankareikningur SJA: Landsbankinn 0111-15-330837

Kt: 450686-2129

Vinsamlegast sendið nafn, heimilisfang og síma á netpósti: sja.is@simnet.is

Eða hringið í formann félagsins: Þorvald Örn, s 424 6841            


Um tilhögun ferða

Ekkert þátttökugjald er í ferðum. Uppihald er venjulega ókeypis.  Matseld er oft skipt á þátttakendur og oftast er gist í húsum.

Þátttakendur þurfa að hafa með sér: vinnuföt, vinnuhanska, regnföt, stuttbuxur, sundföt, hitabrúsa, svefnpoka, vasasöngbók og fullt fang af vinnugleði.
Vinnuferð er blanda af vinnu, náttúruskoðun og félagsskap. Launin eru gleði, hreysti, fróðleikur og góð samviska.

 

Verkefni Sjá sumarið 2012

 

Rabbfundur á Lækjarbrekku sunnud. 6. maí kl. 15.

Kynning og umræður um dagskrá sumarsins. Margt í boði, mest stuttar ferðir innanlands.

M.a. kynntar hagstæðar og spennandi vinnuferðir til Bretlands fyrir fólk 55 ára og eldra.

Skráning hafin í ferðir sumarsins.

Kaffi og meðlæti til sölu.

 

Laugardagsgöngur.

Farnar voru hefðbundnar gönguferðir síðasta laugardag okt., nóv, febr. og mars kl. 11 frá Mjódd. Síðast laugard. 31. mars, en þá gengu 5 félagsmenn um Elliðadal og Víðidal.

Í sumar taka vinnuferðirnar við og má búast við að næsta laugardagsganga verði 27. okt.

 

Hekluskógar í Þjórsárdal

Sjá hefur unnið þar í nokkur skipti í samvinnu við Suðurlandsskóga. Hekluskógar úthlutuðu samtökunum í fyrra landsskika, á fallegum stað við Sandá, Dímon og Vegghamar, til að annast og njóta.

Farnar voru nokkrar ferðir í Þjórsárdal í fyrra, tvær nokkuð fjölmennar og að auki fóru Grétar og Vigfús nokkrar ferðir og gróðursettu birki og tíndu auk þess feikn af Birkifræi. Hluta af fræinu sáðu þeir strax sl. haust. Um páskana fóru þau Grétar, Vigfús, Sigríður Rut, Áki, Sveinn og Jóna, og sáðu því sem þá var eftir  (um 20 kg!) í hentugu veðri: vætu og roki. Einnig settir niður víðistiklingar sem Vigfús ræktaði sjálfur.

Í sumar munum við gróðursetja og auk þess skoða og fræðast um þetta fagra landsvæði og síðan safna aftur fræi í haust. Hægt er að gista í hjólhýsi hjá Grétari þar sem er pláss fyrir 5-6 í húsi og fleiri í tjöldum.

Samtökin fengu góðan styrk frá Landsbankanum til að standa straum að kostnaði við vinnu við Hekluskóga. Ætti því ekki að skorta neitt til að geta unnið drjúgt þar í sumar og eiga góðar stundir. Farið verður á einkabílum en safnast saman í bíla og greitt fyrir aksturskostnað. Umsjón fyrir Sjá: Grétar Einarsson sími 897 3136. 

Dagsetningar:

Páskar  5.-7. apríl: Fræsáning.

11.- 13. maí: Gróðursett og borið á.

24.-26. ágúst: Áburðar- og gróðursetning ásamt því að skoða umhverfið og spekúlera í hvar verði sáð og gróðursett.

 

 Fitjar í Skorradal

Unnið í samvinnu við Huldu Guðmundsdóttur á Fitjum (s.893 2789). Aðalverkefnið er að stöðva framrás lúpínu í friðaðan birkiskóg sunnan við Skorradalsvatn á móts við eyðibæinn Vatnsenda. Önnur verkefni að snyrta til við gamla brunninn í Vatnskoti. Huggulegur kvöldverður í boði Huldu og gist í svefnpokaplássi á hennar vegum. Hafa skal meðferðis svefnpoka auk góðra vettlinga og vinnufatnaðar.

Unnið í samvinnu við Huldu Guðmundsdóttur á Fitjum (s.893 2789). Umsjón fyrir Sjá: Sigríður Rut Skúladóttir, sími 846 2136 og Þorvaldur Örn Árnason í síma 895 6841.

Farin verður ein helgarferð í sumar, 16.-17. júní og þjóðhátíðardeginum varið þar. Gist í svefnpokaplássi.

 

Akranes – samstarf við skógræktarfélagið

Í fyrra var unnið eina kvöldstund við grisjun og snyrtingu trjáa í Slögunni undir Akrafjalli í samvinnu við Skógræktarfélag Akraness. Kaffiveitingar á staðnum. Umsjón fyrir Sjá: Grétar Einarsson sími 897 3136. Dagsetning: Fimmtud. 7. júní.

 

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum

Umsjón fyrir Sjá: Sigrún Helgadóttir s.661 7299 og Þorvaldur Örn Árnason s.895 6841.

Fyrst verða skoðunarferðir til að negla verkefni í samvinnu við Þjóðgarðinn.

Síðan nokkrar vinnuferðir snemmsumars til áframhaldandi rannsókna og vinnu við ákveðnar leiðir. Dagsettar ferðir: Laugardagana 19. og 26. maí og helgina 22. – 24. júní.

Að auki verða kvöldferðir til til Þingvalla til að kanna leiðir og undirbúa verk. Verða kynntar í tölvupósti með stuttum fyrirvara.

 

 Alviðra

Njótum samveru í húsinu, ráðum okkar ráðum og vinnum einhver verk í umhverfinu í samvinnu við Landvernd, t.d. að halda áfram með göngustíginn í Öndverðarnesi sem við skoðuðum og lagfærðum lítið eitt um afmælishelgina sl. haust.

Vogar

Kvöldstund 24. maí: að stöðva framrás Lúpínu á Vogastapa, framhald af verkefni í fyrra.

Kvöldstund 30. maí: að stöðva framrás lúpínu sunnan við Vogavegamót.

Umsjón: Þorvaldur Örn s. 895 6841

Oddafell

Meta hvort og hvernig hægt sé að laga hluta af gönguslóð yfir úfið hraun við Oddafell á leiðinni að Keili. Kvöldferð Umsjón: Þorvaldur Örn s. 895 6841

 

Dagsetningar

Lau. 31. mars kl. 11: Laugardagsganga um Elliðaárdal og Víðidal.

Páskar 5. – 7. apríl: Þjórsárdalur, sáning birkifræs.

Lau. 21. apríl: Skoðunar- og undirbúningsferð á Þingvöll. Mæta í Mjódd kl. 10.

Sun. 6. maí: Almennur rabbfundur um verkefni sumarsins á Lækjarbrekku kl. 15.

11.- 13. maí: Gróðursetningarhelgi í Þjórsárdal. Hafa samband við Grétar í síma 897 3136.

Lau. 19. maí: Snyrting göngustíga og tína ungar furur á Þingvöllum. Mæting í Mjódd kl. 10.

Fim. 24. maí. Lúpína á Vogastapa. Mæting í Voga kl. 19. Hafið samband við Þorvald í s. 895 6841.

lau. 26 maí: Snyrting göngustíga og tína ungar furur á Þingvöllum. 

Mið. 30. maí. Lúpína við Vogaafleggjara. Mæta þar kl. 19. Þorvaldur s. 895 6841.

Fim. 7. júní: Kvöldstund á Akranesi. Lagt af stað úr Mjódd kl. 19. Grétar s. 897 3136.

16.-17. júní: Þjóðhátíðarferð á Fitjar í Skorradal. Sirrý s. 846 2136.

22.-24. júní: Tjaldferð á Þingvelli, vinna við göngustíga. Einnig hægt að vinna staka daga.

Mið. 27. júní: Gönguleiðin að Keili skoðuð og metin. Mæta við skiltið Keilir við Reykjanesbraut kl. 19. Þorvaldur s. 895 6841.

Júlí og ágúst: Möguleiki á þátttöku í vinnu á vegum Umhverfisstofnunar í Þjóðgörðum, með erlendum sjálfboðaliðum. Nánar kynnt í tölvupósti. Upplýsingar gefur þorvaldur í s. 895 6841.

24.-26. ágúst: Þjórsárdalur, gróðursetning, náttúruskoðun og pælingar

15-16. sept.  Létt vinnuferð í Alviðru.

Að auki verða farnar nokkrar kvöldferðir á Þingvelli. Einnig frætínsluferð í Þjórsárdal í október. Verður tilkynnt á póstlista Sjá með nokkurra daga fyrirvara.