Fuglar 2011
Forsíða Fuglar 2011 "Gestir-ljósmyndarar" Fróðleiksskorn Aðstoð ! Leitarvél Nýr heimur á netinu Google spes Fuglar 2003-4 Fuglar 2005 Fuglar 2006 Fuglar 2007 Fuglar 2008 Fuglar 2009 Fuglar 2010

 


(sk)
Forsíða
Álftir 2011 (1)
Álftir 2011 (2)
Andfuglar 2011 (1)
Blanda 2011
Dúfur 2011
Spörfuglar 2011 (1)
Vaðfuglar 2011 (1)
Hrafninn 2011
Máffuglar fh. 2011
Býsvelgur 2011
Um býsvelginn

Myndir af ýmsum fuglum sem dvelja allt árið á Siglugirði, sem og þeirra sem heimsóttu Siglufjörð, fyrri hluta ársins 2011

Tenglar til vinstri

Athygliverðasta fugla heimsóknin var fuglinn býsvelgur, nánar um hann og myndir á tenglum til hliðar.

Álftirnar hafa lengi verið í uppáhaldi hjá mér, og því eru hér margar myndir (úrval mynda) sem ég hefi tekið.

Auk þess má finna hér myndir af ýmsum öðrum fuglum.

Ég hefi gaman af að skoða og fylgjast með hinu fjölbreytta fuglalífi innan Siglufjarðar, tekið af þeim ótaldar ljósmyndir, auk þess sem sjónauki minn hefur mikið verið notaður.

Ekki er ég glöggur fuglaþekkjari, og er stundum ekki viss um eða man ekki nöfn sumra. En ég hugga mig við það að þeir sem á annað borð opna síðu mína, þekkja eflaust flestir nöfn þeirra.

Þegar (1) eða (2) er aftan við á tenglahnöppum, þá táknar (1): Fuglamyndir teknar fystu 6 mánuði ársins. (2): Næstu 6 mánuði, júlí - desember.

Athugið. Á númeri ljósmyndanna sem sést ofan við hverja mynd, má sjá dagsetninguna:

Ártalið, mánuðinn, mánaðardag, heila tímann, mínútuna, sekúndu sem myndin er tekin, og (sk), svo þriggja tölustafa númer, þar á eftir.

Dæmi:  2011-04-03 14-13-07_(sk)_009    -----------   (sk) = upphafsstafir ljósmyndarans
 

Sett fyrst á netið vorið 2009 - Eigandi þessarar síður er Steingrímur Kristinsson Siglufirði GSM: 892-1569  + Netfangið mitt  sksiglo hjá simnet.is

tumblr tracker
x