Heim Fréttir Reiðkennsla Hrossarækt Tamningar Hross til sölu Myndir Hundarækt Stóðhestar Á dagskrá Sæmi og Líney Krækjur

 

Þessi síða var síðast uppfærð: 20.03.2011
 


 

20.03.11

Tarsan og Gikkur.........

Alma kláraði frumtamningaprófið í vikunni og hér eru tveir hestar til viðbótar, það eru þeir
Tarsan frá Tunguhálsi 2, jarpur undan Takt frá Tjarnalandi og Stjörnu frá Tunguhálsi 2 sem var Þróttardóttir
og Gikkur frá Tunguhálsi 2,brúnn undan Garp frá Auðsholtshjáleigu og Þotu frá Daufá.
Síðan á ég eftir að setja inn myndir af tveim í viðbót en það býður betri tíma :)

 
 

21.02.11

Stormur....

Alma Gulla Matthíasdóttir er hér í verknámi hjá okkur frá Hólum en hún byrjaði 5. janúar
á því að frumtemja 5 tryppi sem verða síðan tekin út um miðjan mars, og þá taka við þjálfunarhestar.
Hesturinn sem er hér á myndinni er hann Stormur frá Tunguhálsi 2 undan Hélu frá Tungufelli og
Storm frá Leirulæk, kemur hann vel út og ekki skemmir nú liturinn.
Fleiri myndir eru væntanlegar af Ölmu og hennar verknámstryppum.






20.02.11

Betra seint en aldrei......

Ég held að það sé tími til kominn að fara að gera eitthvað hér !!
Við fórum í það um jólin að breyta aðeins í hesthúsinu og bættum við 10 eins hesta stíum,
og erum við þá komin með 40 hesta hús og eru stóðhestarnir ánægðir með nýju villurnar sínar.


 





20.10.10

Jæja..........

Það mætti halda að maður hafi verið haldin ritstíflu á háu stigi síðan í júlí, en nú er maður
að komast í gang aftur... vonandi :)
Við byrjuðum að frumtemja í september og gengur það mjög vel og erum við með mjög efnileg tryppi
undan hinum og þessum stóðhestum m.a undan Gamm frá Steinnesi, Degi frá Strandarhöfða,
Kolfinn frá Kjarnholtum, Storm frá Leirulæk, Mætti frá Torfunesi, Glym frá Ágerði, Eldjárn frá Tjaldhólum,
Tígul frá Gýgjarhóli, Samber frá Ásbrú, Kormák frá Flugumýri, Mola frá Skriðu o.fl. og set ég kannski
myndir af þeim einhverjum við tækifæri.

Það voru gleðifréttir þegar hún Birta frá Tunguhálsi 2 fór í 1. verðlaun á Gaddastaðaflötum í ágúst,
og fékk m.a 9,0 fyrir skeið, 7,85 fyrir byggingu 8,14 fyrir hæfileika og 8,02 í aðaleinkunn.
Þannig að móðirin Snilld er greynilega að gefa gott en tvö fyrstu afkvæmin eru komnar í 1. verðlaun :)
Hér eru svo myndir frá því að hún var sýnd sem að eigendur Birtu sendu mér :)

                      

Alma Gulla Matthíasdóttir og Þórey Elsa Valborgardóttir voru að vinna hjá okkur í sumar og
tóku þær m.a nokkur tryppi fyrir okkur og frumtömdu, en Alma Gulla er á 2.ári á Hólum og kemur
síðan aftur eftir áramót til okkar í verknám :)
Hérna er síðan ein mynd af skvísunum við tamningar einn daginn í sumar :)

                                                         




13.07.10

Nú eru allar folaldshryssur kastaðar :))


Þessi blessaða hestapesti ætlar að vera lífseig en hún er búin að herja á flest öll hrossin
ef ekki öll og mörg tvisvar sinnum.. allar folaldsmerarnar hafa verið með þetta og köstuðu
sumar hóstandi. Tign kastaði t.d fyrir tímann og var bara komin glær vökvi í spenana á henni
og fékk hann því enga mjólk og þurfti að vera á pela í nokkra daga, en sá stutti gafst ekki upp,
heldur saug Mömmu sína í tíma og ótíma þangað til að það koma mjólk..loksins !!!
Atlas fæddist með þvílíka hálsbólgu og er ennþá að berjast við pestina eftir næstum mánaðartíma,
en er vonandi að koma til :)
Þessi folöld hefðu pottþétt drepist ef við værum ekki með hryssurnar hérna við eldhúsgluggann.





Tign frá Tunguhálsi 2 kastaði sínu fyrsta folaldi þann 30 júní, og kom brúnn hestur
sem hefur hlotið nafnið Suðri :)
Tign fór síðan undir Roða frá Garði sem gerði það gott á kynbótasýningunni á
Vindheimamelum um daginn.

 



27 júní kastaði síðan Þota frá Daufá brúnum hesti undan Aski frá Tunguhálsi 2
mjöög hálsfallegum og er Askur greynilega að gefa flottan háls.. en þessi hefur
hlotið nafnið Askasleikir :D og var hann skírður stuttu áður en hann fæddist.
Þota er nú farin í dalina undir Þyt frá Neðra-Seli.





Sunna frá Reykjum kastaði 25 júní  jarpri hryssu undan Storm frá Leirulæk, en Sunna er í eigu
Anítu M. Aradóttir.
Sunna fór síðan undir Hvítserk frá Sauðárkróki.




09.07.10

Fengsæl og Nafna köstuðu báðar sömu nóttina eða 20 júní,
Fengsæl kom með rauðtvístjörnótta hryssu undan Glóðafeyki frá Halakoti og fékk hún nafnið Fjóla.
og Nafna kom með brúna hryssu undan Þey frá Bringu og heitir hún Náma.
Fengsæl fór síðan undir Gamm frá Steinnesi og Nafna fór undir Kunningja frá Varmalæk.







09.07.10

Pólstjarna og Skvetta köstuðu 15 júní, hjá Pólstjörnu kom brúnn hestur undan Huginn frá Haga
og hefur hann verið skírður Hrappur, og hjá Skvettu kom brún hryssa undan Aski frá Tunguhálsi 2
og hefur hún hlotið nafnið Sjöfn.
Fema kastaði síðan daginn eftir eða 16 júní og þar kom brún hryssa undan Þorra frá Þúfu
og heitir hún Freyja.
Héla kastaði 17 Júní og koma þar móvindóttur hestur undan Aski frá Tunguhálsi 2 og
hefur hann hlotið nafnið Atlas.
Þessar hryssur eru síðan allar farnar undir hesta en Pólstjarna fór undir Alvar frá Brautarholti.
Skvetta fór undir Smekk frá Högnastöðum.
Fema fór undir Svein Hervar frá Þúfu.
Hélu var haldið undir Baug frá Tunguhálsi 2.
 


Hrappur                      Sjöfn                              Freyja                              Atlas




12.06.10


Folaldshryssurnar eru voða rólegar í því að kasta og eru bara komin 3 folöld.

Venus kastaði 26 mai brúnum hesti undan Fjarka frá Breiðholti og vonuðumst við nú við
einhverju skrautlegu á litinn en nei nei :)
Síðan er hún Snilld köstuð, þar kom rauðstjörnótt hryssa undan Glóðafeyki frá Halakoti :)


 






24.05.10

Jeiiiiiiiii fyrsta folaldið kom í morgun !!!




Vaka frá Reykjarhóli kastaði í morgun bleikálóttri hryssu með stjörnu, faðir Meyvant frá Feti.
Vaka er sameign Sæma og Hjálmars Björns Guðmundssonar en hann hélt henni í fyrra.
Til hamingju með hryssuna Hjálmar !! :D








11.05.10

Loksins kemur smá frétt !!

Sýningin Tekið til kostanna var í Reiðhöllinni á Svaðastöðum í apríl og tók Líney þátt í tveimur atriðum.
Hún var með Þyt frá Húsavík í atriði með Barböru Wenzl og Dal frá Háleggstöðum sem að hét
¨Prúðbúnar dömur¨ :) og gékk það atriði mjög vel.
Síðan var hún með Þernu frá Miðsitju í alhliðahrossum og stóð hún sig eins og alltaf vel :)
Nú er í gangi hjá okkur þessi blessaða hestapest og veit maður ekkert hve lengi hún á eftir að vera,
en vonandi líður þetta fljótt hjá.
Líney ætlar að bregða sér til þýskalands að kenna yfir helgina og Sæmi ber áburð á túnin
eins og enginn sé morgundagurinn :)
Hér fyrir neðan eru síðan myndir af atriðinu Prúðbúnar dömur :)










15.04.10

Þetta er hún Hekla frá Tunguhálsi 2 undan Arði frá Brautarholti og Hélu frá Tungufelli.
Sigurlína kom í heimsókn í mars og tók þesar myndir af henni.
Hekla verður 5.vetra í vor og er mjög skemmtileg og hágeng hryssa, og svo skemmir nú ekki liturinn :)



   





06.03.10

Jæja þá er töltið í KS deildinni búið og var ég bara ánægð með hvernig gékk þó að við Þerna færum ekki
í úrslit. En við fengum einkunn upp á 6.57.
Sigurlína tók líka þessar myndir :)

 




03.03.10

KS deildin byrjaði á fjórgangi 17 febrúar. Líney var með Þyt frá Húsavík og gékk það alveg ljómandi vel :)
Einkunn úr forkeppni var 6.73 og var níunda inn í úrslit, endaði í því sæti með einkunina 6.80.
Síðan er það töltið í kvöld og þar er Líney með hana Þernu frá Miðsitju og vonandi á það eftir að ganga vel.
Myndirnar tók hún Sigurlína Erla frænka :)






 

11.02.10

Vaðall frá Íbishóli hefur verið seldur og kaupandinn af honum er Bergþór Eggertsson á Lotushof
í Þýskalandi og óskum við honum til hamingju með þennan mikla höfðingja !!!
Það er mikil eftirsjá í svona hesti og skrítið að koma inn í hesthúsið á morgnana og sjá hann ekki í stíunni
sinni, en svona er þessi hestabissnes...
Hérna er heimasíðan hjá Begga  www.lotushof.de    

                                      
 
                                        




03.02.10

Jæja þá eru smá fréttir úr hesthúsinu, nóg er að gera hjá okkur og erum við einnig með 3 pláss hjá Bjössa
og Magneu útí Hrímnishöll, sem er mjög góð tilbreyting bæði fyrir menn og hesta :)
Hrossin sem við erum með í þjálfun eru meðal annars undan, Glampa frá Vatnsleysu, Tígli frá Gýgjarhóli,
Huginn frá Haga, Feng frá Sauðárkróki, Atgeir frá Tókastöðum, Krafti frá Bringu, Ása Geir frá Akureyri,
Sólon frá Hóli, Gusti frá Hóli, Hágang frá Narfastöðum, Ypsilon frá Holtsmúla, Gram frá Kópavogi,
Parker frá Sólheimum,Tangó frá Torfunesi, Tindi frá Tunguhálsi 2, Flygli frá V- Leirárgörðum,
Þyt frá Neðra Seli, Keili frá Miðsitju, Arði frá Brautarholti, Adam frá Ásmundarstöðum og Tindi frá Varmalæk.
Hérna er svo mynd af Nælu frá Tunguhálsi 2 sem er á fjórða undan Nöfnu frá Nesjum og
Tindi frá Tunguhálsi 2, mjög stór og falleg hryssa og mælist hún 143 á stöng :)





22.12.09

Við smöluðum folaldsmerunum heim í gær og Magga dýralæknir kom og sónaði nokkrar af þeim aftur,
örmerkti  folöldin og tók DNA. Ég mundi náttúrulega ekki eftir myndavélinni nema þegar ein hryssa var
eftir, en það var hún Þota Frá Daufá með hann Tappa sinn sem er undan heimsmeistaranum Tindi frá
Varmalæk.  Þess má geta að Þota er nú fylfull við honum Aski frá Tunguhálsi 2 :)
Hérna eru svo nokkrar myndir sem að Þórey Elsa smellti af okkur.








17.12.09

Við erum búin að fá smá fréttir frá Agnari Snorra af Aski frá Tunguhálsi 2,
Það gengur mjög vel með hann og stóðust væntingar til fulls og rúmlega það, sem er mjög gaman
fyrir okkur hér á Tunguhálsi 2 :)
Læt fylgja myndir af honum og Agnari á danskri grund og fer hann bara helvíti vel hjá honum :)
Heimasíðan hjá Agnari Snorra er www.staldgavnholt.dk







15.12.09

Ég (Líney) og Sæmi fórum í smá frí til Þýskalands í nóvember að heimsækja vini og kunningja,
en við bjuggum þar í nokkurn tíma fyrir nokkrum árum. Búgarðurinn sem við bjuggum á heitir
Gestüt Kreiswald, og gátum við náttúrulega ekki látið það kjurt að leggja á nokkra hesta og fara
í nokkra reiðtúra í þessu fallega umhverfi og eru reiðleiðirnar nú ekki af verri endanum :)
Hérna eru svo nokkrar myndir af búgarðinum.

 
  



06.12.09

Félagarnir Askur og Sæmi kveðjast :/



Askur frá Tunguhálsi 2 er seldur og farinn til Danmerkur og er hann kominn í þjálfun til Agnars Snorra.
Við óskum nýjum eigendum til hamingju með þennan mikla gæðing og við vonumst til að það eigi eftir
að koma annar svona ef ekki fleiri, því að Askur er fyrsta afkvæmið hennar Pólstjörnu frá Tunguhálsi 2.
Gaman verður að fylgjast með þeim félögum á Danskri grundu og ef ég þekki Ask rétt á hann ekki eftir að
láta sitt eftir liggja.


 
 

05.12.09

Ætli það sé ekki tími til komin að setja inn smá fréttir hérna :)

Í haust seldum við hana Birtu frá Tunguhálsi 2, Kraftsdóttir frá Bringu, og óskum við nýjum eigendum til hamingju með þessa frábæru hryssu.

 


09.10.09

Í sumar fórum við í stórskemmtilega hestaferð vestur í Vatnsdal, riðum fyrst upp Gilhagadal og upp í
Galtará og gistum þar eina nótt og riðum síðan niður í Vatnsdal til hennar Diddu vinkonu okkar á Bakka.
Hvíldum við hrossin þar í 2 nætur og riðum síðan til baka og niður í Fossa í Svartárdal, gistum þar
eina nótt og riðum síðan daginn eftir alla leið heim. Mjög skemmtileg ferð og við vorum mjög heppin með veður.
Við erum aldeilis ánægð með það að allar folaldsmerarnar okkar eru fengnar en hestarnir sem við notuðum
voru, Huginn frá Haga, Glóðafeykir frá Halakoti, Askur frá Tunguhálsi 2, Þeyr frá Bringu, Þorri frá Þúfu,
Fjarki frá Breiðholti og Stormur frá Leirulæk, þannig að maður bíður spenntur næsta vor :)
Vinnukonan okkar í sumar hún Ruth Vidvei hóf nám við Háskólan á Hólum á hrossabraut  og
Þórey Elsa Magnúsdóttir byrjaði að vinna hjá okkur.
Frumtamningarnar byrjuðu í september á fullu má segja... og verður fullt út úr hesthúsinu fram á næsta
sumar og sjáum við fram á mjög skemmtilegan vetur með húsið fullt af gæðingum:)))
Læt hér fylgja með nokkrar myndir úr hestaferðinni.

       



20.07.09

Jæja loksins er ég sest fyrir framan tölvuna og hef smá tíma til að setja inn fréttir.
Það er frá því að segja að við skunduðum á vel heppnað Fjórðungsmót á Kaldármelum, fórum með
7 hross, tvö í kynbótadóm, þau Tign og Ask og heppnaðist sýningin á þeim vél, hækkuðu bæði
og urðu í 4. sæti, Askur í 5.v flokknum og Tign í 7.v og eldri.
Líney fór með Vaðal frá Íbishóli og Þernu frá Miðsitju í A-flokk.
Við vorum einnig með ræktunarbússýningu og heppnaðist það mjög vél og fengum við Gumma og
Evu á Kirkjubæ að sýna hrossin með okkur og síðan var vinnukonan okkar líka hún Ruth Vidvei.

Hér koma nokkrar myndir af mótinu.


Askur og Sæmi

Tign og Sæmi

Hekla og Ruth                Birta og Eva                Baugur og Líney           Tign og Gummi

.........................................................................................................................................................


04.06.09


 

Folöldin halda áfram að koma í heiminn sem betur fer, þann 25. mai kastaði Snilld  brúnum hesti
undan Blæ frá Hesti.
Í nótt kom svo tvístjörnóttur hestur undan Vöku og Penna frá Glæsibæ en hvort hann verður móbrúnn,
mósóttur eða glóbrúnn er ekki alveg á hreinu en hann er mjög ljós.


Byr undan Snilld


..........................................................................................................................................................


03.06.09

Jæja þá er kynbótasýningin á Sauðárkróki afstaðin, við vorum þar með nokkur hross og gékk það bara vél.
Tvö hross fóru í 1. verðlaun og fengu farseðil á Fjórðungsmót Vesturlands.
Askur frá Tunguhálsi 2 5.v stóðhestur fékk 8,0 fyrir sköpulag 8,38 fyrir hæfileika og 8,23 út, þar af
8,5 fyrir tölt, brokk og skeið og 9 fyrir geðslag :-)Flottur.
Tign frá Tunguhálsi 2 8,v fékk 7,85 fyrir sköpulag 8,26 fyrir hæfileika og 8,10 út, þar af 9 fyrir tölt og
fegurð í reið og 9,5 fyrir brokk :-) ekkert smá flott.
Svo voru það skvísurnar Drottning frá Tunguhálsi 2 6,v fékk 7,91 fyrir sköpulag og 7,87 fyrir hæfileika
og 7,88 út þar af 8,5 fyrir tölt, brokk,stökk og vilja og geðslag, hún er undan henni Brönu frá Tunguhálsi 2
og Stjarna frá Dalsmynni, ótrúlegt að foreldrar hennar eru bæði með 9 og 9,5 fyrir skeið en hún
er skeiðlaus,ennþá:-)
Hekla frá Tunguhálsi 2 4,v fékk 7,78 fyrir sköpulag 7,57 fyrir hæfileika og 7,65 út, þar af 8 fyrir tölt,brokk,
vilja og geðslag og 8,5 fyrir fegurð í reið. Hún er undan Hélu frá Tungufelli og Arði frá Brautarholti.
Síðan verð ég að sýna ykkur hann Þey frá Bringu en hann er 5.v stóðhestur undan Sölku frá Kvíabekk og
Víking frá Voðmúlastöðum hann fékk fyrir sköpulag 7,56 og 7,90 fyrir hæfileika og 7,76 út, þar af 8,5 fyrir
tölt,stökk vilja og fegurð í reið, og 8 fyrir brokk. Þetta er bráðefnilegur hestur með flottar gangtegundir,
og ég trúi nú ekki öðru en að hann eigi eftir að hækka fyrir sköpulag eins og svo margir hestar eru að gera,
því hann er nú ekki eins ljótur eins og sköpulagseinkunn hans gefur til kynna :-)
Hérna eru svo nokkrar myndir af þessum hrossum frá því á sýningunni.


Askur


Tign

 
Hekla


Drottning

 
Þeyr
 


.........................................................................................................................................................


23.05.09

21. mai keyrðum við Sæmi með Fengsæl frá Tunguhálsi 2 suður í Úlfljótsvatn í húsnotkun undir Klett frá Hvammi,sama dag kastaði Venus frá Frostastöðum  jarpstjörnóttum hesti og er hann undan Baug frá Tunguhálsi 2,
Sæmi fékk að skíra hann og fékk hann nafnið Brandur..........





.........................................................................................................................................................

16.05.09

Jæja nú eru fædd 4 folöld í viðbót við hana Kosningu,
Stjörnunótt kastaði brúnni hryssu 12 mai undan Adam frá Ásmundarstöðum og fékk hún nafnið Stilling.
Fengsæl kastaði einnig 12 mai og þar kom jarpur hestur undan Aðli frá Nýjabæ
og fékk hann
nafnið Alvar.
Nafna kastaði síðan daginn eftir eða 13 mai og þar kom brúnn hestur undan Adam frá Ásmundarstöðum
óg fékk hann nafnið Amor.
Fema kastaði í morgun 16 mai og þar kom brúnn hestur undan Ágústínusi frá Melaleiti og er hann búin að
fá nafnið Árvakur. Enn eigum við eftir að fá 6 folöld og kem ég með fréttir að því um leið og þær kasta.


Stilling.


Alvar.


Amor.


Árvakur.



..........................................................................................................................................................

09.05.09

 

Þetta er hún Hekla frá Tunguhálsi 2 fædd 2005 undan Arði frá Brautarholti og Hélu frá Tungufelli
sem að ég sagði frá hérna fyrr á síðunni en hún Héla kastaði um daginn móvindóttri hryssu undan Adam frá Ásmundarstöðum, en eins og þið sjáið er Hekla jarpvindótt og mjög efnilegt tryppi.

........................................................................................................................................................

04.05.09



Við kvöddum í gær vinnukraftinn okkar hana Melanie Borrosch, en hún er búin að vera hjá okkur
síðan í september. Alveg mögnuð stelpa:-)

...............................................................................................................................

28.04.09

Tekið til Kostanna.

Við vorum með 4 hross á sýningunni Tekið til Kostanna um síðustu helgi.
Vaðal frá Íbishóli, Þyt frá Húsavík, Þernu frá Miðsitju og Stóðhestinn Ask frá Tunguhálsi 2.
Vinnukonan okkar hún Melanie Borrosch tók fyrir okkur þessar myndir.

  
Askur frá Tunguhálsi 2

Vaðall frá Íbishóli

Þytur frá Húsavík

Þerna frá Miðsitju


.......................................................................................................................................................

28.04.09

Þöll frá Tunguhálsi 2



Þessi hryssa heitir Þöll frá Tunguhálsi 2 og er í eigu okkar Sæma og var þetta það fyrsta
í okkar ræktun, hún er á fimmta vetur undan Flygli frá Vestri-Leirárgörðum og Þotu frá Daufá
og er mjög efnileg,
Við vorum að kaupa okkur nýja myndavél og var þetta smá æfing sem tókst svona fínt.


.........................................................................................................................................................

28.04.09

Kosning komin í heiminn.


                                             
 
Jæja, það hefur ekki verið mikill tími hjá mér undanfarið að setja inn fréttir af okkur en nú er fyrsta folaldið komið í heiminn og kom það á kosningadaginn 25.04 er það nú ekki amalegt, móvindótt
hryssa undan Adam frá Ásmundarstöðum og henni Hélu frá Tungufelli og verður hún Héla 25.vetra
í vor og er þetta 16 afkvæmið hennar og hefur hún verið dugleg að færa okkur vindótt.



...............................................................................................................................................

04.02.09

 

Fallegt veður var í dag, 15 stiga frost og sólin skein þegar ég tók þessar myndir.
Þetta er Stóðhesturinn Baugur frá Tunguhálsi 2 en þið getið séð ætt hans nánar hér


...........................................................................................................................................

29.01.09
 



Fórum í rekstur í gær með hrossin,en það gerum við helst einu sinni í viku og Sæmi spænir á
fjörhólinu á eftir.

En það sem er helst að frétta er að ég (Líney) tók þátt í úrtöku fyrir KS deildina í gærkvöldi og
varð þar efst í samanlögðu,en ég var með Þyt frá Húsavík í fjórgangi með einkunina 6.17  í
3-4 sæti og var þetta frumraun hans og síðan var ég með Vaðal frá Íbishóli í fimmgangi
og stóð þar efst með einkunn upp á 6.57. Þannig að þá var markmiðinu náð að komast inn í
deildina.
.....................................................................................................................


11.01.09

 

Gáfum folaldsmerunum í dag þeirra fyrstu rúllu í vetur,
þær voru ekki alveg á því að koma í heyið og þurftum við að reka þær í það.
Þær eru í mjög góðu standi og spikfeitar.

..............................................................................................................................................

24.12.08

      

Við viljum óska viðskiptavinum,vinum og vandamönnum

Gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Með þökk fyrir árið sem er að líða.


..............................................................................................................................................

11.12.2008


Fórum í dag með Vaðal og Þyt í Hrímnishöllina til Bjössa og Magneu að prófa hlaupabrettið,
þeir tóku þessu mjög vél og voru fljótir að læra á þetta.

...............................................................................................................................................

03.12.2008

 

Jæja þá er hann Vaðall frá Íbishóli komin í hesthús, og var hann járnaður í dag.
Það verður gaman að fara að þjálfa hann á ný eftir smá pásu.

...............................................................................................................................................

22.11.2008

Loksins búin að setja inn ný hross til sölu.
...............................................................................................................................................
14.11.2008
      
Sölusýning:

Sölusýning verður í Hrímnishöllinni Varmalæk Skagafirði, sunnudaginn 16. nóv Kl:15:00.
Mörg spennandi hross hafa verið skráð. Sölulistinn er hér.
Allir velkomnir.

.............................................................................................................................................

12.10.2008

Fórum í síðustu viku að sprauta tryppin við ormum og lús, en þau eru í hagagöngu á Merkigili í Austurdal.
Í dag fórum við síðan að ná í 11 tryppi sem við erum að fara að frumtemja.
Hér eru nokkrar myndir frá því í dag.

               


......................................................................................................................

      
18.09.2008     

       Sölusýning!


 

  Varmalandi Skagafirði.
 

föstudaginn 26.sept. frá kl. 13-17 og sunnudaginn 28.sept. frá kl. 13.

Til sölu og sýnis verða hross frá tamningarstöðvunum Varmalandi og       

Tunguhálsi 2, hrossin eru á öllum stigum tamningar.                                  

Einnig verður til sýnis hópur efnilegra unghrossa frá Varmalandi og

Miðsitjuhestum EHF. ( Jói og Solla ).                

        Kaffi og kleinur í boði.

          Allir velkomnir.

 
 
 


01.08.2008

Sæmi og Tign frá Tunguhálsi 2 í léttri sveiflu á Vindheimamelum.

01.08.2008

Fórum að kíkja á graddana og voru þeir í stuði, en við erum með þá í hólfi á Mið-Grund í kafgrasi.

29.07.2008
Vaðall og Líney.                                         Fengsæl og Líney.
 
Líney fór á Íslandsmót í síðustu viku með Vaðal frá Íbishóli og Fengsæl frá Tunguhálsi 2,
Hún varð 9. í fimmgangi meistara á Fengsæl og 5. í slaktaumatölti á Vaðal, sem má teljast ágætur árangur.
Nú er Fengsæl komin í frí því að hún er fylfull við Aðal frá Nýjabæ.

14.07.2008
Líney og Fengsæl á Landsmóti á Hellu.
Við fórum á landsmót hestamanna á Hellu og upplifðum rok og sandstorm eins og það gerist best þarna fyrir sunnan, Líney keppti í A-flokk á Fengsæl frá Tunguhálsi 2, og gekk það bara bærilega.

13.07.2008
Kominn tími til að halda áfram með síðuna góðu...

14.07.2007
Líney og Vaðall á Dalvík í júlí 2007.
Til hamingju!  Íslandsmeistarar í fimmgangi opnum flokki - Líney á Vaðli frá Íbishóli.  Frábær árangur og "brekkan" samgladdist þeim á þessum frábæra degi.  Sjá myndasyrpu af þeim hér.

07.06.2007
Sæmi fer með Dropa frá Bjarnanesi I í úrtöku, fyrir FM07, á Hornafirði um helgina.

02.06.2007

Kynbótasýningu á Sauðárkróki lauk í dag.  Vorum með nokkur hross á sýningunni.

Maí - 2007
Farið á stað með vefinn.

 

Sæmundur og Líney - Tunguhálsi II - 560 Varmahlíð
ICELAND - sogl@simnet.is
Tel. + 354 453-8078 GSM: +354 849-3353 & +354 861-9829

Vefhönnun: Anna Guðrún Grétarsdóttir