|
|
|
|
Að Stóru-Mörk 3 er í dag rekið félagsbú af Ásgeiri Árnasyni og konu hans Rögnu Aðalbjörnsdóttur ásamt þeim Kristjáni Mikkelsen og konu hans Guðbjörgu Árnadóttur. Félagsbúið Stóru-Mörk III Rekið hefur verið félagsbú hér frá árinu 1980 en þá voru það Ásgeir og Árni faðir hans sem ráku það, en árið 1984 tóku Guðbjörg og Kristján við og hófu búskap með Ásgeiri. Búið hefur tekið miklum breytingum á þessum tíma. Um 1980 var ársframreiðsla á mjólk ca. 50 þúsund lítrar en í dag eru þeir orðnir 240 þúsund og stefnt að því að hækka þá tölu talsvert á næstunni með tilkomu nýss fjóss. Áður kom þó á móti að fjárbúið var heldur stærra fyrr á árum, en í dag erum við með 150 ærgilda fjárbú. Hér er hægt að Skoða myndir úr búskapnum Stærð jarðarinnar:
|