|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Forsíða ________________ Kársnesskóli
|
Björg Eiríksdóttir Björg hefur haldið fjölmenn námskeið um söguaðferðina á Íslandi og í Finnlandi. Einnig hefur hún kennt um söguaðferðina í Kennaraháskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og verið með kynningar og fræðsluerindi í ýmsum skólum á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. FIMMTA ALÞJÓÐLEGA SÖGUAÐFERÐARRÁÐSTEFNANSTORYLINE a KEY to EFFECTIVE LEARNING and TEACHING Ráðstefnan verður haldin 9.- 11. ágúst 2012 í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð 105 Reykjavík
Markmið ráðstefnunnar er að stuðla að samskiptum milli skólafólks og rannsóknaraðila víða að sem hafa áhuga á að skilja hvernig Söguaðferðin getur aukið sveigjanleika og fjölbreytni í námi sem og bætt námsárangur bæði hjá börnum og fullorðnum.
Fjórir aðalfyrirlesarar:
•Jón
Torfi Jónasson
•Jeffrey
Creswell USA
•Lea
Nakrst Slóvenia
•Pamela
Adamson UK
STYTTRI FYRIRLESTRAR/ MÁLSTOFUR OG VEGGSPJÖLD Ráðstefnugestir geta valið úr fjölbreyttum styttri fyrirlestrum, kynningum og málstofum um viðfangsefni Söguaðferðarinnar.
NÁMSKEIÐ Fimmtudaginn 9. ágúst 2012 verða haldin námskeið um Söguaðferðina í húsnæði Menntavísindasviðs.
Skráning og nánari upplýsingar má finna hér á heimasíðu ráðstefnunnar
Hagnýtar upplýsingar veita - Björg Eiríksdóttir og N Ý T T NÁMSKEIÐ!
Söguaðferðin er kennsluaðferð sem alltaf virkar, í ýmsum fögum, fyrir ýmsan aldur og við ýmsar aðstæður. Þegar unnið er með söguaðferðinni er lögð áhersla á:
•
Opnar spurningar
•
Fjölbreytt vinnubrögð
•
Samþættingu
•
Hópvinnu
•
Að nýta hugmyndaflugið
•
Að vekja áhuga
•
Ánægju
•
Foreldrasamstarf
Námskeið um söguaðferðina verður haldið í Kársnesskóla 11. ágúst 2011, frá kl. 9-16. Farið verður í hugmyndafræði sem aðferðin byggir á og munu þátttakendur síðan læra um söguaðferðina með því að vinna eitt söguaðferðarverkefni. Aðalkennari á námskeiðinu verður Björg Eiríksdóttir kennari.
Kostnaður er 10.000 kr á mann með kaffi og léttum hádegismat. Vinsamlegast tilkynnið um þátttöku í netfangið bjorgeiriks@simnet.is fyrir 10. júní næstkomandi.
Alþjóðleg söguaðferðarráðstefna á Íslandi
Fimmta alþjóðlega ráðstefnan um söguaðferðina verður á Íslandi
9. -11. ágúst 2012 í , Háskóla íslands menntavísindasviði.
Það er okkur mikill heiður að halda þessa ráðstefnu á Íslandi og vonum við
að kennarar sem hafa áhuga á söguaðferðinni fjölmenni og eigi saman góða og
fróðlega daga.
Nú er undirbúningur ráðstefnunnar hafinn. Margt er að athuga og hefur þess
vegna verið sett saman nefnd af áhugasömum kennurum sem mun hittast
reglulega og reyna að hugsa fyrir öllu varðandi þennan viðburð. Einnig munum
við seinna í vetur leita til allra sem vildu vera með innlegg á ráðstefnunni
um allt sem viðkemur söguaðferðinni.
Endilega hafið samband ef spurningar vakna.
Söguaðferðardagbók
Samþætting efst á baugi! 13. ágúst 2010 var haldin ráðstefnan Vinnum saman
þvert á greinar í Borgarholtsskóla á vegum Samtaka áhugafólks um
skólaþróun. Ráðstefnan var vel sótt og margir áhugaverðir fyrirlestrar voru
fluttir. Fjallað var um samþættingu frá ýmsum hliðum. Einnig fékk ég tækifæri í málstofu á ráðstefnunni til
að benda á hvernig samþætting er innbyggð í söguaðferðina. Margir komu á
málstofuna og sýndu mikinn áhuga á söguaðferðinni og sérkennum hennar og
möguleikum. Alþjóðleg ráðstefna um söguaðferðina 7.-9. ágúst 2009
Í sumar verður spennandi ráðstefna um söguaðferðina í
Portland í Oregon í Bandaríkjunum. 4th
International Storyline Conference "Creating Worlds, Constructing
Meaning" August
7-9, 2009 Skoðið
endilega heimasíðuna þar sem koma fram allar nánari upplýsingar. http://www.ceed.pdx.edu/storyline 6.5.2008 4.5.2008 4.5.2008 |
|
Björg Eiríksdóttir Kennari við Kársnesskóla Skólagerði 67, 200 Kópavogur sími: 555-2357 og GSM: 899-2357 netfang: |
|