|
Forsíða
________________ Kársnesskóli
|
Ráðstefna í Gautaborg 11. - 12. apríl
Kórsöngur við upphaf ráðstefnunnar. Öll erindi ráðstefnunnar tengdust sjálfbærri þróun og söguaðferðinni um leið. Fram komu margar mjög góðar hugmyndir um verkefni tengd þessu efni og var augljóst að enginn hörgull er á hugmyndum. Frummælendur voru allir mjög góðir og skemmtilega ólíkir. Steve Bell fjallaði um hvernig hægt er að fjalla um viðkvæm umfjöllunarefni með söguaðferðinni. John Holmberg fjallaði um sjálfbæra þróun og ástandið í heiminum á mjög sannfærandi hátt. Leif Strandberg fór á kostum þegar hann fjallaði um sálfræðikenningar Piaget og Vygotskij. Í lok ráðstefnunnar fjallaði Marie Jeanne McNaughton um „Educational – drama“ þannig að okkur langaði öll að hefjast handa strax. Auk frummælanda var boðið upp á mörg önnur áhugaverð erindi. Ég hlustaði t.d. á erindi Todd Stewart-Rinier frá Portland, Oregon um verkefnið „Cool Kid“ sem er um neyslu og auglýsingar. Margt var sláandi í þeirri umfjöllun og þarft að láta börnin ræða þau mál. Einnig erindi Pamela Adamson frá Falkirk í Skotlandi um „Eco friendly community“. Verkefnið er um að skipuleggja nýtt samfélag með sjálfbæra þróun í huga. Þar kom í ljós að af mörgu er að hyggja og því ótalmargt sem krakkarnir þurfa að ræða og velta fyrir sér. Sjálf hélt ég erindi um hvernig hægt er að fjalla um sjálfbæra þróun í því sem næst öllum verkefnum og hvernig það er mín sannfæring að umfjöllun um sjálfbæra þróun þarf að vera hluti af öllu sem við gerum til þess að reyna að breyta hugsunarhætti okkar smátt og smátt. Ráðstefnan var vel skipulögð í alla staði og ákaflega áhugaverð. Tólf Íslendingar voru á ráðstefnunni frá Kársnesskóla, Dalvíkurskóla, Glerárskóla og Kennaraháskóla Íslands og var gaman hvað við vorum mörg.
Íslendingar að spjalla í hléi.
|
|
Björg Eiríksdóttir Kennari við Kársnesskóla Skólagerði 67, 200 Kópavogur sími: 555-2357 og GSM: 899-2357 netfang: |
|