Tilraunir GEOMACK
Tilraunir Geomack á áhrifum tækja sem eyða áhrifum jarðgeisla sýna að blóðflögur hafa tilhnegingu til að safnast í klasa þegar líkaminn er undir áhrifum jarðsviðs (Geopathic Stress)Tækin, sem kallast Energizer hafa verið seld víða í Evrópu og er árangur af notkun þeirra merkilegur.
Enginn veit í raun hvað Geopathic Stress er en um það hafa verið ritaðar fjöldi bóka og margar vefsíður fjalla um þetta fyrirbæri. Það sem stendur uppúr gagnvart þessu fyrirbæri er að það virðist hafa mikil áhrif á heilsufar þeirra sem í slíkum sviðum dvelja.
Jarðgeisli eða Geopathic Stress staðbundið fyrirbæri og myndast oft eins og 1 - 3 metra breið lína á jörðinni. Það er einhverskonar geislun sem kemur lóðrétt upp úr jörðinni og myndar einskonar vegg. Veggurinn, eða sviðið fer í gegnum hús eins og ekker sé og virðist sem sprungur myndist gjarnan í veggjum þar sem geislinn fer í gegn.
Ekki hefur tekist að mæla fyrirbærið á vísindalegan hátt og er það mælt með spákvistum eða pendúl. Það er að margra mati ótrúverðug aðferð til mælinga en þeir sem hafa reynslu af þessu eru flestir þess fullvissir að fyrirbærið sé til og skynsamlegt sé að hafa varan á ef slík svið eru til staðar í vistarverum.
Myndirnar sýna blóðflögur manneskju sem dvalið hefur í Geopathic Stress svæði um tíma. Frumurnar hafa klasast og möguleiki þeirra til súrefnisupptöku takmarkaður. Það getur m.a. orsakað þreytu og slen.Seinni myndin sýnir blóðflögur eftir að tæki af gerðinni Energizer var sett upp í vistarveru viðkomandi persónu. Blóðflögurnar hafa skilið sig hver frá annarri og skv. skýringum sérfræðinga er möguleiki á súrefnisupptöku frá lungum eðlileg og áhrif til myndunar þreytu mun minni.
Homopatar geta mælt hvort áhrif jarðgeisla sé í líkama og hafa slíka áhrif verið mæld með Vega tester, Mora tækjum og Bicom. Þetta eru tæki sem homopatar og meðferðaraðilar í óhefðbundnum lækningaaðferðum beita gjarnan.
Tilraunir hafa verið gerðar með Energizer tækin hér á landi og hefur árangur lofað góðu. Þar sem GS áhrifa gætir (jarðgeislar) er mikið stress og finnur fólk fyrir ýmisskonar óþægindum eins og svefntruflunum, streitu og spennu, hjartsláttaróþægindum og fleiru. Notkun tækjanna hefur bætt svefn og minnkað óróleika í húsum þar sem jarðgeislar hafa fundist.
Nánari lýsing á tilraun Geomack á ensku
Nánari upplýsingar um tækin
Nánari upplýsingar
Heimasíða VGV